Dagblaðið - 12.11.1975, Blaðsíða 11
DagblaðiO. Miðvikudagur 12. nóvember 1975.
11
Hvert renno
peningarnir?
X-9 skrifar:
„Eftir að hafa beðið eftir
svari við grein minni i Dagblað-
inu þann 2. október um skipu-
lagsleysi i Kanadaferðum fer
þögn Þjóðræknifélagsins að
verða nokkuð löng. Þvi stenzt ég
ekki mátið lengur.
Þvi ætla ég að leggja eina við-
bótarspurningu fram og beini
henni til Þjóðræknifélags ís-
lands. Fimmtudaginn 16. októ-
ber var okkur, sem fórum til
Kanada i sumar, boðið á
myndakvöld á Hótel Sögu. Er
þangað kom rak mig i roga-
stanz, þvi þar átti hver að
greiða 200 krónur.
Ekki að ég sæi eftir þessum
200krónum — en mig langaði að
vita fyrir hvað ég var að greiða.
Fyrst var svarið — ég veit það
ekki. Siðan kom — hann sagði að
ætti að greiða þetta.
Min spurning er afskaplega
einföld: Hvert renna þessirpen-
ingar?”
Gefinn hefur veriö út nýr flokkur happdrættis-
skuldabréfa ríkissjóös, G flokkur, aö fjárhæö
300 milljónir króna. Skal fé því, sem inn kemur
fyrir sölu bréfanna, variö til varanlegrar
vegageröar í landinu.
Happdrættisskuldabréf ríkissjóös eru endur-
greidd aö 10 árum liðnum meö verðbótum i
hlutfalli viö hækkun framfærsluvísitölu.
Auk þess gildir hvert bréf sem happdrættismiði,
sem aldrei þarf aö endurnýja í 10 ár.
Á hverju ári verður dregið um 942 vinninga aö
Happdrættisskuldabréf
fjárhæö 30 milljónir króna, og verður í fyrsta
skipti dregið 23. janúar n.k.
Vinningar á hverju ári skiptast sem hér segir:
6 vinningar á kr. 1.000.000 = kr. 6.000.000
6 vinningar á kr. 500.000 = kr. 3.000.000
130 vinningar á kr. 100.000 = kr. 13.000.000
800 vinningar á kr. 10.000 = kr. 8.000.000
Happdrættisskuldabréfin eru framtalsfrjáls og
vinningar, sem á þau falla,skattfrjálsir.
eru til sölu nú
Þau fást í bönkum og sparisjóðum um land allt og kosta 2000 krónur.
W) SEÐLABANKI ISLANDS
'OlXílfP
Slœm systkin
7877-8083 skrifar:
„Ég veit um systkin svo sæl og
góð,
og syngja vil um þau litinn óð....
Ég get þvi miður ekki tekið
undir með skáldinu, að ég vilji
syngja viðþau systkin litinn óð,
þau systkin sem ég ætla að gera
að umtalsefni i þessari stuttu
hugvekju.
Systkin þessi eru iðin við iðju
sina, leiðast innilega eins og
systkina er háttur, en þau eru
ekki góð, þvi fer viðs fjarri, en
ef til vill eru þau sæl við iðju
sina.
Systkin þessi eru rógurinn og
öfundin. Þau styðja hvort annað
vel og dyggilega, enda næra þau
hvort annað og geta hvorugt án
hins verið.
öfundin er upphaf hins illa i
fari manna og rógurinn fylgir
henni fast á eftir, og áður en
varir hefur þetta illþýði eitrað
þannig frá sér að vænstu menn
og konur leggja hatur hvert á
annað.
f ibúðablokk i kóngsins
Kaupinhafn kom það fyrir,
fyrirsvo sem tveimur árum, að
einn ibúanna i blokkinni fann sig
til þess knúinn að kæra einn ná-
búa sinn fyrir dönsku skattalög-
reglunni. Astæðan: þessi til-
tekni maður sást koma (of) oft
labbandi heim til sin með
nokkrar öiflöskur sem ákær-
anda fannst ekki geta samrýmzt
þeim tekjum er hann áleit hinn
hafa.
Ég sagði kunningjum minum
þessa sögu og gat þess jafn-
framt að ég vonaðist til þess að
við Islendingar sykkjum aldrei
það djúpt að við færum af
eintómri öfund að kæra hverjir
aðra.
Þvi miður hefur ósk min ekki
rætzt þvi við Islendingar höfum
nú tekið þennan ljóta sið frá
Dönum og erum þar með engir
eftirbátar þeirra. Landið okkar
er i þessum efnum nú orðið að
iögregluríkiþar sem fólk er far-
ið að njósna hvert um annað.
1 einum útgerðarbæ hér á
landi hafa menn tekið höndum
saman og óskað að tiltekinn
einstaklingur verði tekinn i
bakarfið, sem svo er kallað,
framtal hans rannsakað vegna
utanlandsferða og annars sem
grunsemdir vekur hjá ibúum
plássins. Þvilikt og annað eins.
öfundiner hér augljóslega að
verki, studd af bróðurnum
róginum, mönnum er ekki orðið
óhætt að veita sér eitt eða annað
án þess að það veki grunsemd
nábúanna, allt eftir þvi hve
öfundin rekur menn áfram.
Hvað er nú orðið af freisinu
dýrmæta sem við íslendingar
þurfum svo mjög að berjast
fyrir, er þetta það sem koma
skal? Ég trúi þvi ekki.
Látum ekki þessi systkin
spúa öfundog rógiá meðal okk-
ar íslendinga, þvi það verður
enginn ríkari, þótt annar verðí
fátækari.
Mér datt þetta (svona) i hug.”
7877-8083
Raddir
lesenda
ER HANN ENSKUR EÐA ISLENZKUR?
Saumaklúbburinn Þögnin spyr:
„Hvað heitir söngvarinn sem
syngur „She broke my heart” á
plötu stuðmanna — Sumar i
Sýrlandi?
Saumaklúbburinn Þögnin,
sem aldrei talar, aðeins hlustar,
var að hlýða á umrædda plötu
og kom þá upp ágreiningur —
(Þögnin talar aldrei, innsk. DB)
— hvort söngvarinn væri is-
lenzkur eður ei.
Þar sem stór upphæð er i húfi
væntum við áreiðanlegra upp-
lýsinga.”
Dagblaðið aflaði sér áreiðan-
legra upplýsinga og kom þá i
ljós að umræddur söngvari er
enskur og heitir Long John
Baldry. Árið 1967 átti hann mjög
vinsælt lag, sem heitir „Let the
Heartache begin”, sem DB
efast ekki um að þið i Þögninni
munið eftir.
Long Jolin Baldry (i miðið) með Riverband á hljómleikum i Festi i
sumar.
Vegur ttt
verötryggingar
m