Dagblaðið - 12.11.1975, Blaðsíða 5

Dagblaðið - 12.11.1975, Blaðsíða 5
Dagblaðið. Miðvikudagur 12. nóvember 1975. 5 f) <§ Utvarp Sjónvarp Sjónvarp í kvöld kl. 21.20: McCloud í eltingaleik í stórborginni Kl. 21:20 i kvöld er bandarlski sakamálaflokkurinn McCloud á dagskrá sjónvarpsins, þýðandi er Kristmann Eiðsson. Efni þáttarins er á þá leið að McCloud er á eftirlitsferð um borgina með hörundsdökkum starfsbróður sinum, þegar þeir eru kallaðir á vettvang þar sem innbrotsþjófur hafði skotið á lögreglumann. Lögreglumaðurinn reynist ekki mikið særður, en innbrots- þjófurinn komst undan. Mc- Cloud er sannfærður um að hér sé ekki illvirki á ferð og lætur hann þessa • skoðun i ljós við fréttamenn. Yfirmanni hans þykir miður hve McCloud er orðinn mikill stjarna, hann er i forsiðufrétt- um blaðanna dag eftir dag, og ákveður að lækka i honum rost- ann. McCloud er fengið það verk- efni að finna hross sem stolið hafði verið frá lögreglumanni á 5. tröð og telur yfirmaðurinn að þetta starf sé mjög við hæfi Mc- Clouds sem er ekki sérlega ánægður með þetta fyrirkomu- lag. Hann neyðist samt til þess að leita að hrossinu um leið og hann hefur augun opin fyrir inn- brotsþjófnum. Þá er tilkynnt um innbrot i aðra lyfjaverzlun og er sami maður að verki. McCloud og fé- lagi hans fara á vettvang og elta þjófinn alla leið upp á húsþak þar sem þjófurinn afvopnar fé- laga McCloud snarlega og skýt- ur siðan á McCloud. Hann særist þó ekki alvarlega og er nú enn sannfærðari en áður að hér sé um að ræða einhvern sem annaðhvort þurfi nauðsynlega á lyfjum að halda eða sé eitur- lyfjaneytandi og er enn stað- fastari i að reyna að leysa málið. 1 kynningu sl. miðvikudag sagði að Dennis Weaver hefði leikið Festus i Gunsmoke, en þegar ég sá þáttinn kom i ljós að þetta var misskilningur, hann lék aðstoðarlögreglumanninn i Gunsmoke. —A.Bj. [ dag kl. 18 verður á dagskrá sjónvarpsins bandariski teiknimynda- lllokkurinn um björninn Jóka og félaga hans. — Myndir úr þessum Hokki voru sýndar i sjónvarpinui fyrravetur.Þýðandier Jón Skapta- Q Utvarp 14.30 Miðdegissagan: „Fingramál” eftir Joanne Greenberg. Bryndis Vig- lundsdóttir les þýðingu sina (2). 15.00 Miðdegistónleikar. Styvesant-kvartettinn leik- ur Chaconnu fyrir strengja- sveit eftir Henry Purcell og Kvartett i D-dúr eftir Karl Ditters von Dittersdorf. Pierre Pierlot og kammer- sveitin Antiqua Musica leika Tvo óbókonserta op. 7 eftir Tommaso Albinoni nr. 6 i D-dúr og nr. 9 i F-dúr. Yehudi Menuhin stjórnar. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregnir). 16.20 Popphorn. 17.10 Útvarpssaga barnanna: „Tveggja daga ævintýri” eftir Gunnar M. Magnúss. Höfundur les (8). 17.30 Framburðarkennsla i dönsku og frönsku. 17.50 Tónleikar. Tilkynning- ar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. 19.35 Vinnumál. Þáttur um lög og rétt á vinnumarkaði. . Umsjónarmenn: Lögfræð- ingarnir Gunnar Eydal og Arnmundur Backman. 20.00 Kvöldvaka. a. Einsöng- ur. Sigurveig Hjaltested syngur islenzk lög, Ragnar Björnsson leikur undir. b. Þrir dagar á Gotlandi. Þór- oddur Guðmundsson flytur ferðaþátt, fyrri hluti. c. „Ófullnægja”, smásaga eftir Pétur Hraunfjörð Pét- ursson. Höfundur les. d. Þjóðtrú um manninn. Bald- ur Pálmason les frásögn Helga Gislasonar á Hrapps- stöðum I Vopnafirði. e. Um islenzka þjóðhætti. Árni Björnsson cand. mag. talar. f. Kórsöngur. Karlakórinn Fóstbræður syngur, Ragnar Björnsson stjórnar. 21.30 (Jtvarpssagan: 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. Kvöldsag- an: „Kjarval” eftir Thor Vilhjálmsson. Höfundur les (13). 22.40 Djassþáttur. Jón Múli Árnason kynnir. 23.25 Fréttir i stuttu máli. Dagskrárlok. d ^ Sjónvarp i> 18.00 Björninn Jóki. Nýr, bandariskur teiknimynda- flokkur. Þýðandi Jón Skaptason. 18.25 Kaplaskjól. Breskur myndaflokkur byggður á sögum eftir Monicu Dick- ens. Skuldin. Þýðandi Jó- hanna Jóhannsdóttir. 18.50 List og listsköpun. F'ræðslumyndaflokkur fyrir unglinga. 3. þáttur. Ljós og skuggar. Þýðandi Hallveig Thorlacius. Þulur Ingi Karl Jóhannesson. 19.15 Hlé 20. Fréttir og veður 20.30 Dagskrá og auglýsingar 20.40 Vaka. Dagskrá um bók- menntir og listir á liðandi stund. Umsjónarmaður Aðalsteinn Ingólfsson. 21.20 McCloud. Bandariskur sakamálamyndaflokkur. Aðalhlutverk Dennis Weav- er. Þýðandi Kristmann Eiðsson. 22.10 íþróttir. Umsjón Ómar Ragnarsson. Dagskrárlok óákveðin. Útvarp í kvöld kl. 19.35: Veikur í sumarfríi- orlofi eða bara frí? Vinnumál heitir þáttur sem er á dagskrá útvarpsins kl. 19:35 i kvöld. Umsjónarmenn eru Gunnar Eydal og Arnmundur Bachmann. í kynningarþætti útvarpsins sagði Gunnar m.a. um efni þáttarins: — I upphafi verða tekin fyrir nokkur grundvallaratriði i vinnulöggjöfinni en okkur hefur þótt nauðsynlegt að gera grein fyrir kjarasamningum sjálfum og mismuninum á kjarasamn- ingi sem stéttarfélagið gerir og svo á hinn bóginn á vinnusamn- ingum sem hver einstakur starfsmaður gerir þegar hann ræður sig I vinnu. Þá verður komið inn á hver sé réttur starfsmannssemveikist á meðan hann er I sumarfrii, hvort veikindatimabilið teljist til orlofs og hann eigi þvi veikindadagana inni. Tekið verður fyrir hvort heimilt sé að greiða laun með ávisun eins og tiðkað er i dag. Að lokum verður rætt við Kristján Thorlacius formann Bandalags starfsmanna rikis og bæja um kröfur opinberra starfsmanna um verkfallsrétt, lifeyrissjóðinn og ýmis ffeiri at- riði sem spunnizt hafa inn i um- ræðurnar. A.Bj. ERNA V INGÓLFSDÓTTÍI Sjónvarpið í kvöld kl. 20.40: Vaka Sýning Jóns Engilberts, Skjald- hamrar, Agnes Löve leikur ó píanó „Fyrst verður fjallað um hina stórmerku yfirlitssýningu Jóns Engilberts,” sagði umsjónar- maður „Vöku” er við forvitnuð- umst um þáttinn. Það er Ólafur Kvaran sem sér um þetta atriði. Sýningin stendur fram á 18. nóvember, svo nú fer hver að vera siðastur að sjá hana. Hjörleifur Sigurðsson talar um myndir þær er ekkja Þór- bergs Þórðarsonar, Margrét Jónsdóttir, gaf listasafni Alþýðusambands íslands. Þá kemur smáinnskot um Guten- bergsprentvélasýninguna á Kjarvalsstöðum. mann og Þorsteini Gunnarssyni I aðalhlutverkum. Leikstjóri er Jón Sigurbjörnsson. Sýnd verða stutt atriði úr leik- riti Jónasar Arnasonar, Skjald- hömrum, sem nú er verið að sýna i Iðnó með Helgu Bach- Agnes Löve spilar lag eftir Chopin en hún spilaði nýlega i fyrsta sinn með Sinfóniuhljóm- sveit Islands. Rætt er litillega við hana og siðast verða almennar fréttir um menning- armál. EVI Það verður meðal annars fjallað um sýningu Jóns Engilberts i Listasafni islands i þættinum Vöku" kvöld. /

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.