Dagblaðið - 12.11.1975, Page 13
Dagblaðið. Miðvikudagur 12. nóvember 1975.
Dagblaðið. Miðvikudagur 12. nóvember 1975.
13
r
[ Sjúkrabill þeysist um Lundúni og
Já, en vinur minn var
rotaður
|W
Polla er ekið á spitala
<g) King Fcatmet Syndicate. Inc . 1974 Woild nghu icterved
Yesturbœjarliðið
í Lundúnum féll!
— Newcastle sló QPR út úr deildarbikarnum i gœrkvöld i Lundúnum
og Doncaster úr fjórðu deildinni komst i fjórðu umferðina
Herberg Busse til hægri ásamt kunnum knattspyrnumanni— ungverska snillingnum Ferenc Puskas.
Hann á tvo fóstur-
syni í Dankersen!
„Biddu hann landa þinn um að aka
bilnum heim til min. Hérna eru hús-
lyklarnir, —þið fáið ykkur kók á með-
an þið blðið eftir mér,” sagði Herbert
Busse við Óiaf H. Jónsson um leið og
hann fékk honum lyklakippuna. Busse,
sem var að sinna einu af sinum mörgu
verkefnum sem rafvirki i Dankersen,
var ekkert að kanna það sérstaklega,
hvort Dagblaðsmaðurinn aðkomni
hefði ökuréttindi, — eða kynni nokkuð
á bil, áður en hann ftíl honum að aka
splunkunýjum fólksvagni, Golf — frú-
arbilnum, heim. Að hann var iandi
þeirra Ólafs og Axels, handknattleiks-
kappanna, var honum næg trygging.
Við Olafur fórum alveg að orðum
Busse, en máttum gæta þess að villast
ekki i „villunni” hans, einbýlishúsinu,
tveggja hæða ásamt risi. Byggingin
var mjög vönduð 1 alla staði, en mesta
athygli vöktu millihurðirnar, úr hömr-
uðu gleri og hreinlætisherbergin níu.
,,Ég keypti húsið fullsmíðað,” sagði
Busse, „og réð engu um innrétting-
una”, þegar Ólafur fór að glettast við
hann og spurði hvort maginn væri eitt-
hvað í ólagi og þvi vissara að hafa
snyrtiherbergi I grennd.
1 þessu tignarlega hvitmálaða húsi
fer vafalaust vel um fjölskyldu Busse,
— hann, eiginkonuna og dæturnar
tvær, báöar innan við fermingu. Ekki
fer siður vel um einkabilana þrjá í bil-
skúmum þegar illa viðrar, en hins
vegar verða bilarnir fjórir, sem Busse
notar vegna iðngreinar sinnar og raf-
tækjaverzlunarinnar sennilega að
standa úti allt árið. En Busse hefur
ekki fengið eignir sinar fyrirhafnar-
laust. Hann er á þönum allan daginn,
enda þrekskrokkur. Eftir vaxtarlag-
inu að dæma mætti ætla að hann væri
gamall hnefaleikari, eins og Max
Schmeling, svo samanrekinn er hann.
En Herbert Busse valdi sér aðra og
göfugri iþrótt, — knattspyrnuna og
iðkaði hana i nærri tvo áratugi og vei
þeim sem reyndi að ýta Busse harka-
lega frá sér. Hann hefur ekki haft er-
indi sem erfiði. Niðþungur sófinn, sem
Busse sótti handa ólafi H. I eitt húsa
sinna i Dankersen, sannfærði okkur
um krafta þessa sterkbyggða Þjóð-
verja. Hann lét sig ekki muna um að
halda einn undir annan endann á sóf-
anum, en tvo tslendinga þurfti á hinn
og dugði varla til.
Busse lætur sér mjög annt um fjöl-
skyldu sina, það leyndi sér ekki, en ut-
an hennar stendur Dankersenliðið
hjartahansnæst og ekki er ofmælt að i
þeim hópi hefur hann eignazt tvo fóst-
ursyni, þá Axel og Ólaf, sem hann hef-
ur nánast gengið i föðurstað þarna
Axel og Busse. Ljósmynd emm.
ytra. í einu og öllu gætir hann velferð-
ar þeirra. Við innkaup útvegar hann
afslátt og flýtir fyrir ýmiss konar af-
greiðslu ef um einhvern seinagang er
að ræða, svo eitthvað sé nefnt. Hann
leitaði færustu sérfræðinga vegna
meiösla Axels og lét lögfræðing, vin
sinn, vinna skýrslu um slysstaðinn,
þegar þeir félagarnir lentu i umferð-
aróhappinu, og svo má lengi telja.
Starfið i kringum Dankersen tekur
vitanlega sinn tima, en Herbert Busse
lætur það ekki bitna á vinnu sinni held-
ur styttir nætursvefninn. Það bezta við
Busse er, sögðu Axel og ólafur, að allt
stendur eins og stafur á bók, sem hann
lofar, og það fékk óheppinn fréttamað-
ur aö reyna. Myndavélin hafði fallið I
gólfið og minnst þriggja vikna bið á
viðgerð. Auðvitað var leitað til Busse.
„Hittið mig við aðaldyrnar á iþrótta-
höllinni fyrir leikinn i kvöld og allt
verður í lagi,”
Ekki var myndavél að sjá þegar viö
komum að dyrunum, en Busse beið.
Gleymt henni hugsuðum við og bezt að
minnast ekki á neitt. En Busse benti
okkur á gula tösku á ganginum.
„Myndavélin er i henni og þarna
stendur ljósmyndari til að leiðbeina
ykkur, — ef þið kunnið ekki á þessa
tegund.” Eftir að hafa notið aðstoðar
hjálparmannsins við filmuisetningu,
spurðum við Busse, hvort þyrfti miða
til að komast inn á leikinn. „Alles
klar,” sagði hann og benti okkur á-
fram og verðirnir i þrennum dyrum
bugtuðu sig um leið og við nálguðumst
og bentu okkur áfram.
Vegna starfs sins sem rafvirki og
verzlunareigandi, þekkir Busse fólk i
öllum stöðum og notar þann kunnings-
skap I þágu iþróttahreyfingarinnar og
ekki hvað sizt fyrir þá Ólaf og Axel.
Hann getur jafnvel stundum brugðið á
leik við þá, eins og þegar hann spurði
hvort heldur þeir vildu horf á nýrnaað-
gerð eða heiiauppskurð. Þeir höfnuðu
boðinu, ekki af þvi að þeir væru að
rengja Busse, heldur af hinu að kjark-
inn skorti.
Utan Dankersen á Herbert Busse
einnig marga góða og þekkta kunn-
ingja, sem hann hefur eignazt á ferð-
um sfnum um Evrópu, ekki slzt þegar
hann hefur farið að horfa á mestu við-
burði íþróttanna,eins og Olympiuleika
og heimsmeistarakeppni i knatt-
spyrnu. Meðal þeirra sem hann hefur
komizt i kynni við, eru þeir Puskas,
knattspyrnusnillingurinn frægi og
Herberger, þýzki þjálfarinn snjalli,
sem geröi Þjóðverja að heimsmeistur-
um árið 1954.
Samskipti okkar við Busse urðu
styttri en viðhöfðum ætlaö. Hann varð
fyrir þvi óhappiað detta á hnéð i verzl-
un sinni og meiðast það illa að sjúkra-
húsvist var óhjákvæmileg. Busse var
þvi fremur daufur i dálkinn, þegar
hann hringdi i I Axel og tjáði honum ó-
farir sinar. En eins og við þekktum
Busse, stafaði dapurleiki hans, ekki
kannski beint af vinnutapinu, — heldur
af hinu, að úr rúminu átti hann erfitt
með að rétta þeim Islendingunum
Ólafi og Axel hjálparhönd, ef með
þyrfti.
Malcolm MacDonald, hinn
sterki miðherji Newcastle, sem
nú keppir viö Stan Bowles, QPR,
um miðherjastöðuna i enska
landsliðinu, varö sigurvegari I
innbyröisviöureign þeirra á Loft-
us Road i Lundúnum I gær — og
Newcastle sló QPR út i deildabik-
arnum. óvænt og þó ekki. New-
Þeir skora
mörkin
Markahæstu leikmenn i ensku
knattspyrnunni eftir leikina á
laugardag voru:
1. deild
16 — Ted MacDougali, Norwich.
15 — Peter Noble, Burniey
12 — Alan Gowling, Newcastle
10 — Malcolm Macdonald, New-
castle, og Alan Taylor,
West Ham.
9 — Denis Tueart, Manch. City
2. deild
12 — Poul Cheesley, Bristol
City og D. Hales, Charlton.
10 — Mike Channon, Southampton
3. deild
10 — Fred Binney, Brighton, og
Ray Treacy, Preston
4. deild
16 — O’Callaghan, Doncaster.
15 — Ronnie Moore, Tranmere.
14 — John Ward, Lincoin.
castle sigraöi QPR 4—0 á sama
velli á slðasta leiktimabili — og
þaö einnig i 3. umferö deildabik-
arsins. Næstum á sama degi fyrir
ári.
Þeir Burns, MacDonald og
Nulty skoruðu mörk Newcastle i
gær, en Leech fyrir QPR. úrslit
urðu annars þessi:
Deiidabikarinn
Burnley—Leicester
Doncaster—Hull
Everton—Notts Co.
Middlesbro—Peterbro
QPR—Newcastle
Grimsby -
3. deild
-Wrexham
Mest kom á óvart sigur 4.
deildarliösins Doncaster i viður-
eign Yorkshireliðanna — og liðið
kemst nú i hattinn með stórliðum,
þegar dregið verður i 4. umferð.
Burnley átti ekki i erfiðleikum
íþróttir
með Leicester á heimavelli — en
tapaði sem kunnugt er i Leicester
á laugardag 11. deild. Þeir Morg-
an og Hankin skoruðu mörk
Burnley i gær — og Middlesbro
fór létt með Peterbro úr 3. deild.
Boam, Armstrong og Hickton
skoruðu mörk Middlesbro.
Þrir leikir verða I deildabikarn-
um I kvöld. Þá leika Manchest-
er-liðin á leikvelli City, Maine
Road, og stórleikur verður einnig
I Lundúnum milli Tottenham og
West Ham.
Olympíu-
leikar í
Glasgow?
Von Glasgow-borgar —I keppni
viö Teheran, íran — aö halda
Olympiuleikana 1984 færöist nær
raunveruleikanum i gær, þegar
samþykkt var aö verja 18 þúsund
sterlingspundum til undirbún-
ings. tþróttanefnd borgarinnar
annast framkvæmdina.
Talsmaöur hennar sagöi i Glas-
gow I gær. — Jafnvel þtí Olympiu-
leikarnir veröi ekki haldnir i
Glasgow 1984, erum viö öruggir
um aö fá leikana þó siöar verði.
Sumarleikarnir 1980 veröa i
Moskvu — Teheran og Glasgow
munu keppa um leikana 1984— og
Sydney i Astraliu sækir um leik-
ana 1988.
Hœttur í þýzka kndsliðinu
sagði Gunter Netzer i Madrid í gœr eftir að Schön setti hann úr landsliðinu
Knattspyrnumaöurinn frægi
hjá Real Madrid, Gunter Netzer,
varö ákaflega reiöur, þegar hann
var settur úr þýzka landsliðinu,
Karl Maack
endurkjörinn
Arsþing Badmintonsambands
tslands var haldiö á laugardag —
hiö fjölmennasta til þessa. Þing-
forsetivarEinar Jónsson. A þing-
inu kom fram, aö starfsemi sam-
bandsins fer sifellt vaxandi — og
iökendur badmintons hér á landi
eru nú á fjóröa þúsund.
Karl Maack var endurkjörinn
formaöur, en aörir I stjórn voru
kjörnir Bragi Jakobsson, Rafn
Viggósson, Steinar Petersen og
Walter Lentz. Óskar Guðmunds-
son, sem átt hefur sæti i stjórninni
frá upphafi, baöst undan endur-
kjöri, svo og Magnús Eliasson og
Gisli Guðmundsson.
sem leikur viö Búlgariu i næstu
viku I Evrópukeppni landsliða. t
gær sagöist hann aldrei framar
leika fyrir Þýzkaland.
Fréttastofan SID hafði sam-
band við Netzer i Madrid i gær og
hann sagði. — Það kom mér mjög
á óvart að vera settur úr liðinu.
Þetta eru lokin. Ég kem ekki ná-
lægt landsliðinu framar.
Helmut Schön, þýzki landsliðs-
einvaldurinn, setti Netzer úr
landsliðinu i mótmælaskyni við
þá ákvöröun Real Madrid að gefa
Paul Breitner, sem einnig leikur
með Real, ekki eftir i landsleikinn
við Búlgara.
Netzer hefur áður hótað að
leika ekki framar i vestur-þýzka
landsliðinu. Það var 1970 eftir
deilu við Schön, en niu mánuðum
siðarlék hann með á ný. Hann lék
afar litiö i heimsmeistarakeppn-
inni 1974, þegar Þjóðverjar sigr-
uðu.
Aðeins fimm af heimsmeistur-
unum frá 74eru i 20manna lands-
liðshópnum gegn Búlgörum. Ný-
liðar eru Peter Reichel, 23ja ára
varnarmaður I Eintracht Frank-
furt, og Hannes Bongartz, 24ra
ára framvörður hjá Schalke.
Leikurinn við Búlgara verður i
Dusseldorf.
Sama lið
gegn Sviss
Sovétrikin leika við Sviss i dag i
Evrtípukeppni landsliða og
verður leikið á leikvelli Dinamo
Kiev — þeim sama velli og Akur-
nesingar léku við Kænugarðsliðið
i Evrópubikarnum á dögunum.
Lið Sovétrikjanna er hið sama og
var hér á Melavelli — Dina-
mo-liöið eöa talið frá markverði
Rudakov, Konkov, Burjak,
Fomenko, Reshko, Troshkin,
Muntyan, Onisenko, Kolotov,
Veremeyev og Blohkin.
MAGNÚS GÍSLASON RÆÐIR VIÐ HERBERT BUSSE I DANKERSEN
Þá er skauta vertiðin hafin i Noregi og áhorfendur flykkjast á vellina — enda skautaiþróttin þjóðariþrótt Norðmanna með skiöastökkinu. Þessi
fallega mynd aðofan var tekin á laugardag á Valle Hovin, þegar fyrsta mótið fór fram. Árangur var mjög góöur —Per Björang, til vinstri
sigraði i 500 metra hlaupi á 40.5 sekúndum og með honum er Arnulf Sunde. Á siöasta keppnistimabili voru Norömenn mestu afreksmenn-
irnir á skautunum — og búast við miklu af sinum mönnum I vetur, þá ekki sizt Per Björang.
Tekst Víkingum að hemja
skapið gegn Valsmönnum?
Tveir þýðingarmiklir leikir í 1. deildinni í handknattleik í
Laugardalshðllinni í kvöld. Þróttur-FH, Valur-Víkingur.
I kvöld fara fram tveirleikir i 1.
deild tslandsmótsins íhandknatt-
leik. Fyrri leikurinn er milli
Þróttar og FH og hefst hann kl.
20.15. Aö sjálfsögöu veröa
FH-ingar að teljast sigurstrang-
legri og þar með aö hljóta sinn
fjóröa sigur i mótinu. Þróttarar
munu áreiöanlega berjast. — Þeir
hafa dregizt nokkuð aftur úr eftir
óvænta sigra Gróttu i tveimur
siöustu leikjum.
Siðari leikurinn er milli Vikings
og Vals og að sjálfsögðu leikur
kvöldsins. Vikingar misstu illi-
lega niður sigur gegn Fram á
dögunum, þegar þeir beinlinis
misstu stjórn á skapi sinu. Ætli
Vikingar að vera með i barátt-
unni, þá verða þeir að læra að
taka á sjálfum sér. Vikingar hafa
nú leikiö 5 leiki i deildinni og i
fjórum þeirra hafa þeir leikið
undir getu. Slikt eru ekki meist-
arataktar.
Valsmenn hafa einnig átt við
sin vandamál að striða. Þau þrjú
stig sem þeir hafa misst fóru til
Hafnarfjarðarliðanna. A móti
Haukumvoru þeir meðunninn leik
sem þeir misstu niður i jafnteflf,
en gegn FH áttu þeir aidrei
möguleika. Svo virðist sem Vals-
menn geti leikið ágætlega á köfl-
um, en siðan dettur allt niður fyr-
ir meðalmennskuna hjá þeim og
hvorki gengur né rekur. En hvað
um það, það verður hart barizt i
kvöld. Hvort verður það Vikingur
eða Valur, sem trónir á toppnum
eftir leikina i kvöld — það er stóra
spurningin.
h.halls.
Leikmenn Gróttu hafa heldur
betur sett strik i 1. deildar-
keppnina að undanförnu — og
eftirlciðis kóma öll liðin til með
að óttast Seltirningana. A
myndinni til hliðar er Hauka-
mark i uppsiglingu gegn Gróttu
á sunnudag i Hafnarfirði. Ingi-
mar Haraldsson hefur sloppið
framhjá Halldóri Kristjánssyni
og skorar hjá Guðmundi
Ingimundarsyni. Aðrir leik-
menn eru frá vinstri Magnús
Sigurðsson, Arni Indriðason og
Elias Jónasson — og við riml-
ana iná sjá liðsstjóra Gróttu,
Stefán Agústsson. DB-mynd
Bjarnleifur.