Dagblaðið - 29.01.1976, Blaðsíða 3

Dagblaðið - 29.01.1976, Blaðsíða 3
Pagblaðiö. Fimmtudagur 29. janúar 1976. 3 & Fjðldi unglinga undir lögaldri sœkir vínveit- ingahúsin um hverja Raddir lesenda BÍLA- STÆÐI - hví hefur fólk, sem er skrúð úti í sveitsama rétt og Reykvíkingar? Lesandi Dagblaðsins sem kýs að kalla sig Nágranna, hringdi og hafði eftirfarandi að segja: „Það vekur furðu mina að i einu húsi við Hólatorgið i Reykjavik er enginn ibúi skráður. Samt eru þar nokkrir sem eru allir skráðir uppi i Borgarfirði. Nú finnst mér svo sem ekkert athugavert við að fólk sé búsett uppi i sveit en þetta fólk við Hólatorgið er miklir bileigendur og notar þess vegna bilastæðin ótæpilega, það er þá þjónustu sem við borgar- búar greiðum fyrir dýrum dómum. Af þessum sökum vill oft brenna við að ibúar við Hóla- torgið þurfi að leggja bilum sinum á bilastæðin við nágrannagöturnar með þeim afleiðingum að við, sem þar búum, eigum oft i erfiðleikum að koma bilum okkar fyrir. Að sjálfsögðu er ég ekkert á móti þvi að fólk, sem býr i Reykjavik allt árið skrái sig uppi i sveit ef það sér sér ein- hvern hag i þvi. Það, sem mér finnst slæmt, er að þetta fólk nýtur ókeypis þjónustu hvað bilastæði varðar meðan við, sem erum ekki nógu sniðugir að koma lögheimilinu okkar eitt- hvað út í sveit, þurfum að borga stórfé fyrir hana.” helgi 5135-7604 skrifar: „Mig langar til að minnast nokkrum orðum á þessi við- kvæmu aldurstakmörk sem gilda á vinveitingastöðum. Eftir að ég fór að fylgjast með lifinu telst mér svo til að aldurstak- mark staðanna sé tuttugu ár. Ég sem er utanbæjarmaður, kom til borgarinnar fyrir um það bil einu og hálfu ári og þekkti þá fátt fólk hér. Ég brá mér á ball fyrstu helgina eftir að ég kom til þess eins að kynnast fólki. Eftir nokkrar helgarferðir var ég búinn að kynnast mörgum unglingum á minum aldri en það vakti furðu mina hve mörg ungmenni á aldrinum 16—18 ára voru inni á skemmtistöðunum um hverja einustu helgi. Ég lifði i þeirri trú að ströng passaskylda viðgengist á veit- ingahúsunum, — I það minnsta var ég alltaf krafinn um hann. En við dyrnar ráða dyraverðir og þeir stjórna þvi algjörlega hverjir fara inn og hverjir ekki. Fólk talar um drykkjulæti unglinga. Ég veit sjálfur að ekki er hægt að koma i veg fyrir að þeir nái I vin, en hefur fólk athugað að á vinveitingahús- unum er stór hópur unglinga undir 20 ára aldri og sumir dags daglega? Fyrir þetta er hægt að komast ef dyraverðirnir standa I stöðu sinni. Ég hef heyrt að tveir menn fari I öll vinveitingahúsin þegar opið er og athugi meðal annars hvort fólk sé þar undir aldri. Þessir menn ganga i daglegu tali undir nafninu eftirlitið. Nú, ef svo reynist að einhver sé undir lögaldri i húsinu, þá fái það sekt. En hvað gagna sektir þegar unglingarnir eru marg- búnir að borga þær i formi við- skipta á börunum? Nei, hér verður að griþa til sterkari ráða. Ég legg til að bæði skemmti- staðirnir, dyraverðir, þjónar og unglingar verði látnir borga háar sektir fyrir svona athæfi. En að lokum legg ég fram spurningar sem ég vænti svara við: 1. Hvaða hús hafa leyfi til að hleypa inn fólki undir 20 ára aldri og á hvaða dögum? 2. Hafa þjónar leyfi til að selja fólki undir 20 ára aldri vin? 3. Hvernig starfar þetta eftirlit húsanna og hverjir skipa það? 4. Þarf einhver hámarksfjöldi unglinga undir lögaldri að vera tekinn inni i húsunum til þess að þau séu sektuð?” KJARNORKUSPRENGJUR ERU Á KEFLAVÍKURFLUGVELLI Jón Arngrimsson skrifar: „Geir Hallgrimsson forsætis- ráðherra lýsir þvi yfir að það þjóni ekki islenzkum hags- munum að loka hliðum „varnarliðsins”. Ég held að Islendingar hafi gert sér það ljóst fyrir löngu að „varnar- liðið” er hér til að verja Banda- rikin en ekki Island. Geir lýsir yfir að ekki megi tengja aðild Islands að NATO fiskveiðideilu né nokkru sinni taka gjald af Bandarikja- mönnum fyrir afnot af her- stöðvum hér. Ég held að það sé orðið fyllilega timabært að setja á stofn enn eina nefndina, að þessu sinni skipaða óháðum borgurum, til þess að kanna hvort CIA hafi greitt islenzkum mönnum gjald fyrir að vera á móti þvi að greiða Bandarlkja- mönnum fyrir veru sina hér. Það er ólikt ódýrara fyrir Bandarikin að múta nokkrum áhrifamönnum árlega heldur en að greiða tiu til tólf milljarði. króna fyrir afnot af her- stöðvum, sem eingöngu eru i þeirra þágu. Annað eins hefur nú gerzt. Varnarliðið segir að engir eld- flaugapallar séu á Vellinum. Telurþaðlslendinga þá imba að þeir viti ekki að kjarnorku- sprengjur eru lika i flugvélum. Einn maður segir að hann hafi labbað um allt vallarsvæðið og hvergi fundið neitt! Á hvern hátt eru kjarnasprengjur frá- brugðnar venjulegum sprengjum i útliti. Þegar ég vann á Vellinum voru þar kjarnasprengjur og ég vissi hvar. Hvers vegna skyldu þær ekki vera þar enn? Hvað með stjórnstöð þeirra kjarna- sprengja. sem eiga að sprengja allan völlinn i loft upp ef Bandarikjamenn verða til- neyddir til að yfirgefa svæðið og skilja það eftir autt? Labbaði Páll Asgeir þar i gegn? I lýðræðisrikjum hefur það verið skylda hins almenna borgara að varpa þeirri stjórn af sér sem brugðizt hefur lof- orðum sinum við kjósendur. — þessir kallar afsaka sig með þvi að mestur hlutinn af útgjöld- unum sé þegar lögbundinn. Voru þeir ekki einnig kosnir til að afnema úrelt og ill lög? Hvenær ætla þessir menn að byrja á þvi að stjórna? Ekki eins og börn i sandkassa heldur að útskýra fyrir þjóðinni hvað sé nauðsynlegt og siðan stjórna eftir þvi.” Kjarnorkusprengjur eru Hka i flugvélum. ✓ Spurning dagsins Hvernig lizt þér á þá hugmynd að hafa sveigjanlegan vinnu- tima? Hrafnhildur Bjarnadóttir hús- móðir. Mér lizt mjög vel á það. Þetta gæti komið sér mjög vel fyrir fólk, t.d. ef það þarf að gera eitthvað sérstakt eftir hádegið þá gæti það byrjað fyrr að vinna á morgnana. Unnur Gunnarsdóttir húsmóðir. Jú, þvi ekki það. Þetta verður miklu frjálslegra og það kemur sér oft vel fyrir fólk að geta ráð- ið vinnutima að nokkru leyti sjálft. Björn Sveinbjörnsson verzlunar- maður. Mér lizt nokkuð vel á hug- myndina. Þetta er að visu ekki hægt alls staðar en þar sem er hægt að koma þessu við, er þetta til mikilla þæginda fyrir starfs- fólkið. Sigriöur Eyjólfsdóttir nemi Mér lizt nokkuð vel á þessa hugmynd þar sem hún á við. Það verð- ur meira úr deginum hjá fólki ef það getur losnað fyrr á daginn. Sigrún Jónsdóttir afgreiðslu- stúlka. Ég mundi elska þetta fyr- irkomulag. Mérfinnst svo dýrlegt að fá að sofa út einstöku sinnum á morgnana. Eins er mjög þægilegt að geta losnað fyrr á daginn ef maður þarf að gera eitthvað sér- stakt. Kristin Ellertsdóttir afgreiöslu- stúlka. Ég vil frekar hafa þetta á- kveðinn vinnutima, mæta á viss- um tima og hætta á sama tima á daginn. Ég vinn að visu bara hálf- an daginn en þetta gæti komið sér vel fyrir þá sem vinna allan dag- inn.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.