Dagblaðið - 29.01.1976, Blaðsíða 6

Dagblaðið - 29.01.1976, Blaðsíða 6
6 Pagblaðið. Fimmtudagur 29. janúar 1976. Erfiðleikar New York vaxa enn: Dregið úr aðstoð við fátœka, aldna og börn Þrátt fyrir að New York borg hafi verið bjargað frá gjaldþroti á siðustu stundu fyrir jól, blasa enn við óendanlegir erfiðleikar i efnahagslifi borgarinnar. Abe Beame, borgarstjóri New York, sagði um helgina að útlitið væri enn dökkt. Hann sagði að útgjöld borgarinnar væru þegar komin fram úr öllum áætlunum og innheimta virtist vera nokkru minni en reiknað var meö. Siðan kreppa New York borgar komst á alvarlegt stig i fyrra, hefur 25 þúsund starfs- mönnum borgarinnar verið sagt upp. Til viðbótar hefur ekki verið ráðið i 13 þúsund stöður, sem skoðast lausar, án þess að vera uppsögnunum viðkomandi. Þetta dugir ekki til og nú fer spamaðurinn að koma niður á aðstoð við fátæka, aldraða, börn ogskólakerfinu. Borgin telur sig t.d. ekki lengur geta rekið City University og er að reyna að koma rekstrinum yfir á rikið. Þótt New York sé að sökkva dýpra i skuldafenið, er myndin hér k við hliðina ekki af þvi, heldur var hún tekin fyrir þrem dögum ^ þegar þykk þoka lagðist yfir borgina svo hæstu skýjakljúfar rétt náöu upp úr henni Fyrir utan ýmiss konar vandræði i borginni vegna þokunnar, truflaðist flugumferð á þrem nærliggjandi flugvöllum um tima. INDIANAR FA LOKS BÆTUR FYRIR LAND SITT Á FLORIDA George Walace i hjólastól. Ilann er lamaöur eftir skot- árás, sem hann varð fyrir á kosningaferðalagi. Wallace sigurviss í Missisippi Þingmaðurinn George Wallace þykir nú sigurviss i kosningunum i Missisippi á laugardaginn, er kosinn verður frambjóðandi demókrata til rikisstjóra. Þótt sigur hans sé talinn vis, er þó ekki enn vist að hann verði forsetaframbjóðandi demó- krata i næstu kosningum, en menn telja það þó stöðugt lik- legra. Wallace er sem kunnugt er lamaður eftir skotárás, sem beint var gegn honum á kosn- ingaferðalagi. Seminole-Indiánarnir, sem áttu miklar lendur i Florida áður en útlendingar námu þar land og rændu landi þeirra með grimmi- legum árásum og manndrápum, hafa nú fengið nokkra sárabót frá bandariska rikinu. Landsvæðinu t'öpuðu þeir i tveim orrustum, 1823 og 1832, svo bæturnar eru sið- búnar. Bæturnar, sem nema 16 milljónum dollara, eru þó Arabahöfðingjar óttast deilur Marokko og Alsír Nokkrir þjóðarleiðtogar Araba- rikja hafa blandað sér persónu- lega i deilur Marokkó og Alsir um yfirráð i Vestur-Sahara, til þess að reyna að koma i veg fyrir að þessar nágrannaþjóðir dragist út i strið, en siðast i gær var barizt i V-Sahara. Houari Boumedienne, forseti Alsir, vill ekki sætta sig við þá ákvörðun Spánar að af- henda V-Sahara Marókkómönn- um og Máritönum, en sem kunnugt er réðu Spánverjar yfir V-Sahara um aldaraðir. Herir Alsir og Marokkó hafa barizt af og til aö undanförnu og tekið fanga á báða bóga, en hvorki Boumedienne né Hassan Marokkókonungur, hafa gefið neinar yfirlýsingar um væring- arnar. Boumedienne stvrkir skæruliða Polisario i V-Sahara,en það er nokkurs konar þjóðfreisis- hreyfing i landinu. Arabiskir þjóðhöfðingjar hafa miklar áhyggjur af átökum rikjanna og hafa hvað eftir annað verið i beinu simasambandi við þjóðhöfðingja hinna striðandi rikja, en hingað til hefur það ekki borið sjáanlegan árangur. Búizt er við að þeir muni taka sáttaumleitanir fastari tökum á næstunni, eða áður en deilan kemst á alvarlegra stig. smánarlegar ef tillit er tekið til stærðar landsins og hvað á þvi er nú. Landið er tæpir 243 hektarar og á þvi eru Miami, Disney World og Kanaveralhöfði. Indiánarnir kröfðust fyrst fébóta fyrir landið 1949 og kröfðust þeir þá 47 mill- jóna dollara.— Brezkir bílar hœkka í verði Brezku bilaverksmiðjurnar hafa undanfarna daga hækkað verðið á bilum sinum, hver af annarri. 1 s 1. ivikuhækkuðu Ford verksmiðjurnar brezku bila sina að meðaltali um 5% og um helgina hækkuðu Leyland verksmiðjurnar sina bila um svipaða upphæð, þó nokkuð mismunantí eftir þvi hvernig hinar ýmsu gerðir standast verðsamanburð við Ford bilana. Renault verk- smiðjurnar i brezka samveld- inu hafa svo lika hækkað verð- ið á sinum bilum um 5 til 6%. Hækkun þessi stafar af hækk- uðum rekstrarkostnaði verk- smiðjanna. ÚTVARP BBC: „Ekkert í fréttum" BBC á við fjárhagsörðug- leika að etja, eins og áður hef- ur verið sagt frá hér á erlendu siðunum. Þessir örðugleikar hafa i för með sér samdrátt, einkum á sviði nýrra framkvæmda. En það nýjasta er nú að fréttamenn BBC telja sig ekki fá greitt vaktaálag sem skyldi og hafa þegar mót- mælt þvi kröftulega en án árangurs. Hugleiða þeir nú i alvöru að taka sig saman og skrópa i fréttatimunum ein- hvern næstu daga. Kann þá svo að fara að einhvern daginn verði ekkert i fréttum hjá BBC, og er það ekki óliklegt þvi talsvert ber á milli tilboðs yfirvalda og krafa frétta- mannanna. Leikur tveggja drengja I Toronto i Kanada endaði meö skelfingu um daginn, er þeir voru að klifra i St. Bloor brúnni yfir Humber-fljótið. Annar drengjanna, 12 ára gamall, stirönaði skyndiiega af skeifingu hátt uppi I brúnni og varð að kveðja til hugrakka slökkviliðsmenn til að bjarga honum.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.