Dagblaðið - 29.01.1976, Blaðsíða 23

Dagblaðið - 29.01.1976, Blaðsíða 23
Pagblaðið. Fimmtudagur 29. janiiar 1976. Ci Utvarp 23 Sjónvarp i Útvarpið i fyrramálið kl. 10,05: „Spjallað við bœndur Heimaslátrun ## stórgripa og sala beint til neytenda „Okkur berast mikið af bréf- um, en ég ætla að taka fyrir bréf frá bónda i sambandi við heimaslátrun stórgripa og sölu beint til neytenda,” sagði Arni Jónasson erindreki Stéttarsam- bands bænda sem sér um þátt- inn Spjallað við bændur að þessu sinni. Neytendur hafa mikiö sótzt eftir að kaupa kjöt af stórgrip- um beint af bændum. I fyrsta lagi er það lögbrot, kjötmats- maður er ekki búinn að meta gæði kjötsins, i öðru lagi á þá eftir að borga stofnlánadeildar- gjald og búnaðarmálasjóðs- gjald. t þriðja lagi á eftir að borga söluskatt og i fjórða lagi má gera ráð fyrir að kjötsalan sé ekki talin fram til skatts. Árni sagði að áður fyrr heföu húsmæður mikið hringt til Stétt- arsambandsins og spurt um verö á kjöti. Það hefði nú minnkaö mikið enda er ekki hægt aö segja til um verð kjöts án þess að kjötmatsmaður sé búinn að meta gæði þess. Nautakjötsverð til bænda er i tiu verðflokkum. Lægsti flokk- urinn er á 141 krónu og 85 aura en sá hæsti á 407 krónur og 18 aura. Lægstu flokkarnir eiga aö fara i vinnslu. EVI Arni Jónasson erindreki ræðir um heimaslátrun stórgripa og er harðorður um sölu beint til neytenda. DB-mynd Bjarnleifur Útvarpið kl. 19,45: DAUÐADANSINN EFTIR STRIND- BERG Á DAGSKRÁNNI í KVÖLD August Strindberg fæddist i Stokkhólmi árið 1849 og dó þar 1912. Hann lauk stúdentsprófi árið 1867 og lagði stund á læknisfræði um nokkurt skeið. Siöan varö hann kennari og hóf nám i leiklist. Hann var blaðamaður i Stokk- hólmi i nokkur ár og starfaöi viö Konunglega bókasafnið 1874—82. Alls skrifaöi hann nærri 60 leikrit og auk þess skáldsögur, ljóð og æviminning- ar. Hugur hans var sfieitandi, hann fannn aldrei friö og bar það að lokum likamann ofurliði. Einkalif hans var mjög storma- samt. Hann kvæntist þrem kon- um en skildi við þær allar. August Strindberg beitti sér- stakri tækni i leikritun sinni og margir yngri rithöfundar hafa bæði meðvitað og ómeðvitað til- einkað sér aðferðir hans við uppbyggingu leikrita. Þótt hefur ákaflega erfitt að meta Strindberg svo viöunandi sé. Hann hefur ymist verið of- metinn eða vanmetinn. Útvarpið hefur áður flutt leik- rit eftir Strindberg. Þau eru: Fröken Júlia, árið 1938, Páskar, árið 1956, Faðirinn árið 1959, Brunarústir árið 1962 og Kröfu- hafar árið 1965. Auk þess hafa verið flutt brot úr Draumleik. —A.Bj. Þorsteinn Gunnarsson, Helga Bachmann og GIsli Halldórsson I hlutverkum sinum i sýningu Leikfélags Reykjavíkur á si. ári. það sem af er þessum vetri. Meðal þeirra leikrita sem flutt hafa verið eru mörg sem hafa skapað sér fastan sess i heims- bókmenntunum. Leikritið sem flutt er i kvöld kl. 19.45 er einmitt eitt af þess- um „heimsbókmenntaleikrit- um”, Dauðadansinn eftir Strindberg. Leikritið er i þýð- ingu Helga Hálfdánarsonar og leikstjóri er Helgi Skúlason. Þessi upptaka var gerð hjá Leikfélagi Reykjavikur en Dauöadansinn var sýndur i Iðnó á sl. ári. Leikendur eru Gisli Halldórs- son, Helga Bachmann, Þor- steinn Gunnarsson, Asdis Skúla- dóttir og Þóra Borg. Sveinn Einarsson þjóðleikhússtjóri flytur formálsorð. Dauðadansinn gerist i af- skekktu strandvigi og lýsir fyrst og fremst samskiptum Edgars höfuðsmanns og Alisu konu hans. Edgar fær oft veikinda- köst og heldur þá að hann sé að deyja. Alisa kona hans þjáist af einmanakennd á þessum inni- lokaða stað, þar sem ritsiminn er eina sambandið við umheim- inn. Kurt sóttvarnarstjóri er eins og ofurlitill andblær frá öðrum heimi, en örlögin láta ekki að sér hæða. Ritsiminn flytur ekki alltaf góðar fréttir. Ekki er hægt að segja annað en að útvarpið okkar hafi flutt landsmönnum bæöi áhugaverð og jafnframt skemmtileg leikrit Edgar höfuðsmaður og Aiisa kona hans, Gisli Halldórsson og Helga Bachmann. ^ Útvarp 13.00 Á frivaktinni. Margrét Guðmundsdóttir kynnir óskalög sjómanna. 14.30 Spjail frá Noregi. Ingólfur Margeirsson talar við dýralæknana Eggert Gunnarsson og Þorstein Ólafsson um dýralækningar ytra og heima. 15.00 Miðdegistónieikar Loránt Kovács og Filharmoniusveitin i Györ leika Flautukonsert i D-dúr eftir Haydn, János Sándor stjórnar: Erna Spoorenberg og hljómsveitin St. Martin-in-the-Fields flytja „Exultate Jubilate” mótettu fyrir sópran og hljómsveit (K165) eftir Mozart, Neville Marriner st jórnar/Pierre Fournier og Ernst Lush leika á selló og pianó Italska svitu eftir Stravinsky um stef eftir Pergolesi. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregnir). Tónleikar. 16.40 Barnatimi: Guðmundur Magnússon stjórnar. Eldgos og náttúrufyrirbæri. Flytj- andi ásamt stjórnanda Þóra Jónsdóttir. 17.30 Framburðarkennsla i ensku. 17.45 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. 19.35 „Oolit”, eftir ungverskí. tónskáldið Miklos Maros. Maros-sveitin i Stokkhólmi leikur, höfundur stjórnar. 19.45 Leikrit Leikfélags Reykjavikur: „Dauöadans” eftir August Strindberg. Þyðandi: Helgi Hálfdánar- son. Sveinn Einarsson þjóö- leikhússtjóri flytur formáls- orð. Leikstjóri : Helgi Skúlason. Persónur oe leikendur: Edgar: Gisli Halldórsson. Alisa: Helga Bachmann. Kúrt: Þorsteinn Gunnarsson. Jenný: Asdis Skúladóttir. Gömul kona: Þóra Borg. 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. Kvöldsag- an: ,,t verum” sjálfsævi- saga Theódórs Friðriksson- ar. Gils Guðmundsson les siðara bindi (12). 22.40 Létt músik á siðkvöldi. 23.25 Fréttir i stuttu máli. Dagskrárlok.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.