Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 29.01.1976, Qupperneq 7

Dagblaðið - 29.01.1976, Qupperneq 7
Dagblaöiö. Fimmtudagur 29. janúar 1976. 7 Dragast Bandaríkin aftur inn í stríðið í Angola? — Erlendir málaliðar flykkjast til Angola til að berjast við MPLA Henry Kissinger reynir enn, allt hvað af tekur, aö fá Banda- rlkjaþing til aö styrkja þjóð- frelsishreyfingarnar tvær i Angola, UNITA og FNLA, til að berjast áfram gegn hreyfing- unni MPLA, sem Sovétmenn styrkja með vopnum. Kissinger, sem i dag mun svara spurningum nefndar full- trúadeildar þingsins, itrekar stöðugt að Bandarikjamenn verði að halda uppi andstöðu gegn Sovétmönnum, sérstak- lega á þeim slóðum þar sem Sovétrlkin hafa ekki haft hefð- bundin itök. Sem kunnugt er, hefur Banda- rikjaþing fellt allar tillögur um frekari stuðning til handa FNLA og UNITA, sem veittur var i gegn um CIA. Nú er hins vegar búizt við að Kissinger stingi upp á að veita hreyfingunum beinan styrk en Bandarikjamenn höfðu veitt hreyfingunum 50 milljónir dollara i gegn um CIA áður en þingið felldi frekari aðstoð. Þingmaðurinn John Tunney, einn aðalandstæðingur frekari styrkja, segir að nefndin eigi að spyrja Kissinger um þá úrslita- kosti sem Bandarlkjam. hafa gefið MPLA, en leynd hefur hvllt yfir þeim til þessa. Hins vegar er talið vist að kostirnir séu þeir, að fallizt MPLA ekki á samninga við hinar hreyf- ingarnar, megi MPLA ekki eiga von á vestrænni aðstoð að striði loknu, sem Bandarikjastjórn telur þeim nauösynlega. 1 nýjustu fréttum frá Brussel segir að 100 manna flokkur brezkra málaliða sé á leið til Angola til að berjast með FNLA, og segir I sömu fréttum að vitað sé um fjölda annarra málaliða á leið þangað, sem óhjákvæmilega mun draga striðið eitthvað á langinn. — A meðan stjórnmálamenn vlöa um heim ræöa hugsanlega lausn striösins I Angola, er bar- izt þar af mikilli hörku upp á hvern dag. Á myndinni eru hermenn MPLA I bardaga og nota þeir sovézk vopn. Verður Patty dœmd í 35 ára fangelsi? Montreal: Mannvirkin verða ekki fullgerð fyrir Olympíuleikana Nú er ljóst að iþróttamannvirk- in I Montreal I Kanada, sem Olympiuleikarnir eiga að fara fram i i sumar, verða ekki full- gerð þegar til kemur. Yfirvöld hafa staðfest það, en segja hins vegar að mannvirkin verði þó nothæf og leikarnir geti farið eðli- lega fram, þrátt fyrir allt. Sem kunnugt er, hefur allt gengið á afturfótunum við undirbúninginn, einkum vegna þrálátra verkfalla verkamanna, og fyrir nokkru gafst borgarsjóður Montreal upp við framkvæmdirnar og rikið tók við þeim. Á myndinni er aðal iþróttahöllin, innan punktalln- unnar er sá hluti hennar, sem ekki verður unnt að byggja fyrir leikana. Val kviðdómenda fyrir réttar- höldin yfir Patriciu Hearst getur staðið alla vikuna, eftir að þremur kviðdómendum hafði verið leyft að yfirgefa réttarsal- inn, þar eð þeir töldu sig ekki geta verið hlutlausir I dómum sinum. Þó hefur tekizt að velja fjóra kviðdómendur eftir nákvæmar yfirheyrslur fyrir luktum dyrum. Patty Hearst, sem nú er 21 árs gömul, er eins og kunnugt er ákærð fyrir bankarán. Ef hún verður sek fundin, getur hún átt von á 25 ára fangelsisdómi fyrir bankarán og öðrum tiu árum fyrir að hafa ógnað starfsfólki bankans með skotvopni. Líbanon: Flóttamenn snúa nú heim eftir borgarastyrjöldina Yfirvöld I Libanon hyggjast hefja flutning fólks, sem flúið hef- ur heimili sín og reyna að koma þvi fyrir. Hér er um að ræða þús- undir manna, sem hafa lent á vergangi I borgarastyrjöldinni, sem staðið hefur i 9 mánuði. Margt af þessu fólki getur ekki farið til heimila sinna þar sem þau hafa verið eyðilögð I hern- aðarátökum, af ræningjum eða leyniskyttum, sem hafa farið með jarðýtur yfir fátæklegri kofa- hverfi. Nefnd, sem skipuð var Libön- um, Palestlnumönnum og Sýr- lendingum til að hafa eftirlit með vopnahlénu, sagði, að næsta verkefni, sem vinna þyrfti að, væri að finna öllu þessu heimilis- lausa fólki einhvern samastað. Stjórn Libanons hefur kvatt opinbera starfsmenn, bæði lög- reglu og borgaralega starfsmenn, til vinnu I dag. Forsætisráðherr- ann, Rashid Karami, sagði, að þeir, sem ekki hlýddu þessum fyrirmælum, yrðu látnir sæta á- byrgð fyrir agabrot. Heimkoma margra libanskra flóttamanna veröur ekki geösleg eftir niu mánaöa borgarastyrjöld, þar sem tiu þúsund manns fórust, 21 þúsund særöust og eignartjón varö gifurlegt, eins og þessi mynd frá Beirut ber meö sér. ■— ■■-->■ Erlendar fréttir REUTER Amin 5 óra Nú eru liðin fimm ár síðan Idi Amin varö forseti Uganda og hefur hann sannarlega verið litrikur og umdeildur þjóðhöfðingi allan timann. Ekki voru hátiöarhöldin af til- efni afmælisins siður litrík, og á myndinni er afmælisbarnið ásamtöðrum þjóðhöfðingja að virða fyrir sér hersýningu af þvi tilefni. VERKAMANNA- FLOKKURINN í VANDA Stjórn brezka verkamanna- flokksins stendur nú höllum fæti, hefur ekki lengur þing- meirihluta, og búizt er við að fjöldi þingmanna flokksins muni greiða atkvæði gegn ýmsum aögeröum stjórnar- innar á næstunni. Atvinnuleysi hefur aldrei verið jafnmikið á Bretlandi siðan i siðari heims- styrjöldinni, eða 6,1% vinnu- færra manna hefur enga at- vinnu. Verðbólgan hefur einnig verið rösk 24% að und- anförnu og fleiri vandræði steðja að.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.