Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 29.01.1976, Qupperneq 8

Dagblaðið - 29.01.1976, Qupperneq 8
8 Dagblaðið. Fimmtudagur 29. janúar 1976. Stóra borholan við Kröflu breytist í hver: Það bezta sem skeð gat hóvaðinn er horfinn Nú er komið á annan mánuð frá þvi eldgos varð i Leirhnjúki og almenning um land allt tók að ugga út af framtið Kröflu- virkjunar. Menn ræða fram og aftur hvort halda eigi áfram virkjunarframkvæmdum eða hvort stöðva eigi þær. Undir ný- gerðum mannvirkjum þar hefur jörðin gengið i bylgjum þó starfsmenn við framkvæmdir hafi aðeins yfirgefið vettvang eina nótt samkvæmt skipun. Þeir sem að framkvæmdum vinna vilja ólmir halda áfram af fullum krafti. „Laun við Kröflu eru anzi há”, var lika haft eftir aðila er málið varðar. Ýmislegt hefur átt sér stað við Kröflu. En þar hefur þó enn ekkert gerzt sem er óeðlilegt og ekki mátti búast við að dómi þeirra er að Kröfluvirkjun standa. Visindamenn og almúg- inn lita yfir annálinn, klóra sér i höfðinu og skilja varla upp né niður i niðurstöðum ákafa- mannanna. Annállinn gæti litið svona út i stuttu máli, þegar les- in hafa verið blöð og hlustað á útvarp frá þvi Leirhnjúkur lét á sér kræla. 1. Stærsta borholan eyði- leggst. t ljós kom að reiknað hafði verið með að svo gæti far- ið. 2. Þrýstingurinn i hinum bor- holunum minnkar.t ljós kom að við þvi mátti búast og jafnvel reiknað með að svo færi i út- reikningum um virkjunina. 3. Stöðvarhúsið tekur að siga. Yfirverkfræðingurinn lýsir þvi yfir i útvarpi að það hafi ekkert að segja, og jafnvel að með þvi hafi verið reiknað. 4. Vatn tekur að hitna i krön- um. Lýst er yfir að það sé með öllu eðlilegt. Látið er i veðri vaka að þetta sé nú litið við Kröflu. Menn ættu að athuga þetta vandamál hjá Kisiliðj- unni. 5. Öll loftin þrjú eru ósteypt. Þau þarf nauðsynlega að steypa til að „treysta mannvirkin”. En meðan beðið er eftir steypu- veðri vikum saman er boðin út málningarvinna á steyptum sem ósteyptum hlutum Kröflu- virkjunar. Það mun talið eðli- legt og gert i trausti þess að mannvirkin styrkist. 6. Stóra holan breytist úr gos- holu i hver. Yfirlýst er af verk- fræðingi að það sé það bezta sem gerzt gat. Við það hvarf hávaðinn. Eftir að heyra þennan annál varð einum gárunganna að orði: Stöðvarhús Kröflu verður sennilega stærsta gróðurhús landsins. Bara að þeim takist ekki að steypa þakið, til þess að Gentúlmenn! Við höfum ástæðu til að ætla að þetta sé staðurinn þar sem islendingarnir eru að reyna atómbombuna sina! það verði „talið eðlilegt” að setja glerþak á húsbáknið. P.S. Skrifað i gamansömum tón vegna erfiðleika við upplýsinga- öflun og loðinna svara við ýms- um spurningum — A.St. ENN LIFUM VIÐ UM EFNI FRAM — viðskiptajöfnuð- urinn óhagstœður um 27,6 milljarða 1975 Viðskiptajöfnuður okkar Is- lendinga var óhagstæður um 27,6 milljarða á siðasta ári. Þessar tölur hefur Hagstofa Islands sent frá sér. Árið 1974 var hann óhag- stæður um 19,7 milljarða, en ef samanburður er gerður á árunum kemur I ljós að á árinu 1975 er hann á0% óhagstæðari en 1974. Útflutningur á árinu 1975 nam alls 47,4 milljörðum króna, þar af var flutt út ál og álmelmi að and- virði um 5 milljarðar. Ut- flutningur þessara vara nam 4,7 milljörðum árið 1974. Inn I landið voru fluttar vörur fyrir rúma 75 milljarða. Þar af eru skip, prammar og flugvélar um 3 milljarðar. Eins og komið hefur fram er viðskiptajöfnuðurinn mun óhagstæðari árið 1975 en 1974. Ef verðlag ársins 1974 er reiknað upp, til samsvörunar árinu 1975 eða um 56,5%, en um þá prósentutölu er erlendur gjald- eyrir talinn hafa hækkað að meðaltali á árinu 1975, kemur út úr dæminu 3% hagstæðari viðskiptajöfnuður árið 1975 en 1974. KP KÓPAVOGSBÚAR VILJA BORGARAFUND UM LÓÐARÚTHLUTUN — krefjast friðlýsingar ó Víghólunum Fjöldi Kópavogsbúa vill borgarafund út af lóðarúthlutun á svæði sem þeir telja rétt að friðlýsa. Skora þeir á Náttúru- verndarnefnd Kópavogs að beita sér fyrir honum og fara nú fram almennar undirskriftir undir skjal þess efnis. I undirskriftaskjalinu segir meðal annars: Þar sem mikil óánægja og andstaða er meðal fjölda bæjarbúa með ráðstafanir bæjaryfirvalda á úthlutun lóðar að Gagnheiði 1 þykir okkur nauðsyn að hafizt verði handa um að stöðva framkvæmdir á þessum stað og lóðarhafa verði úthlutað lóð annars staðar, þar sem fjarlægð frá hringsjá að væntanlegum húsvegg er aðeins 43 metrar og þar af leiðandi ennþá nær lóða- mörkum. Ennfremur er hvatt til þess að engar byggingar risi á hinu óbyggða svæði umhverfis Vig- hólana, sem orðið gæti til þess að rýra útsýni á þessum stað. Er skorað á Náttúruverndar- nefnd Kópavogs að leita full- tingis Náttúruverndarráðs um að friða og friðlýsa þetta svæði. —BS— 6 þúsund farþegar með Ferðafélaginu 1975 Fjölbreyttar ferðir um eigið land í boði Betur mó ef duga skal Sem betur fer virðist manni að unnið sé kappsamlega að þvi að ryðja götur og gang- stéttir svo vegfarendur komist leiðar sinnar. Þessi mynd var tekin á Háaleitisbrautinni i gærmorgun. Þeir sem leið eiga um Siðumúla og þurfa að fara upp Vegmúla, yrðu mjög glaðir ef slik tæki færu nokkr- ar ferðir eftir þeim götum sem eru mjög slæmar, eins og raunar margar fleiri. DB-mynd: Bjarnleifur. Ferðafélag Islands eykur enn starfsemi sina frá þvi sem verið hefur. Þetta kemur fram i áætlun um starf félagsins á nýbyrjuðu ári. Er þar gert ráö fyrir 210 ferð- um, löngum og stuttum. 1 skýrslu Ferðafélagsins um starfið á siðasta ári, sem kynnt var á blaðamannafundi i gær, kemur fram að 201 ferð var farin á vegum félagsins þaö ár. I þess- um ferðum voru nærri 6 þúsund farþegar, þar af um 700 útlend- ingar. Til Þórsmerkur voru farn- ar 50 feröir með 2.409 ferðamenn. Að sögn framkvæmdastjórans, Tómasar Einarssonar, er F.I. einnig reiöubúiö til að aðstoða viö skipulagningu eða annast um framkvæmd sérstakra hópferða fyrir einstaklinga, starfsmanna- félög eða önnur samtök sem kynnu að óska þess. I hinni nýju áætlun Ferðafé- lagsins auglýsa deildir þess úti um land ferðir sinar, Ferðafélag Akureyrar, Ferðafélag Húsavik- ur, Ferðafélag Skagfirðinga, Ferðafélag Fljótsdalshéraðs og Ferðafélag Vopnafjarðar. Ferðafélagið hvetur alla sem áhuga hafa á ferðalögum til að kynna sér áætlunina fyrir árið 1976 og gerast virkir aðilar aö fé- lagsstarfinu með þátttöku i ferðum eða á annan hátt. Sérstök athygli er vakin á þvi að öllum er heimilt að ferðast meö félaginu i auglýstum ferðum. —BS—

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.