Dagblaðið - 29.01.1976, Qupperneq 14
14
r
Dagblaðið. Fimmtudagur 29. janúar 1976.
n r
NATO-þjéðir erindrekar
heimskommúnismans
Spaugilegt hefur verið að fylgjast
með skrifum sumra manna og
söguburði hverjir væru að gegna
erindrekstri heimskommúnismans
á fslandi. Ekki hefur nú vantað á að
þetta fólk teldi sig vita allar stað-
reyndir og forsendur skoðana
sinna.
Það hefði ekki verið úr vegi að
þetta fólk hefði tekið sig til og lesið
nokkra tima i alþjóðlegri hagfræði
og gert örlitla athugun á þvi hvern-
ig matframleiðslumál heimsins
koma út i sambandi við fiskveiði-
lögsögu og lesið sér svolitið til um
matvælaframleiðslu, þó ekki væri
nema i forusturiki heimskommún-
ismans, Sóvétinu, og héldi svo á-
fram með niðurstöðurnar og græfi
upp stefnu og baráttu forusturikja
Atlantshafsbandalagsins, þótt ekki
væri nema til þess að það hætti að
glápa á það einsog goð á stalli. Það
er nefnilega alveg sama hvort
kreddutrúin kemur úr vestri eða
austri, hún er jafnhjákátleg og get-
ur orðið þjóðhagslega jafnskað-
leg. Það hefði ef til vill afstýrt
sögulegu slysi.
En við skulum halda okkur við
yfirskrift greinarinnar og brjóta
þessi mál til mergjar. Fyrst verður
fyrir okkur við frumathugun sú
einfalda staðreynd að megnið af
ræktanlegu landi i Sovétrikjunum
er fyrir norðan 45. breiddargráðu
en i þvi landinu sem sér heiminum
fyrir stærsta framlaginu af mat-
vælum er þetta fyrir sunnan 45.
breiddargráðuna, þvi belti jarðar-
innar sem skilar mestum afrakstri
i kornrækt, jarðávöxtum og öðrum
jarðargróðri.
Skipuleggjendum Sovétrikjanna
var ljóst i kringum og upp úr 1950,
erSovétrikin voru að byrja að rétta
við eftir styrjöldina og áætlanir
voru gerðar um stórfelldar iðnað-
aráætlanir, að litið svigrúm var i
framleiðslu matvæla á auðveldan
hátt og öruggan. Auka þurfti mat-
vælaframleiðsluna með meiri
framleiðni og losa þurfti um vinnu-
afl milljóna i' sveitum og flytja það
til borganna sem vinnuafl i iðnað-
aruppbyggingu. Aðeins tveir
möguleikar voru opnir, leggja út i
risastórar áætlanir um komfram-
leiðslu i Kazakstan, sem Krútsjoff
gumaði svo mjög af á sinum tima,
sem leit ekki illa út á pappirnum.
Hefði verið snúið sér eingöngu að
þvi ef við athugun hefði ekki komið
i ljós að annar vegur var lika til,
fjárfesting og uppbygging mill-
jónatonna af fiskiskipum sem skil-
aði meiri framleiðni og frekara ör-
yggi heldur en matvælaframleiðsla
eingöngu á landi. Allir vita hvernig
fór með stóru steppuhektaramill-
jónirnar i Kazakstan, eftir þrjú ár
var landið mikið orðið örfoka, þrátt
fyrir að þar hefði verið eytt þús-
undum milljóna dollara og allar
visindastofnanir Sovétrikjanna
verið til kallaðar um álit áður en út
i þessa stærstu landbúnaðaráætlun
heimsins var ráðizt, og allt hafi lit-
ið svo glæsilega út á pappirnum.
Þetta er klassiskt dæmi um
hvernig stærstu áætlanir geta
brostið á smáyfirsjón og söguslysið
skeður.Yfirsjónin lá i þvi að á veð-
urstofu Sovétrikjanna hafði aðeins
verið farið i skýrslur aftur til ársins
1900 og allt verið i lagi með úrfellið.
En þegar ti'minn, féð og fyrirhöfnin
var glatað fór einn ungur maður á
veðurstofu Sovétrikjanna að at-
huga þetta nánar og fór i skýrslur
um úrfelli aftur til ársins 1885 og sá
þá, aðof miklir þurrkakaflar höfðu
komið fyrir á þessu timabili og slikt
var einmitt nú að endurtaka sig.
Einnig var ekki nægjanlegt tillit
tekið til þess að_ þegar mikill nýr
gróður er pindur upp á tiltölulega
gróðurlitlu svæði áður eykst útguf-
un mjög i gegnum hið mjög svo
aukna útgufunaryfirborð plantn-
anna sem aftur á móti gengur of
nálægt jarðrakanum og landið
verður örfoka á skammri stundu.
Jafnvægi náttúrunnar er raskað.
En þegar svo var komið i Kaz-
akstan var ráðizt með margföldum
krafti i fiskiskipaflotann og hann
byggður upp af óeðlilegum hraða
og stendur nú i 4.500.000 smálesta,
stærsti fiskiskipafloti heimsins, og
er gert ráð fyrir að hann hafi fiskað
um 10.000.000 lesta á sið-
astliðnu ári þótt opinberar skýrslur
beri með sér 8.500.000. Þessi floti
hefur lagzt á öll beztu fiskimið
heimshafanna allra. Skipuleggj-
endur Sovétrikjanna reiknuðu
þetta einfalda dæmi eftir þeirri ein-
földu formúlu að 1 kg af prótein-
fæðu i formi kjöts kostar 5 kg af
komi. Fiskur er hreint prótein, því
jafngildir afli upp á 10.000.000 tonna
50milljónum tonna af komi. Það er
talið að Sovétríkin þurfi sem lág-
mark 210milljónir tonna af korni á
ári en framleiðsla þeirra á siðast-
liðnu ári var ekki nema 130 til 160
milljónir tonna. Þvi urðu Sovétrik-
in að leggja út i kaup á 30 milljón-
um tonna af korni i Bandarikjunum
á siðastliðnu ári, sem em mestu
matvælaflutningar i sögu heimsins.
Uppskerubrestir hafa verið tiðir á
undanförnum árum i Sovétrikjun-
um.
En hvert væri ástandið i forustu-
riki heimskommúnismans nú i
matvælaframleiðslunni ef viðáttu-
mikil fiskveiðilögsaga hefði lokað
fyrir þeim, um það bil er þeir byrj-
uðu á sinni miklu fiskiskipastóls-
uppbyggingu, öllum meiriháttar
fiskimiðum heimsins eða þótt sið-
ar hefði orðið? Þessi þáttur i frum-
þörfum hvers'þjóðfélags hefði sett
iðnaðar- og hernaðarmáttarupp-
byggingu heimskommúnismans
stólinn fyrir dyrnar og ákveðið
stærð hans.
Nú skyldi maður ætla að þessi
einfaldi sannleikur hefði átt að
vera á vitorði landa sem eiga eins
rosalegar mosaik-verksmiðjur
upplýsinga eins og þeirra sem eiga
C.I.A. eða M.S. En þeim virðist
ganga furðanlega illa að búa til
heildarmyndir úr öllu mósaikinu.
Og svo virðist hafa farið fyrir þeim
i þessu tilfelli. Svo vakna þessir
góðu menn upp einn góðan veður-
dag viðþað að „söguslysið” er skeð
og að stofnanir eins og NATO, sem
var blátt áfram búið til til þess að
berjast gegn heimskommúnisman-
Kjallarinn
Pétur Guðjónsson
um, hefur verið tryggasti og
traustasti bandamaður heims-
kommúnismans og uppbyggingar á
hernaðarmætti hans með snarvit-
lausri stefnu i fiskveiðimálum
heimsins, og rétta Sovétrikjunum i
dag jafnvirði 50milljónum tonna af
komi, sem er ekki hægt að rækta í
Sovétrikjunum og ekki fáanlegt til
kaups i heiminum.
Rússar verða alveg sömu kaup-
endur á fiski eftir að 200 mílurnar
eru orðnar heimsviðurkenndar eins
og þeir em á korni i heiminum i
dag. En hvernig haga forustu- og
öll riki NATO sér gagnvart þvi eina
riki innan bandalagsins sem berst
fyrir 200 milna fiskveiðilögsögu??
Það og 200milurnar þess skal lam-
ið niður með hernaðarofbeldi. A
svo dyggilegan hátt gengur Bret-
land fram fyrir skjöldu til þess að
tryggja áframhald á 50 milljónum
tonna af korni til handa heims-
kommúnismanum. Og NATO situr
hjá með hendur i skauti.
Það er eins gott fyrir þá menn
sem hafa haldið sig sitja inni með
alla þekkingu um hverjir gegna er-
inda hvers og hverjir ættu að passa
sig á nærveru við komma, að vita
hvar i flokki þeir standa sjálfir og
hvaða öfl þeir sjálfir eru i erind-
rekstri fyrir með þvi að krefjast
ekki af fullri hörku framgangs 200
milnanna og knýja NATO-þjóðirn-
ar til stuðnings við þær. Þetta er
þjóðarhneyksli i Bandarikjunum
þvi þau héldu þessari stefnu ó-
breyttri á meðan tugþúsundir
ungra Bandarikjamanna féllu i
Vietnam, á sama tima og þau við-
héldu fiskveiðistefnu sem stuðlaði
að hernaðarmáttaruppbyggingu ó-
vinarins. Það er ekki að vita hvort
Sovétrikin hefðu treyst sér til að
leggja til vopn þeirrar styrjaldar,
ef þau hefðu verið háðari umheim-
inum og Bandarikjunum með mat-
væli.
NATO i heild og helztu forustu-
riki þess verða að hætta að ganga
erinda heimskommúnismans með
þvi að halda fyrir þeim matar-
forðabúri heimshafanna galopnu.
Hér eftir er engin afsökun til.
Pétur Guðjónsson,
formaður Félags áhugamanna
um sjávarútvegsmál.
í FOTSPOR
HANNIBALS
— Hannibal tókst það á árinu
218 fyrir Krist, hvi ætti ég þá
ekki að geta það Hka?
Svona kemst bóndinn og
visindamaðurinn Wolf Zeuner i
Heraford i Englandi að orði.
Hann hyggst i október á þessu
ári halda með sex fila yfir erfið-
asta skarðið i Alpafjöllunum,
sama skarðið og Hannibal fór
með sina 37 fila um árið.
— Ég verð aðeins með sex fila
i minum leiðangri. Allir filarnir
hans Hannibals lifðu raunina
af, ég vona að minir filar lifi
lika, að öðrum kosti yrði ég
nokkrum milljónum fátækari,
sagði Wolf Zeuner fyrir stuttu
þegar hann tilkynnti fyrir-
hugaðan leiðangur sinn.
Filar eru nefnilega ekki sér-
lega ódýr farartæki. Visinda-
maðurinn verður að leigja fila
sina frá Thailandi fyrir, sem
svarar 250 þúsund krónur hvern
i þær sjö vikur sem leiðangurinn
stendur. Þetta er aðeins leigan,
ef filarnir hrökkva upp af á leið-
inni er hætta á að reikningurinn
hækki allverulega.
Reynt verður eftir megni að
tryggja öryggi filanna en þegar
ferðazt er eftir aðeins tveggja
metra breiðum troðningum ofan
við hundruð metra hengiflug er
ómögulegt að spá um endinn.
— Hannibal hafði 50 þúsund
menn i sinum hópi til að ryðja
snjónum af hættulegustu köfl-
unum en við verðum aðeins 50,
sagði Wolf Zeuner.
Zeuner hefur kynnt sér hætt-
urnar á leiðinni i niu könnunar-
ferðum sem hann hefur þegar
farið um Alpana. Hann hefur
ákveðið að filarnir verði allir
bundnir saman þannig að ef
einn fellur fram af muni hinir
geta dregið hann upp á ný, von-
andi.
— Eina vandamálið er að við
höfum enn ekki fundið kaðla,
sem við teljum nógu örugga
fyrirþriggja tonna filana, sagði
Wolf Zeuner.
Zsa Zsa Gabor skilur —
Eiginmaðurinn
reif Rolls Royce
bílinn hennar
í sundur
Fólk skilur af öllum möguleg-
um ástæðum en sennilega er til-
felli Zsa Zsa Gabors dálitið sér-
stætt — enda er hún leikkona.
Zsa Zsa Gabor er 55 ára og
hefurnú fariðfram á skilnað við
6. eiginmann sinn, hinn fimm-
tuga Jack Ryan „pabba
Barbie-fjölskyldunnar”. Ástæð-
an? Jú, hann hefur verið að
fikta við Rolls Royce bilinn
hennar Zsa Zsa. Það sem meira
er, hann hreinlega tók hann i
sundur lið fyrir lið. Billinn var
nefnilega ekki nógu stór — að
hans mati — og Jack vildi
stækka hann. Hins vegar tókst
ekki betur til en svo að hann
kom ekki bilnum saman aftur.
Svo var Jack lika búinn að
lofa Zsa Zsa að byggja fyrir
hana næturklúbb — innan
veggja lúxushúss hennar I Bel-
air i Hollywood. Atti þetta að
vera brúðargjöf eiginkonunnar
frá eiginmanninum en Jack stóð
bara ekki við þetta.
Parið gifti sig i janúar 1975 i
Las Vegas en skildi að borði og
sæng i október. Frúin fór fram á
það við dómstólana að Jack
hreinsaði til eftir sig i húsinu
hennar (hún sagði að það kost-
aði að minnsta kosti 8,5 milljón-
ir fslenzkar) og kæmi bilnum
saman i sitt upphaflega stand.
Vitanlega fór svo Zsa Zsa fram á
að milljónerinn Jack borgaði
sér — sanngjarnan lifeyri.
Þekktustu fyrrverandi eigin-
menn Zsa Zsa Gabor voru hótel-
eigandinn Conrad Hilton og
leikarinn George Sanders.
Fyrri skilnaðarástæður Zsa
Zsa voru óyfirstiganlegir erfið-
leikar i sambúð.
EVI.
Það gerist alltaf eitthvað i
í þessari Viku:
Snjólaug Bragadóttir rithöfundur — Hebbi leggur spilin ó borðið — Hj
— Tvœr smásögur — Vélsleðaprófun — Rœkjuveizla — og margt fle