Dagblaðið - 29.01.1976, Síða 15
Pagblaðið. Fimmtudagur 29. janúar 1976.
15
Tekjur hflns eru frvstar
of skattayfirvöldunum
Hann er ekki á neinu flœðiskeri staddur
þrátt fyrir það
Hún hefur ekki áhyggjur af hitaeiningunum þessi unga
fegurðardrottning og hámar I sig rjómaisinn.
Hefur meiri áhuga
á rúlluskautum og
brúðu en árssamn-
ingi við sýningar-
fyrirtœki
Fegurðardrottningar eru
vanar að súpa varlega á
kampavininu og telja allar hita-
einingar nákvæmlega.
En þessi unga fegurðar-
drottning, Shona Glover sem er
ekki nema sex ára gömul, gæðir
sér á þvi sem henni finnst allra
bezt, rjómais.
Hún var kjörin „Mini Miss” i
Bretlandi úr hópi sex hundruð
þátttakenda i keppninni.
Meðal verðlaunanna var árs
samningur viö tizkusýningar-
fyrirtækið „Tiny Tots Model
Agency”. Sú smáa hafði þó
meiri áhuga á þeim verðlaunum
sem hún fékk strax: föt fyrir allt
að 140 sterlingspunda (tæpl. 50
þús. isl. kr.), nýtt reiðhjól,
rúlluskautar og brúða.
Shona, sem býr i Walton-on-
Thames i Surrey, sagði eftir að
úrslitin urðu kunn að hún væri
mjög glöð yfir þvi að hún skyldi
vinna.
„Ég hélt ekki að ég myndi
vinna,” sagði hún. „Ég hef svo-
litlar áhyggjur af þvi að
stelpurnar i skólanum verði af-
brýðisamar. Þegar ég verð stór
ætla ég að verða Ungfrú Al-
heimur”.
Nú er kominn sá árstimi hjá
okkur að við verðum að fara að
hugsa til þess að gera skatt-
skýrslur okkar. Liklega eru
flestir á þeirri skoðun að skatt-
ar, sem þeim er gert að greiða,
séu miklu hærri en þeir ættu að
vera. Þetta er liklega svona um
allan heim.
A.m.k. er Elton John poppari
um þessar mundir i miklu upp-
námi vegna skattamála sinna.
Allar tekjur, sem hann hefur
haft i Bandarikjunum af hljóm-
leikahaldi siðan 1973, og eru um
1,05 milljarður Isl. kr„ eru
,,frystar” af skattayfirvöldun-
um. Það þýðir að hann getur
hvorki eytt neinu af þeim né
heldur tekið peningana úr landi.
Skattayfirvöld i Washington
og lögfræðingar popparans sitja
á samningafundum um málið og
ekki gott að segja hver endalok-
in verða.
Talið er liklegt að ef hann
reynir að flytja peninga sina út
úr Bandarlkjunum verði hann
tviskattlagður, það er yrði að
greiða skatt bæði I Bandarikj-
unum og einnig I Bretlandi. Það
þýddi að hann yrði að greiða
hærri upphæð i skatta en tekjur
hans hafa verið.
Þetta á þó aðeins við um þær
tekjur sem hann hefur haft af
hljómleikahaldi sinu. Tekjur
hans af hljómplötunum fara
eftir öðrum leiðum og eru ekki
„frystar” svo hann er ekki al-
veg á flæðiskeri staddur.
Það eru ótrúlegar tekjur sem
Elton John og raunar aðrar
poppstjörnur hafa af hljóm-
leikahaldi sinu. Við höfum áður
sagt frá hljómleikunum sem
hann hélt á iþróttavellinum I
Los Angeles. Nú liggur fyrir að
hann hafði fyrir snúð sinn af
þessum hljómleikum um 280
millj. isl. kr.!
Sú upphæð, ásamt þeim 40
millj. isl. kr„ sem hann fékk
fyrir hljómleikaferð um Banda-
rikin á sl. ári eru með i „fryst-
ingunni”.
Allar tekjur, sem Elton John
fær af hljómleikahaldi i Banda-
rikjunum á næstunni, verða
einnig „frystar” og enginn
nema umboðsmaður hans, John
Reid, og skattayfirvöldin vita
hvers vegna þetta er gert og hve
lengi þetta ástand varir.
En Elton John hefur áhuga á
öðru en að syngja og leika inn á
plötur og halda hljómleika. Nú
langar hann til þess að „kaupa”
sér fótboltalið. Hefur hann
augastað á bandarisku fótbolta-
liði er nefnist Aztekar og er
frá Los Angeles.
Félag þetta á i miklum fjar-
hagsörðugleikum. Það er dýrt
spaug að taka þátt I Ameriku-
keppninni, kostar um 250 þús.
dali (42,5 millj. Isl. kr.) fyrir
næsta leiktimabil.
Sjálfur hefur Elton John
aldrei leikið fótbolta en heldur
sér i „formi” með þvi að stunda
sund og iðka tennis.
Þegar hann var yngri haföi
hann mikla minnimáttarkennd
vegna þess að hann var of feit-
ur. Hann ætlar að koma i veg
fyrir það i framtiðinni.
Þeir eru karlar
í krapinu
Þeir eru ennþá karlar i krapinu
þessir gömlu, góðu og þótti það
merkilegur viðburður I sjón-
varpsheiminum i Bandarikjun-
um þegar NBC stöðinni tókst að
smala saman þessum fjóru „old
boys”. Þeir eru Frank Sinatra,
John Wayne, Bing Crosby og
Bob Hope.
Þeir báru allir aldurinn vel og
ekki er að sjá annað en að þeir
skemmti sér hið bezta.
Skemmtiþátturinn, sem þeir
komu fram I, stóð i tvo klukku-
tima. Þarna syngja þeir saman
ljómandi falskan kvartett og
sýna ekki á sér neinn bilbug.
Elton John á þrjú hundruð gleraugu . eins og frægt er orðið. Þcssi,
sem hann er meö hér á myndinni, gætu komiö sér vel i okkar veör-
áttu.
nýtt i hverri Viku
á Grace og Rainier — I skóleit — íslenzki jólasveinninn
ira