Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 29.01.1976, Qupperneq 17

Dagblaðið - 29.01.1976, Qupperneq 17
Pagblaðið. Fimmtudagur 29. janúar 1976. 17 Hermann Jónasson verður jarðsunginn i dag frá Dómkirkjunni kl. 13.30. Hermann var fæddur 25. desember 1896. Foreldrar hans voru hjónin Pálina Björnsdóttir og Jónas Jónsson bóndi að Syðri-Brekkum i Blönduhlið, Skagafirði. Hermann ólst upp hjá foreldrum sinum að Syðri Brekkum ásamt 5 systkinum.Hermann lauk laga- prófi frá Háskóla Islands 1924. Arið 1925 giftist hann eftirlifandi konu sinni Vigdisi Steingrims- dóttur. Þau eignuðust 2 börn, Pálinu og Steingrim. Hermann var fulltrúi við bæjarfógeta- embættið i Reykjavik i nokkur ár. Hann var skipaður lögreglustjóri i Reykjavik 1929. Lögreglustjóri var Hermann til 1934, en það ár varð hann forsætisráðherra aðeins 37 ára að aldri. Hann var þingmaður Strandamanna frá 1934 til 1959 og þingmaður Vest- firðinga eftir kjördæmabreyt- inguna 1959 til 1967, en þá hætti hann þingmennsku. Hermann sat samtals á 40 þingum. Eftir kosningarnar 1934 var mynduð samsteypustjórn Framsóknar- flokks og Alþýðuflokks að loknum kosningum. Var Hermann forsætis- landbúnaðar- og dóms- málaráðherra. Hermann Jónas- son myndaði þrjú ráðuneyti. Hið fyrsta 28. júli 1934, annað 18. nóvember 1941 og hið þriðja 24. júli 1956. Ráðherra var hann i tæp 14 ár og og mestan þann tima for- sætisráðherra. Hermann átti ýmis hugðarefni utan við stjórnmálin. Hann var mikill iþróttamaður á yngri árum og var glimukóngur íslands 1921, hann hafði mikinn áhuga á skóg- rækt og ræktunarmálum yfirleitt. Hagmæltur var hann og vel lesinn og fróður i bókmenntum, sérstak- lega þeim, sem snerta sögu landsins. Hermann var glaður i kunningjahópi, en ánægðastur var hann, þegar hann að loknum vinnudegi var kominn heim og fékk notið næðisstundar með fjöl- skyldunni. Með Hermanni Jónas- syni er genginn áhrifamikill og litrikur stjórnmálamaður, sem með störfum sinum hefur markað mörg heilladrjúg spor i islenzku þjóðlif i. Stefán Tryggvason Byggðavegi 101, Akureyri, lézt á Fjórðungssjúkrahúsi Akureyrar 21. janúar. Jarðarförin fer fram laugardaginn 31. janúar kl. 13.30. Jón B. Jónsson borgargjaldkeri, Espigerði 2, verður jarðsunginn .frá Dóm- kirkjunni föstudaginn 30. janúar kl. 10.30. Alda Guðmundsdóttir Mariubakka 22 verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 30. janúar kl. 1.30. Guölaug Sveinbjörnsdóttir, Hverfisgötu 55, Hafnarfirði, verður jarðsungin frá Hafnar- fjarðarkirkju föstudaginn 30. janúar kl. 14.00. Ruth Hildegard Steinsson fædd Liedtke verður jarðsungin frá Akraneskirkju laugardaginn 31. janúar kl. 11.30. Arnór Guðni Kristinsson, Mosgerði 1, verður jarðsunginn föstudaginn 30. janúar frá kirkju Óháða safnaðarins kl. 13.30. Kvenfélag óháða safnaðarins Fjölmennið á félagsfundinn næst- komandi laugardag 31. janúar kl. 3 e.h. i Kirkjubæ. Kaffiveitingar. Norrœna fékagið skipuleggur ódýrar hóp- ferðir í sumar Um tvö þúsund manns fóru ó vegum félagsins ó s.l. óri Félag einstæðra for- eldra heldur kaffikvöld að Hallveigar- stöðum fimmtudaginn 29. janúar kl. 21. Þar verður á boðstólum kaffi og heimabakað meðlæti. Spilað verður bingó með glæsi- legum vinningum. Félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna og taka með sér gesti. Aðalfundur Kvenfélags Laugarnessóknar. Kvenfélag Laugarnessóknar heldur aðalfund mánudaginn 2. febrúar kl. 8.30 i fundarsal kirkj- unnar. Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin. Fuglaverndarfélag íslands Fyrsti fræðslufundur Fugla- verndarfélags íslands 1976 verður haldinn i Norræna húsinu fimmtudaginn 29. janúar kl. 20.30. Sýndar verða tvær kvikmyndir teknar af Magnúsi Jóhannssyni, fyrst hin þekkta mynd um islenzka haförninn en siðan myndin Fuglarnir okkar. Eftir hlé verða sýndar tvær franskar náttúrumyndir, önnur frá Mada- gaskar. öllum er heimill aðgangur. Otto Aarnes, 8187 Reppasjöen, Norge, óskar eftir pennavinum á tslandi á aldrinum 18—45 ára. Hann skrifar ensku, þýzku, frönsku eða dönsku og svo norsku. Dómaranámskeið fyrir konur. Á vegum F.S.l. verður haldið dómaranámskeið fyrir byrjendur i fimleikastiganum, farið verður yfir 1.-6. þrep. Námskeiðið verður dagana 30. jan.-l. feb. 1976 i Breiðagerðisskóla. Upplýsingar i sima 43931 og 22883 eftir kl. 18. Fimleikasamband tslands. AA-samtökin i Reykjavik. Samtök gegn áfengisbölinu. Viðtalstimarfrá kl. 8—9 alla daga nema laugardaga og sunnudaga að Tjarnagötu 3c. Einnig er sima- viðtalstimi á sama tima. Siminn er 16373. Eyfirðingafélagið minnir á sitt árlega þorrablót næstkomandi laugardag 31 janúar að Hótel Borg. Aðgöngu- miðasala á sama stað fimmtud. og föstud. kl. 5-7 Fjölmennið og takið með ykkur gesti. Endurhaef ingarráö. Hæfnis- og starfsprófanir lara fram i Hátúni 12 alla daga nema. laugardaga og sunnudaga. Simi 84848. Munið frimerkjasöfnun Geð- verndar (innlend og erlend). Pósthðlf 1308 eða skrifstofa fé- lagsins, Hafnarstræti 5, Reykja- vik. Skrifstofa félags einstæðra foreldra Traðarkotssundi 6, er opin mártu- daga og fimmtudaga kl. 3—7 e.h., þriðjudaga, miðvikudaga og föstudaga kl. 1—5. Simi 11822. Á fimmtudögum kl. 3—5 er lögfræð- ingur FEF til viðtals á skrifstof- unni fyrir félagsmenn. Simavaktir hjá ALA-NON Aðstandendum drykkjufólks skal bent á simavaktir á mánu- dögum kl. 15—16 og fimmtudög- um kl. 17—18, simi 19282 i Traðar- kotssundi 6. Fundir eru haldnir i Safnaðarheimili Langholtssafn- aðar alla laugardaga kl. 2. Nes- og Seltjarnarnessóknir. Viðtalstimi minn i kirkjunni er þriðjudaga til föstudaga kl. 5—6.30 og eftir samkomulagi. Simi 10535. Séra Guðmundur Óskar Ólafsson. ír? ::?íi8 | [s í ;!* I | CENGISSKRANING tfh frír-,*.*.' Áí NR 16 - 26. janúar 1976 SkráO tra Kining Kl. 13.00 Sala 9/1 1976 1 Banda rikjadolla r 171.30 26/1 1 Stcrlinsspund 347.20 * - 1 Kanadadollar 171. 45 * 23/1 100 uanskar krónur 2782,65 - 100 Norska r krónur 3088,50 ' 100 S.cnskar krónur 3916. 10 ' IOO Finrsk n.ork 4463.75 26/ i i'tt: k ranskir frankar 3816.95 * 2 3.1 •00 'R Irank.ir 435.60 26/ 1 Itllt Svis*... írankar 6586,95 1 00 -iliiliíii 6416.40 * 100 V . - Þýzk mork 6589.10 ■* 21/1 100 Lírur óskráð 26/1 100 Austurr. Sch. 932,00 * 23/1 100 Eac udoi' 626,85 100 Pesctar 286, 50 26/1 P00 Yer. 56.45 * 9/1 100 Reikningskrónur Vóruskiptslönd 100.14 1 Reikningsdollar ■ Vóruskiptalttnd 171,30 * Hreyting frá ai'Suatu akráningu 9 Happdrætti Happdrætti Samvinnuskólanema Vinningaskrá. Parker pennasett komu á eftirtal- in númer: 3566, 2041, 5507, 562, 2284, 1254, 550, 5193, 5421, 3380, 1886, 5203, 1726, 2029, 7174, 4453, 571, 7461, 7697, 6841. Thriumph vasatövur komu á eftirtalin númer: 5150, 973, 4405, 4956, 3575. Thriumph Lady vasatölvur komu á eftirtalin númer: 1411, 4041, 3052, 84, 5012. Philips útvarpstæki komu á eftir- talin númer: 2471, 1228, 7306, 618, 4275, 6807, 4155, 582, 32, 4266. Fujica 200 ljósmyndavélar komu á eftirtalin númer: 4473, 6845, 2143, 2787, 4111, 3270, 5146, 6834, 624, 7315, 595, 6039, 3084, 4707, 1584. Fujica Single 8 kvikmyndatöku vélar komu á eftirtalin númer 2006, 6817. Vinsamlegast sendið miðann ásamt nafni og heimilisfangi til Samvinnuskólans á Bifröst og vinningar veröa þá sendir viðkomandi. „Það eru um fimm ár siðan Norræna félagið byrjaði á þessari starfsemi i þeirri mynd sem hún er nú,að gangast fyrir hópferðum til höfuðborga hinna Norðurland- anna fyrir lægsta mögulegt verð”, sagði Jónas Eysteinsson, framkvæmdastjóri Norræna félagsins i Reykjavik. „Lengra er siðan farið var • leiguflug á okkar vegum en þá gilti farseðillinn ekki nema i eina viku. Nú gildir farseðillinn hins vegar i heilan mánuð, þ.e. hægt er að koma til baka hvenær sem er innan mánaðar frá útgáfudegi farseðilsins. Þetta eru hópferðir, sjötiu manns i hverjum hóp og áfangastaður einhver af höfuð- borgum Norðurlandanna. Þannig er hægt að ná lægsta mögulega fargjaldi sem er um 50% af venjulegu fargjaldi. Fast verð er ekki komið á farmiðana enn. Við erum með milli 20 og 30 Hveragerði Samstarfsnefnd stjórnmála- félaeanna i Hveragerði og i Þorlákshöfn hefur ákveöið að gangast fyrir fundi um land- helgismálið á sunnudaginn kemur. Verður hann haldinn i Hótel Hveragerði og hefst klukkan 14 siðdegis. Mikil breiðsiða stjórn- málamanna mun mæta á fundinn Bandarikjamaður var handtek- inn á Keflavikurflugvelli i nótt vegna ölvunar við akstur. Hann er niundi maöurinn, sem vallar- lögreglan tekur á þessu ári vegna ölvunar. Hliðið að Keflavikurflugvelli er mjög hentugur staður til að ná ölvuðum bilstjórum. Lögreglan á það til öðru hverju að stöðva alla bila, sem fara i gegnum hliðiö og er það oft mjög árangursrikt. Einnig nást i þeim aðgerðum oft stolnir bilar. ferðirá timabilinu frá 10. april til 16. september. Flestar eru ferð- irnar til Kaupmannahafnar en einnig nokkrar til Osló og Stokk- hólms.” — Hvernig hefur aðsókn verið i þessar ferðir ykkar? „Aðsóknin hefur alltaf verið vaxandi. Hún hefur verið nokkuð svipuð sl. tvö ár, en aldrei hefui verið spurt um þessar ferðir eins snemma og i ár. Á sl. ári fóru alls tvö þúsund manns á vegum félagsins.” — Hvaða skilyrði þarf að upp fylla til þess að geta komizti þessar ferðir? „Einn úr fjölskyldunni þarf af vera félagi i Norræna félaginu og nægir það fyrir hjón og börr þeirra innan sextán ára aldurs.’ Félagar i Norræna félaginu í tslandi eru nú um tiu þúsunc talsins, og árgjaldið er kr. 500. —A.Bj og halda framsöguerindi, Lúðvik Jósepsson, Steingrimur Her- mannsson, Magnús Torfi Ólafsson, Sighvatur Björgvinsson og Pétur Guðjónsson forstjóri. Fundarstjórar verða þeir Sigurður Jónsson hafnarstjóri og Páll Pétursson, báðir frá Þorlákshöfn. Athygli vekur, að Sjálfstæðis- félaginu Ingólfi var boðin þátt- taka i fundinum, en hafnaði henni. —HP Aö sögn lögreglunnar er það mjög sveiflukennt, að menn reyni ölvun við akstur. Einn sólar- hringinn eru kannski teknir fjórir eða fimm menn, en svo geta liðið margir dagar, þar til menn keyra fulliraftur. Lögreglan setur þess- ar sveiflur einkum i samband viö útborgunardaga. A siðasta ári voru 110 manns teknir fyrir ölvun viö akstur á Keflavikurflugvelli. Það er tölu- verð minnkun frá árinu þar áður. —AT— Breiðsíða ó landhelgisfundi í Níu menn teknir fyrir ölvun við akstur á Keflavíkurflugvelli frá áramótum

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.