Dagblaðið - 03.03.1976, Qupperneq 24
Forsœtisráðherra:
100 MÍLUR FYRIR BRETA
Geir Hallgrímsson forsætisráð-
herra sagði í Kaupmannahöfn í gær
að íslendingar kynnu að samþykkja
tii bráðabirgða, að Bretar mættu
veiða upp að 100 mílna mörkum, að
því er segir í fréttaskeyti frá frétta-
stofu Reuter.
Forsætisráðherra sagði
blaðamannafundi að það
skilyrði fyrir öllum viðræðum, að öll
skip brezka flotans yrðu á brott úr
200 mílna landhelgi.
4 Þá sagði hann, að kröfur Breta
um veiðar vrðu að verða raunhæfari
en verið hefur.
íslendingar hefðu orðið fyrir
miklum vonbrigðum með fund for-
sætisráðherra í Lóndon.
-HH.
8
.
HERSKIPA-
VERNDIN
AÐ VERÐA
AÐ ENGU
— togaraskip-
stjórarnir ókveðnir
í oð veiða ó
eigin spýtur
Brezkir togaraskipstjórar við ísland
eru nú ákveðnir í að veiða á eigin
spýtur, án verndar herskipanna, eftir að
þrjú varðskip hröktu 26 togara í hnapp
á ekki stærra svæði en 2x4 mílur.
Greinilegt er að togaraskipstjórarnir
brezku eru orðnir efins um gildi her-
skipaverndarinnar. Svæði það sem
brezki flotinn ákvað að nú skyldi vera
verndarsvæði fyrir togaraflotann var
stækkað um 30 mílur, en það þýðir í
reynd minni vernd, og ábyrgist brezki
flotinn nú ekki að neitt herskip verði í
nánd við togarann ef varðskip nálgast.
Brezka freigátan Yarmouth, sem
skemmdist allmikið í árekstri við
varðskipið Baldur á laugardaginn. kom
í gær til hafnar í Rosyth í Skotlaudi
Skipstjóri freigátunnar Michael Jones
hélt skömmu seinna blaðamannafund.
Sagði hann þar að Baldur hefði hvorki
breytt stcfnunni né dregið nokkuð úr
hraða þegar herskipið nálgaðist.
Einnig bar skipstjórinn það upp á skip-
herra Landhelgisgæzlunnar að svona
heguðuð þeir sér aðeins þegar enginn
fréttamaður væri í grenndinni, hvorki
um borð í viðkomandi varðskipi né að
fylgjast með atbyrðunum úr
flugvél. -BH-
Eins og sjá má, er dráttarvélin illa farin ettir að hún hatöi verið ræst og síðan bakkað fram af veggnum.
DB-mynd: SV.Þorm.
SKEMMDARVERK HJA GL0BUSI
— fflctoð víð tvœr dróttorvélar og önnur stórskemmd, — öryggishús
sannoði gildi sitt
N^kkrar dráttarvélar af Zetorgerð
eru þarna á lóðinni. Skemmdarvarg-
arnir höfðu brotizt inn í aðra dráttar-
vél og reynt að ræsa hana, en ekki»
tekizt.
„Þetta er svo sem ekki í fyrsta
skipti, sem pörupiltar brjótast inn á
lóðina hjá okkur og leika sér að
dráttarvélunum,” sagði Kristján
Þórðarson, einn af stjórnendum Glób
usar. — Brotizt var inn á lóðina í
gærkvöld og einni dráttarvélinni ekið
fram af steinvegg. Kveikjulásinn
hafði verið tengdur saman og vélinni
síðan bakkað fram af.
en þó sést alltaf ein og ein, sem er
húslaus. Tæplega hafa skemmdar
vargarnir þó setið inni, þegar þeír
létu dráttarvélina dúndra framaf.
Af myndinni má sjá, að öryggishús
dráttarvélarinnar hefur ótvírætt
sannað gildi sitt. Mjög algengt er
orðið að slík hús séu á dráttarvélum,
Er DB fór í prentun í morgun
höfðu skemmdir á dráttarvélunum
ekki verið kannaðar, en eftir mynd-
inni að dæma eru þær töluverðar.
— ÁT —
Alþýðublaðið fœr
finni" húsakynni
##
. O 71
/mM/M
>*íwapSB’- ■
„Það er verið að breyta öllum
innréttingum. Því lykur í dag, og
blaðið kemur aftur út á morgun,”
sagði Árni Gunnarsson, hinn ný-
skipaði rilstjóri Alþýðublaðsins, í
morgun.
Blaðið hefur ekki komið út síðan
fyrir verkfall vegna breytinga á
húsakynnum.
„Það er verið að mála allar
ritstjórnarskrifstofurnar, rífa niður
milliveggi og breyta herbergja-
skipun,” sagði Árni. „Búið er að
vcggfóðra. Þá vantar loftræstingu.”
Árni var spurður, hvort miklar
breytingar yrðu á starfsliði.
„Ekki ennþa,” sagði Árni, „en
reikna má með, að einhverjar
lagfæringar verði gerðar.”.
-HH.
Verkakonur ó Akranesi harðar:
„LÁTUM ÚTGERÐARMENN EKKI
K0MAST UPP MEÐ MÚÐUR"
— sögðu þœr og stöðvuðu vörubíl
„Við ætlum ekki að láta útgerðar-
menn komast upp með neitt múður,”
sagði Gréta Gunnarsdóttir, ritari
kvennadeildar verkalýðsfélags Akra-
ness, í viðtali við Dagblaðið í morgun.
„Samstaðan meðal okkar eykst með
hverri raun.”
Verkfallsverðir kvennadeildarinnar
urðu varir við það í gær, að verið var að
skilja loðnuhrogn. Létu þær það af-
skiptalaust, enda hafa karlmenn að öllu
jöfnu unnið þau störf. En er þeirætluðu
/rjálst, úháð dagbl&ð
Miðvikudagur 3. marz 1976.
Samið í nótt ó
Snœfellsnesi
Samningar tókust í nótt um sérkröfur
sjómannafélaganna á Snæfellsnesi.
Kristján Helgason, ritari Verkalýðs-
félagsins Jökuls, Ólafsvík, sagði í
morgun, að það væri von allra, að menn
gætu nú farið að veiða. Atkvæða-
greiðsla verður í félögunum í dag, og
verða þá um leið greidd atkvæði um
heildarsamningana í sjómannadeilunni.
-HH.
Allt ó síðasta
snúning með
frystingu
loðnunnar
Eins og við mátti búast var mjög góð
loðnuveiði í gær á miðunum undan
Reykjanesi. 39 bátar tilkynntu 10.500
tonna afla, sem landað var á Faxa-
flóahafnir og í Nordglobal.
í nótt var hins vegar enginn afli,
enda stormur á miðunum og lágu flestir
bátanna í vari.
Að sögn loðnunefndar er loðnan enn
frystingarhæf en það má ekki tæpara
standa. Er hún mjög smá og þrogn
orðin 20%. Hefur smæðin auðvitað
töluverðan verðmismun í för með ser.
-HP.
Akureyri:
Skólabörn í
öskudagsskapi
Það er heldur óvenjulegt að heyra
glymjandi söng, er blaðamenn
hringja í lögregluna til að spyrjast
fyrir um atburði næturinnar.
Þannig var það þó, er DB ræddi við
lögregluna á Akureyri í morgun.
Hópur barna úr Barnaskólanum á
Akureyri stóð fyrir utan lögreglu-
stöðina og söng hástöfum Fyrr var
oft í koti kátt. Og ekki nóg með það,
— tveir hópar í viðbót biðu eftir því
að komast að til að skemmta lög-
reglunni.
Þetta er árviss siður skólabarna á
Akureyri. Þau eiga frí í skólanum á
öskudag og gera þá ýmislegt sér til
skemmtunar, svo sem að syngja fyrir
utan hús, slá köttinn úr tunnunrii
og að sjálfsögðu að hengja poka á
grandalausa bæjarbúa. — ÁT —
sér að fara að pakka loðnunni til fryst-
ingar, gripu konurnar í taumana og
stöðvuðu allar frekari framkvæmdir.
Seint í gærkvöldi urðu þær svo varar
við, að verið var að lesta bíl úr Borgar-
nesi loðnu og umbúðum og átti að
flytja allt sanian í frystihúsið þar. Tóku
þær til óspilltra málanna, lögðu bílum
sínum umhverfis vörubílinn og lokuðu
þannig veginum.
í morgun var verið að afferma bílinn
— HP.
Óheppnir þjófar i
Kópavogi:
URÐU AÐ SKILJA
BÍL SINN EFTIR
Á INNBR0TSSTAÐ
Þeir hafa væntanlega verið heldur
lúpulegir, mennirnir, sem komu á
lögreglustöðina í Kópavogi laust
fyrir miðnættið í nótt til að vitja um
bíl sinn. Þeir höfðu nefnilega
nokkru áður reynt að stela
afturljósum af bifreið, sem stóð á
móts við Nýbýlaveg 4. Lögreglan
kom að þeim við iðju sína, svo að
þeir urðu að grípa til tveggja
jafnfljótra og skilja bílinn eftir.
Kópavogslögreglan tók bíl
þjófanna í sína vörzlu, en til að
missa hann ekki alveg, urðu þeir að
gefa sig fram á lögreglustöðinni. —
Þjófunum var sleppt að lokinni
yfirhevrslu.
-ÁT-
i