Dagblaðið - 06.04.1976, Síða 11

Dagblaðið - 06.04.1976, Síða 11
DAGBI.AÐIÐ l>KH)Jl'I)A(!l'K (>. AI’KÍI. 1!)T(>. hjá drengjum og stúBcum Þeir. sem á annað borð eitt- hvað velta fyrir sér lestri barna og unglinga, og bókmenntum f.vrir börn, reyna gjarnan að finna svar við spurningunni: Hvað er það sem börn og unglingar vilja eiginlega helst lesa? Erlendis hafa verið gerðar margar rannsóknir á þessu efni. En það er hreint ekki svo létt verk, því val barna helgast að verulegu leyti af hverju þau hafa aðgang að annars vegar, og hins vegar hvað þau halda að sé ætlast til að þau lesi. Engu að síður gefa þessar rannsóknir nokkuð skýra niynd af hverskonar bæk- ur börn kjósa sér á hinum ýmsu aldursstigum, og einnig sýna þær svo ekki verður um villst að drengir og stúlkur hafa ólikan smekk. Eg veit ekki til að hérlendis hafi verið gerðar nokkrar rann- sóknir á lestrarvenjum barna og unglinga. ef frá eru taldar rannsóknir dr. Símonar J. Ágústssonar. En niðurstöður þess hluta þeirra sem fjallar um frjálsan lestur barna og unglinga eru ekki komnar út. Þar sem mismunur kynjanna og/eða mismunun kynjanna hefur verið ofarlega á baugi m.a. af afloknu kvennaári, langar mig að greina lítillega frá því sem komið hefur fram í rannsóknum á þessu sviði og mér þykir markvert. í upphafi vil ég benda á, að þó greinilegur munur sé á smekk drengja og stúlkna, segir það ekkert um eðlislægan mun k.vnjanna, því börn eru þegar á unga aldri mótuð af væntingum umhverfisins varð- andi kynhlutverk. Þegar meta á niðurstöður rannsókna varðandi smekk barna á lestrarefni, er nauðsyn- legt að hafa i huga þá fjöl- mörgu þætti, sem til samans móta þau sem einstaklinga og um leið venjur þeirra, smekk og áhugamál. Um leið er vert að hafa i huga að höfundar barna- bóka semja bækur sínar oft út frá einhverjum uppeldislegum markmiðum, sem þeir ýmist móta sjálfir eða eru til staðar í samfélaginu. Þessi markmið. sem sum eru óljós eru mörg og oft mjög mótsagnakennd. Dæmi: 1. Barnabækur eiga að gefa raunsæja mynd af því sam- félagi sem þær fjalla um. 2. Barnabækur eiga að vera hvati að jákvæðum þjóð- félagslegum breytingum. 3. Barnabækur eiga að hjálpa til að aðlaga barnið að sam- félaginu. Fleiri dæmi mætti nefna. Flestar athuganir á lestrar- venjum barna. sem ég hef séð, sýna að verulegur munur er á smekk drengja og stúlkna þegar við 9 ára aldur. Þær sýna jafnframt að hluti stúlkna kýs bækur sem eru flokkaðar sem strákabækur en engir strákar kjósa sér stelpubækur. Sumir athugendur geta sér þess til að skýringin á þessu geti verið sú, að hlutverk konunnar í þjóð- félaginu er nú að breytast, og stúlkur því frjálsari í vali sínu. Þetta styður m.a. finnsk rann- sókn, sem sýndi að mismunandi áhugi barna á lestrarefni mótaðist að verulegu leyti af því, hvað drengir og stúlkur héldu að væri „passandi” fyrir þeirra kynhlutverk. Og í hverju felst svo þessi munur? Hvað er sérstakt við drengjabækur og hvað einkennir stúlknabækur? Hér er alstaðar átt við bækur sem börnin velja sér sjálf og Bók menntir láta í ljós ánægju með. Dæmi- gerðar stúlknabækur sækja gjarnan efnivið sinn i hið dag- lega líf, heima og í skóla. Aðal- persónurnar eru gjarnan stúlkur. í dæmigerðum stráka- bókum, verða heimili og skóli hverfandi þættir I efniviði sögunnar. Bækurnar segja frá spennandi ævintýrum, hetju- dáðum úti í hinum stóra heimi. Aðalpersónurnar eru myndar- drengir sem eru í senn gáfaðir og hugrakkir. Börn, sem orðin eru 10 ára, gera þær kröfur til bóka að þær séu innan ramma raunveruleikans, að þær geti verið sannar, þrátt fvrir að þær séu ótrúlegar, Niðurstöður allra þessara rannsókna hafa gefið þeim sem velta fyrir sér eðlisláigum og tillærðum mun kynjanna mikið efni til að vinna úr. Þær hníga allar í þá átt að í menningar- samfélagi Vesturlanda sé greinilegur munur á smekk og áhugarnálum drengja og stúlkna. Það sem styrinn stend- ur um er að hve miklu leyti (etv. öllu) samfélagið eigi þátt í að skapa þennan mun. Hvað sem því líður virðast þær kenningar Parsons stand- ast að hlutverk konunnar (og þar með konan sjálf?) einkenn- ist af næmleika á fólk, og sam- bandi milli fólks og tilfinninga- líf spili stóra rullu, en að karl- menn séu meira uppteknir af athöfnum og ytri veruleika. Að lokum: Sjálf er ég sann- færð um að ríkjandi hefðir í þjóðfélaginu hafa afgerandi áhrif á hvaða þættir verða ráð- andi í fari karla og kvenna og skapa þar með k.vnhlutverka- skiptingu. Ég er einnig sann- færð um að það er í senn æski- legt og óhjákvæmilegt að jafnt konur sem karlar taki hlutverk sín í þjóðfélaginu upp til gagn- gerðs endurmats. Hingað til hefur verið viss tilhneiging í þá átt að konur gangi inn i hið viðurtekna hlutverk karla. Þess hefur einnig gætt að hið hefð- bundna hlutverk kvenna væri lítils metið. Ef konur jafnt sem karlar eiga að öðlast meira frelsi til að vclja sér hlut verk í þjóðfélaginu, þýðir það að bæði kynin þurfa að læra nokkuð hvort af öðru. Ég er sannfærð um að sú veröld sem birtist í bókmennt- um á sinn þátt í að móta þau hlutverk sent karlar og konur ganga inn í. Ég held að það sé æskilegt að uppalendur séu meðvitaðir um hvaða öfl eru að verki i að móta börn þefrra sem einstaklinga. Ef þau geta rætt opið um það við þau, þá er líklegt að börnin verði frekar þess megnug að taka afstöðu og velja sér hlutskipti í lífinu. Um ólíkan bókmenntosmekk andhelginni sögu. En hinn raunverulegi övinur Breta i þessum efnunt eru ekki íslendingar heldur Efnahagsbandalagið,, því við inngönguna í það urðu Bretar að undirgangast þá kvöð, að hinar meðlimaþjóðirnar rnegi fiska upp að 12 mílum við strendur þeirra og innan nokk- urra ára upp að 6 mílum, og skiptir þá ekki máli, hvort Bretar sem þjóð eru með 200 milna efnahagslögsögu eða ekki. Því liggur algjörlega aug- Ijóst fyrir, að stefna brezku ríkissljörnarinnar gengur i mót brezkum þjóðarhagsmunum og þvi ekkert annað að gera en taka upp nýja stefnu, stefnu íslands í landheigismálum. Blöðin eru yfirleitt snútn á móti brezku rikisstjórninni. ITN sjónvarps.stoðfB skýrir málefnalega frá fréttum. Ein- göngu BBC af stórum fjölmiðl- um er undir stjórn ríkis- stjórnarinnar, en liggur undir mjög vaxandi gagnrýni. Þetta er ástandið a heimavígstöðvun- um, sem eru að bresta í hönd- um brezku rlkisstjórnarinnar. En hvornig er ástandið á hinum raunverulegu vigstöðv- um? Brezki flotinn er ím.vnd hugprýði og siðgæðis i mann- legum samskiptum i hugum flestra Breta. mikið af þjöðar- stolti Breta er tengt honum og ljömi stendur í kringum hann og sögú hans i vitund brezku þjóðarinnar. Því tekur brezku þjóðina sárar en orðum taki að sjá Hinn konunglega flota í of- beldisaðgerðum gagnvart vopn- lausu smáriki, i framkv. svo svívirðilegum að varnarmála- ráðuneytið verður að gripa til þess ráðs að re.vna að hylja að- gerðir flotans Ivgaveg. því ■þrezka ríkisstjórnin treystir sér ekki að koma hreinl fram og segja blátt áfram frá því, hvernig Ilinum konunglega flota er beitt. Þetta er slík niðurlæging og sorg fyrir stóran hóp brezku þjóðarinnar, að jafnvel þótt þö nokkuð af þorski kæmi á móti er hann einskis virði móti þeim verð- mætum sem eru að glatast og þeirri smán, sem HinnJsonung- legi brezki floti hefur' orðlð fyrir og er að verða fyrir. En varnarvopnið er fundið gegn freigátunum brezku. Skuttogarinn Baldur, sem Auðunn Auðunsson skipstjóri benti fyrstur manna á að taka ætti í Gæzluna í sept. síðast- liðnum. hefur sýnt sig vera með Kjallarinn Pétur Guðjónsson slikan styrkleika i afturhornum skrokksins að hann hefur náð að gera ósjófærar tvær frei- gátur á nokkrum dögum. Ekki leikur minnsti vafi á því, að Hinn konunglegi floti fékk fyrirskipanir að ráðast að Baldri og orsaka á honum alvar- legar skemmdir. eftir að sýnt var að fleiri slíkir togarar áttu að takast í notkun í Gæzluna. Það átti að sýna og sanna að það þýddi ekkert fyrir Islendinga að hafa þessi skip í Gæzlunni. En árangurinn af þessum brezku aðgerðum er einfald- lega sá. að sýna okkur og sanna, „að Baldur ristir upp skrokkinn á freigátunum eins og niður- suðudósir." svo notuð séu orð freigátuskipherrans er varð fyrir seinni ristunni. er hann kom í höfn i Bretlandi. Nokkrir skuttogarar til viðbötar í Gæzl- una geta einfaldlega gert allar þær brezkar freigátur er reyna ásiglingar ósjófærar. A þennan einfalda máta er brezki flotinn gerður óstarf- hæfur. Þvi er ánægjulegt til þess að vita að nú skal öðrum Baldri bætt við Gæzluna en taka ætti undir öllurn kringum- stæðum fleiri til varnar land- helginnar. Staðan í dag er því örugglega sú. að Bretar eru búnir að tapa deilunni við okkur. tímaspurs- mál er bvenær þeir verða að hætta þessum heimskulegu að- gerðum sinum á islenzkum haf- svæðum. Þvi er stóra málið í dag að endurheimta þýzku samningana og forða því þjóðarslyst. • sem þeir samntngar voru. Ríkustu iðnaðarþjóð heimsins. Þjóðverj- um, var gefið af aflahlut. sem ekki var til skiptanna, hvorki meira en né minna en 120.000 tonn á tveimur árum að verð- mæti ekkt undir 12 milljörðum króna þótt ekki sé reiknað með meira verði en kr. 100 pr. kg i útfluttum verðmætum. Nú eru tillögur uppi um að banna allar togaraveiðar Islendinga ákveðið tímabil á þessu ári. Það getur þvi komið upp sú staða um mitt sumar í sumar að íslenzkir sjómenn verði að fara um borð í þýzka togara til þess að stunda togveiðar á íslands- miðum. Af þessu sést, hverslags voðaverk þýzku samningarnir voru. Akveðni og úthald í deil- unni við Breta nú færir okkur því ekki aðeins sigur á Bretum heldur einnig endurheimt þýzku samninganna. Þeir falla sjálfkrafa réttindalega niður 1. mai næstkomandi. ef ekki verður samið við Breta og bókun 6 verður ekki komin til framkvæmda. Þetta er stærsta mál íslenzku þjóðarinnar í dag. En þjóðin verður nú að halda vöku sinni. því nú alveg á næstu dögunt verður knúið fast á með að beygja íslendinga. timinn er að renna út úr hönd- unum á andstæðingum okkar. Bretar verða að leggja fram forntlega kröfur hjá Efnahags- bandalaginu gagnvart sinni eigin landhelgi. sem þeir geta ekki gert, því þeir ætla fyrst að knýja tslendinga til samninga og heimta svo sér sjálfum til handa, sem þeir neita íslendingum um. Staðfestist þetta í fréttum í morgun. en forsiðufrétt í Morgunblaðinu segir frá tillögu 100 brezkra ihaldsþingmanna. sem heimta stóra landhelgi Bretum til handa. Allt þetta hangir saman og leysist sjálfkrafa íslending- um í vil eingöngu ef forusta okkar hefur úthald og baráttuþrek. Pétur Guðjónsson forstjóri. -

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.