Dagblaðið - 03.05.1976, Blaðsíða 7
DACBI.AÐIi). MANUDAC.UK 3. MAÍ 197«.
7
Bandarísku forkosningarnar íTexas:
Yfírburðasígur Reagans yfír
Ford - Carter em óstöðvandi
Ronald Reagan skaut Ford
forseta heldur betur ref fyrir
rass í forkosningunum í Texas
nú um helgina. Er öll atkvæöi
höfðu verið talin, varð ljóst, að
Reagan hafði. hlotið stuðning
allra kjörmanna Texas-ríkis,
96 að tölu, og verður það að
teljast auðmýkjandi ósigur
fyrir Ford sem unnið hefur
allar forkosningar repúblikana
fram til þessa að undanskildum
einum. Nú hefur Reagan tryggt
sér atkvæði 232 kjörmanna,
sem er aðeins 28 atkvæðum
minna en Ford og má því ætla,
að mjótt verði á mununum á
flokksþinginu, þar eð Reagan
er talinn sigurstranglegur í
nokkrum þeirra forkosninga,
sem nú fara í hönd.
í herbúðum demókrata vann
Jimmy Carter enn einn yfir-
burðasigur yfir andstæðingum
sínum og hlaut atkvæði 93 af 98
kjörmönnum frá Texas. Er það
mun meira en einn þriðji
hlutinn sem Carter hafði búizt
við. Helzti andstæðingur hans
var þingmaðurinn Lloyd Bent-
sen, sem hafði ætlað sér að
halda á flokksþingið með hópi
„óháðra” kjörmanna frá Texas,
fengi hann nægilegt fylgi. Sú
staðreynd, að hann tryggði sér
aðeins atkvæði 5 kjörmanna,
setur hann nánast úr Ieik.
Bentsen er því enn eitt
fórnarlamb „breiðfylkingar”
Carters, sem farið hefur eins og
eldur í sinu að undanförnu.
Óvæntur sigur hans i
Pennsylvaníu og yfirlýsing
Humphreys þess efnis, að
hann muni ekki taka þátt í
forkosningunum, ásamt því að
Henry Jackson hefur dregið sig
í hlé, hefur verulega ýtt undir
sigurmöguleika Carters.
Svo virðist sem Reagan hafi
hlotið atkvæði nánast allra
íhaldssamari repúblikana i
fylkinu og slíkt er mikið áfall
fyrir Ford, sem treyst hafði á
stuðning þeirra afla.
»
Reagan hafði beðið rólegur
eftir forkosningunum í Texas,
og því hefur sigurinn án efa
verið honum sætur. Hann hefur
nú tryggt sér atkvæði 232 kjör-
manna repúblikana á flokks-
þinginu, aðeins 28 atkvæðum
minna en Ford forseti hefur.
Carter
ynni í
dag
Fylgi Jimmy Carters hefur
farið ört vaxandi undanfarna
mánuði og hver mótframbjóð-
andi hans á fætur öðrum hefur
gefizt upp eða hætt þátttöku í
forkosningunum. Fylgi hans
meðal almennings yfirleitt er
einnig mikið um þessar
mundir og samkvæmt síðustu
(lallup-skoðanakönnuninni,
sem birt er í ný jasta hefti tima-
ritsins Time, þar sem fólk var
spurt að því, hvorn það myndi
kjósa. ef kosningar væru nú,
studdu um 48% Jimm.v Carter
en um 36% atkvæða féllu í
skaul Ford forseta.
Flestir virðast nú ganga út
frá þvi setn vísu, að Carter
hljóti útncfningu sem forscta-
cfni Demókrataflokksins á
l'lokksþinginu, 12. júlí nk.
Hvor verður sáttasemjari,
Wilson eða John Vorster?
Wilson, fyrr-
um forsætisráð-
hérra Bretlands,
hefur langa
reynslu í mái-
efnum Afríku
og þá sérstak-
lega Ródesí u.
Ekki vitað hvort lan Smith verður að fara frá áður en til
raunverulegra viðrœðna kemur
Harold Wilson, fyrrum for-
sætisráðherra Bretlands, og
John Vorster, forsætisráðherra
Suður-Afríku, koma sterklega
til greina sem sáttasemjarar í
deilunni í Ródesiu, að sögn
bandarískra embættismanna.
Embættismenn þessir, sem
eru í fylgd með Henry
Kissinger og komu með honum
til Nairobi í nótt, sögðu i viðtöl-
um við fréttamenn, að það
kæmi þeim ekki á óvart, að um
það væri rætt í Bretlandi að
Wilson gerðist sáttasemjari í
deilunni milli hvítra og svartra
Ródesíumanna.
Bandaríkjastjórn á einnig að
vera því fylgjandi, að einhver
stuðningur komi frá Suður-
Afríku við þær hugmyndir, sem
komið hafa fram um að reyna
að miðla málum í Ródesíu, þar
eð flest ríki, sem afskipti hafa
haft af málinu, hafa lýst yfir
stuðningi við frelsishreyfingu
blökkumanna og geta því
naumast talizt heppileg sem
sáttasemjarar.
Enn hefur þvi ekki verið lýst
yfir, hvort Ian Smith forsætis-
ráðhera verði að hverfa frá
völdum áður en til raunveru-
legra viðræðna kemur, en leið-
togar blökkumanna tortryggja
hann verulega.
John Vorster,
forsætisráð-
herra Suður-
Afríku, hefur
alltaf verið
ákafur stuðn-
ingsmaður
„Apartheit”-
stefnunnar.
rafvirkjar!
”Rafvörur” býöur upp á
mikið úrval efnis til raf-
lagna, semsagt frá upp-
hafi til enda.
Ljósaperur í flestöllum
stærðum, dyrabjöllur,
raftæki og margt fleira.
Rafvirkjar á staðnum.
RAFVÖRUR
Laugarnesvegur 52 Simi 86411