Dagblaðið - 14.07.1976, Blaðsíða 8
8
ÍKILJUR
|
Þættirúrsögu
; Rómönsku
; Ameríku
Nýjar
útgáfubœkur
Sálmurinn um blómið
Sumarhjólbarðar
Stærð 5,60X15
Þar er bœði hugsað um sálina og líkamann
,,Við erum búin aó hafa sól og
blíöu hér á Laugalandi í uni það
bil þrjár vikur svo ekki getum við
sagt að veðurguðirnir séu okkur
ekki hliðhollir.'' sagði Jón Sigur-
geirsson forstöðumaður á nýju
hressingarheimili í Eyjafirði i
samtali við DB.
Gestir heimilisins geta notið al-
hliða hvíldar fyrir hug og líkama
ásamt fræðsiu og kynningarstarfi.
Stór þáttur er flutningur tónlistar
og hafa ýmsir kunnir hljóm-
listarmenn heimsótt Laugaland
t.d. Sigríður E. Magnúsdóttir,
Carl Billich og Halldór Haralds-
son.
Dagleg þjálfun er í yoga og
leiðbeinir Ásta Guðvarðardóttir.
Einnig er iðkuð nokkurs konar
hugleiðsla á kvöldin í hálftíma i
senn. Þá er byrjað á þvi að hlusta1
á músík og síðan heldur einn þátt-
takandinn smá tölu.
Mataræðið er nokkuð svipað og
tíðkast á hressingarheimílinu i
Hveragerði. Sundlaug er á Lauga-
landi sem gestir geta notfært sér
frá klukkan hálf átta til fimm á
daginn. Einnig er hægt að fá
nudd, hand- og fótsnyrtingu.
„Hugmyndina að svona heimili
hófum við gengið með lengi og nú
loksins komið henni í fram-
kvæmd. Ef þetta tekst vel í sumar
verður sjálfsagt framhald á þess-
ari starfsemi okkar," sagði Jón.
Það er ÍJlfur Ragnarsson læknir
sem var frumkvöðull að þessari
starfsemi ásamt Jóni, en hann er
skólastjóri Iðnskólans á Akurevri.
Asta Þorvarðardóttir,
Magnúsdóttir.
Úlfur Ragnarsson, frú • Hainbiing, jón
Sígurgeirsson og Sigriður Elia
(Ljósmynd lslendingur)
Verð
KR.
ÁMEÐAN
BIRGÐIR
ENDAST:
Takmarkað upplag.
Mál og menning
Bók um hinn frjalsa
Summerhillskóla og róttæk-
ar uppeldisfræðikenningar
skólastjórans. Kaflaheiti.
Skólinn Summerhill, Barna-
uppcldi, Kynlíf, Trú og sið-
gæði, Vandamál barnsins,
Vandamál foreldranna.
Spurningar og svör.
Ömissandi bók handa kenn-
urum og fordómalausum
foreldrum.
Hér er rakin forsaga hinnar
indíánsku Ameríku, saga
landvinninganna og fyrst og
fremst stjórnmálasaga hvers
einstaks ríkis fram til þessa
dags. Fyrsta bók á íslensku
sem gefur undirstöðuvitn-
eskju um stjórnmál þessa
heimshluta.
Hið ástsæla verk Þórbergs
Þórðarsonar, bókin um Lillu
Heggu loksins fáanleg aftur
í nýrri útgáfu, bæði bindin í
einni bók.Félagsbók MM.
Saga eignarhalds og stétta-
skiptingar frá lénsveldi til
auðvaldsskipulags 20. aldar.
Bókin er mjög aðgengileg og
iskemmtilega skrifuð.
Kit t grundvallarrit
marxiskrar hagfræði.
Takið kilju með i sumar-
leyfið.
DAGBLAÐIÐ — MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLl 1976.
Hvað kostar að leigja bfl?
Þoð getur munað talsverðu
fé eflfr því hvar leigt er
Margir hafa hug á'því að
leig.ja sér bíl í sumar. Það er
ýmist að menn koma utan af
landi til höfuðborgarinnar eða
borgarbúar halda út á lands-
byggðina. Oft er erfitt að
ákveða hvort menn eigi að fara
á bílnum sínum alla leiðina, eða
að fljúga á ákveðinn stað, og
léigja inl jil að skoða ná-
grennið. Við gerðum smá
athugun á hvaó bílar kosta á
dag á nokkrum bílaleigum á
landinu.
Bílaleigan Falur,
Reykjavík
Volkswagen kostar þar 1700
krónur á dag og 15 krónur á
kílómetrann.
Bílaleigan Geysir
Reykjavík
Þar er hægt að fá Skoda og
Volkswagen fyrir 1750 krónur á
dag og 15 krónur á kílómetrann.
Bílaleiga Akureyrar
Hún er ein stærsta bílaleiga
landsins og jeppaúrvalið hvað
mest. Þar kostar Volkswagen
2000 kr. á dag og kílómetra-
gjaídið er 20 krónur.
Bílaleigan Bliki,
Hafnarfirði
Volkswagen og Fiat er hægt
að fá þar fyrir 1750 krónur á
dag og 15 krónur þarf að greiða
fyrir hvern ekinn kílómetra.
Bílaleigan Vega-
leiðir, Reykjavík
Volkswagen kostar 1750 kr. á
dag og.kílómetrinn 15 kr.
Bílaleigan Faxi,
Garðabœ
Volkswagen kostar 1800
krónur á dag og kílómetra-
gjaldið 16 krónur.
Bílaleiga Loft-
leiða, Reykjavík
Þetta mun vera stærsta bíla-
leij'an með eitthvað á annað
hundrað bíla. Volkswagen
kostar þar 1750 á dag og kíló-
metrinn 15 krónur.
Bílaleigan Ekill,
Reykjavík
Krónur 1750 kostar að leigja
Volkswagen á dag 15 krónur er
kílómetragjaldið.
Bílaleiga Austurlands,
Egilsstöðum
Volkswagen kostar þar 1800
krónur á dag og kílómetra-
gjaldið er 18 krónur.
Bílaleiga á
Húsavík
Volkswagen kostar þar 1700
krónur á dag og kílómetra-
gjaldið er 17 krónur.
Bílaleiga á
ísafirði (hjó
Oddi Péturssyni)
Volkswagen kostar ,>ar
1800 krónur á dag og kílómet -a-
gjaldið er 18 krónur.
Bílaleiga hjá
Skeljungi, Höfn
í Hornafirði
Volkswagen kostar þar
1750 krónur á dag og er kíló-
metragjaldið 15 krónur.
Bílaleiga, Dalvík
Þar er hægt að fá leigðan
Skoda á krónur 1800 á dag og
18 krónur fyrir hvern kíló-
metra.
—BA
NYTT HRESSINGARHEIMILIAÐ
LAUGALANDI ÍEYJAFIRÐI
Bgwim
11
Auk þess eigum við fyrirliggjandi hjóibaröa undir:
Allar gerðir Fiat — Ford Escort — Ford Cortina — Lada — Volga
— Moskvitch — Citroen — Volvo — Saab — Peugeout — auk
flestra annarra geröa evrópskra og amerískra bifreiöa.
TÉKKNESKA BIFREIÐAUMBOÐIÐ Á ÍSLANDIH/F
AUÐBREKKU 44-46 SÍMI 42606