Dagblaðið - 14.07.1976, Side 14
14
DACULADIÐ — MIÐVIKUDACUK 14. JUUÍ 1976.
KUPPT OG SKORIÐ
Alice Cooper
fer til helvítis
Ný plata kom nýlega út meö
Alice Cooper. Hún nefnist
Alice Cooper Goes to Hell
(AC fer til helvítis) og er beint
framhald á martröðum þeim
sem ásóttu Alice á síðustu LP
plötu hans, Welcome to my
Nightmare.
Alice Cooper hugðist fylgja
nýju plötunni sinni eftir með
hljómleikaferðalagi um
Bandarikin. Hann verður þó
að fresta þeim að sinni, því að
á æfingum kom í ljós að hann
þjáist af blóðleysi.
Alice Cooper og Susi (jualro.
Motown
stofnor útibú
Bandaríska hljómplötufyrir-
tækið Tanila Motown hefur nú
stofnað útibú í Bretlandi. Það
heitir Prodigal og hafa fyrstu
tónlistarmennirnir þegar
undirritaó samning við það.
Þeirra á meðal er Michael
Quatro, bróðir Suzi Quatro.
Prodigal er reyndar ekki al-
veg nýtt af nálinni. Það var
áður í eigu Barneys nokkurs
Ales, sem er nú orðinn vara-
forstjóri Tamla Motown. Við
þessa nýju vinnu innlimast
fyrirtækið hans sem sagt í
Motownhringinn.
Dylon tekur í
hjó Clapton
Bob Uylan og Kric Clapton
hafa að undanförnu unnið
nokkuð saman i stúdíóum í Los
Angeles i Bandaríkjunum.
Aformað er að Dylan s.vngi eitt
lag á næstu sólóplötu Claptons,
— lagið Sign l.angiiage.
Ný íslenzk hljómsveit til Svíþjóðar:
,Allt of mikið of
hljómsveilum hérna'
— segir einn meðlima hennar, Ingvi Steinn
Fimm íslenzkir tónlistar-
menn héldu til Svíþjóðar
síðasta sunnudag tii að vinna
þar i landi. Þetta eru þau Janis
Carol söngkona, Ingvi Steinn
Sigtr.vggsson og Ragnar
Sigurðsson úr hljómsveitinni
Dínamít, Eriendur Svavarsson
trommuleikari, sem lék sfðast
hér á landi með Pónik og loks
Ingvar Arelíusson bassaleikari.
Því miður frétti Dagblaðið
svo seint af utanför þessara
íslenzku poppara að ekki
reyndist unnt af ná tali af nema
einum þeirra, Ingva Steini.
„Við förum til að spila í
Svíþjóð mest af þeirri ástæðu
að of mikið er orðið af hljóm-
sveitum hér á íslandi,“ sagði
Ingvi Steinn. „Þessi hljómsveit
okkar, sem hefur reyndar ekki
hlotið nafn ennþá, var stofnuð
fyrir nokkru og við erum búin
að æfa upp nokkuð gott og fjöl-
breytt prógram. Við völdum
Svíþjóð af því að þrjú okkar
hafa verið þar, þ.e. Janis,
Erlendur og Ingvar. Erlendur
og Ingvar spiluðu báðir í
Svíþjóð í vetur svo að þeir
þekkja markaðinn."
Ingvi Steinn bætti því við, að
hljómsveitin myndi starfa hjá
stóru, sænsku umboðsfyrir-
tæki, sem sér um að ráða hljóm-
sveitir á um 1000 skemmtistaði
víðs vegar um landið. „Ég held
að við þurfum ábyggilega ekki
að kvíða atvinnuleysi þarna,“
sagði Ingvi Steinn og brosti við.
Þessi nýja nafnlausa hljóm-
sveit mun dvelja í Svíþjóð eins
lengi og hægt er. Hvernig hún
fellur í kramið hjá Svfum, er
ekki gott að segja. Tónlistar-
standardinn er nokkuð annar
þar en á tslandi, svo að óvíst er
hversu lengi þau haldast við
þar. En hvað um það, við óskum
fimmmenningunum góðrar
ferðar og vonum og þau eigi
eftir að sýna Svíum, hvað al-
mennileg tónlist er. —AT—
Magnús Sigmundsson
með nýja plötu
— langt ó undan ócetlun
Nýjasta nýtt
íVölundar-
mólinu
Einn af poppskrifurum Dag-
blaðsins, Ómar Valdimarsson.
er nú kominn austur á land til
að dæma um frá sjónarhóli
hlutlauss aðila hvað eiginlega
er að gerast i hljómsveitar
málum Austfjarða. Dóms hans
er að vænta hér á síðunni eftir
rétta viku. Við vonumst til að
allir geti sætt sig við dóma
hans og eftir að þeir hafa verið
kunngjörðir verður málið látið
niður falla, — svo fremi sem
ekkert nýtt kemur fram.
Dagblaðið er farið að lengja
eftir fréttum annars staðar að
af landinu. Norðlendingar
hafa ekkert blandað sér i
málið og þá virðist lítið vera að
gerast á Vestfjörðum. Þarna
hljóta þó að vera hljómsveitir,
sem eitthvað aðhafast. Varla
er það svo leyndardómsfullt að
alþjóð megi ekki fréttá. Við
skorum þvi enn á ný á fólk að
láta okkur heyra frá sér.
—at
/
Magnús Þór Sigmundsson.
MEGAS í NÆTURVINNU
Enn ein hljómplatan er
komin á markað með íslenzkum
tónlistarmanni. Þarna er um að
ræóa plötuna, Happiness Is
Just A Ride Away, með
Magnúsi Sigmundssyni fyrrum
Changemeðlimi. Það er
hljómplötuútgáfan Júdas hf.
sem gefur plötuna út.
Að sögn Jóns Ólafssonar
framkvæmdastjóra Júdasarút-
gáfunnar er plata Magnúsar um
tuttugu dögum á undan áætlun
og mun það einsdæmi hér á
landi. Hingað til má segja að
allar plötur hafi tafizt, allt frá
nokkrum dögum upp í mánuði.
A Happiness.... syngur
Magnús öll lögin og leikur með
á kassagítar. Peter Solley hljóð-
færaleikari í hijómsveitinni
Fox sér um öll hin hljóðfærinj
nema trommur sem eru raf-
magnaðar. Lögin og textar eru
eftir Magnús.
Magnús Sigmundsson dvelst
nú í London, þar sem hann er á
samningi sem lagasmiður við
Chappels útgáfufyrirtækið. Sá
samningur nær þó ekki til
Skandinavíu, en umboð fyrir
Magnús á þeim vígstöðvum
hefur Júdas hf.
Nánar verður fjallað um
þessa nýju plötu á
næstunni. — AT—
Magnús Þór Jónsson, öðru nafni Megas, vinnur nú af fullum krafti við upptöku 3 LP plötu sinnar,
Fram og aftur blindgötuna. Vinna við hana fer fram í stúdíói Hljóðrita í Hafnarfirði frá klukkan
24—8. — sem sagt í næturvinnu. Þetta er gert vegna þess að unnið er alian sólarhringinn í
upptökusalnum að barnaplötu Gunnars Þórðarsonar, plötu með Diaboius In Musica og síðan að plötu
Megasar. Með Megasi verða á þessari plötu þeir Lárus Grímsson og Þorsteinn Magnússon úr Eik, Pálmi
Gunnarsson og Sigurður Karlsson úr Celsíus. Þá verða blásarar með á plötunni, en þeir hafa enn ekki
verið valdir. Útgefandi er nýtt f.vrirtæki, Hrím, sem Ingibergur Þorkelsson veitir forstöðu....
—AT/DB-mvnd Árni Páll.
Aðdáendur Erics Claptons
mega eiga von á þessari plötu
hans í september næstkom-
andi. Henni hefur enn ekki
verið gefið nafn.
Astæðan fyrir þvi að Dylan
kemur fram á þessari plötu er
einfaldlega sú að hann átti leið
framhjá þar sem Eric var að
taka upp og sló til að syngja
eitt lag. Þetta er ekki fyrsta
samvinna þeirra stórstjarn-
anna. Clapton lék á gítar í einu
lagi á Desire plötunni hans
Dylans, en þeim gítarleik var
kippt út áður en endanlega
hljóðblöndunin var gerð. Þá
komu þeir einnig fram saman
á Bangladesh hljómleikunum
hértja um árið.
„Þú færð bolina sennilega
hvergi því að þeir eru sérstak-
lega saumaðir fyrir Alex
Harvey. Ástæðan fyrir því er
sú, að einu sinni, þegar konan
hans var að þvo bolina hans,
þá setti hún rauða borðdúkinn
sinn með í þvottinn. Röndóttu
bolirnir hans Alex urðu
vægast sagt skelfilegir. Þeir,
sem voru áður svartir og hvítir
voru nú bleikir og svartir.
Reyndar leita nú Alex
Harvey og kona hans að bolum
sem eru svipaðir þeim sem
Bolirnir hans
Alex Harvey
1 Melody Ma)cer var fyrir
skömmu spurt að því í lesenda-
dálki hvar hægt væri að fá
keypta boli eins og þá sem
poppstjarnan fertuga, Alex
Ilarvey, gengur í. Og það stóð
ekki á svarinu:
hann á núna. Þau hafa hins
vegar hvergi fundið þá svo að
útlit er f.vrir að það þurfi að
sérsauma þá i framtiöinni."