Dagblaðið - 23.07.1976, Page 7
DAGBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. JULl 1976.
7
Mikil vonbrigði vísindamanna:
Gröfuarmur
ferjunnar
bilaður
Könnunin á því, hvort lifræn
efni finnast á yfirborði plánet-
unnar Mars er verulega í hættu,
eftir að þriggja metra langur
armur á geimferju Víkings 1.
skemmdist, er verið var að nota
hann í fyrsta sinn
Bilunarinnar varð vart, er
armurinn var lengdur um 10 sm,
og þá átti málmhlíf, er verndaði
sjálfa grafkló armsins að falla af.
Vísindamenn höfðu farið í
gegnum 13 atriði af 17 sem
arminum var ætlað að fram-
kvæma, áður hægt væri að hefja
notkun hans. Er láta átti hann
draga sig saman um tvo senti-
metra eftir að hafa hent af sér
málmhlífinni, stöðvaðist armur-
inn og kom sér ekki fyrir í ferj-
unni, eins og ráð var gert fyrir.
Að vonum eru vísindamenn
ákaflega vonsviknir vegna þessa
en vonir standa þó til, að hægt
verði að lagfæra bilunina.
Er allt unnið fyrir gýg? Gröfu-
armurinn er biiaður og vísinda-
menn fá því ekki tækifæri til þess
að kanna vfirborð þessa lands-
lags.
Olympíuleikar:
BLAÐAMENN JAFN-
MARGIR ÍÞRÓTTA-
MÖNNUM Á LEIKUNUM
Það eru nokkurn veginn jafn-
margir blaða- og fréttamenn við-
staddir Olympíuleikana og
iþróttamennirnir eru. Talsmaður
Olympíunefndarinnar sagði í gær,
að hann hefði gefið út 8.200 blaða-
mannaskírteini síðan leikarnir
hófust. Um 8.300 íþróttamenn
búa nú í Olympíuþorpinu. sem
hýsti um 10.000 manns áður en
íþróttamenn frá Afríku héldu
heimleiðis.
Honduras/El Salvador:
ENN ER HEITTI
KOLUNUM
Yfirvöld í Honduras hafa ákært
herlið E1 Salvador, fyrir að hafa
ráðizt á landamærastöðvar með
stórskotahríð nú um helgina.
Segir í tilkynningu frá her-
stjórn Honduras, að herlið E1
Salvador hafi gert þrjár árásir og
í einni hefði einn hermaður frá
HonduraS særzt illa.
Arásir þessar eru sagðar ,,enn
eitt brotið" á samningum, sem
gerðir voru milli ríkjanna árið
1970, er komið var á fót öryggis-
svæði á landamærunum.
Mið-Ameríkuríkin tvö áttu í
ktyrjöld árið 1969 sem brast á
eftir óeirðir sem urðu eftir lands-
leik í knattspyrnu milli landanna
tveggja.
Bandaríkin:
Dauðadœmdir
fá gálgafrest
Einn dómaranna níu við
hæstarétt Bandaríkjanna hefur
fyrirskipað að öllum aftökum í
landinu verði frestað, þar tii
endanlega hefur verið ákveðið,
hvort rétturinn muni endur-
skoða afstöðu sína til dauða-
dóma.
Þar eð hæstiréttur kemur
ekki saman fyrr en 27. septem-
ber vinnst smá gálgafrestur
fyrir þá 300 dauðadæmdu
fanga, sem nú dveljast á
,.dauðadeildum“ víðs vegar um
landið.
Rétturinn leggur það samt
yfirleitt ekki i vana sinn að
endurskoða þann úrskurð, sem
hann hefur einu sinni kveðið
upp, og ekkert útlit er fyrir að
hann geri það nú fremur en
áður.
Rétturinn úrskurðaði 2. júlí
sl. að dauðadómur væri rétt-
lætanlegur fyrir morð og í sam-
ræmi við stjórnarskrána í mjög
grófum tilvikum. Þó bannaði
hann notkun dauðadóma, sem
reglu fyrir framið morð.
Þessi úrskurður bjargaði lffi
um 300 manna og kvenna, en
um 300 bíða enn aftöku.
Olympíuleikar:
RIFIZT UM GULL
Eins og komið hefur fram í
fréttum neituðu fjöldamörg
Afríkurikja að taka þátt í leik-
unum til þess að mótmæla
keppnisferðalagi knattspyrnu-
liðs frá Nýja Sjálandi um S-
Afriku. Hefur þetta m.a. bitnað
á spretthlauparanum James
Gilkes, frá Gíneu sem nú hefur
verið neitað um að keppa á leik-
unum á sínum eigin vegum.
Keppendum frá S-Afríku hefur
verið bönnuð þátttaka í alþjóð-
legum keppnum yfirleitt, vegna
stefnu ríkisstjórnar landsins í
kynþáttamálum.
Hafði fulltrúum þess lands
lengi verið bannað að keppa
erlendis, nema í einstaklings-
keppnum.
Nýjar deilur hafa nú orðið á
Olympíuleikunum í Montreal,
eftir að Bandaríkjamenn hafa
krafizt þess að fá tvenn gull-
verðlaun fyrir eina keppnis-
grein og Sovétmenn hafa verið
sakaðir um óíþróttamannslega
framkomu, er þeir reyndu að
sleppa við þátttöku í sundknatt-
leik.
Bretar skera útgjöld
til hermála niður
um 32 milljarða
Brezka stjórnin tilkynnti í gær,
að dregið yrði úr opinberum
gjöldum fjárlagaársins 1977 um
einn milljarð sterlingspunda (327
milljarðar og 600 milljónir ísl.
króna.) Fjárlagaárið tekur gildi í
apríl næstkomandi.
Denis Healey fjármálaráðherra
hefur skýrt frá þvf, að sparnað-
urinn bitni hvað helzt á varnar-
málum, menntun, heilsugæzlu, og
almennum útgjöldum svo sem til
vegalagna, viðhalds húsa og þjóð-
nýtts iðnaðar.
Stærsti liðurinn í sparnaðar-
áformum ríkisstjórnarinnar er
hermálin. Þar á að draga saman
seglin um 100 milljón sterlings-
pund, eða 32 milljarða og 760
milljónir islenzkra króna. Þá
ákvað stjórnin að hætta að styðja
erlend ríki efnahagslega.
Nánar var fjallar um efnahags-
vandræði Breta í erlendri grein i
Dagblaðinu í gær.
Hóteí Lnugnr S-Þing
Gisting og matur.
Góð sundlaug.
Stutt til Mývatns,
Húsavíkur og
Akureyrar.
Sími 96-43120.
Ítalía: r
IITURGASILOSAÐ UR
EFNAVERKSMIÐJU
Lögreglan á Italíu handtók í
gær eiganda efnaverksmiðju og
aðalverkfræðinginn hans, eftir að
það kom í ljós að þeir höfðu
hleypt eiturgasi út úr verksmiðju
sinni. Alls munu 34, þar á meðal
mörg börn hafa veikzt og lent í
sjúkrahúsi vegna þessa eiturgass.
Gasið er talið vera í ætt við þá
tegund, sem notuð var með til-
ætluoum árangri í Víetnam á
sínum tíma. Því var hleypt út
fyrir um 11 dögum, en þá veitti
enginn því eftirtekt. Það var ekki
fyrr en nokkur börn fengu kvalir
í lifur og húðbruna, að farið var
að kanna málið nákvæmlega.
Athyglin beindist fljótt að efna-
verksmiðjunni.
Að sögn lögreglunnar er eitur-
gasið enn yfir um þriggja kiló-
metra svæði kringum verk-
sntiðjuna, sem er í smábæ
skammt frá Mílanó.