Dagblaðið - 23.07.1976, Síða 11

Dagblaðið - 23.07.1976, Síða 11
DACBIiAÐlU KÖSTUUACUR 23. JÚLÍ 1976. fjölbýlishúsi, þar sem brunnu inni 11 börn. Þeir, sem efgst um réttmæti {!*»«>.• nö Ivsa vfir neyðarástandi, benda á að eftir að byssulögin svonefndu voru sett árið 1974, ríkti svipuð ládeyða. Þá voru allir, sem áttu þátt í glæpum, frömdum með byssum, dæmdir í lífstíðar fangelsi. Nú er því beint að forsætisráðherra Jamaica, Michael Manley, hvað hann muni taka til bragðs er næsti vandi steðjar að. Mikil minnkun á ferðamannastraumi Áhrif herlaganna á straum ferðamanna til eyjarinnar, hljóta að hafa verið stjórn- völdum ljós. En samt voru þau látin ganga í gildi. enda þótt Jamaica, sem á eru um tvær milljónir íbúa, hafi drjúgar tekjur af ferðamönnum. Afleiðingin er því rú að efna- hagurinn, sem var fremur slæmur fyrir, versnar nú stórum. Það er kaldhæðnislegt að segja frá þvl, að ferðamenn hafa aldrei verið öruggari um sig á Jamaica en einmitt núna. En það að hafa hermenn hang- andi yfir sér sýkn’ og heilagt freistar fárra. Strax eftir að lýst hafði verið yfir neyðarástandi og að herlög væru gengin i gildi, flykktust bandarískir ferðamenn til sendiráðs Bandaríkjanna í Kingston og báðu um aðstoð við að komast heim. Skrifstofur flugfélagsins Air Jamaica fengu hundruð afpantanir þegar nokkrum klukkutímum eftir að neyðarástandinu hafði verið lýst yfir. Talsmaður ferðaskrifstofu Jamaica í New York segir að 11.2% minnkun hafi orðið á straumi ferðafólk. Aftur á móti hafa eyjarskeggj- ar fengið nokkrar bætur vegna ástandsins. Glæpum á eyjunni hefur fækkað um helming. Áður voru þeir að meðaltali 101 á viku, en nú eru þeir 50. Stjórnin er þó fremur völt vegna aðgerða sinna. Kosningar, sem fara fram í marz næstkomandi munu skýra hvað bezt, hvað Jamaicabúum finnst um aðgerðirnar. Stjórnarandstaðan múlbundin Búizt er við harðri baráttu 1 þessum kosningum. Leiðandi stjórnmálaflokkar á Jamaica eru tveir, Þjóðernisflokkurinn, sem er nú við völd og Verka- mannaflokkur Jamaica (JLP) sem er allsráðandi 1 fátækra- hverfum Kingston. Formaður JLP var að hefja kosningabar- áttu sína, er neyðarástandinu var lýst yfir. Meðan þau eru í gildi má ekkert ljótt segja um stjórnina og auk þess eru 24 fyrirmenn i Verkamanna- flokknum í fangelsi um þessar mundir. Frá því sjónarhorni séð liggur stjórninni ekkert á að aflétta ástandinu. Reyndar hefur stjórnin sagt, að jafnt gangi yfir báða, því að 16 af mönnum Þjóðernisflokks- ins séu í fangelsi. Það hefur hins vegar lítið að segja fyrir JLP, sem má ekki einu sinni gagnrýna aðgerðir stjórnvalda Manley forsætisráðherra hefur gjörsamlega heitað beiðni um að fresta kosningunum, sem honum er þó heimilt ef neyðar- ástandið verður framlengt. Sérfræðingar um stjórnmál hafa bent á að forsætisráðherr- anum sé heimilt að létta herlög- unum samstundis og efna þegar til almennra kosninga. Þannig geti hann losnað við að heyja kosningabaráttu við JLP, sem er hálflamaður, þar eð fjöldi frammámanna 1 flokknum verði þá nýkominn úr fangelsi og ekki búinn að átta sig á ástandinu, er kosningarnar dynja yfir. Öfgamenn til hægri í Verka- mannaflokknum telja að stjórnin sé þegar að undirbúa slíkar aðgerðir. Það muni síðan hafa í för með sér innleiðingu einsflokkskerfi 1 stjórnmálum Jamaica og síðan valdatöku kommúnista. PUNKTAR UM LISTAHÁTÍÐ Menningar- mál mörgu leyti ánægjulegur viðburður og ber að þakka Hrafni Gunnlaugssyni og íslenskum listamönnum fyrir að hafa bjargað því sem bjargað varð eftir handvömm í menntamálaráðuneyti og aðrar tafir. Reyndar er ótrúlegt hversu vel hátfðin tókst, ef miðað er við að undirbúningur gat vart hafist fyrr en rétt fyrir áramót og stórir liðir eins og t.d. „Comuna" frá Portúgal og enski gítarsnillingurinn John WilliamsbrugðusLEkki er samt hægt að segja að framkvæmda- stjórn hafi sýnt mikið hugar- flug er hún bauð Williams og Cleo Laine hingað I annað sinn. Bæði eru stórkostlegir lista- menn, en að bjóða þeim aftur er óneitanlega fyrirhafnarlítil lausn og veldur þvi að við förum á mis við aðra snillinga sem erindi eiga hingað. Um myndlist Hvað myndlistina snertir, er ótrúlegt að Listasafn Islands skuli bjóða hingað listamanni, sem forsvarsmenn safnsins viðurkenna í upphafi að þeir viti ekkert um, og er það þá eins og hvert annað glópalán að sýningin var reglulegur viðburður, þótt ýmislegt hafi að henni verið. Heldur dauft var yfir sýningu ,,Listiðnar“ í Norræna húsinu og sýndi hún hversu mikið við eigum ólært um alls kyns hönnun,. Ég held að sigurvegarar í myndlist á Listahátfð hafi verið grafík- sýningin og Dunganon, sem hvor tveggja bjuggu að góðum undirbúningi og sigruðust á ýmsum húsnæðiserfiðleikum. Samt sakna ég þess að svo til ekkert var til sýnis af því sem við getum nefnt „megin- straumur" íslenskrar listar á hátíðinni, fyrir erlenda gesti og annað áhugafólk. Enga slembilukku Hvert sem inntak hátíðarinnar verður . 1 fram- tíðinni, þá held ég að nauð- synlegt sé að framkvæmda- stjóri sé í fullu starfi milli hátíða, til þess að hann geti ...,og Dunganon. kynnt sér af eigin raun það markverðasta sem er að gerast í listum erlendis, 1 stað þess að reiða sig á slembilukku, áróður voldugra umboðsmanna og upp- sláttarbækur. Borgarstjóri sagði í lokahófi Listahátíðar að Höfða: „Undirbúningur undir næstu hátíð verður að hefjast á morgun.“ Vonandi fer fram- kvæmdastjórnin að taka við sér og draga ályktanir af fram- gangi hátíðarinnar ’76. Aðalsteinn Ingólfsson Yfir Listahátíðina var í sjónvarpssal gerð tilraun til að ræða þýðingu hennar og framkvæmd. Ekki tókust þær umræður sem skyldi þrátt fyrir góðan vilja allra og því vill undirritaður fyrir sinn part bæta um betur og ræða hátíðina stuttlega. Ég held að enginn þátt- takenda í ofangreindum um- ræðum hafi verið á móti hátíðinni, en allir höfðu eigin skoðanir á því hvernig hún skyldi skipulögð, eins og eðli- legt er. Fyrsta spurningin er þá líklegast: hversvegna erum við þá að þessum brambolti? Eg held reyndar að jafnmargir mundu fara að sjá og heyra Benny Goodmann og Annelise Rothenberger um hávetur.eins og yfir Listahátíð. Ýmislegl er til í þeirri skoðun margra að Listahátíð skuli halda þriðja hvert ár og atriðum skuli þá dreift yfir nokkra mánuði. Líkast til yrði minni hætta á því að fólki yrði bumbult af allri listinni með því móti. En stofnunin „Listahátíð” hefur út af fyrir sig nokkurt praktiskt gildi, því fyrirtæki af því tagi fær ýmsa yfirgreiðslu i sam: bandi við skemmtikrafta og aðra listamenn fram yfir ein- stakling sem ætlar að skipu- leggja skemmtanir. Gildi menningar En gildi hennar tel ég að felist fyrst og fremst í því að -hana má nota til þess að tefla saman hinu besta í erlendri list og blóma islenskrar listar, og þannig skapast möguleikar á þroskandi menningarvíxlun. Við megum alls ekki missa sjónar á því aó listirnar eru jú ekki Tívolí, heldur æðsta út- listun mannsandans, — en fyrir þann „prócess” höfum við lslendingar þaö ágæta orð „menning", þ.e það sem gerir okkur að mönnum en ekki skynláusum skepnum. I.ista- hátíð, er þv: nokkurs konar af- mæli mannsandans og sem slík allra góðra gjalda verð. Hvermg á svo að framkvæma hana? Á hún að vera „potpourri”, sambland allra listgreina, eða á hátíðin að hafa þema eða einbeita sér að einni listgrein ví einu? „Sambland” hefur verið einkenni Lista- hátíðar hér og svo er einnig um ýmsar ágætar listahátíðir erlendis, t.a.m. Edinborgar- hátíðina. En væri ekki hægt, fyrst aðeins eru tvö ár milli hátíða og sjóðir ekki gildir, að gefa tónlist, leiklist, piyndlist og kvikmyndum dálítið myndarlegar sérhátíðir? Hví ekki einnig að víkka hátíðina og fá t.d. Keflavík, Selfoss og jafnvel Akureyri til að taka þátt í henni? Stjörnuspeki Mikið hefur verið rætt um það hvort hátíðir af þessu tagi eigi að styðjast mikið eða lítið, við „stjörnur”. Þess ber að gæta að margar af stjörnunum svokölluðu standa fyllilega fyrir sínu, þær eru „stjörnur” vegna þess að þær hafa til að bera snilligáfur sem eru upp- lyfting hverjum þeim sem á þær hlýðir. En oft er það svo að þessar „stjörnur” hafa öðlast svo mikla frægð að þær eru ekki lengur i beinum tengslum við daglegan veruleika og lífskvikuna. Eg held að Lista- hátíð þurfi að fara hér varlega i sakir og reyna eftir megni að gefa ungu og lifandi listafólki tækifæri. Fyrir hvern er svo Listahátíð? Eg held að þessari spurningu verði aðeins svarað á einn veg: fyrir þá sem hafa áhuga á listum. Ymsa út- breiðslu og kynningarstarfsemi mætti að sjálfsögðu auka, en það er framkvæmdastjórnar að móta stefnu, sem getur þá varla tekið mið af öllu því sem Pétur og Páll úti í bæ vilja sjá og heyra. Góð hátíð Lislahátíðin 1976 var að Sigurvegarar í m.vndlist listahátið: Grafíks> ningin.... Ootiirri

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.