Dagblaðið - 23.07.1976, Síða 16
16
d
Iþróttir
íþróttir
DAGBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. JULÍ 1976.
I
íþróttir
Iþróttir
BóðarUSA
sveitirnar á
heimsmeti
Bandaríska oeitin — John
Naper, John Hencken, Matt
Vogel og Jiin Montgomery —
hafði mikla yfirburði í úrslita-
sundinu í 4x100 m f jórsundi á
Olympíuleikunum í gær.
Sveitin setti nýtt heimsmet
3:42.22 mín, enda allt
olympískir meistarar á ferð
nema Jim Montgomery, en
hann er fljótasti sundmaður
heims og á eftir að keppa í 100
m skriðsundinu á morgun.
Naper varð meistari í
baksundi, hefur unnið tvenn
gullverðlaun í boðsundum, og
silfuri200 m skriðsundi—og
hann á eftir að keppa i enn
einni grein. Hencken sigraði i
100 m bringusundinu —
Vogel í '100 m flugsundinu.
Ursiitin í sundinu í gær
urðu þessi:
1. Bandaríkin 3:42.22
2. Kanada 3:45,94
3. V-Þýzkaland 3:47,29
4. Bretland 3:49,56
5. Sovétríkin 3:49,90
6. Ástralía 3:51,54
7. Italía 3:52.92
8. Japan 3:54.74
Bandaríska sveitin hafði
forustu frá upphafi til loka i
úrslitasundinu í gær
I undanrásum í gær byrjaði
sveit Kanada á því að setja
nýtt heimsmet í fyrri riólinum
— synti á 3:50.61 mín en í
síðari riðlinum voru Banda-
ríkin með algjöra varasveit og
hún gerði sér lítið fyrir og setti
heimsmet. Synti á 3:48.16. I
sveitinni syntu Peter
Rocca, Chris Woo, Joo Bottom
og Jack Babashoff, en sam-
kvæmt alþjóðareglunum i
sundi geta lönd notað
mismunandi ' sundmenn i
undankeppninni og úrslitum.
Það notfærðu Bandaríkin sér
— enda hafa ,,stórkarlarnir“ í
nógu að snúast.
Setti heims-
metáleiðí
úrslitin!
Hannelore Anke, Austur-
Þýzkalandi, heimsmeistarinn í
100 m bringusundi, setti tví-
vegis heimsmet á vegalengd-
inni á Olympíuleikunum.
Fyrst í undanrás, 1:11.11 mín.
en í undanúrslitum synti hún
svo á 1:10.86 mín. og bætti þar
með met hinnar 14 ára Carola
Nitschke.
Úrslit í fyrri riðiinum í
undanúrslitum urðu þessi.
1. L. Rusanova, So 1:13.53
2. C. Nitschke, A-Þ. 1:13.73
3. Iurchenia, Sov. 1:13.96
4. K. Linke, A-Þ. 1:14.49
5. G. Askamp, V-Þ. 1:14.50
6. C. Jarvis, Bretl. 1:14.59
7. S. Nielsen, Danm. 1:15.38
8. A. Desusini, Frakkl. 1:16.30
I síðari riðlinum í undan-
úrslitum urðu úrslit þessi
1. H. Anke, A-Þýzkal. 1:10.86
2. M. Keshevaia, Sov. 1:13.20
3. M. Kelly, Bretl. 1:13.57
4. Corsiglia, Kan. 1:14.56
5. L. Siering, USA, 1:14.48
6. W. Mazereeuw, Holl. 1:14.86
7. J. Baker, Kanada, 1:15.20
8. L. Borsholt, Kan. 1:15.41
Fimm stúlkur úr fyrri
riðlinum komust í úrslit —
þrjár úr þeim síðari.
Þeir brezku hlupu fra
Tékkum í fimmtarþraut
— Brezka sveitin sigraði í nútíma f immtarþraut í gœr og Pólverji varð
meistari í einstaklingskeppninni
Það standast fáir Bretum snún-
ing, þegar hlaup eru annars
vegar. Það kom vel í ljós í nútíma
fimmtarþrautinni á Olympíuleik-
unum í gær, þegar Bretar hlupu
frá Tékkum og urðu olympíu-
meistarar. Einhver óvæntustu
úrsiit, sem um getur í fimmtar-
þrautinni. Brezku garparnir Jim
Fox, Adrian Parker og Danny
Nightingaie sýndu mikla hæfni í
lokagrein fimmtarþrautarinnar,
4000 m víðavangshlaupinu —
hlutu langflest stig það svo, að
þeir skutust upp í efsta sætið
samanlagt. Upp fyrir Tékka, sem
höfðu verið taldir nokkuð öruggir
með sigur eftir fjórar fyrstu
greinarnar. Bretland hiaut sam-
tals 15.559 stig, en Tékkar urðu í
öðru sæti með 15.451 stig.
í einstaklingskeppninni í
nútima fimmtarþrautinni varð
Pólverjinn Janusz Pyciak-Peciak
olympíumeistari. Þessi 26 ára
gamli íþróttakennari frá Varsjá
var í fimmta sæti fyrir víðavangs-
hlaupið, en þar stóð hann sig
mjög vel. „Eg hljóp hraðar en
nokkru sinni fyrr á ævi minni, og
það voru brekkurnar,' sem færðu
mér olympíska meistaratitilinn,“
sagði hann eftir keppnina, en
þess má geta að fyrir þremur ár-
um var hann í pólska landsliðinu í
sundknattleik, Sneri sér svo alveg
að nútíma fimmtarþrautinni.
En sveitakeppni fimmtar-
þrautarinnar vekur alltaf meiri
athygli og sigurinn í gær er sá
fyrsti, sem Bretar vinna á þessu
sviði íþrótta. Fimmtarþrautin er
sögð erfiðasta íþróttakeppnin á
leikunum. Einn brezku meistar-
anna, Jim Fox, liðþjálfi í brezka
hernum frá Portsmouth, keppti
nú í fjórða sinn á Olympíuleikum
— og er nú hættur að sögn.
Urslit í fimmtarþrautinni urðu
þessi i
1. Bretland 15.559
2. Tékkóslóvakía 15.451
3. Ungverjaland 15.395
4. Pólland 15.343
5. Bandaríkin 15.285
6. Italía 15.031
7. Finnland 15.000
8. Svíþjóð 14.946
9. Frakkland 14.834
10. Búlgaría 14.824
Árangur brezku sveitarinnar er
talsvert lakari, en það bezta, sem
náðst hefur. Það eru 15.968 stig
— unnin af sovézkri sveit.
Beztir í einstaklingskeppninni
urðu.
1. P. Peciak, Pólland, 5.520
2. P. Lednev, Sovét, 5.485
3. J. Bartu, Tékk. 5.466
4. D. Masala, Italíu, 5.433
5. A. Parker, Bretl. 5.298
6. J. Fitzgerald, USA, 5.281
7. J. Steffensen, Danm. 5.281
8. B. Mosolov, Sovét, 5.200
9. T. Kancsal, Ungvl. 5.195
10. Nightingale, Bret. 5.187
Sem kunnugt er var Boris
Oinischenko staðinn að svindli í
skylmingum fimmtarþrautar-
innar og dæmdur úr leik. Þar með
var sovézka sveitin úr leik.
I víðavangshlaupinu f gær náði
Parker, Bretlandi, beztum tíma
12:09.50 mín. Michael Burley,
USA, varð annar, Peciak, Pól-
landi, þriðji og Nightingale, Bret-
landi, fjórði. Lednev, sem hafði
forustu fyrir hlaupið, varð aðeins
tíundi. I sveitakeppninni hlaut
brezka sveitin 3.951 stig fyrir
hlaupið. Pólland 3.585 stig og
Finnland. 3.579 stig. Tékkneska
sveitin varð ekki meðal tíu beztu
sveitanna og missti því af gullinu.
Boris Onischenko, Sovétríkjur.um — sá, sem dæmdur var frá keppni f
fimmtarþrautinni, þar sem hann hafði rangt við f skyimingunum.
Tvítugur Búlgari var sú
sterkasti í millivigt!
— og setti nýtt olympíumet í lyftingum
Hinn tvítugi Búlgari Yordan
Mitkov sýndi eldri görpunum í
millivigt í lyftingum hvernig bezt
er að takast á við lóðin — sigraði
samanlagt með 335 kg, sem er
nýtt olympískt met. Það eru
önnur guilverðlaunin sem
Búlgaria hlýtur i lyftingum á
Olympíuleikunum. Búlgaría hef-
ur því hlotið jafnmörg gull og
Sovétríkin eftir keppni í fimm
þyngdarflokkum á ieikunum.
Mitkov, sem hlaut bronsverð-
launin á síðasta Evrópumeistara-
móti — f Austur-Berlín í apríl —
jafnhattaði 190 kg í síðustu til-
ráun sinni, sem þýddi, að Vartan
Militosian, Sovétríkjunum,
Evrópumeistarinn í þyngdar-
flokknum, varð að lyfta 192.5 kg
eða jafna heimsmetið. Það tókst
Evrópumeistaranum ekki og
Búlgarinn ungi stóð uppi sem
sigurvegari.
Eftir keppnina í snörun voru
þeir Mitkov, Militosian og Peter
Wenzel, Austur-Þýzkalandi,
jafnir — snöruðu allir 145 kíló-
um. Sá sovézki tók svo forustuna,
þegar hann jafnhattaði 185 kg.
Fyrr hafði Mitkov jafnhattað
182.5 kg. Honum mistókst fyrst
við 190 kg en jafnhattaði þann
þunga siðan í síðustu tilraun
sinni.
Urslit urðu þessi:
1. Y. Mitkov, Búlgaria, 335.0
2. Militosian, Sovét, 330.0
3. P. Wenzel, A-Þýzkal. 327.5
4. W. Huebner, A-Þýzk. 320.0
5. D. Cioroslan, Rúmeníu, 320.0
6. A. Ala-Pontio, Finnl. 315.0
7. A. Stark, Ungverjal. 315.0
8. O. Hekel, Tékkósló. 312.5