Dagblaðið - 10.08.1976, Side 3
DACBI.AtMÍX BKIÐ.JUDAGUK 10. ÁGÚST 1976.
3
Það vœri nœr að hœkka
ellilaun og sleppa barna-
Báöir erum viö kvæntir, kona
hans vinnur úti, en konan mín
er farin aö heilsu og getur því
ekki unnið utan heimilisins.
Hann á einbýlishús, rándýran
bíl og sumarbústað meö
hlunnindum.
Bók óréttlætisins!!
Skammizt ykkar!
lífeyri til hótekjumanna
Ég leigi í gömlu húsi, leigan
aö vísu ekki mjög há, en
hvernig má þetta vera? Ég spyr
aftur og aftur. Ég sætti mig
ekki viö þetta og útilokað er aö
skuldir séu svona miklar hjá
yfirmanni mínum. Það veit ég,
en hann á góða aó.
Er þaö ekki ríkisskattstjóri
sem á að gæta þess að menn
svindli ekki? Ég leyfi mér aö
mótmæla því aö viö lág-
launamenn borgum fyrir þá
sem efnaðri eru, það er úti-
lokað.
Að því kemur að blaóran
springur, fyrr eða síðar!
Ég mótmæli því líka að
hátekjumenn fái barnalífeyri,
slíkt er til skammar fyrir þá.
Nær væri að hækka ellilaun.
Jón Sigurðsson verkamaður
skrifar:
Ég er einn þeirra mörgu sem
er mjög óánægður með
skattana. Það er örugglega eng-
inn vafi á því að alltaf er verið
að hækka skatta á láglaunafólki
en þeir stóru sleppa alltaf vel
frá öllu. Hvernig má það vera
að yfirmaður minn, sem hefur
10-15 þúsund kr. hærri laun á
mánuði en ég, greiði 30 þúsund
kr. á mánuði í skatta á meðan
ég borga 40 þúsund kr. á
mánuði Ég spyr?
Bréf tilskattstofunnar:
Mistök hafa ótt sér stað
Vinnuveitandinn skattlaus
Kristin Þorvaldsdóttir
Möðrufelli 3,
Reykjavík.sendi okkur afrit af
bréfi til skattstofunnar til
birtingar:
,,Ég undirrituð, Kristín
Þorvaldsdóttir, Möðrufelli 3,
Reykjavík, fer þess hér með á
leit, að gjöld.sem lögð eru á mig
samkvæmt gjaldseðli og skatt-
skrá, verði endurskoðuð með
hliðsjón af eftirfarandi,
Sl. ár, þ.e. 1975, starfaði ég í1
4 mánuði á hótelinu
Norðurljósi á Raufarhöfn.
Þangað var ég ráðin af hóteleig-
andanum, .Guðjóni Styrkársyni,
og tök laun samkvæmt
samningum. Tel ég hann vinnu-
veitanda minn og á ekkert
sökótt við hann persónuiega.
Hann er tekjuskattslaus og
ber kr. 63. 500 í útsvar og fær
þannig greiddar um 30 þúsund
krónur vegna barnabóta þegar
öll gjöld hafa verið frá þeim
dregin. Get ég ekki varizt þeirri
hugsun, að við sitjum ekki við
sama borð, þegar við erum
metin til gjaldþols af skatt-'
stofunni.
Hér hljóta einhver mistök að
hafa átt sér stað. Mér er gert að
greiða kr. 31.800.00 af fjögurra
mánaða tekjum. Þessari
álagningu er að vísu mætt með
nákvæmlega jafnháum per-
sónufrádrætti mínum. Það er
fjarri mér að bera saman lífs-
háttu mína og fyrrnefnds
vinnuveitanda míns, þar sem ég
þekki þá aðeins að mjög litlu
leyti. Það litla, sem ég þekki til
þeirra og með tilliti til framan-
greindra gjalda okkar beggja,
segir mér afar einfalda sögu:
Hér hafa mistök átt sér stað.
Endurtek ég beiðni mína um
endurskoðun á álagningu
gjalda á okkur bæði við fyrstu
hentugleika. Vænti ég heiðraðs
svars yðar.
Virðingarfyllst,
Kristín Þorvaldsdóttir.
NEYTENDASAMTOKIN
ERU RÉni AÐILINN TIL
AÐ HJÁLPA NEYTENDUM
Erika sendi biaðinu eftirfar-
andi:
Eins og allir landsmenn vita
eru Neytendasamtökin eini að-
ilinn á landi öllu sem hjálpar
neytendum að fá rétt sinn ef
nauðsynlegt er. Málin sem
koma til kvörtunarþjónustu eru
margvísleg og leséndur munu
hafa gagn af að heyra nánar um
þau.
Hver ber ábyrgov
Síminn hringdi í skrifstofu
Neytendasamtaka, en tekið er á
móti kvörtunum og fyrirspurn-
um kl. 15—48 á mánudögum til
föstudaga. I síma var kona sem
bað um aðstoð. Lögfræðingur
NS var í skrifstofunni og sá
strax um málið. Konan var
stödd i nýlenduvöruverzlun.
Hún hafði ætlað að kaupa klór-
vatn. Hún lyfti brúsanum, sem
rann úr höndum hennar og datt
á gólfið. Tappinn í þessum
brúsum er ekki of fastur, brús-
inn opnaðist og klórvatnið
skvettist á kápu konunnar og
slæmir blettir komu á hana. Til
allrar hamingju var ekkert
barn með konunni enda hefði
þetta óhapp getað haft hrylli-
legar afleiðingar þá.
Hver var ábyrgur? Skv.
lögum er verzlunin ábyrg. En
hér var hægt að rekja málið
lengra. Það var greinlega fram-
leiðandi, sem var ábyrgur fyrir
því að tappinn losnaði of auð-
veldlega.
Lögfræðingur hringdi í fram-
leiðanda, sem var strax tilbúinn
. að greiða skaðabætur, sem
konan var ánægð með. Tveimur
dögum seinna hringdi konan til
þess að tilkynna að hún hefði
fengið bæturnar greiddar. NS
voru einnig ánægð — enda
komu tveir nýir félagsmenn —
konan og framleiðandinn.
Kvörtunarþjónustan er ókeypis
fyrir félagsmenn, nema ef um
gólfteppi er að ræða. Utan-
félagsmenn greiða 10% af verð-
mæti eða geta orðið félagsmenn
í staðinn. Ársiðgjald er fyrir
árið 1976—77 kr. 1200. Félags-
menn fá einnig Neytendablaðið
og styðja alla aðra vinnu Neyt-
endasamtakanna með iðgjöld-
um sínum.
Varstu ánœgð(ur) með
launaumslagið þitt sl.
mánuð?
Axel Valdemarsson
verkamaður: Já, svona nokkuð
ánægður. Ég slapp nokkuð bæri-
lega frá þessum sköttum, en hjá
sumum var allt kaupið tekið upp í
skattinn.
íris Dalmar húsmóðir: Nei, langt
frá því, vegna þess að ég fékk
ekkert umslag.
Áslaug Káradóttir skrifstofu-
stúlka: Já, nokkuð ánægð. Ég hef
sloppið við að láta allt kaupið mitt
til gjaldheimtunnar.
Hildur Hákonardóttir: Nei, ég
fékk skell I þessum mánuði og
þarf að greiða mikinn hluta til
gjaldheimtunnar. Það er vel hægt
að bera þetta ef rétt væri skipt, en
þar vantar mikið á að réttlæti ríki
i sambandi við álögur.
Amundi Ámundason umboðs-
maður: Ég hef ekki séð neitt
launaumslag í 15 ár, þeir sem
greiða mér koma ekki með
greiðslurnar í umslagi. Sumir fá
einnig tómt umslag vegna þess að
allt er tekið í skatt. Það sjá allir
misréttið nema kannski skatt-
stjóri.
Sigurður Björnsson, vinnur hjá
Pósti og síma: Nei, blessuð vertu.
Eg þarf samt ekki að kvarta
undan því að allt sé tekið í skatt,
ég hef bara svo lágt kaup.