Dagblaðið - 10.08.1976, Blaðsíða 13
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 10. ÁGUST 1976.
Vilmundur Vilhjálmsson missti af meistaratitli í gærkvöld þegar Valbjörn Þorláksson mætti ekki tii ieiks i 4x100 metra boölilauH. -
en áður hafði Vilmundur sigrað í fjórum greinum á Meistaramóti tsiands. DB-mvnd — Bjarnleifur.
Þráinn náði sínu bezta
í fimmtarþrautinni!
— Vésteinn Haf steinsson setti sveinamet í f immtarþraut, sem f ram f ór á Laugardalsvelli
Þráinn Hafsteinsson sigraði í
fimmtarþraut á Meistaramóti
Islands í frjálsum íþróttum, sem
fram fór í gærkvöld. Þráinn náði
sínum bezta árangri í fimmtar-
þrautinni, fékk 3122 stig. Þessi
árangur Þráins er ekki langt frá
íslandsmeti Björgvins Hólms,
sem er allar götur frá árinu 1959,
svo tími er til kominn að það falli.
Met Björgvins er 3467.
Þrátt fyrir að Þráinn hafi
sigrað leit ekki svo út eftir þrjár
greinar, því þá hafði Hreinn
Jónasson UBK 300 stiga forystu,
en honum tókst illa upp í spjót-
kastinu — kastaði 30.88 og þegar
að síðustu greininni kom — 1500
metra hlaupinu — hafði Hreinn 6
stiga forystu en fékk hlaupasting
og náði sér aldrei á strik.
Vésteinn Hafsteinsson setti
sveinamet í fimmtarþraut—náði
ágætum árangri af 16 ára puti að
vera, 2701 stigum.
En lítum á árangur þeirra
Þráins og Hreins. Þráinn byrjaði
að stökkva 6.24 í langstökki,
kastaði spjótinu 58.15, hljóp 200
metra á 25.3, kastaði kringlunni
43.36 og hljóp 1500 metrana á
4:53.4, — samtals 3122 stig.
Hreinn stökk 6.70, kastaði
spjótinu 59.17 og hljóp 200 metra
á 23.6. Allt voru þetta beztu
árangrar sem hann hafði náð og á
þessu stigi hafði Hreinn 300 stiga
forystu. En síðan kom kringlan
30.88 og 1500 metrarnir 5.44.6.
Þriðji varð Hafsteinn
Jóhannesson með 2804 stig.
Fjórði Vésteinn Hafsteinsson,
bróðir Þráins. Hann setti sveina-
met — stökk 5.46, kastaði spjóti
52,46, hljóp 200 metra á 26.2,
kastaði kringlu 35.88 og varð
fyrstur í 1500 metra hlaupi á
4.45.5, samtals 2701 stig.
Fimmti varð Bjarki Bjarnason,
Aftureldingu, með 2619 stig og
sjötti Gunnar Arnarsson, UNÞ,
með 2346 stig.
Hlaupa átti 4x100 metra
boðhlaup — og mættu 3/4 af
sveitinni en hinn síungi Valbjörn
Þorláksson mætti ekki til
hlaupsins en hann gleyndi
keflinu í hlaupinu á laugardag,
sem var dæmt ógilt og hlaupa
varð aftur. En sem sagt — ekkert
varð af 4x100 metra boðhlaupinu.
Emil Björnsson sigraði í 3000
metra hindrunarhlaupi á 10.30.8,
annar varð Halldór Matthíasson
UBK á 11.30.8 — þeir tveir hlupu.
Sigur KS á Grenivík
Tveir leikir fóru fram í
Norðurlandsriðli í 3. deild
íslandsmótsins í knattspyrnu um
helgina. Siglfirðingar, sem
raunar höfðu þegar tryggt sér
sigur í riðlinum ferðuðust til
Grenivíkur og léku við Magna.
Siglfirðingar báru sigur úr býtum
— skoruðu eina mark leiksins.
Að Laugalandi Iéku Árroðinn
úr Eyjafirði og Leiftur frá Ólafs-
firði — jafntefli varð 2-2.
l/if skil (‘kkcrl í þrssu. ^Nci, húsið var lcigl '"] | Þarlnasi þú nkkar^ Kkki t hili. Kti ílomarinn
Vciziu mikkiið um^^hiniini láina bvssu
morðinirjann':’ \í marini. Bcnna \ ciði.
/ \ Það cr það cina sr-i
- það cina scm
? Vcil X'
1
'ZZr&sMl ^ sj
irikar, sijóri.. -f'þarf a j>úi a«> lialfla scn
— ___—r vitni.
éí h
Mi
10-Z6
Guðni tekinn við
Guðni Kjartansson hefur nú
tekið við þjálfun ÍBK-liðsins af
þeim Jóni Jóhannssyni og Sigurði
Steindórssyni og mun gegna því
starfi að minnsta kosti út leik-
tímabilið, hvað sem seinna
verður. Sigurður Steindórsson
vallarvörður sein víða hefur
komið við i keflvískri íþróttasögu
sést á m.vndinni ásamt einum
lærisveini sínum, Guðjóni
Guðjónssyni, meðan hann
Ieiðbeindi ÍBK-liðinu. Fannst
okkur tilvalið að birta þessa
mynd af þessum heiðursmanni,
þar sem hann á í dag (10. ágúst)
50 ára afmæli.
Þróttur í úrslit
Þróttur Neskaupstað sigraði í
riðli sínum fyrir austan í 3. deild
íslandsmótsins í knattspyrnu. Og
sannarlega gerðu Norðfirðingar
það með glæsibrag — sigruðu
helztu andstæðinga sína,
Einherja frá Vopnafirði, 9-1, já
og Vopnfirðingar fengu
sannkallaða óskabyrjun því þeir
skoruðu þegar á 1. mínútu.
Aðalsteinn Björnsson skoraði
fyrir Vopnfirðinga, en síðan tóku
Norðfirðingar Ieikinn í sínar
liendur og í hálfleik höfðu þeir
skorað fjögur mörk — bættu við
fimm í síðari hálfleik.
Þrátt fyrir stóran sigur og tals-
verða yfirburði voru mörkin helzt
til mörg — að minnsta kosti ef
marka má gang leiksins.
Mörk Norðfirðinga skoruðu
Björgúlfur Halldórsson 4, Bjarni
Jóhannsson 2, Sigurður Friðjóns-
son 2 og Árni Guðjónsson 1 mark.
Þróttur tekur því þátt í úrslita-
keppni 3. deildar sem fer fram á
Akureyri.
-S.G.
Standard í úr-
slit ú Spúni
Stórlið Evrópu búa sig hvert
sem betur getur undir átök
vetrarins. Þannig eru nú haldin
mót víða um Evrópu og í einu
slíku tekur Standard Liege — lið
Asgeirs Sigurvinssonar í Belgíu.
Standard tekur þátt í móti í
Valencia á Spáni, og þar eru ekki
ómerkari lið en Feyenoord frá
Hollandi, Derby County frá Eng-
landi og Valencia frá Spáni ásamt
Standard.
Liegé hefur þegar
úrslitasæti og mun
hollenzka stórliðið
samkvæmt fréttum
Standard
tryggt sér
leika við
Feyenoord,
BBC í gærkvöld.
Feyenoord sigraði Derby í
gærkvöld 2-0 og bæði mörk Hol-
lendinganna skoraði Dijon. Ekki
sagði BBC frá hvernig leikjum
Standard hefði lyktað — aðeins
að Feyenoord og Standard Liege
léku til úrslita.
1 Brugge í Belgíu fer nú fram
sterkt mót — í því taka þátt
belgísku meistararnir FC Brugge,
Hadjuk Split, Eindhoven,
hollenzku meistararnir og Rapid
Vín, frá Austurríki.
Hadjuk Split og Rapid Vín léku
til úrslita og sigruðu Slavarnir
6-0.
PSV Eindhoven sigraði FC
Brugge í keppninni um þriðja
sætið 3-0.