Dagblaðið - 20.08.1976, Blaðsíða 1
dagblað
2. ÁRG. — FÖSTUDAGUR 20. ÁGÚST 1976 — 183. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. SÍMI 83322, AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA. ÞVERHOLTI 2, SÍMI 27022
( mi
Þjóðverjar eftirlitslaust að veiðum á Halanum:
MOKA UPP ÞORSKIMEDAN
fSLENDINGUM ER BANNAD
N
Manni finnst það nú anzi
hart að þegar verið er að leggja
til að Isléndingar skipti um
veiðarfæri^ og minnki við sig
þorskveiðarnar, þá geti Þjóð-
verjar smyglað fram hjá yfir-
völdum fleiri hundruð ef ekki
þúsundum tonna af þorski.
Þessi orð lét Guðmundur
Halldórsson, stýrimaður á skut-
v m ..........................
togaranum Guðbjarti frá
ísafirði, falla í samtali við DB í
gær.
Þeim ber skylda til
samkvæmt samningum að gefa
skýrslu um aflann daglega og
hefur heyrzt til þeirra í fjar-
skiptatækjunum, þar sem þeir
gefa upp allt að 30 tonnum af
karfa á sólarhring. En síðan
hvenær veiðist karfi á
Halamiðum þar sem þeir
stunda veiðar núna? Við
íslendingar erum með fjöldann
allan af togurum þarna innan
um og aldrei kemur karfatittur
um borð í þá. Þjóðverjarnir eru
þarna að moka upp þorski, en
gefa upp karfa til að drýgja
kvótann sem þeim er gefinn, en
samkvæmt samningum er nann
um 5 þúsund tonn á ári.
Það ætti nú að vera
lágmarkskrafa á hendur yfir-
völdum að þau fylgist með að
samningar séu haldnir áður en
þau krefjast þess að við
minnkum veiðarnar. Þessi 5
þúsund tonn af þorski sem
Þjóðverjum er leyft.að veiða
eiga aðná til þess magns, sem
slæðist inn með ufsa og karfa á
þeim miðum sem sá fiskur
er veiddur á, þ.e. á Víkuráli, en
að leyfa þeim að moka upp
þorski á rótgrónum þorsk-
miðum, það tekur nú út yfir
allt, sagði Guðmundur að
lokum.
. Yfirsakadómari um handtöku blaðamanna DB:
r
VIL EKKI LATA
YFIRHEYRA MIG
UM ÞETTA MÁL
,,Við teljum okkur ráða hér
húsum og okkar reglur eru þær,
að hér megi ekki taka
ljósmyndir," sagói Halldór
Þorbjörnsson yfirsakadómari i
viðtali við Dagblaðið i morgun.
,,Þar með er talið mötuneytið, en
afstaða okkar kemur fram i bréfi,
setn við rituðum lögmanni Dag-
blaðsins. Annars vil ég ekkert
vera að láta yfirheyra mig um
þetta mál."
Sagði Halldór ennfremur að
hver heilvita rpaður ætti að skilja
það, að ekki mætti taka ljósm.vnd
af rannsóknarlögreglumanninum-
Karl Sehiitz, en vildi ekki skýra
nánar fyrir blm. í hverju sá
skilningur ætti að vera fólginn.
Þess má geta til skýringar að
reglur þessar eru livergi til á
blaði og er því erfitt að átta sig á
hvernig fólki ber að haga sér í
húsakynnum Sakadóms og enn-
fremur að mötuneytið i Borgar-
túni 7 er sameiginlegt mötuneyti
f.vrir þær stofnanir, sem í húsinu
eru, eins og t.d. Bifreiðaeftirlitið,
Innkaupastofnun rikisins. Vega-
gerð ríkisins, Húsameistara,
Fræðslumyndasafn, Áfengis- og
tóbaksverzlun ríkisins og
Verðlagsstjóra.
Dagblaðið reyndi itrekað að
hafa samband við Örn Höskulds-
son fulltrúa en fékk þau skilaboð
k að hann talaði ekki við blaða-
menn.
,,Ég vil ekkert ræða um þetta
mál núna," sagði Halldór
Sigurðsson, rannsóknarlögreglu-
maður, er Dagblaðið spurði hann í
hv'aða rétti hann teldi sig hafa
verið, er hann hélt blaðamanni
Dagblaðins i einangrun í eina
klukkustund í fyrradag. ,,Ég skal
ræð.a þetta við þig síðar, en alls
ekkí núna. af sérstökum
ástieðuin"'
..Stjórn Blaðamannafélags Is-
lands mun koma saman i dag og
ræða þetta mál," sagði Bragi Guð-
mundsson, varaformaður félags-
ins, i viðtali við Dagblaðið í morg-
un. ,,Við munum síöan senda frá
okkur yfirlýsingu til viðkomandi
aðila.
Sem ljósmyndari myndi ég
aldrei hafa látið taka af mér
filmu, sent ég væri með í vélinni,
neina þá eftir rriikil slagsntál,"
sagði Bragi ennfremur. —HP.
Hvítir móvar á öskuhaugunum
Ilún er ekki beint hrifin af laginu Ilvítir mávar , hiin Erna
Gunnarsdóttir, 21 árs menntaskólanemi. Hún hefur þann starfa í
sumar að aka unt ösku haugana í Gufunesi og slétta úr
úrgangshaugunum sem þar inyndast. Mávurinn sækir mjög í
haugana eins og þessi ljósmynd sýnir reyndar ljóslega. Lái Ernu
hver sem vill þótt þetta vinsæla óskalag úr sjúklingaþættinum
fari kannski ofboðlítið í taugarnar á henni. — sjá nánar á bls 4.
V
Án útskýringa af hálfu rannsóknarlögreglunnar hafa blaðamenn ekki fengið að koma nærri þýzka
rannsóknarlögreglumanninum Karl Schiitz. Svo harðsótt hefur málið verið, að tveir biaðamenn DB
hafa verið handteknir, eins og fram hefur komið i fréttum blaða í gær og í dag. Dagblaðið fékk
myndina af Schiitz sintsenda i gærkvöld frá Hamborg.
(Ljósmynd SPIEGEL).
FJOLDIMANNS LIGGUR UNDIR
GRUN í ÁVÍSANAMÁLINU
— beðið frumkvœðis Sakadóms
— Baksíða