Dagblaðið - 20.08.1976, Blaðsíða 6
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 20. ÁGÚST 1976.
6
r
23 ár síðan fríður komst á:
\
Bandaríkjamenn senda tvœr
fíugherdeildir til S-Kóreu
Stjórn Bandaríkjanna hefur
tilkynnt að hún muni senda
tvær flughereildir til S-Kóreu
til að mæta yfirlýsingu N-
Kóreustjórnar þess efnis, að
allur hernaðarlegur við-
búnaður sé hafður í frammi
vegna átakanna á landamærun-
um í fyrradag, en þá létu tveir
bandarískir hermenn lífið.
H^fa átökin skvett olíu á
þann eld, sem kraumað hefur
undir yfirborðinu, síðan friður
komst á milli ríkjanna fyrir
réttum 23 árum. Stjórn N-
Kóreu sakaði Bandarikjamenn
um að þverbrjóta allt samkomu-
lag milli ríkjanna með yfir-
gangi á landamærunum og
sagði að allur her landsins yrði
hafður í viðbragðsstöðu.
Til þess að vega upp á móti
því var allur herafli Bandaríkj-
anna í S-Kóreu, 41 þúsund
Tilboð óskast
Tilboö óskast í Opei Caravan árg. ’68,
sjálfskiptan, skemmdan eftir árekst-
ur. Til sýnis að Vagnhöfða 14. Sími
31464.
Húsgagnaverslun
Reykjavíkur hf.
Brautarholti 2Símar 11940 — 12691
J
manns, beðinn að vera við öllu
búinn vegna atburðarins, sem
ráðamenn í Bandaríkjunum
hafa kallað „tilefnislausa og
ruddalega árás“.
Segir herstjórn Bandaríkj-
anna að það að senda flugher-
deildina til landsins sé aðeins
„öryggisatriði fyrir þá her-
menn okkar, sem fyrir eru i
Iandinu".
„Tilefnis-
laus morð"
— segirFordum
átökin í Panmunjom
Tilkynnt var hjá Sameinuðu
þjóðunum að tveir bandarískir
liðsforingjar hefðu verið felldir í
átökum við um 30 norður-
kóreanska hermenn, sem réðust
að þeim með öxum og járn-
stöngum á landamærunum milli
Norður- og Suður-Kóreu.
Fimm hermenn frá Suður-
Kóreu og fjórir frá Bandaríkjun-
um slösuðust í átökunum, sem
urðu skammt frá landamærabæn-
um Panmunjon.
Yfirstjórn friðargæzlusveita
Sameinuðu þjóðanna hefur hvatt
til þess, að vopnahlésnefnd ríkj-
anna verði kölluð saman í Pan-
munjom til að ræða atvikið.
Ford forseta var tilkynnt um
atburðinn í Kansas City, þar sem
flokksþing repúblikana fer fram,
og fordæmdi hann atburðinn sem
hann kallaði blóðug og tilefnis-
laus morð.
■
Allur heimurinn er nú uggandi um, að tii átaka kunni að draga í
Kóreu eftir um 23 ára frið. Þessi mynd sýnir bandarískan hermannj
hvíla sig eftir harða bardaga í Kóreustriðinu, sem háð var á árunum
1951-53.
Geðveikur barnamorð-
ingi gengur laus, byrlar
fjórum stúlkum eitur
ENNSKJÁLFA FILIPPSEYJAR
Tveir vægir jarðskjáiftar
urðu á Filippseyjum í gær,
fjórum dögum eftir jarðskjálft-
ann mikla og fióðbylgjuna, sem
nú er taiin hafa orðið alit að
5000 manns að bana.
Fjöidi fólks hefur grafizt
undir húsarústum og vegna
tíðra jarðskjáifta undanfarna
daga hefur allt björgunarstarf
reynzt erfitt. Hér sjást menn
bera iik eins hinna iátnu úr
rústunum.
V-Þýzkaland:
BÚIÐ AÐ UPPLÝSA
BARNAM0RÐIN
Fyrir skömmu var greint frá
óhugnanlegum eiturmorðum, sem
framin höfðu verið í litlum
norður-þýzkum bæ, Breklum,
skammt sunnan dönsku landa-
mæranna, í erlendri grein hér í
Dagblaðinu. Svo virðist sem þetta
mál sé nú upplýst.
Þrjár telpur á aldnnum
fjögurra til sex ara leiust eiui de
hafa fundið sælgæti "u
appelsínusafa, sem í var blandað
bráðdrepandi gróðureyði, Idadan
Fjörutíu og tveggja ára kona úr
þorpinu, sem var meðal hinna
grunuðu, framdi sjálfsmorð með
bladaneitri eftir að hafa verið í
yfirheyrslu hjá lögreglunni. Gild
rök- hníga að því að konan hafi
verið morðinginn, en rannsóknar-
lögreglan í Husurn segir, að enn
séu engin sönnunargögn fyrir
hendi og auðvitað engin játning.
Konan hafði sjálf komið á
lögreglustöðina og sagt ntönnum
þar að hún teldi sig vita eitthvað
um morðin, en er upplýsingar
hennar reyndust vera uppspuni
einn, beindist athygli lögreglu-
mannanna að henni sjálfri, þar eð
hún kynni að hafa haft einhvern
tilgang með gerðum sínum. Kom í
ljós að árió 1975 lézt sex ára
gamall sonur hennar, er hann
faldi sig í ísskápnum á heimilinu
til þess að sleppa við að fara í
skóla. Mögulegt er, að konan hafi
þurft að „hefna sín“ á börnum
annarra foreldra í þorpinu.