Dagblaðið - 20.08.1976, Qupperneq 17
. 17
DACBLABIÐ. FÓSTUDAGUR 20. ÁGUST 1976.
Sunnan kaldi og rígning fram eftir
morgni en síöan suövestan kaldi og
skúrír. Hiti 8—10 stig.
Birgir Kjaran, Ásvallagötu 4, lézt
12 þ.m. Hann var fæddur í
Reykjavík 13. júni 1916 og voru
foreldrar hans Magnús Kjaran
stórkaupmaður og Soffía Kjaran
fædd Zimsen. Hann útskrifaðist
úr Menntaskólanum árið 1935.
Hann starfaði mikið að félags-
málum í'skóla. Birgir hóf háskóla-
nám og.valdi sér hagfræði. Fór
hann haustið eftir hann lauk
menntaskólanámi til Kiel i
Þýzkalandi. Birgir hafði alla tíð
mikið yndi af bókum, sem vafa-
laust hefur verið arfur úr föður-
garði. Faðir hans var mikill bóka-
maður og eigrlaðist með árunum
mikinn kost valinna bóka. Birgir
veitti Bókfellsútgáfunni forstöðu
meðan hún starfaði eða um
nærfellt aldarfjórðungsskeið. En
Birgir lét sér ekki nægja útgáfu
bóka, heldur skrifaði hann sjálfur
bækur. Stjórnmálaafskipti Birgis
mörkuðu spor í stjórnmála-
baráttuna. Árið 1950 var hann
kjörinn í bæjarstjórn
Reykjavíkur og sat þar í fjögur ár.
Árin 1952-1955 var hann
formaður Landsmálafélagsins
Varðar. Þegar hann hætti for-
mennsku í Verði tók hann við
formennsku í þýðingarmestu
samtökum flokksfélaganna í
Reykjavík, Fulltrúaráðinu.
Alþingismaður var Birgir kjörinn
í haustkosningum 1959 og sat þá á
þingi eitt kjörtímabil. Síðan hvarf
hann af þingi eitt kjörtímabil, að
eigin ósk en var kjörinn aftur 'a
.þing sem þingmaður Reykvíkinga
1967. Nátturuvernd hafði ávallt
verið honum mikið hjartans mál
og var hann formaður
Náttúruverndarráðs um nær
áratugar skeið. Hinn 1. júlí 1941
kvæntist Birgir eftirlifandi konu
sinni Sveinbjörgu Helgu Blöndal.
Foreldrar hennar voru Sóphus
Blöndal, framkvæmdastjóri á
Siglufirði og Ólöf Hafliðadóttir
Blöndal. Þeim varð fjögurra
dætra auðið, en urðu fyrir þeirri
miklu sorg að missa eina
dótturina á fyrsta ári. Dæturnar
þrjár eru Olöf, gift Hilmari
Knudsen verkfræðingi, Soffia
gift Pálma Jóhannessyni
lic.es.lettres, og Helga gift Ólafi
Sigurðssyni verkfræðingi.
Þóroddur E. Jónsson stórkaup-
maður, Hávallagötu 1, lézt aðfara-
nótt föstudagsins 13. ágúst.
Þóroddur fæddist á
Þóroddsstöðum í Ölfusi 6. maí
1905. Foreldrar hans voru Jón
Jónsson bóndi þar og kona hans
Vigdls Eyjólfsdóttir frá Grímslæk
í Ölfusi. Það lá ekki fyrir Þóroddi
að fara að sið feðra sinna og
stunda búskap. A f.vrstu Reykja-
víkurárunum 1921 tíl 1926 stund-
aði hann eins og þá var títt hverja
þá verkamannavinnu sem til féll.
Arið 1926 hóf hann síðan nám við
Verzlunarskóla íslands og lauk
þaðan námi árið 1928. Að loknu
námi þar var hann síðan eitt ár í
framhaldsnámi í Vínarborg. Arið
1930 stofnaði hann eigið heild-
sölufyrirtæki. Þóroddur kvæntist
eftirlifandi konu sinni, Sigrúnu
Júlíusdóttur, þann 28. október
1939. Þau eignuðust fjögur börn:
Jón lögfræðing, kvæntan Ástu
Ragnarsdóttur, Sverri forstjóra,
kvæntan Ingibjörgu Gísladóttur,
Ingunni Helgu, gifta Ingimundi
Gíslasyni lækni og Sigrúnu Þór-
dísi menntaskólanema. Þóroddur
eignaðist einn son, Skafta flug-
umsjónarmann í fyrra hjóna-
bandi. Skafti fórst í bilslvsi 1962
Hann var kvæntur Valdísi
Garðarsdóttur Barnabörn
Þórodds eru 13 talsins og barna-
barnabarnið eitt.
Þórarinn Helgason, frá Látrum í
Mjófirði við Djúp andaðist 14.
þ.m. og verður jarðsettur I dag í
Vatnsfirði. Þórarinn var fæddur á
Látrum 14. október 1885.
Foreldrar hans voru Helgi
Einarsson bóndi á Látrum og
kona hans Þóra Jóhannesdóttir.
Helgi tók við búi af föður sínum
árið 1918 og bjó sjðan á Látrum
samfellt til 1955 að hann brá búi.
Með fyrri konu sinni, Kristínu
Runólfsdóttur frá Heydal,
eignaðist hann þrjú börn er upp
komust, Helga bónda í Æðey, sem
kvæntur er Guðrúnu Lárusdóttur
frá Æðey, Runólf deildarstjóra
í menntamálaráðuneytinu og
Krislínu, er giftist Guðfinni
Magnússyni, núverandi sýslu-
skrifára á Patreksfirði en hún
andaðist f.vrir- nokkrum árum.
Með síðuri konu sinni, Hjálmfríði
Bergsveinsdóttur, eignaðist
Þórarinn einnig þrjú börn, Guðr-
únu, gifta Nikulási Sigfússyni,
yfirlækni, Braga og Sigríði, gifta
Sigurþór Jakobssyni listmálara.
Sigríður Jónsdóttir lézt 14. júlí sl.
Fæddist á Svarfhóli í Svínadal 14.
marz 1903. Foreldrar hennar voru
þau hjónin Guðbjörg Jóhanns-
dóttir frá Grafardal i Skorradal
og Jón Þorsteinsson, bóndi frá
Þórustöðum í Svínadal. Barn að
aldri fluttist Sigríður með for-
eldrum sínum að Grafardal og
síðar að Glammastöðum. Én árið
1915 brugðu þau búi og fluttust
til Reykjavíkur. 5. febrúar árið
1937 giftist hún eftirlifandi
manni sínum, Sigurbirni Sveins-
syni, járnsmíðameistara,
ættuðum frá Akranesi. Þau
hjónin hófu búskap á Akranesi og
•áttu þar heima um árabil en
fluttu síðan til Reykjavíkur.,
Þeim hjónum varð ekki barna
auðið en eina fósturdóttur ólu
þau upþ, Guðlaugu, sem kom til
þeirra ársgömul og gengu þau
henni í foreldra stað. Guðlaug er
gift Þorsteini Egilssyni og eru
þau búsett i Reykjavík.
Helga Halldórsdóttir, Safamýri ‘
40, lézt í Landspitalanum 18.
ágúst.
Árni Ragnar Magnússon, prent-
ari, Amtmannsstíg 6, andaðist að-
fararnótt 17. ágúst.
Arni Einarsson, verzluninni
Minni-Borg Grímsnesi, lézt í
Borgarspítalanum 17. ágúst.
Með sfld til Keflavíkur
Síld heíur verið fremur
fáséður fiskur á Suðurnesjum
undanfarin ár, en svo brá við í
gær að mb. Gunnar Hámundar-
son kom með 40 tunnur sildar
til Keflavíkur, veiddar í reknet
vestur í Jökuldjúpi. „Við
vorum búnir að leita á gömlu
góðu miðunum, í kringum
Reykjanesið," sagði Þorvaldur
Halldórsson, skipstjóri á Gunn-
ari, ,,en fengum aðeins nokkrar
síldar í fjórum lögnum, svo
ekki var annað að gera en
freista gæfunnar fyrir vestan.“
„Og láttu það fylgja með,“ gall
við í Jónatan Agnarssyni stýri-
manni, „að mjög nauðsynlega
þarf leitarskip til-að finna rek-
netasíldina, — það fóru fjórir
dagar í leitina hjá okkur.“ Og
því er hér með komið á fram-
færi.
Þorvaldur skipstjóri sagðist
fagna þvi að komast á reknet að
nýju. . Síldin væri ávallt
heillandi, en hann sagðist bara
ekki muna hvenær hann hefði
Með síldarnar í höndunum eðg
við mælingu eru þeir Jónatan
Agnarsson t.v. og Þráinn
Árnason t.h.
stundað veiðar í reknet seinast,
— svo langt væri umliðið.
Sildina kvað hann bæði feita
og fallega og skipverjarnir
brugðu máli á nokkrar og
reyndust þær vera allt að 38 sm
að lengd. „Úrvals hráefni,“
sagði Þorvaldur en síldin fer í
frystingu hjá Baldri hf. í Kefla-
vík.
Nokkrir bátar eru nú að búa
sig undir reknetaveiðar í Kefla-
vík og Sandgerði, en að minnsta
kosti einn hefur þegar hafið
veiðar frá Grindavík. Þar með
er hafin að nýju atvinnugrein
sem ekki hefur verið stunduð
svo neinu nemur á Suðurnesj-
um um margra ára skeið.
— emm
Golfklúbburinn Keilir
Opið mót verður haldið hjá golfklúbbnum
Keili fyrir konur á morgun og hefst kh 2.
Bæði verður leikið með og án forgjafar.
Einnig átti að fara fram drengjakeppni um
helgina en vegna sýnikennslu Jack Nicklaus
hefur mótinu verið frestað. Hins vegar
verður innanfélagsmót hjá drengjunum á
morgun kl. 1.
Félag einstœðra foreldra
— Flóamarkaður
Fólag einstæðra foreldra er að hefja undir-
búning flóamarkaðs síns og biður félaga og
alla sína mætu velunnara að taka til óspilltra
málanna — við sækjum heim. Slmi 32601
eftirkl. 18.
Útivistarferðir
Prentsmiðjueigendur
Vió óskum eftir að kaupa eftirtalin
tæki, sem veróa aó vera í góóu ásig-
komulagi: Pappírsskurðarhníf (lág-
marksbr. 80—90 em) — brotvél (4ra
blaða brot) — heftivél.
Þeir sem hafa áhuga á að sinna þessu
vinsamlegast leggi inn tilboó meó
greinargóðum upplýsingum, á af-
greióslu Dagblaðsins, merkt:
„BÓKBAND“ fyrir 26. sept. nk.
Laugardagur 21 /8 kl. 13.
Helgafell: — Fararstjóri Friðrik Daníelsson.
Verð 600 kr.
Sunnudagur 22/8 kl. 13
Blákollur — Leiti: Upptök hraunsins sem rann
i Elliðavog fyrir 5300 árum. Fararstjóri Einar
Þ. Guðjohnsesn. Verð 700 kr. Fritt fyrir
börn með fullorðnum. Brottför frá BSÍ að
vestanverðu.
Blaðburðarbörn
Sigtún: Pónik og Gautar leika frá kl. 9-1. Sími
86310.
Hótel Borg: Haukur Morthens og hljómsveit
skemmtir og enska söngparið . The two of
Clubs“. Opið til kl. 1. Sími 11440.
Glaeisbaur: Stormar leika til kl. 1. Simi 86220.
Hótel Sapa: Skemmtikvöld með Galdramönn-
um og grínistuni endurtekið i Súlnasal i
kvöld kl. 20.30. Opið til kl. 1. Simi 20221.
Tjamarbúð: Hljómsveitin Eik. Gestur
kvöldsins Sigrún Harðardóttir. Opið frá kl.
9-1. Sími 19000.
RöAull: Alfa Beta skemmtir i kvöld kl. 11.30.
Sími 15327.
Klúbburínn: Logar og Lena. Opið frá kl. 8-1.
Simi 35275.
Tónabær: Fresh leikur til 00.30. Sími 35935.
Ingólfs-cafó: Gömlu dansarnir í kvöld. Sími
12826.
Skiphóll: Hljómsveit Gunnlaugs Pálssonar.
Opið í kvöld frá kl. 9-1. Sími 52502.
Festi Gríndavík: Haukar leika i kvöld
Ilúsinu lokað kl. 11.30.
Óöal: Diskótek. Opið til kl. 1. simi 11322.
Sesar: Diskótek. Opið til kl. 1. Sími 83722.
óskast í Kópavog,
austurbœ:
Hlaðbrekku,
Fðgrubrekku,
Þverbrekku
BLAÐW
i
DAGBLAÐID ER SMA AUGLÝSINGABLAÐIÐ
SIMI27022
ÞVERHOLTI 2
«
Til sölu
Notað Dunlop-max power,
golfsett til sölu, einnig golfpoki
og kerra. Uppl. i síma 20958 eftir
kl. 17.
Hópferð.
Vegna forfalla eru nokkur sæti
laus í ódýrri vikuhópferð til Osló
7.—13. sept. Rithöfundasamband
íslands, sími 13190 og 36057.
Lítið notuð Zanussi þvottavél,
kringlótt borð (hnota), útvarps-
tæki. burðarrúm, stórt bariiaiuin
með dýnu og stóll til að láta á
barnavagn til sölu. Allt vel með
farið. Uppl. í síma 18255 eftir kl.
4.
Nýlegur grillofn,
baðborð, lítill baðskápur. miÍUð
teppi á hjónarúm. eldáíkgaM fn ur
og 2 tækifæriskjólar til siilu. Gott
verð. Uppl. í sirna 72888 ó kvöld-
in.
Til sölu nýlegt
20 tommu Grundig sjónvarpstæki,
Helkana ísskápur ca 200 1, gulur.
Einnig harnavagga á hjólum.
Uppl. i sima 83199.
Vegna hrottflutnings
er til sölu hluti af búslóð ásamt
amerískum barnabílstól og upp-
trekktri barnarólu. Uppl. í síma
92-1635 eftir kl. 6 á föstudag og
laugardag.
Nolað píanó,
kommóða og tveir speglar til sölu.
Sími 53568.
Rafstöðvar.
Hef til sölu margar stærðir rið-
straumsrafala, 220 volta, rafsuðu-
vél 300 amp. og dísilvél. Jón
Gunnarsson, Þverá. Snæfellsnesi.
Símstöð: Rauðkollsstaðir.
Smiðajárn.
Mjög fallegir smíðajárnskerta-
stjakar. veggstjakar, gólfstjakar
og hengikrónur til sölu. Gott verð.
Upplýsingar í síma 43337 á kvöld-
in og um helgar.
Túnþökur til sölu.
Upplýsingar í síma 41896.
1
Verzlun
8
Verzlunin Dunhaga 23 auglýsir:
Barnaföt, prjónagarn, prjónar og
ýmislegt annað. Komið og lítið
inn. Verzlunin Dunhaga 23.
Brúðuvöggur á hjólagrind,
margar stærðir, hjólhestakörfur
og margar stærðir af bréfa-
körfum. þvottakörfum og hand-
körfunt. Þá eru ávallt til barna-
vöggur með eða án hjólagrinda,
klæddar eða óklæddar. Blindra-
iðn, Ingólfsstr. 16, sími 12165.
Nýkomið gallaefni,
hvítt og blátt. óbleyjað lérefl, lér-
eft í dökkbláum og brúnum lit,
sængurfataléreft í mörgum litum,
kjólaéfni, blússuefni. terelyn
blúndudúkar, straufrítt sængur-
fatasett. straufritt sængurfata-
efni. gæsadúnsængur og koddar.
Póstsendum. Verzlunin Höfn,
Vesturgötu 12, sími 15859.
Konur—útsala.
Konur innanbæjar og utan af
landi. Hannyrðaverzlunin Lilja.
Glæsibæ, býður ykkur velkomnar.
Við erum með útsölu á öllum
.vörum verzlunarinnar, svo sem
hann.vrðapakkningum, rya,
smyrna, krosssaum. góbelin,
naglalistaverkum, barnaútsaums-
myndum og^ámáluðum stramma.
Heklugarnið okkar er ódýrasta
heklugarn á íslandi, 50 gr af
Hafnfirðingar — Hafnfirðingar,
höfum opnað skrautfiskasölu.
Verið velkomin. Opið frá kl. 5—8-
f.vrst um sinn. Fiskar og fuglar
Austurgötu 3.
Mikið úrval af
austurlenzkum handunnum
gjafavörum. Borðbúnaður úr
bronsi. útskornir lampafætur.út-
skornar st.vttur frá Bali og
mussur á ni lursettu verði. Gjafa-
vöruverzlunin Jasmin h/f.
Grettisgötu 64. Sími 11625.
Óskast keypt
Snittvél óskast keypt.
Uppl. í síma 25692.
ísskápur og sjónvarp
óskast til kaups. Uppl. í síma
81541.
Gardínur — loftljós — stofu-
hillur.
Óska eftir að kaupa stofustóris,
síðar utanyfirgardinur, loftljós og
stofuhillur (vegg). Uppl. í síma
81549 eftir kl. 20.30 næstu kvöld.
Miðstöðvarketill óskast,
10-12 rúmmetrar með tilheyran^
útbúnaði og rafmagnstúpu I sa-
konar ketil. Uppl. í síma 94 '
og 94-3372.