Dagblaðið - 20.08.1976, Page 23
DACBI.AfílÐ. KÖSTL DACUK 20. AGÚST 1976.
d
Utvarp
23
Sjónvarp
p
, --------------------------------
Utvorp kl. 17,30:
Lœrði mólið af bókum en
bjargaði sér prýðilega
r
segir fró
Spónarför
sinni
„Ég fór í Spánarförina í til-
efni af sextugsafmæli mínu í
fyrra sumar," sagði Sigurður
Sigurmundsson bóndi í Hvítár-
holti, sem flytur Hugleiðingu
um Spánarför í útvarpinu í dag
kl. 17.30. Er það fyrri hlutinn
sem er á dagskránni f dag, og
verður síðari hlutinn fluttur á
sama tíma á morgun.
„Þetta er ferðalýsing jafn-
framt því sem stjórnmálasögu
Spánar alveg frá dögum borg-
arastríðsins er ofið inn í og
einnig fjalla ég um valdatíma
Francos hershöfðingja.
Ég tala spönsku sjálfur, en
þetta er í fyrsta sinn sem ég hef
komið til landsins, en á árunum
samdi ég spánsk-íslenzka orða-
bók. 1 Spánarferðinni fór ég
með sænskri ferðaskrifstofu til
Sevilla og Cordoba og þótt ég
hefði aðeins lært málið af
Sólbjartar baðstrendur Spánar
hafa löngum freistað íslend-
inga, en það er fleira á Spáni en
baöstrendur. Sigurður bóndi i
Hvítárholti segir okkur frá því,
sem fyrir augu hans bar,í út-
varpinu í dag.
bókum fyrir tuttugu árum tókst
mér ágætlega að bjarga mér á
málinu.
Það var mjög gaman að koma
þarna og geta talað við fólkið
sjálft. Ég hafði ekki aðstöðu né
tækifæri til þess að fara í þetta
ferðalag fyrr en ég hélt upp á
sextugsafmælið. Ferðin tók
hálfan mánuð."
— Hefurðu verið bundinn
yfir búskapnum lengi?
„Ég er búinn að vera bóndi
síðan 1942 og ekki lagt i það að
fara frá fyrr, en ég vona að ég
fái tækifæri til þess að fara
aftur. Þá langar mig til þes's að
dvelja lengur í landinu og læra
málið fullkomlega.
Það er ekki nóg að læra
tungumál af bókum, en það er
líklega ekkert tungumál eins
vel fallið til sjálfsnáms og
spænska, því framburðurinn er
mjög nærri ritmálinu.
Ég hef mikinn áhuga á
tungumálum og langar til þess
að læra rómönsk mál, sem eru
mjög útbreidd í heiminum,"
sagði þessi íslenzki bóndi, sem
við fáum að hlýða á í dag og á
morgun.
kjúklingar og bananahýði suður ó Spóni — Hörundsflúr í Houston —
Lygasagan fœrði fyrirsœtunni heimsfrœgð — Kappaksturshetjan Stirling Moss —
Útvarp kl. 22,55:
ÞJÓDLEG TÓNLIST í KVÖLD
„Ég ætla að spila eitt eða tvö
lög af nýútkominni plötu með
hljómveitinni Jefferson’s Star-
ship er nefnist Spitfire," sagði
Guðni Rúnar Agnarsson.
þegar við spurðum hann hvað
yrði á dagskrá hjá honum og
Ásmundi Jónssyni í Áföngum i
kvöld kl. 22.55.
„Þessi hljómveit hefur verið
lengi í gangi í Bandaríkjunum
en hlaut alveg sérstakar vin-
sældir á sl. ári þegar þeir gáfu
út plötu er heitir Red Octupus.
Hún hlaut alveg frábæradóma.
Spitfire fékk ekki eins góða
dóma en mér finnst vissir
hápunktar á henni mjög góðir,
en það eru nokkur lög sem
draga plötuna niður. Innan um
eru frábær lög sem gera
plötuna verulega eigulega og
vel þess virði að leggja eyrun
við henni.
Síðan ætla ég að leika eitt lag
sem flutt er af skozkum þjóð-
lagasöngvara og leikritaskáldi,
Evan McColl. Fáir hafa gert
eins mikið fyrir skozka þjóð-
lagatónlist og McColI, en nú er
hann að mestu hættur að
syngja. Á seinni árum hefur
hann aðallega verið að semja
handrit og tónlist fyrir kvik-
myndir og sjónvarp. I tengslum
við það hefur hann einnig tekið
að sér að skóla unga þjóðlaga-
söngvara sem ætla að leggja
fyrir sig vinnu við þá tegund
leikhúsa sem nefnd er Folk
theatre og byggir eingöngu á
þjóðlegri arfleifð.
Loks leik ég eitt lag af plötu
með hljómsveitinni Incredible
Stringband, sem stofnuð var í
Edinborg árið 1965. Strax árið
eftir gaf hljómsveitin út plötu
sem varð mjög vinsæl. Þótti
hún sameina skozk þjóðleg
áhrif austurlenzkri tónlist og
jass, — en Incredible String-
band hefur verið mjög undir
austurlenzkum áhrifum, og
allra síðast verður lag af sóló-
plötu eins hljómsveitarmanns-
ins,Robin Williamsson," sagði
Guðni Rúnar. A.Bj.
Útvarp
Föstudagur
20. úgúst
12.25 Veðurfregnir og fréttir
Tilkynningar.
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: „Blómið blóðrauða"
eftir Johannes Linnankoksi Axel,
Thorsteinson les (14).
15.00 Miðdegistónleikar.Christian Ferras
og Pierre Barbizet leika Sðnötu í A-
dúr fyrir fiðlu og pianð eftir César
Franck. Melos-kvartettinn 1 Stuttgart
leikur Strengjakvartett nr. 2 í C-dúr -
(D32) eftir Franz Schubert
15.45 Lesin dagskrá nnstu viku.
16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15
Veðurfregnir).
16.20 Popphom.
17.30 Hugleiðing um Spónarför Sigurður
Sigurmundsson bóndi í Hvítárholti
flytur fyrri hluta.
17.50 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fróttir. Fróttaauki. Tilkynningar.
19.35 Daglegt mól. Helgi J. Halldórs-
son flytur þáttinn.
19.40 íbróttir Umsjón: Jón Asgeirsson.
20.00 Fró listahótíðinni í Björgvin í sumar
Ursula og Heinz Holliger leika ásamt
St. Johns Smith Square hljóm-
sveitinni Hljómsveitarstjóri: John
Lubbock. a. Sinfónía í G-dúr eftir
Giovanni Battista Sammartini. b. Þrír
dansar fyrir óbó, hörpu og strengja-
sveit eftir Frank Martin. c.
Óbókonsert í d-moll eftir Tommaso.
Albinoni.
20.35 Athvarf hins allslausa. Séra Arelíus
Níelsson flytur síðara erindi sitt.
21.uO Þjóölagakvöld. Guðmundur Gnsson
kynnir tónlist frá útvarpinu f
Stuttgart.
21.30 Útvarpssagan: „Stúlkan úr Svarta-
skógi" eftir Guðmund Frímann. Gísli
Halldórsson leikari les (14).
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Til umrasðu. Baldur
Kristjánsson stjórnar þættinum.
.22.55 Áfangar. Tónlistarþáttur f umsjá.
Asmundar Jónssonar og Guðna
Rúnars Agnarssonar.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
Laugardagur
21. úgúst
7.00 Morgunútvarp. Veðurfregnir kl.
7.00, 8.15 og 10.10. Fréttir kl. 7.30, 8,15
(og forustugr. dagbl.), 9.00 og 10.00.
Morgunbnn kl. 7.55. Morgunstund
bamanna kl. 8.45: Ragnar Þorsteinsson
endar lestur þýðingar sinnar á
sögunni „Utungunarvélinni" eftir
Nikolaj Nosoff (11). Óskalög sjúklinga
kl. 10.25: Kristín Sveinbjörnsdóttir
kynnir.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
112.25 Veðurfregnir og fréttir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
13.30 Út og suður. Asta R. Jóhannesdóttir
og Hjalti Jón Sveinsson sjá um síð-
degisþátt með blönduðu efni. (16.00
Fréttir. 16.15 Veðurfregnir).
Sjónvarpíkvöld
kl. 22,30:
Fótbolti ó
skjónum
Rétt þykir aó vekja at-
hygli á því að kl. 22.30 i
kvöld þegar sýningu á bíó-
myndinni lýkur verður sjón-
varpað frá leik Fram og
Vals sem fram fór I gær-
kvöldi.
A.Bj.
^ Sjónvarp
Föstudagur
20. úgúst
20.00 Fróttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dagskró.
20.40 í fótspor Shackletons.
Bresk fræðslumvnd um leiðangur Sir
Ernest Henry Shackletons til suður-
heimskautsins árið 1914 og björgun
leiðangursmanna. sem misstu skip sitt
í ferðinni. Þýðandi og þulur Gylfi
Pálsson.
21.05 Reykjavíkur Ensemble.
Guðný Guðmundsdóttir. Halldór Har-
aldsson. Deborah Davis. Asdls Stross
og Guillermo Figueroa leika pianó-
kvintett eftir Robert Sehumann. ís-
lensk þjóðlög I útsetningu Jóns
Ásgeirssonar og dansa frá Puerto
Rico. Stjórn upptöku Tage Ammen-
dtup.
21.25 Þegar neyðin er stœrst...
(You’re Telling Me). Bandarisk gam-
arimynd frá árinu 1934. Aðalhlutverk
W.C. Fields. Uppfinningamaður nokk-
ur hefur fundið upp hjólbarða, sem
geta ekki sprungið, en hann á í erfið-
leikum með að koma uppfinningu
sinni á framfæri. Dóttir hans er I
tygjum við auðmannsson. en móðir
unga mannsins vill ekki. að þau gift-
ist. Þýðandi Dóra Hafsteinsdóttir.
22.30 Dagskrárlok.
nýtt í hverri Viku