Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 21.08.1976, Qupperneq 24

Dagblaðið - 21.08.1976, Qupperneq 24
Vestur-þýzkir togarar veiða þorsk hér: Geta hagrœtt aflatölum af Islandsmíðum að vild — fleiri en einn möguleiki að villa um fyrir okkur Það virðist nú alveg ljóst að við íslendingar höfum engin tök á að fylgjast með afla og aflaskiptingu þýzku togaranna hér við land, og vilji Þjóðverj- arnir hafa rangt við þá geta þeir það að vild. Islenzkir togaraskipstjórar hafa oftar en einu sinni sagt blaðinu frá mokveiðum þýzku togaranna á þorski, en sín á milli tala þýzku togaraskip- stjórarnir alltaf um karfa og ufsafeng sinn, jafnvel á svæðum sem ekkert er að hafa nema þorsk. Benda íslenzku skipstjórarnir á, að miðað við þennan skrípaleik bendi líkur til að aflátölur þeirra þýzku kunni víðar að vera falsaðar en V Bflainnflutningurinn: út keppi nautana í nýtútkominni skýrslu frá Hagstofu tslands sem telur upp þær bifreiðar sem tollafgreiddar voru á tímabilinu janúar-júní 1976, kemur fram að langflestar þifreiðar hafa verið fluttar inn af tegundinni Skoda 100/110, eða alls 292 og komu um 90% þeirra bifreiða til landsins eftir 1. apríl sl. Næst í röðinni koma Mazda 929, 105 bifr., Ford Cortina, 102, Austin Mini, 80, Volvo 244,73, Lada 2103,72, Volkswagen 1200, 62-og Ford Escort, 61 bifreið. Af notuðum bifreiðum var mest flutt inn af Audi 100, eða 10 bif- reiðar. Þá voru einnig fluttar inn 2 björgunar-, sjúkra- og lögreglu- bifreiðar frá Bandaríkjunum, 1 sjúkrabifreið frá Noregi og 1 slökkvibifreið frá Bandaríkjun- um. Samtals voru fluttar inn á þess- um fyrstu sex mánuðum ársins 2097 bifreiðar, þar af 1848 nýjar fólksbifreiðar og 136 notáðar fólksbifreiðar. Aukningin frá sama tímabili í fyrra eru tæp 25%, því þá voru fluttar inn 1680 bifreiðar. JB í samtölum skipstjóranna á miðunum. Skv. samningunum við V- Þjóðverja mega þeir veiða 60 þúsund tonn á íslandsmiðum í ár, en aðeins fimm þúsund tonn af þorski. Hin 55 þúsund tonnin eiga að vera karfi og ufsi. Fimm þúsund tonnin af þorskinum voru hugsuð þannig, að fengju þýzku togararnir einhvern slæðing af þorski á karfa- og Ufsamiðunum, þyrftu þeir ekki að henda honum. Skv. upp- lýsingum íslenzku togarasjó- mannanna sækja þýzku togar- arnir hins vegar stíft á þau mið þar sem helzt er að vænta þorsks, og benda ísl. sjómenn- irnir á að floti þeirra væri fljótur að ná fimm þúsund tonna markinu miðað við það og sé líklega búinn að því nokkrum sinnum. Blaðið hafði samband við Fiskifélag íslands í gær, en þýzku skýrslurnar koma þangað reglulega einu sinni í mánuði og virðist ekkert at- hugavert við þær. Koma þær frá rannsóknastofnun þýzka sjávarútvegsins. Hins vegar er ekki kunnugt um hversu mikið eftirlit stofnunin hefur með því hvort skýrslurnar séu réttar, og enginn tslendingur hefur fylgzt með því og er ekki reiknað með að svo sé, nema rökstuddur grunur um misferli komi upp. Erfitt er að rökstyðja grun um misferli ef enginn Islendingur fær að koma nálægt eftirlitinu. Virðast því þýzku togaraskip- stjórarnir eiga tvo möguleika á að falsa aflatölur héðan. Annars vegar áð gefa upp rangt aflahlutfall, þ.e. minna af þorski en þeir í rauninni veiða, og hins vegar geta þeir gefið upp að hluti aflans sé af öðri m miðum en tslandsmiðum, því það hrapallega gat slæddist inn í samningana við Þjóðverjana, að fari þeir til veiða á Islands- miðum er þeim heimilt að koma við á öðrum miðum i leiðinni og er því ógerningur að henda reiður á hvað er af íslands- miðum og hvað annars staðar fengið. —G.S. Hœ, manrn! Þau hafa ekki miklar áhyggjur af morgundeginum þessir kátu krakkar sem dveljast á barna- heimiiinu Efri-Hlíð. Það myndi víst margur óska þess um þessar mundir að áhyggjuleysi bernskunnar fyigdi þeim um aldur og ævi. Foreldrar þessara barna hafa verið svo lánsöm að geta komið þeim inn á barnaheimili. Við megum hins vegar ekki gleyma því að enn er langt í land með að allir landsmenn fái notið þeirrar þjónustu sem barnaheimilin veita. (DB-mynd Sv. Þorm.) Samgönguáœtlun fyrir Norðurland: MILLJARÐUR Á MILLJARÐ 0FAN Rúmlega tíu milljörðum ætti að verja til vegaframkvæmda á Norðurlandi, þá er meðal annars reiknað með áætluðum kostnaði við uppbyggingu Norðurlands- vegar með bundnu slitlagi til Akureyrar samkvæmt heimildar- lögum. sem voru sett í fyrravor. I þessari tíu milljarða tölu er reiknað á verðlagi frá því í ágúst í fyrra, svo að kostnaðurinn yrði piiklu meiri, væri verðbólgan tekin með í reikninginn. Rúinan milljarð er talið að þurfi til framkvæmda við flug- velli á Norðurlandi. Þá er áætlað, að það muni kosta um þrjá millj- arða að koma höfnum á Norður- landi og Ströndum i gott horf. Það er um þrefalt hærri upphæð en gert er ráð fyrir í fjögurra ára áætlun Hafnamálastjórnar. Þetta kemur meðal annars fram í samgönguáætlun Norður- lands, sem Framkvæmdastofnun- in sendir frá sér. Áætlunarsvæðið nær einnig yfir Strandir og austur til Vopnafjarðar. Þessari áætlun fylgja ekki skuldbindingar af hálfu ríkis- stjórnar eða fjárveitingavalds, heldur er ætlazt til, að áætlunin verði höfð til hliðsjónar. Þá er ekki miðað við fastmótað áætl- unartímabil, þótt talið sé, að þörf- um í vega- og flugmálum, sem teknar eru með i þennan reikn- ing, þurfi að mestu að fullnægja innan áratugs. Breiðholt: Leiktœkja- salnum lokað ,,Við fundum sitthvað að staðnum þegar við skoð- úðum hann í dag,“ sagði Þórhallur Halldórsson for- stöðumaður Heilbrigðiseftir- litsins í gærdag, en eftirlitið lét loka leiktækjasalnum sem búið var að opna í Breiðholti án tilskilinna leyfa. Þórhallur kvað eftirlitið mundu benda eigendum á það sem gera þarf, við staðinn til að hann geti talizt boðlegur gestum sem þangað koma. Verður það gert á mánudaginn kemur. —JBP— 20-30 bótar í íslands- mótinu í siglingum Fyrsta „alvöru Islands- mótið í siglingum á svo- kölluðum Flipper- og Eldhnatta-bátum verður haldið á Fossvogi og hófst keppnin klukkan 9 í morgun og stendur í allan dag og á morgun. Ahugi manna fvrir siglingum hefui farið vaxandi undanfarin ár, sem sést ef til vill bezt á því að nú eru keppendur orðnir fjöldamargir, búizt er við 20-30 bátum í keppnina. Eflaust munu margir vilja fylgjast með keppninni, en það verður næsta auðvelt, hvort heldur er úr Nauthólsvík eða Kópavogi,- fijálst, óháð dagblað LAUGARDAGUR 21. ÁGUST 1976. Ríkið hirðir stóran hluta af vöruverðinu Vatnsglas ó 126 krónur — ríkið fœr 56 krónur Þeir sem lagt hafa leið sína til annarra landa hafa oft undrazt þann mismun sem virðist vera á vöruverði þar og hér. Hlutir eins og t.d. venjuleg vatnsglös kosta sáralítið á erlendri grund en hér kosta sambærileg vatns- glös 126 kr. stykkið. Bíómiðar á íslandi kosta 300 kr, en t.d. í Júgóslavíu kostar bíómiði sem svarar 120 kr. ísl., en þar í landi eru ekki bara settir textar við erlendar bíómyndir heldur er sett í þær júgóslavneskt tal. Og svona mætti lengi telja. Þegar farið er að athuga vöruverð á íslandi ofan i kjölinn kemur i ljós að það er ríkið sem tekur bróðurpartinn af vöruverðinu. Hér kemur skilgreining á þvi hvers vegna ómerkilegt vatnsglas, sem kostar 26 kr. í innkaupi, kostar 126 kr. út úr búð á íslandi. Á vatnsglösum er tollur 80% vörugjald og söluskattur 20%. 1. Innkaupsverð eríendis 26 kr 20.9% 2. Tollur, vörugj. söluskattur 56 kr 44.7% 3. Flutninqspi.. vátr. uppskipun o.þ.h. 7 Kr. 5.7% 4. Bankakostn. og vextir 2 kr. 1.5% 5. Heildsöluálagning 9 kr. 6.8% 6. Smasolualagning 26 kr. 20.4% 126 kr. 100.0% Ef á þessu vatnsglasi væri 8% tollur, ekkert vörugjald og 20% söluskattur yrði útsölu- verð skv. núgildandi verðlags- ákvæðum ca 66 kr., þ.e. lækkun um 60 kr. -A.Bj. Nýr rafmagns- veitustjóri ríkisins Iðnaðarraöherra skipaði Kristján Jónsson, verkfræðing, i stöðu rafmagnsveitustjóra ríkisins frá 1. okt. næstkomandi. Kristján er 37 ára að aldri og hefur frá 1974 starfað sem deildarverkfræðingur hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur. Prófi í rafmagnsverkfræði lauk hann við Tækniháskólann í MUnchen í Þýzkalandi. Starfaði hann um skeið hjá Brown, Boveri & Cie í Baden í Sviss og siðan hjá Smith & Norland hf. i Reykjavík þar til hann hóf störf hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur. —BS— — HH

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.