Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 11.10.1976, Qupperneq 2

Dagblaðið - 11.10.1976, Qupperneq 2
I)A(JBLAÐH). MANUDAGUR 11. OKTÓBER 1976. ■> 10 ám afmœli áþessubausti en það var hinn 25. nóvemher 1966, sem við gáfum út fyrstu bókina, LANDIÐ ÞITT, eftir Þorstein Jósepsson. Við minnumst afmœlisins með þeim hœtti að gefa a/menningi kost á að eignast „feg- ursta og dýrasta prentgrip á íslandi eftir Benedikt Gröndal með sérstaklega hagstœðum kjörum. Bók þessa gáfum við út til þess að minnast 150 ára afmœlis Gröndals, 6. október 1976. Bókin er með eftirmála á íslensku og ensku um Gröndal sem náttúrufrœðing, eftir Steindór Steindórsson frá Hlöðum. Greiðslukjör: Bókin kostar 60 þúsund krónur, en hin hagstœðu greiðslukjör eru þannig að kaupandinn þarf aðeins að greiða 20 þúsund krónur við móttöku og síðan 10þúsund annan hvern mánuð eða 5 þúsund mánaðarlega. Tilboð þetta stendur til afmœlisdagsins 25. nóvember n.k., néma að bœkurnar seljist fyrr upp. Bókin fœst aðeins í forlagi okkar Vestur- götu 42, sími 25722 og í póstkröfu. SJð SALTKORN í GRAIIT HALLDÓRS HALIDÓRSSONAR Þó að það sé mér þvert um geð sé ég mig tilneyddan að svara grein Halldórs Halldórs- sonar, frá 5. okt. sl. hér í Dag- blaðinu, sökum rangra ummæla og skoðunar, sem hann gerir mér þar upp. 1. H.H. segir: „Hann (Þ.E.) segir til dæmis, aðupplýsingarum afsagða víxla séu trúnaðarmál.“ Hér gerir H.H. mér upp ummæli, sem aldrei hafa verið viðhöfð. 2. H.H. segir: „Hins vegar er Þorvarður sjálfur bundinn skriflegu þagnarheiti..." Þetta er rangt. Þorvarður er ekki bundinn skriflegu þagnarheiti og alls engu þagnarheiti viðvikjandi afsagnalistunum, enda hvernig ætti hann þá að geta dreift þeim? Öll skrif H.H. um trúnaðarbrot undirritaðs eru því markleysa. 3. H.H. segir: „Sjálfur hef ég aldrei undir- gengizt þá þagnarskyldu, sem Verzlunarráð gerir ráð fyrir. Að halda því fram er út i hött.“ Þ.E. heldur engu slíku fram í grein sinni. H.H segir aftur á móti sjálfur í grein sinni Eniga Meniga: „Birting á þessum upp- lýsingum Verzlunarráðs er eins og framan greinir trúnaðar- brot, en ég kæri mig kollóttan." Rétt er að benda á í þessu sam- bandi að afsagnarlisti V.í. er unninn og kostaður af Verzlunarráðinu og því þess eign. Listin er sendur þeim sem V.I. ákveður og á þann hátt sem V.í. ákveður. Ef H.H. er hættur við að hafa framið trúnaðar- brot. er hann þá að fremja rit- stuld? Það mál þarfnast nánari athugunar. 4. H.H. fjallar allmikið um af- sagnarlista V.i. og lætur sem ég hafi í grein minni mest verið að skamma sig vegna birtingar þeirra. Þetta er misskilningur Þvert á móti lét ég i það skína að H.H. kæmist næst sannleik- anum. þar sem hann ræddi um afsagnarlistann. Ég var fyrst og fremst að skammast út af þeirri röngu og ósanngjörnu mynd, sem H.HÞ dró upp af einstök- um nafngreindum fyrirtækjum og viðskiptalífinu í heild. 5. H.H. segir: „Hér gerir Þorvarður skýran greinarmun annars vegar á at- hafnamönnum og hins vegar launamönnum og gengur að því sem vísu að athafnamennirnir geti borgað afborganir og vexti en launamennirnir ekki.“ Þetta er rakalaus þvætt- ingur, sem H.H getur enga stoð fundið fyrir í skrifum mínum. Það var hann sjálfur, sem flokkaði viðskiptavini bank- anna í athafnamenn og fátækt launafólk. Ef fátækt fólk getur greitt afborganir og nær 17% vexti af víxillánum, þá skil ég ekki hvað það er að vera fátæk- ur. Raunar spurði ég H.H. að því í grein minni hverjir þessir fátæku launamenn væru, sem bankarnir neituðu um lán, en honum láðist að svara því. 6. H.H. segir að rekstur olíu- félaganna sé stórpólitlskt mál. Þetta er misskilningur. Hér er í eðli sínu um hrein viðskiptaleg atriði að ræða og sá sem vill stuðla að betra viðskiptasið- ferði á að beita sér fyrir að- greiningu viðskipta og stjórn- mála. 7. H.H. telur í grein sinni að ég hafi talað mér þvert um geð og traðkað á sannfæringu minni þegar ég reis upp til varnar siðleysinu. Ég fæ ekki séð að í grein minni hafi ég varið siði eða siðleysi. Líki Hall- dóri hins vegar ekki skoðanir mínar og skrif getur hann ekki afsakað mig á þennan hátt, þar sem innræti mitt er engu betra en atvinnan. Það er mér mikið ánægjuefni að grein mín skuli hafa orðið til þess að Halldóri Halldórssyni varð ljóst hvers vegna rekstur fyrirtækja á íslandi er ekki með eðlilegun hætti, en þar sem hann kaus að láta spurn- ingum mínum um þau efni ósvarað, sé ég ekki ástæðu til frekari blaðaskrifa en er til við- tals á skrifstofu minni. Þorvarður Elíasson framkvæmdastjóri Verzlunarráðs islands Raddir lesenda Hringið í síma 83322 milfi kl. 13ogl5 eða skrifíi Af hverju er enginn uppgröftur í Málmey þó að vitað sé að þar hefur verið búið allt frá landnámsöld? Karl Árnason skrifar: Mig langar að varpa fram tveimur spurningum til þjóðminjavarðar vegna sjónvarpsþáttar um Málmey á Skagafirði. 1. a. Er þjóðminjaverði kunnugt um að þegar grafið var f.vrir kjallara húss nokkurs í Málmey fannst m.a. exi, forneskjuleg mjög og ekki i verra ástandi en svo að hún var lengi notuð til að kljúfa við. b. Einnig spónn fagurlega útskorinn með höfðaleðri. e. Og síðast en ekki síst, neðst í horninu voru hlóðir, áreiðanlega mjög gamlar. Þór Magnússon þjóðminja- viirður. 2. Þar sem telja verður líklegt að byggð 1 Málmey megi e.t.v. rekja allt aftur að landnámstíð, hvers vegna hefur þá aldrei verið sýnd nein viðleitni í þá átt að hefja þar skipulegan uppgröft? Þór Magnússon þjóðminja- vörður svaraði þessum fyrirspurnum á þá leið að hann hefði aldrei heyrt um þennan fund fyrr. Það væru hundruð staða á landinu sem vitað væri til að búið hefði verið á frá landnámsöld en aðstæður leyfðu ekki að þeim væri öllum sinnt. Reynt er að velja úr þá staði sem talið er að séu einna markverðastir en því miður væri þess ekki kostur að sinna fleiri stöðum í einu. Þessir staðir verða þá annaðhvort að eigasig eða bíða betra tækifæris.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.