Dagblaðið - 11.10.1976, Page 9

Dagblaðið - 11.10.1976, Page 9
DAGBLAÐIÐ. MANUDAGUR 11. OKTÖBER 1976. 9 ISRAELSMENN TAKA ÞATTI STRÍÐINU í LÍBANON" ísraelskir embættismenn hafa þverneitað að segja nokkuð um þá fullyrðingu Beirút- útvarpsins, að hersveitir kristinna manna í borgarastyrj- öldinni í Líbanon nytu aðstoðar israelsks stórskotaliðs. Þögnin vekur óþægilegan grun um að ef til vill eigi frétt Beirút-útvarpsins við rök að styðjast. íbúar borgarinnar Metulla á ísraelsku landamærunum, skýrðu frá því í gær, að á laugardaginn hefði harðvítugur stórskotaliðsbardagi farið fram í líbönsku þorpunum handan landamæranna. Líbanskir, sýrlenzkir og palestínskir sáttamenn hefja í dag nýjar tilraunir til að koma á friði í Líbanon. Viðræður þeirra fara fram í sumar- leyfisborginni Shtoura, sem er nú undir stjórn Sýrlendinga. Þessar viðræður koma i kjölfar viðræðna á laugardaginn, þar sem sérlegur sendimaður Arababandalagsins, dr. Hassan Sabri al-Kholi, átti í hlut. Dr. Kholi sagði að viðræðunum loknum, að þær hefðu orðið — fullyrðir Beirút-útvarpið „mjög árangursrikar", sam- komulag ríkti um öll meiri- háttar mál og að „aðeins smá- atriðin væru ófrágengin." Þrátt fyrir þessar yfir- lýsingar eru mennTiéldur svart- sýnir á að hægt verði að semja um frið á næstunni. Erlendar fréttir Seveso: ÓMAR í VALDIMARSSON PE l'URSSON 1 REUTER 8 IBUARNIR smm AÐ — enda þótt mengunin sé ennþá mjög mikil Um 500 íbúar þorpsins Seveso, sem fluttir voru þaðan er mikil sprenging var í efnaverksmiðju þar og olli mikilli eiturmengun í andrúmslofti, réðust yfir vega- tálmanir hersins og settust að í húsum sínum í gær. Yfirvöldin í þorpinu hafa greinilega ekki verið á varðbergi er flóttafólkið, sem kom til bæjarins í sendiferðabílum fólksbílum og á mótorhjólum ruddi sér leið í gegnum gadda- vírsgirðingarnar. Það mætti nánast engri mótspyrnu. Hafa yfirvöld gefið út yfirlýsingu þar sem fólkið er hvatt til þess að hafa síg á brott hið snarasta, enda sé enn langt I land með það að eiturloftið sé horfið. Bæjarstjóri Seveso, Francesco Rocca, fór um svæðið í gær með lögreglustjóranum, en aljar til- raunir til þess að fá fólkið til þess að fara, hafa mistekizt. Mcngun eða ekki mengun: íbúar Seveso snúa heim á ný yfir vegartálmanir hersins og fara hvergi. Liz giftist í 7. sinn Tilkynnt hefur verið i Vínarborg, að leikkonan Eliza- beth Tavlor muni ganga í hjónaband með fyrrum flota- málaráðherra Bandaríkj- anna, Jolir. Warner sem er 49 ára, áður en þetta ár er liðið. Það mun verða í sjöunda sinn sem leikkonan gengur i það heilaga en Elizabeth, sem er 44 ára, fékk skilnað frá Richard Burton i annað sinn fyrir þrem mánuóum. Blaðafulltrúi leikkonunar sagði í Vínarborg í gær að þau Warner og leikkonan hefðu opinberað trúlofun sína og myndu ganga í hjónabnd „áður en árið er liðið.“ Ekki vildi maðurinn láta uppi hvar athöfnin myndi eiga sér. Litlu dúfurnar hittust fyrst í boði, sem Elizabeth Bretadrottning hélt fyrirfólki i Washington 4. júlí sl. FRA HERRATIZKUNNI Sérstakt tilboð þessa viku 30-50% afslóttur ó Manhattan skyrtum. Nýbúnir að taka upp fyrstu sendinguna af hollensku leðurlíkijökkunum fyrir haustið. Einnig nýkomin sending af Shetlandsullarpeysum með rennilús og Manhattan skyrtum. Laugavegi 27 - Sími 12303 Gólfteppadeild Alafoss er einnig flutt í Bryggjuhúsið Vesturgötu 2 Auk gólfteppa og áklæða fáið þér einnig ailt ^ IV sem til þarf við lagningu gólfteppa, s.s. lista, mÆÆ IhI borða, lím, filt o.fl. Sími 22090 Æ VWA# WW Auk gólfteppa og áklæða fáið þér einnig allt sem til þarf við lagningu gólfteppa, s.s. lista, borða, lím, filt o.fl. Sími 2 2090 f

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.