Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 11.10.1976, Qupperneq 14

Dagblaðið - 11.10.1976, Qupperneq 14
14 OAíiBLAÐIH. MANUDAdUR 11. OKTÓBER 1976. Skrifstofurnar verða lokoðar ó morgun vegna útfarar Sigurðar Jóhannssonar vegamólastjóra. Vegagerð rikisins. Vinningur í merkjahappdrœtti berklavarnadags 1976 kom ó númer 1465 S.Í.B.S. Hannyrðaverzlunin Grimsbœ við Bústaðaveg SÍMI 86922 Þetta er stólarnir sem slegið hafa í gegn hjá okkur. Þið sparið með því að líma stól- ana saman sjálf. Ný sending væntanleg í vikunni. Glæsiiegt úrval af hannyrð- um fyrir unga sem aldna, nýjar vörur vikulega. Grófflosnámskeiðin eru hafin. Sími 86922. Opið á laugardögum. i Heildsölubirgðir FESTI Frakkaslín. — Simar 1K550. 10,1911 Megrunarklúbburinn Linan hefur ákveúio að bef ja start- semi á Selfossi og í Keflavík. Stofnfundir verða haldnir á Selfossi föstudag 15. okt. kl. 8 í Framsóknarhúsinu og i Keflavík laugardaginn 16. okt. í Framsóknarhúsinu. Innritun og upplýsingar i síma 22399 mánudag til fimmtudags kl. 3—10 e.h. MEGRUNARKLÚBBURINN LÍNAN Skipholti 9, sími 22399. Nýja Bió: Þokkaleg þronning (Bandarísk 1974) Aðalhlutverk: Peter Fonda. Susan George og Adam Roareke. Leikstjóri: John Hough. Það hlýtur að vera hræðilega ieiðinlegt að eiga átta gata trylli- tæki hér á íslandi og fá aldrei að gefa tækinu í botn. Það hefðu eflaust margir viljað vera í spor- unum hans Larry (Peter Fonda). Hann ekur eins og brjálæðingur um vegina í Ameríku með lögregl- una á hælunum. Það eru heldur engar druslur sem hann sezt undir stýrið á I kvikmyndinni „Þokkaleg þrenning“. Islenzkir bílstjórar sem hafa gaman af kraftmiklum bílum hafa reyndar ekki sætt sig við 45 kílómetra hraðann'og eru nú að gera sér- staka braut þar sem þeir geta gefið allt í botn. En Larry er reyndar kappakstursmaður og hann vill komast langt I sinni grein. Til þess þarf peninga og þá á hann ekki til. Larr.v og Deke (Adam Roareke),sem ervélvirki taka það ráð að ræna verslun nokkra. Þegar þeir hafa fengið afhenta peningana og ætla að halda af stað ergir Mary (Susan George) þá dálítið, sérstaklega Larry. Það verður úr að þeir taka hana með sér og hún kann bara vel við sig á nokkur hundruð kílómetra hraða. Kvik myndir Franklin (Vic Morrow) er gam- alreyndur lögreglumaður og nú hefur hann skipulega eftirför og er staðráðinn I að ná í ökuþörana. Það gengur ekki sem bezt og lög- reglubílarnir standast engan veg- inn þennan ofsa hraða. Þeir eru klessukeyrðir, fljúga út í vötn og við sjáum þá oftar með hjólin upp í loft en á götunni. En þar sem löggan er svona klaufsk þá fær Franklín þyrlu sér til aðstoðar. Frábær ökumaður eins og Larry er ekki á_þeim bux- unum að láta hana stöðva sig á undanhaldinu. Hann er samt ekki óskeikull og rekst nokkrum sinn- um á bíla sem eru fyrir. en ekki hindrar það hann í að halda áfram. Deke gerir bara við skemmdirnar jafnóðum. Það er létt yfir þrenningunni í Nýja bíó og sérstaklega er það hún Mary sem hressir upp á hópinn. Hún lætur ýmislegt flakka sem fer misjafnlega f félaga hennar. Þeir reyna árangurslaust að losna við hana en hún sér við þeim. Hún er ekki eins vitlaus og þeir halda. Efni myndarinnar er ekki upp á marga fiska en þessi ofsalegi akstursmáti bætir þar nokkuð úr. Manni leiðist alls ekki meðan hraðinn fer ekki niður fyrir 200 kílómetra á klukkustund. — KP. Kennedyfjölskyldunni ógnað enn ó ný Caroline lögð inn til krabbameinsrannsóknar Það má nú segja að það á ekki að að ganga af Kennedy fjölskyldunni. Nú hefur Carolina dóttir Jackie, sem er, átján ára gömul, verið flutt í hasti á sjúkrahús þar sem hún gengst undir nákvæma krabba- meinsrannsókn. Jackie var stödd í London þegar dóttir hennar var lögð inn á New England Baptist sjúkrahúsið í Boston. Hún flýtti tc Jackie Onassis flýtti sér til Boston frá Englandi þegar hún frétti um sjúkrahúsvist dóttur sinnar. sér heim með fyrstu ferð til þess að vera við sjúkrabeð dóttur sinnar. í sjálfu sér er ekkert óvenju- legt við að ungt fólk fari á sjúkrahús til rannsóknar en bað gerist vanalega ekki í jafn- miklu hasti og hjá Caroline. Það gat því ekki farið hjá þvi að það orsakaði mikið umtal og jafnvel gróusögur. Það hefur nú verið gefin út opinber tilkynning frá fjöl- skyldunni að Caroline sé senni- lega haldin illkynjuðum sjúkdóm — hafi illkynja æxli. Þótt það sé alltaf talið hættu- legt ef fólk fær þennan illræmda sjúkdóm er það enn hættulegra en ella þegar um er að ra'ða svo kornungt fólk eins

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.