Dagblaðið - 11.10.1976, Síða 18

Dagblaðið - 11.10.1976, Síða 18
18 G DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 11. OKTÖBER 1976 Iþróttir Iþróttir Iþróttir íþróttir I Þróttur og Grótta hlutu sín fyrstu stig í ór! — Liðin deildu bróðurlega stigum í 1. deild íslandsmótsins í handknattleik 17-17 Þróttur og Grótta skildu jöfn í 1. deild íslandsmótsins í gær- kvöld — hvort lið skoraói 17 mörk og voru það sanngjörn úrslit því hvorugu liðinu tókst að ná undir- tökunum í leiknum, sem bauð upp á talsverða spennu en var eyðilagður með slakri dómgæzlu þeirra Geirs Thorsteinssonar og Georgs Arnasonar. Þeir voru ákaflega slakir, óákveðnir og ósamhljóða. Hvorugt liðið er líklegt til að blanda sér í toppbaráttu 1. deildar — sennilega verður baráttan frekar á botninum. Raunar verð ég að segja eins og er, lið Gróttu kom mér nokkuð á óvart — spilaði mun betur en ég átti von á. Svo var greinilega um leikmenn Þróttar líka. Þeim kom mótstaða Gróttu greinilega á óvart og liðið náði sér aldrei á strik — ef til vill vegna furðu- legra innáskiptinga. ÞJÓFAAÐVÖRUNARKERFI BRUNAAÐVÖRUNARKERFI I SÉRHÆFT FYRIRTÆKI \\v// VARI SIMI 37393 Halldór Bragason skoraði fyrsta mark leiksins en Gunnar Lúðvíksson jafnaði fyrir Gróttu. Þannig hélzt leikurinn út — var allan tímann í jafnvægi og staðan í hálfleik var 10—9 fyrir Gróttu. Þór Ottesen var drjúgur fyrir Gróttu og greinilegt að leikmenn Þróttar áttu í megnustu vandræð- um með að stöðva þessa vinstri- handarskyttu — en hann skoraði 5 mörk Gróttu í fyrri hálfleik. Þrótti tókst að skora tvö fyrstu mörk síðari hálfleiks og þegar 20 mínútur voru af síðari hálfleik hafði Þróttur náð þriggja marka forustu — 16—13. En illa tókst að halda forskotinu — Halldór Kristjánsson skoraði þrivegis og tókst að jafna fyrir Gróttu 16—16. Þegar aðeins rúmar 20 sekúndur voru til leiksloka tókst Þrótti að skora 17. mark sitt — það hefði vissulega átt að nægja en leik- menn voru of önnum kafnir að fagna. Voru seinir í vörnina — Gunnar Lúðvíksson brunaði upp og i vinstra hornið en það var brotið á honum og víti dæmt. Árni Indriðason skoraði örugglega og jafnaði fyrir Gróttu 17— 17. Sanngjörn úrslit og bæði Iið hlutu sín fyrstu stig í íslandsmótinu. Konráð Jóusson var mark- hæstur Þróttara með 5 mörk------- 1 víti, Þeir Halldór Bragason, Gunnar Árnason og Trausti Þorgrímsson skoruðu þrjú mörk hver. Sveinlaugur Kristinsson, Jóhann Frimannsson og Bjarni Jónsson skoruðu eitt mark hver. Þór Ottesen skoraði 6 mörk fyrir Gróttu — kom þægilega á óvart i leiknum. Árni Indriðason og Halldór Kristjánsson skoruðu þrjú mörk — Arni 2 víti. Gunnar Lúðvíksson skoraði tvö mörk og þeir Magnús Sigurðsson Grétar Vilmundarson og Kristmundur Ásmundsson skoruðu 1 mark hver. KR lagði íslands- meistara Ármanns! — KR sigraði Ármann í körfunni 71-63 og Valur sigraði Reykjavíkurmeistara ÍR 73-69 í Reykjavíkurmótinu Övænt úrsiit í Reykjavíkurmót- inu í körfuknattleik — Valur sigraði ÍR og KR sigraði Íslands- og bikarmeistara Armanns. Já, það verður að segja að sigur KR hafi verið óvæntur yfir tsiands- meisturnum frá í vor en hann var engin tilviljun. Þrátt fyrir að Armenningar kæmust í 16—8 þá tókst þeim ekki að fylgja þessu góða forskoti eftir. Liðið virðist ekki ná eins vei saman og í fyrra — einhver iosarabragur á leik þess. Vörn KR var þétt allan tímann og leikmenn liðsins börðust vel — bæði í vörn og sókn. Staðan í ieikhléi var 37—32 KR í vil og Armanni tókst aldrei verulega að ógna forskoti KR, sem sigraði nokkuð örugglega 71—63. Einar Bollason var liði sínu drjúgur — skoraði 19 stig og spilið gengur mikið í kringum þennan snjaila körfuknattieiks- mann, sem aftur hefur dregið fram skóna. Kolbeinn Pálsson skoraði 18 stig og Bjarni Jóhannesson skoraði 17 stig. Fyrir Armann var Jimmy Rogers stigahæstur með 22 stig Jón Sigurðsson skoraði 16 og Jón Björgvinsson 15. A undan leik KR og Armanns iéku Reykjavikurmeistarar ÍR við Val. Meistararnir frá í fyrra náðu sér aidrei á strik — og virðist lítil reisn yfir liði ÍR nú — leikmenn virðast verða í lítilli æfingu. Leikurinn var siakur — en þó var talsverð spenna í honum allan tímann. ÍR hafði yfir í hálfleik 33—32 en Valur seig framúr í síðari hálfleik og sigraði með fjórum stigum — 73—69. Stigahæstur Valsmanna var Þórir Magnússon með 22 stig en Kolbeinn Kristinsson skoraði 14 stig fvrir ÍR, Mörk, mörk eru dagskipun Revie — enska landsliðið gegn Finnum ó miðvikudag valið „Ég hef aldrei fyrr valið lið, sem byggir eins mikið á sóknar- leik,“ sagði Don Revie, einvaldur enska landsliðsins eftir að hann hafði tilkynnt enska iandsliðið gegn Finnum á miðvikudag. „Frá vörn og í sókn — þá hafa allir gaman af að sækja. Mörk — mörk og aftur mörk cr það sem liðið á að gera gegn Finnum,“ sagði Revie ennfremur. Revie valdi tvo leikmenn Manchester City í sókn sína — þá Dennis Tueart og Joe Royle. Royle Iék síðast með enska lands- liðinu í Ameríku í sumar en nú er rúmt ár síðan Tuert lék fyrir Eng- land. Þeir Dennis Tueart og Joe Royle munu mynda sóknarkvart- ett ásamt þeim Mike Channon og Kevin Keegan — en annars er Iiðið þannig skipað: Markvörður er Ray Clemence, Liverpool. Aðrir leikmenn: Colin Todd Derby, Phil Thompson Liverpool, Brian Greenhoff Manchester United. Kevin Beattie Ipswich. Tengiliðir eru: Ray Wilkins Chelsea, Trevor Brookin frá West Ham og í sókninni verða þeir Keegan Liverpool, Joe Royle Manchester City, Mike Channon Southampton og . Dennis Tueart Manchester City. Það eru því þrír leikmenn frá Liverpool, tveir frá Manchester City og siðan einn leikmaður frá Ipswich. Manchester United. Southampton. Derby. West Ham og Chelsea. UNDANKEPPNI HM 78 Spónn skoraði sigurmarkið skömmu fyrir leikslok Spánverjar náðu fram hefndum á Júgðslövum í undankeppni Heimsmeistara- keppninnar er Spánn sigraði Júgóslava 1-0 í landsleik þjóðanna sem fram fór i Sevilla á Spáni. Hefndir — jú, Júgóslavar slógu Spánverja út í undankeppni siðustu heims- meistarakeppni. En það var ekki fyrr en á 85. minútu að Spánverjum tóks að skora eina mark leiksins og þá úr víti. Juanito sem lék sinn fyrsta landsleik brauzt í gegn um vörn Júgóslava en var brugðið illilega og vitaspyrna umsvifalaust dæmd. Hinn gamalreyndi Pirri skoraði örugglega úr vitinu við geysilegan fögnuð heima- manna. En Spánverjar þurftu mikið að hafa fyrir sigrinum því Júgóslavar ógnuðu ávallt og voru lengst af hættulegri. Nokkrum sinnum skall hurð nærri hælum við mark Spánverja þó aldrei eins og á 67. mínútu er Jerkovic braust skemmtilega í gegn eftir að hafa sent á Popivoda og fengið knöttinn aftur. Skot hans hafnaði i stöng og Spánverjar siuppu með skrekkinn — og síðan að skora úrslitamark leiksins. Búlgarar misnotuðu víti Búigaría og Frakkland skildu jöfn i undankeppni HM í 5. riðii en leikurinn fór fram í Soffíu í Búlgaríu. Hvort lið skoraði 2 mörk, en Frakkar voru yfir í leiknum. En Búigarir voru nálægt sigri — aðeins þremur mínútum fyrir leiksiok misnotaði Bonev víta- spyrnu fyrir heimamenn. Já, Frakkar komust tveim mörkum yfir — Fyrst skoraði Michel Platini beint úr aukaspyrnu af 30 metra færi á 37. mínútu og aðeins þremur mínútum síðar skoruðu Frakkar sitt annað mark — Lacombe var þá að verki. En í lok fyrri háifieiks tókst Bonev, sem lék sinn 89. landsleik fyrir Búlgaríu að minnka muninn í l-2.Bonev skoraði mark sitt beint úr aukaspyrnu. A 69. mínútu tókst Panov að jafna af stuttu færi og Búigarar sóttu síðan stift og fengu víti skömmu fyrir leikslok Bonev misnotaði vita- spyrnu eins og áður sagði. Bonev misnotaði vitaspyrnu eins og áður sagði. Ungverjar jöfnuðu 6 elleftu stund Ungverjar náðu jafntefli í Grikklandi í landsieik þjóðanna í undankeppni Heimsmeistarakeppninnar. Ungverjar skoruðu jöfnuhar- mark sitt aðeins fimm mínútum fyrir leiksiok — og hefði annað verið hreint rán, því Ungverjar sóttu iengst af og voru mun betri aöilinn. Já, Ungverjar sóttu iengst af og einokuðu allt spil. En vörn Grikkja var þétt f.vrir og á 68. minútu tókst þeim að skora. Há sending var gefin fyrir mark Ungverja, markverði þeirra, Davoulis, tókst ekki að halda knettinum — og Papalonnu skoraði öruggléga af stuttu færi. Fögnuður hinna 30 þúsund áhorfenda var geysilegur. En sókn Ungverja var þung og loks á 85. minútu skoruðu þeir. Sando Pinter sendi knöttinn vel f.vrir — og Tibor Nyilisi skallaði knöttinn í netiö. Eftir markið sóttu Ung- verjar stíft og re.vndu að knýja fram sigur en vörn Grikkja var sterk og hélt út.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.