Dagblaðið - 15.10.1976, Síða 6
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 15. OKTÖBER 1976
6
REUTER
Sovézkt geimfar stefnir
i áttina til Saljut-5
— œtla Rússar að setja nýtt dvalarmet
úti í geimnum?
Sovézkt geimfar með tvo
menn innanborðs er nú á braut
umhverfis jörðu að því er virð-
ist til móts við rannsóknarstöð
á sporbaug. Einnig er talið lík-
legt að til standi að setja nýtt
dvalarmet úti í geimnum.
Geimfararnir tveir, Vyatsje-
slav Zudov og Valery Rozhd-
etvensky, fóru á loft í gær-
kvöld frá Baikonur-
geimstöðinni í Mið-Asíu með
geimfarinu Soujuz-23., að sögn
Tass-fréttastofunnar.
París í
Rússlandi
Það kann að virðast furðu-
legt, en í Uralhéraði í miðju
Rússlandi er að finna bæi og
þorp sem heita París, Leip-
zig, Varsjá og svo framvegis.
Þetta er fremur furðulegt
en á sína eðlilegu skýringu
sem er að leita aftur f aldir.
Þegar rússnesku kósakk-
arnir sneru til heimabyggða
sinna eftir að hafa barizt við
Napóleon Frakkakeisara í
byrjun 19. aldarinnar sett-
ust þeir að í héruðum við
sunnanverð Uralfjöll. Þar
reistu þeir bæi og þorp sem
þeir nefndu sfðan eftir þeim
stöðum, sem þeir höfðu gist i
herferðinni gegn Napóleoni
og herlioi hans.
(APN)
Göring vildi heldur fremja sjálfsmorð en verða hengdur. Hér liggur
hann á iíkbörunum.
30 ár eru liðin
síðan Göring iramdi
sjálfsmorð
I dag eru liðin 30 ár síðan
Hermann Göring aðalmarskálk-
ur Hitlers framdi sjálfsmorð í
fangaklefa i Niirnl)erg. Hann
'hafði þá verið dæmdur til
dauða ásamt tfu stríðsglæpa-
mönnum öðrum. Fyrirhugað
var að að hengja þá daginn eft-
ir.
Göring tókst á einhvern hátt
að ná í eitur sem hann gleypti
i klefa sinum til að firra sig
þeirri smán að láta hengja sig.
Göring var kallaður nasisti
númer tvö — það er næstæðst-,
ur á eftir Hitler sjálfum. Hann
var yfirmaður þýzka fiughers-
ins.
Meðal þeirra nasista sem
voru hengdir eftir Nurnberg-
réttarhöldin voru Ernst Kalten-
briinner, ævintýramaðurinn
Joachim von Ribbentrop og Al-
fred Jodl yfirliðþjaiti.
BettvWilliams og Maread Corrigan, leiðtogar fridarhre.vfingar kvenna á N-Irlandi, við bíl Bettyar, en
múgurinn lét skap sitt bitna íi honum er konunum var koinið undan. Árásarmennirnir voru flestir
konur
Leiðtogar friðarhreyfingar kvenna á N-írlandi:
n
VIÐ SKUIUM HALDA AFRAM
Báðir leiðtogar friðarhreyf-
ingar kvenna í Norður-írlandi
Betty Williams og Mairead Cor-
rigan, lýstu því yfir fyrr í þess-
ari viku að þær myndu halda
áfram baráttu sinni fyrir friði,
þrátt fyrir þá andstöðu sem af-
staða þeirra hefur mætt innan
IRA.
Báðar hlutu konurnar skrárn-
ur og marbletti sl. sunnudag er
æstur mugurinn réðst gegn
þeim í hverfi lýðveldissinna í
Belfast en þangað höfðu þær
farið til þess að mótmæla morði
13 ára drengs er féll fyrir
byssukúlum brezkra hermanna
þar í borg.
,,Við fordæmum alla vald-
beitingu," sagði Betty Williams
sl. mánudag, „hvort sem í hlut
eiga mótmælendur, kaþólskir,
IRA eða brezki herinn".
Múgurinn i hverfi lýðveldis-
sinna sýndi „dýrslegt hatur",
sagði hún en lýsti því jafnframt
yfir að hún væri ekki búin að
gefast upp. „Það er bara sorg-
legt að þeir skuli ekki skilja
hvað við erum að reyna að
gera."
Sl. mánudag var enn eitt
ódæðið framið í Belfast er ung-
lingur skaut 46 ára gamla konu
til bana f.vrir utan heintili sitt.
Afrískir fíhr eru að deyja út
En það sem ennþá meiri ugg
vekur er stærð húðanna sem nú
eru farnar að berast til Hong-
Kong. Yfirleitt eru allar húðir,
sein vega minnk en 23 kíló. lald-
ar vera af ungum fílum enda
þótt þar geti verið um undan-
tekningar að ræða. En margar
Afrískir fílar á leið í sláturhús.
Það magn sem fer nú um
Hong Kong af afrískum fíla-
beinum er orðið svo mikið að
dýraverndunar- og friðunar-
menn óttast nú fyrir alvöru að
fíllinn sé að verða útdauður i
Austur- og Mið-Afríku,
A síðasta ári komu um 500
þúsund kíló af fílabeinum til
Hong-Kong, ættuð frá Keníu
Uganda, Tan/aniú og Zaire,
samkvæmt tölum hagstofunnar
þar i borg. Þetta þýoir að u.þ.b.
20 þúsund filum hafi verið
slátrað. Á fyrstu sex ínáuuðum
þessa árs voru 350 þúsund kiló
af fílabeini flutt inn til Hong
-Kong og er það um 30% aukn-
ing frá því á sama tíma í fyrra.
Enn á ný benda tölur friðunar-
sinna til þess að um 14 þúsund
dýr hafi verið drepin og það er
aðeins fyrir sex mánaða verzl-
un í Hong-Kong
húðanna, sem nú eru til sölu í
borginni, vega á milli þriggja
og 18 kílóa. Það þýðir að ekki
aðeins eru ungir fílar skotnir
heldur er allt ungviðið veitt þar
sem til þess næst. eða eins og
einn friðunarsinninn komst að
orðið: ..Vi’iðiþjófarnir hljóta að
skjóla á allt sem likist fíl.“
En svo virðist sem kaup-
mennirnir í Hong-KOng hafi
gripið til sinna ráða. .Verð á
fílabeini hefur farið lækkándi á
heimsmarkaðinum fyrir áhrif
áróðurs gegn þessum veiðum og
nú er svo komið að verðið hefur
lækkað um 25%.
Fullmettaður markaður
ætlar því að verða fílunum til
H'fs.
Höfum
kaupanda að
Blazer, Bronco, Scout Range
Rover, Land Rover, Wagon-
eer, árg. '73—’74, sem má
greiðast að fullu á 10—12
mánuðum.
Erlendar
fréttir
__í_____^