Dagblaðið - 15.10.1976, Side 7
7
OAC'iBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 15. OKTOBER 1976.
ÓFRÆGINGARHEFERÐ GEGN
FRÚ MAO OG FYLGISMÖNNUM
HENNAR UM GERVALLT LAND
— veggspiöld í
Chiang Ching, ekkja Mao
Tse-tungs og þrír róttækir
félagar hennar voru í morgun
opinberlcga ásökuð um
samsæri gegn kínverska
kommúnistaflokknum.
Reutersfréttastofan hefur
eftir áreiðanlegum heimildum í
Peking, að ekkjan — sem er
fyrrverandi kvikmyndaleik-
kona — og félagar hennar hafi
orðið fyrir hörðum árásum á
veggspjöldum í Shanghai og
Wuhan.
Róttæklingarnir fjórir — frú
Mao, Wang Hung-w^n, varafor-
maður flokksins, Chang Chun-
chiao varaforsætisráðherra,
og Yao Wen-yuan, hugmynda-
fræðingur og áróðursmeistari
— eru taldir hafa verið i varð-
haldi í átta daga.
Veggspjöldin í Shanghai, þar
sem fjórmenningarnir eiga
mest pólitískt fylgi og hófust
fyrst til áhrifa, voru sett upp í
nótt, að sögn heimildar-
mannanna.
Við háskólann í Peking voru
sett upp önnur spjöld, sem á
var letrað: „Endalok samsæris-
mannanna verða ekki góð.“ Þar
voru engin nöfn nefnd.
Ferðamenn hafa skýrt frá
því að í Wuhan hafi fjór-
Shanghai, Peking og Wuhan
mennirnir verið nafn-
greindir sem andstæðingar
flokksins og að þess sé krafizt,
að „hundarnir verði settir í
vatnið".
Sérfræðingar telja nú víst, að
um allt landið sé að hefjast
herferð gegn fjórmenningun-
um, sem sakaðir eru um að hafa
gert samsæri um valdarán eftir
lát Maos formanns í síðasta
mánuði.
Peking-útvarpið hefur birt
frekari viðvaranir gegn því að
kommúnistaflokkurinn verði
klofinn og hvatt alþýðu
landsins til að berjast gegn
þeim, sem taka þátt i sam-
særunum og leynimakki gegn
flokknurri.
H
Veggspjöld hafa birzt í nokkr-
um borgum Kina að undan-
förnu þar sem veitzt hefur
verið að „óvinum flokksins“. i
nótt voru sett upp spjöid í
Shanghai og víðar, þar sem
ráðizt var að ekkju Maos og
þremur helztu stuðningsmönn-
um hennar.
Ródesía: r
FYRRUM FORSÆTISRAOHtRRA
IANDSINS STJÓRNMÁlAlíGUR
RÁDGJAFINKOMO-LIÐSINS
Utlit er fyrir að fleiri pólitískir
skoðanahópar í Ródesíu muni nú
eiga fulltrúa sina á brezk-
skipulögðu stjórnarskrárráðstefn-
unni um Ródesíu, sem hefst í
Genf 25. október næstkomandi.
Garfield Todd, fyrrum forsætis-
ráðherra Ródesíu, var í gær
skipaður stjórnmálalegur ráðgjafi
þeirrar fulltrúanefndar Afríska
þjóðarráðsins, sem Joshua Nkomo
veitir forystu.
Þjóðernissinnaleiðtoginn
Ndabaningi Sithole mun einnig
að, öllum líkindum sækja
ráðstefnuna. Forsetar „framlinu-
ríkjanna" fimm óskuðu eftir því í
gær við brezku stjórnina, að
Sithole yrði boðið að sitja
ráústefnuna.
Einn þjóðernissinnaleiðtoginn,
Róbert Mugabe, sagði í gær að
hann væri enn að reyna að fá
Breta til að fresta ráðstefnunni.
Mugabe, sem almennt er talinn
talsmaður 12 þúsund skæruliða er
að mestu leyti starfa frá Mózam-
bík, skýrði sendimanni brezku
stjórnarinnar, Dennis Grennan,
frá því í gær að útilokað væri
fyrir sig að vera með
fulltrúanefnd sína fullskipaða í
tæka tíð.
Ródesíski Miðflokkurinn, sem
hefur bæði hvíta og svarta innan
sinna vébanda, hefur fordæmt
brezku stjórnina fyrir að útiloka
stiórnarandstöðuflokkana í
landinu frá ráðstefnunni.
Þá sagði Ian Smith, forsætis-
ráðherra minnihlutastjórnarinn-
ar í Ródesíu, í gær að meirihluti
blökkumanna í landinu væri því
fylgjandi að yfirráð hers og lög-
reglu yrðu áfram í höndum hvitra
manna, aðeins örfáir öfgasinnar
væru andvígir því.
Nóbelsverðlaun
í hagfrœði
og lœknisfrœði
Nóbelsverðlaunin í
læknisfræði og hagfræði
voru afhent í Stokkhólmi i
gær. Þau hlutu að þessu
sinni þrír Bandaríkjamenn,
Milton Friedman hagfræði-
prófessor við Chicago-
háskóla, dr. Baruch Blum-
berg i Philadelphiu og dr.
Carleton Gajdusek frá Mary-
land. Tveir þeir síðast-
nefndu hlutu verðlaun í
læknisfræði.
Prófessor Friedman hlaut
verðlaunin fyrir ritgerðir
um neyzlurannsóknir, sögu
og kenningar í fjármála-
fræði og áhrif þessara kenn-
inga á fjármálastefnu aðal-
banka. Læknarnir Blumberg
og Gajdusek unnu til verð-
launa fyrir rannsóknir á
uppruna og eðli lítt skiljan-
legra sjúkdóma, sem læknis-
fræðin glímir enn viö. —
Það þykir í frásögur
færandi, að annar læknanna
hefur stundað rannsóknir á
mjög óvenjulegum heila-
skemmdum manna í Nýju
Gíneu. sem taldar eru stafa
af mannakjötsáti.
Líbanon:
Sýrlendingar ná þremur
mikilvœgum fjallavígjum
— stefna til Beirút
Sýrlenzkum hersveitum
hefur með skriðdrekasveitum
og stórskotaliði tekizt að ná á
sitt vald þremur mikilvægum
vígjum Palestínumanna og
vinstrisinna í fjöllunum suð-
austur og austur af Beirút, að
því að skýrt var frá í Damaskus
í Sýrlandi í morgun.
Tilkynningin var birt eftir að
sýrlenzki herinn í Líbanon
hafði hafið nýja stórsókn gegn
iíbönskum vinstrimönnum og
palestínskum bandamönnum
þeirra í fjallavigjunum.
I Beirút hefur verið skýrt frá
hörðum bardögum í Bhamdoun
og er mannfall sagt þar mikið á
götum úti. I Bhamdoun var
áður eftirsóttur og íburðar-
mikill ferðamannastaður.
í sýrlenzku tilkynningunni
segir að friður og kyrrð ríki nú
á svæðinu í fyrsta skipti í sjö.
mánuði, eftir að „vandratúa-
seggir og fjandsárhleg öfl‘'
höfðu verið flæmd á brott.
Talið er líklegt — og haft
eftir áreiðanlegum heimildum í
Sýrlandi — að sýrlenzka
innrásarliðið í Líbanon muni
einbeita sér að því næst að opna
þjóðveginn á milli Beirút og
Damaskus og síðan stefna inn í
Beirút sjálfa.