Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 15.10.1976, Qupperneq 9

Dagblaðið - 15.10.1976, Qupperneq 9
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 15. OKTÖBER 1976. Q Söngsveitin Fílharmónía hefur vetrarstarf: Frumflytur As-dúr messu Schuberts í apríl Þessi mynd af Söngsveitinni Fílharmoníu var tekin á tónleikum i april þegar sálumessa Verdis var flutt í Háskólabíói. Það var Karsten Andersen sem stjórnaði þeim flutningi. Nýtt starfsár er nú að hefjast hjá Söngsveitinni Fílharmoníu en f.vrsta æfingin verður i Mela- skólanum 18. október nk. Nýr söngstjóri er nú tekinn við söngsveitinni en það er Marteinn Hunger Friðriksson, sem er íslendingum vel kunnur fyrir tónlistarstarf sitt. Hann hefur um árabil verið organisti í Háteigs- kirkju og stjórnað kirkjukór hennar. Þá hefur hann stjórnað kór og hljómsveit Tónlistar- skólans í Reykjavík auk þess að kenna þar. Marteinn Hunger er þýzkur að uppruna en islenzkur ríkisborgari. Hann stundaði tónlistarnám við Tónlistarhá- skólana í Dresden og Leipzig í Þýzkalandi. Á þessu starfsári, nánar tiltekið i apríl. verður frumflutt As-dúr messa Franz Schuberts. Er þetta eitt af síðustu og stærstu verkum hans, samið um svipað leyti og Öfullgerða sinfónínan og stóra C- dúr sinfónían. Hefur þessi messa notið mikilla vinsælda erlendis, enda mjög falleg og hljómþýð. Verkið er gert fyrir fjóra einsöngvara og 4-8 raddaðan kór og stóra hljómsveit. Þá verður einnig endurflutt tónverkið Viii uspá sem Jón Þórarinsson samdi í tilefni þjóðhátíðarinnar 1974. Var það frumflutt af Sinfóníuhljómsveit íslands, Guðmundi Jónssyni og Söngsveitinni Filharmoníu á þjóðhátíð í Reykjavík 3. ágúst 1974 en hefur ekki áður verið flutt opíhberlega i tónleikasal. Uppistaðan i verkinu er Eddu- kvæði og telst Völuspá með veigamestu listaverkum sem sam- in voru í tilefni þjóðhátíðarinnar. Það er Karsten Andersen sem mun stjórna þessum flutningi á tónleikum 10. febrúar nk. Þeir, sem hafa áhuga á að gerast söngfélagar í Söngsveitinni geta gefið sig fram við söng- stjórann eða formann Söngsveit- arinnar í síma 33657. -JB. Kammermúsíkklúbburinn: Prófessor Erling Blöndal Bengtsson fyrsti gesturinn á nýbyrjuðu starfsóri Prófessor Erling Blöndal Bengts son er þekktur sellóleikari og tón- listarkennari. en hann verður fyrsti gestur Kammermúsík- klúbhsins á þessu starfsári. Frófessor Erling Blöndal Bengtsson verður fyrsti gestur Kammermúsíkklúbbsins á því starfsári sem nú er að hefjast. Fyrstu tónleikarnir verða í Bústaðakirkju sunnudaginn 17. október og þriðjudaginn 19. október kl. 20.30. A efnisskránni eru allar sex svítur J.S. Bach f.vrir einleiks- selló. Prófessor Erling á 40 ára konsertafmæli á þessu ári en hann kom fyrst fram á tónleikum í Kaupmannahöfn 4 ára gamall. Síðan hefur vegur hans sífellt farið vaxandi og er hann mjög þekktur sellóleikari. Er þetta í þriðja sinn sem hann flytur þessi verk hjá Kammermúsíkklúbbn- Ulil. Á næstu tónleikum félagsins muns Sinnhofer kvartettinn frá Þýzkalandi flytja sex strengja- kvartetta eftir Beethoven en það er liður í heildarflutningi strengjakvartetta hans sem verður síðan lokið við næsta haust. Á næsta ári á Kammermúsík- klúbburinn 20 ára afmæli og eru raðgerðir afmælistónleikar af því tilefni en efnisskrá þeirra er ekki endanlega frágengin. Nú munu vera um 200 félagar í Kammermúsíkklúbbnum. en þeir sem hafa hug á að ganga í hann eru vinsamlega beðnir að koma nokkru fyrir tónleikana í Bústaðakirkju til innritunar. -JB. M0 ~n n HUSGOGN HALLVEIGARSTÍG 1 RAFTÆKI SÍMI10520 Þetta stórglœsilega leðursófasett höfum við í verzluninni ósamt fjölda annarra tegunda HÚSGÖGN^r’RAFTÆKI HALLVEIGARSTÍG I. ÍSLAND. S 10520. L n Verð kr. 5995, Stœrðir nr. 36-41 SkÓVerzlun I P6stsendum Þórðar Péturssonar Kirkjustrceti 8 v/Austurvöll. Simi 14181 Verð kr. 5995.- Teg. 432 Litur: Svart leður Stœrðir nr. 37-41 Verð kr. 5995.- —ítalskar mokkasíur- Nýtt módel úr sérstoklega mjúku leðri og skinnfóðroðir leðursólar klœddir með hrufóttu gúmmi Teg. 730 Litur: Rautt leður Stœrðir nr. 36-41 Verð kr. 5995. Teg. 735 Litir: Svart eða dökkbrúnt leður Stœrðir nr. 36-41 Verð kr. 5995.- Danskir kvenskór fró Eccolet Teg. 1651 Litir: Svart eða dökkbrúnt leður

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.