Dagblaðið - 15.10.1976, Blaðsíða 12
12
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUD A(j5UR 15. OKTÓBER 1976.
íþróttir
þróttir
Iþróttir
Iþróttir
Þrjár þjóðir
í ef sta sœti
— í Eisenhower-keppninni í golfi
Þrjár þjóðir voru efstar og
jafnar eftir aðra umferð í Eisen-
hower-golfkeppninni í Panina í
Portúgal í gær — heimsmeistara-
keppni áhugamanna. Það voru
Létt hjó Real
í körfunni
Real Madrid, Spáni, sigraði
Sporting Portúgal í Lissabon í
gær í fyrri leik liðanna i fyrstu
umferð Evrópukeppni meistara-
liða i körfuknattleik. í hálfleik
stóð 69—45
Prada ver stigahæstur leik-
manna Real með 25 stig, Corbal-
an og Brabender 19 hvor, og
Sczerbal 18 stig. Aðrir færri. Hjá
Sporting var Pinheiro stigahæst-
ur með 20 stig, Neves 17.
Ramirez
hefur forustu
Raul Ramirez frá Mexíkó hefur
nú forustu í hinni svokölluðu
Grand Prix keppni þar sem gefin
eru stig fyrir árangur í hinum
ýmsu keppnum. Við skulum líta
tii gamans á 10 efstu menn:
stig
Raul Ramirez Mexíkó 633
Jimmy Connors USA 600
Guilermo Vilas Argent. 522
Eddie Dibbs USA 517
Manuel ORantes Spáni 501
ri arold Solomon USA 491
: ,örn Borg Svíþjóð 480
li ,»scoe Tanner USA 410
Wojtek Fibak Pólland 407
A Panatta ftaiíu 370
Leikjum frestað
Leikjunum i 1. deild í hand-
J> naltleiknum, sem verða áttu á
• mnudag, hefur verið frestað
vegna leiks Dankersen við ís-
lenzka landsliðið á morgun.
Leikirnir í Hafnarfirði verða á
mánudag — það er Grótta—Hauk-
ar, FH—Valur, en á miðvikudags-
kvöld leika í Laugardalshöll
Þróttur—Fram, ÍR—Víkingur.
Bretland, Irland og Suður-Afríka
með 443 högg. Beztum árangri í
gær náði Tze-Ming, Taiwan, sem
lék hinn 6.349 metra langa völl á
69 höggum — fjórum undir pari.
Japan er í fjórða sæti með 447
högg.
Af öðrum árangri landa má
nefna, að Taiwan og Ástralia eru
meö 450, Rhodesia 451, Svíþjóð
452, Bandaríkin, Sviss og Kanada
453 og Nýja-Sjáland 456.
Norska sveitin er með 467 högg
og sú finnska með 477 högg, en
Danir munu ekki taka þátt í mót-
inu frekar en íslendingar. Puerto
Rico er í neðsta sætinu með 555
högg.
Skoraði
— seldur
Derek Spence — leikmaðurinn
úr 3ju doild, sem skoraði
jöfnunarmark NorðUr-Ira
gegn Hollending.im í heims-
meistarakeppninni á miðvikudag
var í gær seidur fi á liði sinu Bury
— það lék hér á íslandi 1958 — til
Blackpool. Söluverð 60 þús-
und sterlingspund. Blackpool er
meðal efstu liða í 2. deild. Spence
lék f.vrst með Oldham Athletic —
Oldham er útborg Manchester
— en fór síðan til Bury, þar sem
hann hefur leikið um 140 deilda-
leiki og skorað fimmtíu mörk.
Telja Ali
meistarann
Framkvæmdastjóri Richards
Dunn — George Biddles — hefur
mjög hvatt Dunn, sem tapaði Evr-
ópumeistaratitli sínum í þunga-
vigt sl. þriðjudag, til að hætta nú
keppni. Tvívegis hefur Dunn
fengið slæma útreið á þessu ári.
Fyrst gegn Muhammad Ali — sið-
ar. Joe Bugner og hinn 31 árs
Dunn getur ekki lengur reiknað
með að fá möguleika til að keppa
við hina beztu. Dunn hefur ekki
enn tekið ákvörðun í málinu.
Alþjóðahnefaleikasambándið
tilkynnti í gær, að það liti á Mu-
hammád Ali sem heimsmeistara i
þungavigt þar til hann gæfi út
skriflega yfirlýsingu um að hann
sé hættur keppni. Sambandið hef-
ur neitað ósk Don King að til-
nefna George Foreman sem nýjan
heimsmeistara — en Foreman er
efstur á blaði áskorenda í sam-
bandi við titilinn.
Kennsla í flugu-
köstum í höllinni
Kennsla í fluguköstum fyrir
stangaveiðimenn hefst í Laugar-
dalshöllinni sunnudaginn 17.
októher kl. 10,20. Þessi kennsla er
eins og áöur á vegum Stanga-
veiöifélags Reykjavíkur, Kast-
klúhbs Reykjavíkur og Stanga-
veiöifélags Hafnarfjaröar.
Kennt verour á hverjum
sunnudegi allan veturinn og
verður kennslunm skipt í 4-5
sunnudaga námskeið. Þá verða og
kenndir þeir hnútar, sem
veiðimenn þurfa að kunna.
Einnig verður sýnikennsla í
fluguhnýtingum. Þeim sem áhuga
hafa á að notfæra sér þessa starf-
semi skal bentá að draga ekki að
koma. Re.vnslan er sú að aðsóknin
eykst eftir því sem líður á vet-
urinn og næsti veiðitími nálgast.
er ekki siður samvinna hjá þeim Axel Axelssvni og Ólafi H. Jónssyni i vörninni hjá Dankersen eh sókninni. Þ:
koma í veg fyrir, að Geir Hallsteinsson komist i gegn og skori í leik FH og Dankersen á miðvikudagskvöld. Axel (ni
og Olafur mæta Geir á ný á morgun í Laugardalshöll, þegar Dankersen leikurviö íslenzka landsliöið.
Dankersen er gœðo
um betra en íslenzh
— Dankersen vann ótrúlega auðveldan og jafnframt stórsigur ó Val
Dankersen sýndi okkur muninn á
íslenzkum handknattleik og þýzkum.
Þeir hafa rútínuna, snerpuna,
likamsbygginguna fram yfir okkur.
Já, Dankersen er gæðaflokk betra en
islenzku liðin,“ sagði Hilmar Björns-
son þjálfari Vals eftir leik Dankersen
og Vals í gærkvöld og Dankersen
sigraði 24—10 já, 14 mörk skildu
liðin í lokin.
Já, Dankersen tók Val heldur en
ekki í kennslustund í nútíma hand-
knattleik. Hraði mikill, sterk vörn þar
sem aldrei var gefinn þumlungur
eftir án þess nokkurn tíma að leik-
menn væru grófir. Hraðaupphlaup
voru vel útfærð — leikmenn Vals
beinlínis sátu eftir. Og að baki sterkri
vörn Dankersen stóð varamarkvörður
liðsins, Karcher. Hann hafði að vísu
náðugan dag — og átti alls kostar við
skot Valsmanna. Niydemann — aðal-
markvörður liðsins er nú með þýzka
landsliðinu og kom ekki til landsins.
En hvað um Val? — Valur beinlínis
lék leikinn upp i hendurnar á
Dankersen. Leikmenn re.vndu að
halda uppi miklum hraða, sem þeir
alls ekki réðu við og fyrir vikið glat-
aðist knötturinn hvað eftir annað.
Berlega kom í ljós að Valur hefur
ekki á að skipa skyttum í dag — og
fyrir vikið varð sáralítil ógnun i spil-
inu. Þeir spiluðu hratt, Valsmenn án
nokkurrar ógnunar. Línumenn liðs-
ins voru ekkort vandamál fyrir
varnarmenn Dankersen — Nei, Valur
einfaldlega mætti ofurjörlum sínum
— liði sem er mörgum gæðaflokkum
fyrir ofan Val.
Og þegar svo er, þegar lið mætir
ofurjörlum sínum þá er yfirleitt
reynt að róa spilið niður — halda
knettinum og bíða eftir marktæki-
færum. Þess í stað var allt keyrt á
fullu — án nokkurrar sjáanlegrar
ógnunar, Furðulegt.
Dankersen er áreiðanlega meðal
sterkari handknattleiksliða sem hér
hafa komið og virkar sterkara en er
Gummersbacn Kom hingao iyrir
•tæpu ári síðan. Ánægjulegt er því. að
sjá að íslendingarnir Axel Axelsson
og Olafur H. Jónsson leika stórt hlut-
verk í liðinu. Axel nú greinilega bú-
inn að ná sér eftir meiðsli, sem hafa
háð honum. Virkar sterkur og ógn-
andi og skoraði nokkur góð mörk —
án þess nokkurn tíma að beita sér að
fullu við það. Nei, miklu heldur
spilað fyrir heildina enda Dankersen
sterk heild fyrst og síðast. Ölafur H.
Jónsson stendur alltaf fyrir sínu —
þó kom það mér á óvart að lítið virtist
reynt að fá Ólaf frían á línunni. Hann
varð að skapa sér evðurnar sjálfur.
En á honum varð að hafa gætur hvert
augnablik — og eins spilaði hann
f.vrir utan þegar Axel hvíldi og
skoraði góð mörk — með sínum
skemmtilegu undirhandskotum.
Nú, en snúum okkur að leiknum
sjálfum — Dankersen tók þegar í
upphafi til við að yfirspila Val. Allt
var keyrt á fullu og eftir 15. minútna
leik var staðan 6—2 síðan 10—2 en í
hálfleik var staðan 12—4. Já, Vals-
nenn höfðu aðeins skorað fjögur
mörk. Sama var uppi á teningum í
síðari hálfleik þó Dankersen slakaði
aðeins á. Maður hafði á tilfinning-
unni, að jafnvel þó leikmenn Danker-
sen væru einum færri þá hefðu þeir í
fuliu iré við sex Valsmenn. stikir
voru yfirburðir Dankersen. Þegar
upp var staðið var munurinn 14
marka munur — 24—10 sannkallaður
vfirburðasigur.
Hitt er svo, að það m íhugunarefni
að aðeins á milli fimm og sex hundruð
manns sáu leikinn og stemming var
alls engin. Það er af sem áður var
þeear erlend lið komu hingað til
iands. Þá var virkileg stemming
enda fóru þau líka með tap á bakinu.
Og þó, að Dankersen eigi eftir að
leika við íslenzka landsliðið þá er ég
hræddur um, að liðið fari héðan
ósigrað.