Dagblaðið - 15.10.1976, Síða 14
PA$BLAÐIÐ. FÖSTUPAGUR 15. OKT0BER 1976.
MILLJÓNIRNAR HRÚGAST
W
UPP HJA ABBA, EN ÞAU
GETA EKKINOTAÐ ÞÆR..
Dancing Queen, Fernando,
Waterloo, Mama Mia, Hasta
Manana, S.O.S., So Long og I
do, I do, eru nokkur þeirra laga
sem oröiö hafa til þess að selja
hljómplötur sænsku hljóm-
sveitarinnar ABBA í meira en
25 milljónum eintaka um allan
heim. Abba slær hvert sölu-
metið á fætur öðru, auk ann-
arra meta. Þess er skemmst að
minnast að er sjónvarpsþáttur
Abba var sýndur í Ástralíu
núna í vor horfðu meira en
58% landsmanna á þáttinn. Það
er meira en horfði á sjónvarps-
þáttinn fræga með Frank
Sinatra, eftir allt umstangið
sem fylgdi honum, eða þegar
sjónvarpað var frá fyrstu lend-
ingu mannanna á tunglinu.
Afleiðing þessa alls er að
milljónir og aftur milljónir
króna velta inn á skrifstofu
hljómsveitarinnar á Baldurs-
götunni í Stokkhólmi. En
mestur hluti peninganna fer í
hljómplötufyrirtæki hennar,
höfundarréttarfyrirtæki, í
ný.jar upptökur og til annarra
hluta er hún hefur ætlað sér að
gera í framtíðinni.
Á skattaskýrslunni fyrir árið
1975 standa eftirfarandi niður-
stöðutölur fyrir þau fjögur:
Annifrid
10.384.000 kr.
L.vngstadt:
Benny Anderson: 15.400.000
kr.
Björn Ulvaeus: 15.188.000 kr.
Agnetha Faltskog:12.188.000
kr.
Ekkert lúxuslíf
„En við veltum okkur ekki
upp úr neinu lúxuslífi. Við
erum að visu búin að setja
mikið fé i tvö þægileg hús sem
við getum þá alltaf átt ef hallar
undan fæti. En annars er varla
hægt að kaupa sér mikið meira
en við höfum. Hvað á maður t.d.
að gera við tvær uppþvotta-
vélar?" segja fjórmenningarn-
ir.
í allt sumar hafa þau undir-
búið upptökur og unnið að út-
komu nýrrar 12 laga plötu sem
á að koma út nú um miðjan
þennan mánuð. Vinnustaður
þeirra er ,,Polar''-húsið í Stokk-
hólmi þar sem „meðsamsæris-
máður þeirra", Stikkan Ander-
son, er einnig til húsa.
Þarna hittast þau og hlusta á
hin ýmsu lög og lagstúfa. Þau
hafa þó hlýtt á lögin heima
fyrir, áður en þau komu, og
setja nú fram hugmyndir um
það sem þau telja að betur
mætti fara.
Abba hefur átt tvö til
þrjú lög sem hafa orðið heims-
fræg en það er ekki nægilegt til
þess að halda velli. Næsta plata
mun skera úr um það.
Enginn taugaóstyrkur
Enda þótt platan hafi verið
svona lengi í undirbúningi taka
þau lífinu með ró:
„Við verðum ekki tauga-
óstyrk enda þótt þetta renni
ekki eins og bráðið smjör. Það
gerir ekkert til þótt við náum
ekki þeim árangri sem við
viljum fyrr en eftir nokkrar
vikur. Þegar öllu er á botninn
hvolft höfum við ekki samið
nema um 80 lög á fimm árum.
Það hefur alltaf verið erfitt
fyrir okkur að semja. Við
verðum því að taka okkur þann
tima sem við teljum nauðsyn-
legan," seg.ja þeir félagar
Benn.v Anderson og Bjiirn
Ulvaeus, en þeir hafa samið öll
lög hl.jómsveitarinnar.
Enn hafa ekki verið valin
nema nokkur lög á plötuna en 1
sambandi við hana vinna þau
nú að gerð sjónvarpsþáttar
fyrir sænska sjónvarpið.
„ABBA from the beginning".
Fyrir utan forsögu hljómsveit-
arinnar með gömlum inn-
skotum frá fyrri tíð og
skemmtilegum viðtölum verða
nokkur af nýjustu lögunum
flutt.
Allt fyrsta
flokks vinna
Það er kjörorð þeirra félaga
að allt eigi aðveraf.vrsta flokks
vinna, hvort sem unnið er fyrir
sjónvarp, við hljómplötuupp-
tökur eða. hljómleika. Allt á
þetta eftir að seljast vítt og
breitt um heiminn og þau eru
þegar þekkt fyrir vandvirkni á
flestum sviðum. Því má með
sanni segja að þau geti ekki
látið tímann hlaupa frá sér og
legið í sólbaði i frægðarsólinni,
enda væri þá þegar farið að
halla undan fæti fyrir þeim.
Benn.v og Björn sjá um allt
sem lýtur að samningahliðinni
fyrir hljómsveitina. Stúlkurnar
tvær halda sér í góðri æfingu og
fara í jazzballett tvisvar í viku
því mikil áherzla er lögð á
sýningaratriði þeirra.
„Vissulega er þetta tóm-
stundagaman okkar en um leið
vinna. Við dönsum sérstaklega
við hvert lag svo það er mikið
að gera við æfingar þegar allt í
einu á að k.vnna heila stóra
plötu." sagði Annifrid.
Þær búast báðar við því að
verða viðloðandi skemmtiiðnað-
inn allt sitt líf. Ef þeim byóist
eitthvað annað hefur Annifrid
sagt að hún m.vndi vilja læra
tungumál en Agnetha mundi
vilja verða tannlæknir eða
barnaskólakennari.
Þeim semur vel
A báðum hcimilunum er
reynt eftir megni að skipta með
sér verkum en þó segja stúlk-
urnar að það kunni að brenna
við að þeir félagar nenni ekki
að þurrka af.
Öll eru þau fjögur mikið
saman á öllum stundum sólar-
hringsins en þó hefur ekki
komið til alvarlegra árekstra
þeirra á milli. Þetta útskýra
þau þannig:
„Við reynum að tala okkur út
úr vandamálum. Það mun víst
vera eitthvað sérstaklega
norrænt að tala saman í stað
þess að láta allt springa í loft
upp að lokum.“
En enda þótt þau í ABBA búi
við stöðuga spennu vegna þess
að þau þurfa sífellt að koma
fram með eitthvað nýtt og
halda þannig vinsældum virðist
það ganga nokkuð þægilega.
Þau segja að aðeins á löngum
ferðalögum erlendis og þegar
þau eiga að gera sjónvarpsþætti
kunni að sjóða smávegis upp
úr.
Mjög ólík
Til dæmis hefur Annifrid
þann leiða sið að koma a.m.k.
fimm mínútum of seint á alla
fundi. Agnetha, sem alltaf
mætir aðeins fyrir fundinn,
getur þá átt það til að stökkva
upp á nef sér.
Þá eru hjónin ólik á öðrum
sviðum. Benny og Frida eiga
auðvelt með að vaka langt fram
eftir, nóttu og sofa lengi fram
eftir. Það er hins vegar auðvelt
að vekja Björn og Agnethu
strax klukkan átta á morgnana.
Þá eiga félagarnir tveir gott
með svefn yfirleitt. Stúlkurnar
hafa hins vegar sagt frá því að
stundum vakni þær upp um
miðjar nætur og spyrji sjalfar
sig: „Hversu lengi mun þetta
allt saman vara??“
„Stundum erum við vakandi
langt fram á. nótt og hugsum
um framtíðina. Því lengur sem
maður vakir því hræddari
ver.ður maður.“
Maðurinn ó bak við ABBA:
STIKKAN ANDERSON
Stikkan Anderson og frú taka á
móti gullplötum f.vrir ABBA.
Sá sem nefndur hefur verið
fimmti ABBA-félaginn er Stig
Stikkan Anderson, 44 ára.
Hann er t'mboðsmaður hljóm-
sveitarinnar, stjórnar upptök-
um á plötunum og selur lög
þeirra áfram um útgáfufyrir-
tæki þeirra.
Hann er atvinnumaðurinn að
baki þeirra og leggur með
miklum hæfileikum sínum af
náttúrunnar hendi allar lín-
urnar um það hvernig farið
skuli að. Það eru hugmyndir
hans sem liggja að baki vel-
gengni þeirra.
Menn heyrðu hans fyrst getið
er hann samdi lagið „Klaus
Jörgen“ sem var afar vinsælt.
Hann varð að fá lánaða peninga
til þess að geta látið prenta
nóturnar að laginu en í dag er
hann forstjóri fyrirtækis sem
veltir milljörðum árlega. En
það var hann einnig áður en
ABBA varð fræg,
Hann er stærsti útgefandii
léttrar tónlistar á Norðurlönd-
um og oft er að honum vegið
fyrir það hversu hreinskilinn
hann er. Honum finnst að menn
geti fengið að hafa sína Grand
Prix söngvakeppni og að fólk
megi fá að sjá það og heyra í
útvarpi sem það vill. Hann er
því töluvert upp á kant við
menningarvitana i Svíþjóð.
Þar í landi hefur hann viður-
nefnið „iðnaðurinn". Það líkar
honum vel því það sýnir að fólk
ber virðingu fyrir honum sem
framleiðanda og kann að meta
hann semslíkan. Meira að segja
helztu gagnrýnendur hans
samdþ.vkkja það.
I einkalífinu er hann giftur
þriggja barna faðir og eyðir
tómstundunum í að skokka og
iðka leikfimi.
Umfrarn ABBA hefur hann á
sinuin snærum stór nöfn á
Norðurlöndum eins og Svenne
og Lotta. Ted Gardestad og
Lenti Anderson.