Dagblaðið - 27.11.1976, Blaðsíða 4
I)A(íHLAí)If). HAUCAKDAíiUK 27. NOVKMBKK 1976.
Erlend myndsjá
Patty komin heim til mömmu sinnar
HELGI
PETURSSON
Þýðingarlaust verkfall?
í gær lauk ólöglegu verkfalli olíuflutningabílstjóra í Danmörku
eftir aó við lá að danska ríkisstjórnin félli vegna stjórnarkreppu.
IVlikil átök höfðu orðið innan þingsins um málið en bílstjórarnir
kröfðust 30% kauphækkunar til þess, eins og þeir sögðu, að geta
staðið jafnfætis þeim er vnnu f.vrir opinbera aðila. Var harkalega
gengið fram við verkfallsvörzlu og um tíma var mikill olíuskortur í
Kaupmannahöfn. þar sem skólum varð að loka. Verkfall þetta var
mjög óvinsælt af almenningi og verður ekki séð í fljótu bragði hvað
bilstjórarnir höfðu upp úr krafsinu. Hér halda nokkrir þeirra til
vinnu á ný.
Hatricia Ilearst, einn mest umtalaði bankaramingi bandariskrar
sögu (og er þar nú af nógu að taka) er komin heim í sófann til
mömmu sinnar. Faðir hennar, hlaðakóngurinn Kandolph Hearst.
greiddi hálfrar milljón króna tr.vggingu f.vrir dótturina. en mál
hennar híður dóms í áfrýjunarrétti í San Francisco sem fjalla á um
sjii ára fangelsisdöm er kveðinn var upp yfir henni f.vrir hankarán
og þáltlöku í starfsemi SI.A-skæruliða, eftir að þeir rarndu henni
f.vrir rúmum tveimur árum.
FRIÐARKONUM VEX FISKUR UM HRYGG
Friðarsamtök kvenna á Norður-írlandi hafa mikið látið til sín taka að undanförnu og farið hverja
friðargiinguna á fætur annarri í flestum stórborgum landsins. Hefur þeim verið tekið misjafnlega.
þá sérstaklega af IRA, og hefur margsinnis verið gerður aðsúgur að göngumöiinum. Hér má sjá
einn af forvigismönnum saintakanna. Betty YVillianis. halda ra*ðu i kvöldverðarhoði sem haldið var
til styrktar samtökunum í I.ondon, Meðal gesta var lcikarinn kunni Rohért Morley.
CARTERMEÐ
WASHINGTON
í BAK 0G FYRIR
Jimmy Carter hefur gert víðreist í þessari viku og hitt fyrir alla ráðamenn í Washington auk
þingmanna. Ilefur hann enn ekki útnefnt neinn ráðherra sinna i væntanlegri rikisstjórn en hefur þó
sagt að hann muni leggja áherzlu á val hæfra manna í stöður utanríkis- og f jármálaráðherra. enda eigi
þeir að vinna mun meira saman en gert hefur verið til þessa þar í landi. Myndin er af Carter á
blaðamannafundi i YVashington með YVashington í haksýn.
Mikil spenna við landamæri
ísraels og Líbanons
Um miðja vikuna þótti horfa ófriðlega við norðurlandamæri ísraels
að Libanon. Rabin forsætisráðherra hótaði að til skarar yrði látið
skríða ef hersveitir Sýrlendinga sæktu lengra fram til suðurs en
þeir höfðu gert í Líbanon. Y'ildu ísraelsmenn með þessu tryggja að
suðurhlutinn yrði ekki bækistöð skæruliða eins og verið hafði fyrir
borgarastyrjöldina. ísraelskir hermenn standa hér á skriðdrekum
sínum skammt frá landamærunum. við öllu búnir.