Dagblaðið - 20.12.1976, Side 6

Dagblaðið - 20.12.1976, Side 6
6 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 20. DESEMBER 1976. Kodak VORUR Höfum fengið nýjar gerðir af Kodak Instamatic vasa myndavélum Þar á meðal er svokölluð Tele-lnstamatic sem hefir 2 linsur, normal og aðdráttarlinsu og er samt mjög ódýr. Lítið inn og skoðið þessar skemmtilegu og ódýru myndavélar HANS PETERSEN HF Kodak — Mamiya — Yashica — Braun BANKASTRÆTI S 20313 GLÆSIBÆ S 82590 r Réttað hjá Hæstarétti allan laugardaginn: GUÐBJARTUR lAtinn LAUS einn dómaranna telur þá ákvörðun geta torveldað rannsókn og auðveldað við að koma gögnum undan Hæstiréttur ómerkti á laug- ardagskvöldið gæzluvarðhalds- úrskurðinn yfir Guðbjarti Páls syni. og var hann látinn laus þá um kvöldið. Hæstiréttur kom saman til fundar kl. 10 á laugar- dagsmorguninn til að fjalla um þetta mál, og stóð fundurinn langt frant eftir degi, enda voru dómarar ekki á eitt sáttir og Þór Vilhjálmsson skilaði sérat- kvæði þar sem hann vildi láta úrskurðinn halda gildi. í for- sendum meirihlutans segir orð- rétt: Á hinum kærða úrskurði eru ýmsir annmarkar. Kæruefnum er svo lauslega lýst, að eigi er við hlítandi. Kærur þær, sem greinir í úrskurðinum, eru eigi timasettar og óglöggt, frá hverj- um þær stafa. Ekki er sérgreint nægilega í hverju hin einstöku hrot eru fólgin, þ.á m. er and- lagi hröta eigi lýst ljóslega, svo sem vixlum, er kærur lúta að, en einu kæruefninu er lýst svo, að varnaraðili er „sagður hafa átt þátt í verulegu fjármála misferli í viðskiptum við verslun á Akureyri". Tilvitnun til „tollalaga" er eigi svo glögg sem skyldi. Hinn kærði úrskurður brýtur svo mjög I bága við fyrirmæli 164. gr. laga nr. 74/1974, að óhjákvæmilegt þykir að ómerkja hann. Kærumálskostnaðar hefur eigi verið krafist. Dómsorð: Hinn kærði úrskurður á að vera ómerkur. Ekkert var fjallað um lög- mæti handtökunnar og verður ekki séð að neinar vangaveltur um hana hafi haft áhrif á þessa niðurstöðu. 1 sératkvæði sínu telur Þór Vilhjálmsson upp kæruatriöi í fjórum liðum, en telur, að ekki sé heimilt að hefta frelsi fang- ans á grundvelli tveggja þess- ara fjögurra liða. Liður nr. 1 fjallar um kæru þar sem Guð- bjartur er sakaður um að hafa dregið sér andvirði víxla, er maður, sem nú er fangi á Litla Hrauni, kærði í haust. t Þriðja lið er getið um kæru á hendur Guðbjarti fyrir hlut að misferli í viðskiptum við verzlun á Ak- ureyri. Um þessa liði segir Þór: ,,Kæra sú, sem 1. liður fjallar um, er marklítil, en skýrsla varnaraðila um efni hennar er þannig, að rannsaka þarf kæru- efnið betur. Kæra sú, sem getið er í 3, lið, veitir og tilefni til rannsóknar. Verður að telja, að um bæði þessi atriði sé veruleg óvissa og að hugsanlegt sé, að aðrir menn séu í þessu sam- bandi viðriðnir lagabrot, Má ætla, að varnaraðili muni, hafi hann óskert frelsi, reyna að torvelda rannsóknina með því að skjóta undan gögnum og hafa áhrif á vitni og samseka. Ég tel því, að staðfesta beri hinn kærða úrskurð." -G.S. Vorum að taka upp mikið úrval af hljóm- skífum þar á meðal: Abba Cleo Laine Eagles Led Zeppelin Stevie Wonder Nasaret Queen Deep Purple George Harrison Tina Charles Joni Mitchell Sailor Linda Ronstad Seals and Crofts Bee Gees Elton John og m. fl. Allar nýjustu íslenzku skífurnar Mannlíf Jóhanns G. Haukar og það allra nýjasta, Saumastofan eftir Kjartan Ragnarsson Úrval af jólaskífum Mahalia Jackson Roger Whittaker Heims um ból ósamt ótal fleirum. Komið og skoðið því sjón er sögu ríkari Opið til kl. 22 föstudag og 22 laugardag. A.T.H. sendum í póstkröfu um allt land samdœgurs. Skífan Laugavegi 33, sími 11508, Og Strandgötu 37, Hafnarf., sími 53762. DETTUR í HUG AÐ B0RGA BÆND- UM FYRIR AÐ HÆTTA BÚSKAP ,,Það mætti jafnvel láta sér detta i hug að borga bændum fyrir að minnka við sig, hætta búskap og taka upp lífeyris- greiðslu til bænda sem náð hafa 55 ára aldri með því skilyrði að þeir leggðu niður hefðbundinn búskap með sauðfé og nautgripi," segir í fréttabréfi frá Upplýsinga- þjónustu landbúnaðarins. Þar segir ennfremur: 1 þeim umræðum sem átt hafa sér stað undanfarna mánuði manna á meðal og í ýmsum fjöl- miðlum um útflutningsbætur, hefur verið lögð áherzla á að þær beri að afnema. Sennilega hvarfl- ar að fáum, að um leið er verið að leggja til að rýra tekjur bænda. Því það gæti aldrei bitnað á öðr- um en þeim, ef þessi trygging sem felst í útflutningsbótum yrði af- numin. Ef engar útflutningsbætur hefðu verið greiddar í ár, en út- flutningur búvara hefði verið óbreyttur og sama verð fengizt f.vrir afurðirnar, þá hefðu bænd- ur orðið að taka á sig að meðaltali um 340 þús. kr. kjaraskerðingu miðað við það, sem þeim er ætlað að fá fyrir afurðirnar samkvæmt verðlagsgrundvellinum. Það þarf því að finna aðra leið en afnám útflutningsbóta, ef tryggja á ■Brúttótekjur í þús. kr/ Bœndur Verkamenn lönaðarmenn Sjómenn Opinb. starfsm. 1965 199 207 239 336 271 1969 233 291 340 386 407 1973 694 794 937 1.101 1.091 1974 969 1.155 1.381 1.536 1.594 1976 1.223 1.536 1.819 2.003 2.017 (HeimildrÞjóðhagsstofnun) Eins og sózt á þessu yfirliti eru bændur tekjulægstir, þannig að þeir mega ekki viö tekjuskerðingu frekar en aörar stéttir þessa lands. Þvert á móti, það þarf að hækka tekjur bænda mun meira en launþega þegar samningar veröa endurskoöaðir. EVI FRA AAENNINGARSJOÐI NÝR BÓKAFLOKKUR: ÍSLENZK RIT í samvinnu við Háskóla Islands JÓN Á BÆGISÁ í útgáfu Heimis Pálssonar BJARNI THORARENSEN i útgáfu Þorleifs Haukssonar HIÐ MERKA HEIMILDARIT 8AGA REYKJA VIKURSKOLA 1. bindi Fróðleiksbrunnur og Heimilisprýði

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.