Dagblaðið - 20.12.1976, Blaðsíða 11
DACiBl.AÐIÐ. M ANUDACUH 20. DESEMBER 1976.
Bukovsky og Corvalan njóta nýfengins frelsis:
ÞJÓÐHÖFÐINGJAMÓTTÖKUR
FYRIR CORVALAN í MOSKVU
— Bukovsky hyggst fara á skóla í Hollandi
sovézkum f'angelsum,, þrælkun-
arbúðum og geðsjúkrahúsum.
Chileanski kommúnistinn
Luis Corvalan mun í dag í
fyrsta sinn korna fram opinber-
lega eftir að stjórnir
Sovétríkjanna og Chile
skiptust á pólitískum föngum
fvrir helgina. í stað Corvalans
létu Rússar lausan andófs-
manninn Vladimir Bukovsk.v,
sem verið hefur fangelsaður
um nokkurra ára skeið.
Corvalan, sem er sextugur,
fyrrum blaðamaður og kennari
fór flugleiðis til Sovétríkjanna
frá Zúrich á laugardaginn,
raunar með sömu flugvél og1
hafði flutt Bukovsky til Sviss
frá Sovétríkjunum. Bukovsky
er 33 ára.
Haft er eftir Chileönskum
heimildarmönnum i Moskvu, að
Corvalan verði fagnað eins og
þjóðhetju þegar hann kemur á
fyrirmannaflugvöllinn í
Moskvu Þar tekur Leonid
Bréznev, aðalritari sovézka
kommúnistaflokksins á móti
honum. Chileönsku heimildar-
mennirnir gera sér góðar vonir
um að þúsundir manna muni
verða á götum úti er Corvalan
ekur inn i horgina, eða svipaðar
móttökur og hafðar eru við
þjóðhöfðingja og þjóðhetjur.
Frá Zúrich berast þær
fréttir, að Vladimir Bukovksy
hyggist dveljast í Sviss í a.rn.k
vikutíma, en síðan hefja nám í
Hollandi, þar sem
mannréttindasamtök börðust
hatrammri baráttu fyrir þvi að
hann yrði látinn laus.
Bukovsky reynir nú að
venjast frelsinu eftir ellefu ár í
Hann hefur verið við nám í
líffræði og hyggst halda því á-
fram á Vesturlöndum.
Viðbrögð við þessum fanga-
skiptum hafa verið nokkuð mis-
jöfn, sýnist sumum hættulegt
fordæmi að verzla með fólk, en
öðrum að um sé að ræða
raunsætt mat á stöðunni sem
blasir við.
Afmælisrnynd af Breznev sjötugum ásamt barnabarni sinu
Aðstoðum við val á jólagjöf konunnar.
Komið og fáið góða þjónustu.
Verzlunin MADAM Glæsibæ - Sími 83210
Mikið um dýrðir
hjá Brezhnev á
sjötugsafmælinu
— Corvalan einn heiðursgestanna
Leonid Brezhnev flokks-
leiðtogi hélt upp á sjötugsaf-
mæli sitt í Moskvu í gær og að
sögn fréttamanna, hefur ekki
verið svo mikið um dýrðir við
svipuð tækifæri síðan Stalín
leið.
Fjöldi frarnmámanna
kommúnistaflokka um allan
heim, var viðstaddur hátíða-
höldin, allir þjóðarleiðtogar
Varsjárbandalagsríkja, auk
Kúbu og Mongolíu og færðu
honum dýrar gjafir og kveðjur
þjóða sinna.
Þá var Luis Corcalan, for-
maður kommúnistaflokks Chile
einn heiðursgesta, en hann kom
til Moskvu seint á laugardags-
kvöldið, eftir að hafa verið
látinn laus í skiptum fyrir
sovézka andófsmanninn
Vladimir Bukovsk.v á föstu-
daginn.
Bið Gilmores
hefst á ný
— hótar enn sjálfsmorði
Erlendar
fréttir
Hinn dauðadæmdi morðingi
Cary Gilmore hefur verið
fluttur af sjúkrahúsi i borginni
Salt Lake City í Utah-fylki, til
fangelsis þar sem hann verður
látinn dúsa, unz hann verður
tekinn af lífi 17. janúar n.k.
REUTER
Gilmore var fluttur í skyndi á
Sjúkrahús nú fvrir helgina, eftir
að hann hafði reynt að fremja
sjálfsmorð í annað sinn.
Að sögn talsmanna fangelsisins
er ekki hægt að útiloka þann
mögulcika að Gilmore takist að
komast yfir l.vf til þess að reyna
sjálfsmorð í þriðja sinn, því erfitt
sé að hafa gætur á honum allan
sólarhringinn. Auk þess, njóti
málstaður hans samúðar meðal
samfanga hans og starfsfólks fang-
elsisins.
Saumavélin sem gerir alla saumavinnu einfalda er
NECCHILYDIA 3 erfullkomin sjálfvirk saumavélmeðfríum armi.
NECCHIL YDIA 3 er sérlega auðveld í notkun. Með aðeins einum takka má velja um 17 mismunandi
sporgerðir.
ss
NECCHILYDIA 3mánotaviðaðsauma, falda, þrceða, festaátölur, gerahnappagötogskrautsaum
auk sauma sem henta öllum nýtízku teygjuefnum.
NECCHI LYDIA 3 vegur aðeins um 11 kg með tösktt og fylgihlutum, og er því einkar meðfarileg í
geymslu og flutningi.
NECCHI L YDIA 3 fylgir fullkominn íslenzkur leiðarvísir. 40 ára reynsla NECCHI á íslenzkum
markaði tryggir góða varahluta- og viðgerðaþjónustu. Góð greiðslukjör - hal/lr'
Fást einnig víða um land. NECCHIL YDIA 3 kostar aðeins kr. 55.875, - /kvf(l(ing
/feynsla
ÞjOnuStr Fálkinn
póstsendir
allar nánari
upplýsingar,
sé þess óskað.
FALKIN N
SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670