Dagblaðið - 28.12.1976, Blaðsíða 1
2. ARG. — ÞRIÐJUDAGUR 28. DESEMBER 197«. — 292. TBL. RIXSTJÖSN SIÐUMULA T2, SÍMI 83322. AUGLVSINGAR OG AFGREIÐSLA, ÞVERHOLTI 2, SlMIÍíOí í
r - : — :
Víðtæk fjármálarannsókn skattrannsóknarstjóra:
Húsleit gerð hjá
fasteignasala
\
Bókhald allra
viðkomandi
byggingameistara
skoðað jafnhliða
-
Embætti skattrannsóknar-
stjóra er nú að skoða bókhald
eins fasteignasalans i Reykja-
vík, sem vart er í frásögur fær-
andi, en hinsvegar mun það fá-
titt að húsrannsókn sé fram-
kvæmd við svona athuganir og
ennfremur er óvenjulegt að
farið sé í bankahólf
viðkomandi. eins og heimild
blaðsins hermir að gert hafi
verið í þessu tilviki.
Þá mun rannsóknin ekki
miðast við viðskipti fram til
síðustu áramóta heldur fram til
þess dags í ár að rannsóknin
hófst. 1 framhaldi af
rannsókninni hefur bókhald
allra byggingameistara sem
fasteignasalinn hefur selt fyrir
verið tekið til rannsóknar, sem
bendir til að verið sé að gera
víðtækan samanburð.
Fasteignasali þessi hefur
verið orðaður við 'einhver
ibúðaviðskipti á Spáni, en
íslendingum er óheimilt að
flytja gjaldeyri út til íbúða-
kaupa þar. Er blaðinu.kunnugt
um að gjaldeyriseftirlit Seðla-
bankans hafi verið að spyrjast
fyrir um þennan mann á Spáni.
Er blaðið bar fyrri h.elming
þessarar frásagnar undir skatt-
rannsóknarstjóra í morgun
vildi hann hvorki játa henni né
neita, en sagði að embættið
væri bundið algerri þagnar-
skyldu varðandi þá aðila sem.
það væri að rannsaka.
Forstoðumaður gjald-
eyriseftirlitsins staðfesti í
morgun að reynt hafi verið að
rannsaka viðskipti þessa manns
á Spáni, eins og reyndar nokk-
urra fleiri, en án árangurs enn.
Um það hvort rannsókn skatt-
rannsóknarstjóra hafi leitt eitt-
hvað nýtt i ljós í þessu
sambandi, sagði hann að sér1
hafi ekki borizt nein gögn
þaðan þar að lútandi Sagði
hann að menn geymdu skjöl um
þessi viðskipti ekki á
glámbekk. -G.S.
k’ormaður jólagleðinefndar
Menntaskólans í Reykjavík fær
heldur betur útrás við að mála
þetta stórfengilega en óskirða
listaverk. Það á að skreyta
Sigtún, þar sem jólagleðin
verður haldin hinn 29. des.,
ásamt mörgum öðrum frumleg-
um verkum. Að þeim standa
einir 15 menntskælingar sem
hafa unnið baki brotnu við
sköpunina í Casa Nova. Eitt
listaverkið er að minnsta kosti
skírt og ber nafnið ,,Sköpun
heimsins" Að vanda verður
mikið um dýrðir á jólagleðinni
og verða það Stuðmenn sem
koma öllum í stuð.
EVl
-DB-mynd Arni Páll.
Nei, þetta er ekki sköpun heimsins
■ ■
Upp-
sprengdur
„slátur-
kostnaður”
keyrir kjöt-
verðið upp
- sjá bls. 8
Beckenbauer
kjörinn knatt-
spyrnumaður
Evrópu
— sjá íþrottir
í opnu
•
Eíginkona
Charles
Dickens gengur
þar Ijóslifandi
— erlendar
fréttir bls. 6-7
7
Innflutningur l'rtsjónvarpstækja
gefinn frjáls á næsta ári ?
Dagblaðið hefur frétt að
sterklega komi til greina að
innflutningur litsjónvarps-
tækja verði gefinn frjáls á
næsta ári, kannski ekki í
byrjun árs en þegar á árið
líður.
Blaðið sneri sér til Björgvins
(’.uðmundssonar, skrifstofu-
stjóra í viðskiptaráðuneytinu, í
morgun. Hann sagði að
ákvörðun hefði ekki verið tekin
enn í þessu máli en það yrði
væntanlegy gert fljótlega eftir
áramótin.
Þá verður einnig ákveðið hve
mikið skuli leyft að flytja inn af
þeim vörum, sem háðar hafa
verið innflutningskvótum.
Þarna er helzt um að ræða
sælgæti, brauð- og kexvörur,
bursta, brennt kaffi í smásölu-
umbúðum og raunar fleiri
vörur.
Eins og kunnugt er hefur
verið mikil eftirspurn eftir lit-
sjónvarpstækjum og yrðu víst
margir glaðir ef innflutningur
þeirra vrði gefinn frjáls.
-HH.
■\
Stjórnvöld kunna að hafa fengiA nóg af
hörkunni. Hér sjast nokkur litajónvarps
teakjanna, sem „frusu inni” þegar bann var1
sett viA innflutningi.