Dagblaðið - 28.12.1976, Side 5

Dagblaðið - 28.12.1976, Side 5
DACiBl.AÐIÐ. ÞRIÐJUDAC.UR 2S. DKSKMBKR 1976. iiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiimimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii Kerlingin (Guðrún Stephensen) með sálina hans Jóns sins i skjóðunni. DB-m.vndir Bjarnleifur. Guðrún Stephensen, Jón Gunnarsson og Kristbjörg Kjcld í hlutverk- um sinum. Leiklist Jón bóndi (Helgi Skúlason) að sálast i fleti sínu og kerlingin (Guðrún Stephensen). Prestar og postulón Fjöldi minni hlutverka kemur við söguna eins og leikhúsgestir muna. og ástæðulaust að fara að telja það allt. En ekki fannst mér mikið verða úr syndaselum, forn- um félögum Jóns bónda, þar sem þeir hrapa niður á leið til vítis í öðrum þættinum. Þá var betra lag á fornum sveitungum á himnum þar sem í verunni er svo ósköp leiðinlegt, en hræsnin drýpur af þeim sem betur una sér, presti og postulónum. Þar auka þær líka leikinn miklum yndisþokka, Steinunn Jóhannesdóttir: Helga vinkona kerlingar, og Helga Jóns- dóttir: sjálf María mey, og Egill Ölafsson fór smekklega með hlut- vérk fiðlungs. Allt á litið var þetta líklega ekkert slæm jólasýning — úr þvl Gullna hliðið verður að vera, en samt má ekki láta reyna á það upp á nýtt, til hvers það dugi annars en þess sem áður hefur verið gert. einlægni og náttúrulegu hlýju sem er og verður aðal kerlingar. Hvað sem óskum manns liður um nývirki á leik og sýningu held ég að aðalhlutverk leiksins, kerl- ing, Jón og óvinur, séu fast mótað- ar mannlýsingar frá höfundarins hendi og mundi varla bre.vtast til neinna muna með nýstárlegri meðförum leiksins. Helgi Skúla- son lýsti Jóni karlinum líka grandgæfilega í viðteknum stíl og anda, öllum hans stráksskap og gorgeir og óbilandi trausti á for- sjá kerlingar. Óvinurinn er að sínu leyti blendnast þessara þriggja hlutverka, dálítið skrýtin mixtúra úr íslenskum þjóðlegum kölska og einhvers konar róman- tískum uppreisnar-engli með skáldlegu málskrúði. Erlingur Gíslason fannst mér reyna að fara bil beggja með hlutverkið, en væri kannski betra, eftir anda sýningarinnar, að leggja meir upp úr ..þjóðlegu línunni" í meðförum og ekki síst gervi skratta. Bingóspjöld Bingóspjöld fyrirliggjandi í takmörkuöu upplagi, heildsölubirgöir. Rolf Johansen og co. s™í 86700 sleppa Jóni karlinum alfarið úr skjóðunni og sýna hann f.vrir opn- um tjöldum leikinn út i gegn. Væri það ekki hægt? Það má vera: Því verða leikarar og leik- húsmenn að svara. En sé það hægt', er hitt augljóst mál, að bæði hlutverkið í höndum nógu mikil- hæfs leikara, og leikurinn í heild, ættu til mikils að vinna. Minningar og góðar óskir En nývirki af þessu eða neinu öðru tagj voru sem sé ekki reynd í þetta sinn. Við svo búið er varla annað að gera en reyna að una sýningunni eins og hún er, og verður að vísu fróðlegt að sjá hvort fornar vinsældir Gullna hliðsins endast til að vekja áhuga á og aðsókn að sýningunni og langan gang í leikhúsinu. Fyrir minn smekk verð ég að segja, þótt ég eins og margir aðrir eigi ýmsar. góðar bernskuminningar um Gullna hliðið og efni þess, að þetta sýningarlag nægir ekki til að kveikja upp í mér áhuga á eða ánægju af sýningunni. Þetta er sjálfsagt mín sök, aðrir hafa ef- laust meira gaman af óbreyttu Gullna hliðinu eina ferðina enn, og vera má að það höfði með óbreyttum hætti frá fyrri sýning- um til ungra og nýrra áhorfenda. En þessi reynsla mín er sem sé ástæða fyrir öllum ofanskráðum óskum um nýja stefnu og nývirki í meðförum leiksins. Að gefnum forsendum og að- ferð sýningarinnar hygg ég að vísu að margt megi segja loflegt um hana. Ef mig rekur rétt minni til hinnar fyrri sýningar Þjóðleik- hússins. fyrir tíu árum, hefur þessi heppnast betur. Þannig held ég að ekki leiki á tveimur tungum að Guðrún Stephensen er allra leikkvenna best til þess fallin um þessar mundir að leika kerling- una, enda gerir Guðrún henni fjarska farsæl skil, hlutverkið nýtur ríkulega þess mannlegleiks. Auglýsingastörf Óskum að ráða sem fyrst starfsfólk a auglýsingaskrifstofu. Góð íslenzku- og vélritunarkunnátta nauðsynleg. Umsóknum með upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf skal skilað á afgreiðslu Dagblaðsins, Þver- holti 2. Utanáskrift ,,38435“. MIÐSTÖÐ BENZ- VIÐSKIPTANNA 22ja manna Benz-rútubHI óskast Höfum kaupendur að 22ja manna Mercedes Benz bílum eða sambærilegum rútum. Æskilegur aldur 2-3 ár. Upplýsingar á Markaðs- torginu, Einholti 8, Reykiavík, sími 28590.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.