Dagblaðið - 25.03.1977, Page 2

Dagblaðið - 25.03.1977, Page 2
*) DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 25. MARZ 1977. r r Hreinn Halldórsson Evrópu- meistari i kúiuvarpi innanhúss 1977. Eftirfarandi vísa barst frá Skúla Þóröar Grunnvíkings, Sundstræti 13, ísafirði: Eiturlyf ja eignumst krá, opnar standi dyrnar. Þar yrði fögur sjón að sjá Sólnes bjórvambirnar. Leiðrétting Ég vil tjá yður mínar beztu þakkir fyrir að birta grein mína þ. 15. marz um hvíldardaginn. En ég ætla nú að biðja yður um að leiðrétta þá villu sem slæðst hefur í greinina á þremur stöðum. Þar hefur verið vikið frá mínum orðum og er það að vísu ekkert undarlegt. Þegar annað boðorðið var strikað út, færðist röð boðorðanna til. En samkvæmt Biblíunni er hvíldardagsboðorðið hið fjórða í röðinni. 1 stuttu máli: Þetta er fjórða boðorðið. Verið svo góður að leiðrétta þetta. Virðingarfyllst. Friðbjörn F. Hólm „Aðeins vanir menn koma til greina.' „Aðeins vatnir menn koma til greina" —um hinn almenna vinnumarkað Spurull skrifar: Ef hlýtt er á útvarp eða dag- ’olöð lesin verður maður fljótt var við auglýsingar þar sem óskað er eftir „starfskrafti“ (fólki) í hin og þessi störf — helzt vönum, og stundum er auglýst: aðeins vanir menn koma til greina. Hvar er sú stofnun sem þjálfar fólk til hinna ýmsu starfa svo að það komi til greina á hinum almenna vinnu markaði? Komið hefur fyrir að kona (maður) um fimmtugt hefur viljað skipta um starf — breyta til. Fyrirtæki er heim- sótt og beðið um vinnu. Svar forstjóra er: „Við tökum ekki fólk í vinnu sem komið er yfir fimmtugt!" Hvað skyldu vera margir starfsmenn t.d. hjá hinu opin- bera sem sitja óánægðir í starfi fram að 67 ára aldri af ótta við að fá hvergi annað starf? Hvort er betra þjóðhagslega séð að starfsfólk sé ánægt í sinni vinnu eða óánægt? Við höfum lengt skölaskyldu í 9 ár og síðan reiknum við með framhaldsnámi í nokkur ár með tilheyrandi kostnaði. Hefur ekki þjóðarbúið þörf fyrir að nýta starfsorku þegna sinna, þeirra sem vilja vinna hvað svo COMET P122 DUAL NÝJA SÝNINGARVÉLIN ÞÍN — er mjög fullkomin og í stað þess að sýsla með vanda- samar stillingar getur þú reglulega notiö myndarinn- ar. Það er sjálfvirk filmuþræðing og sterk ZOOMLINSA (18/30 mm) gefur hárnákvæma mynd. Þúgetur sýnt á mismunandi hraða, (18—24 m/sekog 6—8 m/sek) og einnig sýnt eina mynd í einu einsog skyggnu, eða jafnvel afturábak til frekari skemmtun- ar. Óvenju sterkur myndlampi (12V/100W TUNGSTEN HALOGEN) gefur kost á geysistórri mynd og hægt er að sýna í einu allt að 120 mtr. (ca. 30 mín.) samfellda filmu jafnt SUPER 8 og STANDARD 8. 'Pádtáaufi COMET 22 AUTOZOOM SUPER 8 NÝJA KVIKMYNDAVÉLIN ÞÍN — er vandaður gripur og næstum alsjálfvirk, en jafn einföld í notkun og venjuleg Ijósmyndavél, Innbyggt CdS rafmagnsauga stillir Ijósopið sjálfkrafa og gefur merki ef birta er ónóg til myndatöku. Sterk rafstýrð ZOOMLINSA (f/1.8—13/27 mm) gefur þér kost á að taka fjarlæg myndefni í smáatriðum. KVIKMyNDASETT STÓRT KVIKMYNDATJALD — .(125x125 sm) hvitt meö avörtum kanti og strekkjara upprúll- aö i málm-aívalning. KVIKMYNDALAMPI FYRIR INNIMYNDATÖKU með 1000W HALOGEN-peru, Ijósmagn 33000 lux. NÝJA KVIKMYNDASETTIÐ ÞITT — á eftir að veita þér og fjölskyldunni ómældar á- nægjustundir með litlum kostnaði, en 15 metra kvik- mynd kostar ekki meira en 12 litljósmyndir. Með sett- inu fylgir auk þess stutt kvikmynd svo þú getur strax prófað nýju sýningarvélina. — GÓÐA SKEMMTUN — VIÐ BJÓÐUM ÞÉR ÞETTA VANDAÐA KVIKMYNDASETT MEÐ SÉRLEGA HAGSTÆÐUM SKILMÁLUM: ÚTBORGUN KR. 48.000 + burðargjald OG KR. 12.450 A MANUÐI14 MAN. senou okkur kr. 42.650. í ávlsun, eöa inná Gíróreikn- ing 50505 og viö sendum þér settið í pósti. Ef þú ert ekki fullkomlega ánægður með viöskiptin getur þú skilað settinu, gegn fullri endurgreiöslu, innan 10 daga frá móttöku Það er innbyggð A-D Ijóssía fyrir útimyndatöku og þú 2ja ára ábyrgð getur einnig notað UV Ijóssíur með COMET 22. Auk þess fylgir falleg taska og hálsól. 'BrcndarhoUi 20 - Síini IÖ2S5 Ef þú sendir pöntun þina fyrir 15. apríl sendum viö þér að auki eina SUPER 8 litfilmu, sem er þin eign, jafnvel þótt þú ákveðir að skila settinu. sem aldri líður? Þurfa skatt- greiðendur ekki að hafa gætur á „kerfinu"? Hver kann að meta kímnigáfu Regínu? — hreinsið af ykkur óhreinindin, Eskfirðingar Olína Hlífarsdóttir, Neskaup- stað, hringdi: Ég er nú hvorki málgiöð manneskja né pennavön, en skrifin hennar Reginu á Eski- firði gera mér ókleift að þegja lengur. Regína virðist hlakka yfir því að geta úthrópað bæjar- stjórann sinn, Jóhann Klausen, og Vögg Jónsson og Kristmann Jónsson sem allir eru sannir Eskfirðingar og bera hag síns byggðarlags fyrir brjósti á drengilegan hátt. Hvernig er það með ykkur Eskfirðinga sem yfirleitt búið í stórum, myndarlegum, nýtízku einbýlishúsum, er það virkilega meining ykkar að troða elztu borgurum bæjarins í gamlan timburhjall fast við þjóðveg- inn, þar sem aldrei yrði friður fyrir umferðarhávaða nótt né nýtan dag? Sjálft húsnæðið er þægilegt eftir því, fyrir svona stofnun. Getið þið verið þekktir fyrir slíkt? Finnast virkilega ekki fleiri réttlátir menn eða konur en þessir 3 fyrrnefndu Esk- firðingar? Ef svo er, hvers vegna látið þið ekki í ykkur heyra úr því að búið er að hrópa þetta pólitiska einstakl- ingshyggjumál út yfir fjalla- hringinn ykkar? Kunnið þið að meta kímnigáfuna hennar Regínu, Eskfirðingar góðir? Það er meira en ég kann. Eskifjarðarbær hefur verið einn þrifalegasti og hugguleg- asti bær hér á Austf jörðum í tíð núverandi bæjarstjóra, honum og ykkur til sóma. Ég skora á ykkur Eskfirðinga að hreinsa af ykkur þessi óhreinindi sem upp hafa komið hjá ykkur núna. Ég vona bara að þið berið gæfu til þess að meta bæjar- stjórann ykkar að verðleikum áður en þið missið hann. A ekkert að sýna f rá af reki Hreins? —sjónvarpið sof nað á verðinum Frjáisíþróttamaður hringdi: Hvernig er með sjónvarpið? Ætlar það ekkert að sýna frá Evrópumeistaramótinu í San Sebastian þegar Hreinn Hall- dórsson varð Evrópumeistari í kúluvarpi? Nú er að verða hálfur mánuður frá því Hreinn vann afrek sitt — en ekkert hefur sézt frá mótinu í íþrótta- þáttum sjónvarpsins. Skrýtið að ekki skyldu strax gerðar ráð- stafanir til að fá myndir frá mótinu. Það hefði ekki átt að taka nema tvo til þrjá daga — og oft hefur verið lagt i kostnað hjá sjónvarpinu af minna til- efni. Þegar Islendingur vinnur afrek sem vekur heimsathygli virðist sjónvarpið hafa sofnað á verðinum. Hálfur mánuður lið- inn — og ekkert skeður. Hvað á þetta að ganga lengi? í fyrra voru sýndar fjöl- margar keppnisgreinar á Evrópumeistaramótinu — og hvers vegna er það ekki hægt nú? Spyr sá sem ekki veit — en frjálsíþróttafólk gerir þá kröfu til sjónvarpsins að það taki sig nú saman í andlitinu og fái sem fyrst mynd frá Evrópu- meistaramótinu á Spáni. Tillaga umkrá

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.