Dagblaðið - 25.03.1977, Síða 6
Cvrus Vance fer
til Moskvu i dag
Cyrus Vance, utanríkisráð-
herra Bandarikjanna, fer í dag
til Sovétríkjanna og ræðir þar
við Kremlverja — aðallega um
afvopnun, að því er Carter for-
seti sagði á blaðamannafundi í
gær. Forsetinn nefndi einnig
málefni, svo sem Mið-
Austurlönd, Suður-Afríku, til-
lögur sínar um að binda algjör-
lega enda á kjarnorkuvopnatil-
raunir, fækkun í Nato og Var-
sjárbandalaginu í Mið-Evrðpu
og að gera skyldi Indlandshaf
að óháðu landsvæði, sem Vance
ætti að ræða um.
„Aðalmálið verður þó af-
vopnun,“ sagði Carter og bætti
því við að þar ætti hann við
raunverulega afvopnun til til-
breytingar.
Carter lýsti einnig yfir á
blaðamannafundinum trú sinni
á að Brezhnev, aðalritari
Kommúnistaflokksins, myndi
vilja ræða alvarlega við Banda-
ríkjamenn þrátt fyrir illsku
sína í garð Carters fyrir að
skipta sér af mannréttindamál-
um í Sovétríkjunum og annars
staðar í heiminum.
Cyrus Vance ásamt Jimmy
Carter, yfirboðara sínum.
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 25. MARZ 1977.
————^
Allt
fyrir
baráttuna
Það er svo sem ekki náðugt
líf sem þeir lifa, sem nú dvelja
á Nýfundnalandi við að
mótmæla seladrápinu. Hér á
myndinni er selfangari í bak-
grunninum, en neðst á
myndinni eru tveir
selveiðimenn með feng sinn.
Þyrlan lenti aftur á móti
hlaðin verndunarmönnum í
vlgahug og hugðu ýmsir að
þarna myndi koma til átaka
sem þó varð ekki Deilan var i
hámarki í síðustu viku, er
myndin var tekin.
Alls er leyfilegt að drepa
160.000 selkópa á þessari sela-
vertíð. Hins vegar er ekki vitað
hve margir kópar láta iífið á
árinu, því að aflatölur frá
Noregi og Sovétríkjunum eru
ekki gefnar upp.
Óeirðirá
Kanarí-
eyjum
Að minnsta kosti tveir
slösuðust í gær er lögregla á
Tenerife á Kanaríeyjum réðst á
hóp ungra mótmælenda.
Hundruðum saman söfnuðust
ungmennin saman í tveimur
borgum eyjarinnar, Santa Cruz
og Laguna. Ekki er fullvíst
hvað olli þessum óeirðum.
Að sögn lögreglunnar voru
þeir slösuðu strætisvagnstjóri
og farþegi hans. Vagninn var
grýttur og kveikt í öðrum
strætisvagni. Verzlanaeig-
endur í borgunum tveimur
lokuðu búðum sínum hið
bráðasta er óeirðirnar hófust.
Fyrr í mánuðinum átti
lögreglan í Santa Cruz í höggi
við baráttuglöð ungmenni.
Byggingaverkamenn og
margt starfsfólk í bönkum og
verksmiðjum lagði niður vinnu
í gær til að styðja málstað
mótmælendanna.
KAUPUM GÖMLU
SKÓNA A
300 KRÓNUR
Komdu með gömlu skóna þína, við tökum þá sem
300 kr. greiðslu upp í nýja, gömul gúmistígvél og
strigaskó tökum við sem 150 kr. innlegg. Þú kaupir
þér nýja skó hjá okkur leggur t.d. fimm pör af
gömlum skóm fram sem 1500 kr. og mismuninn
greiðir þú í peningum. Hefurðu heyrt það betra ...?
SKÓBÚÐIN SUÐURVERI
Stigahlíð 45 sími 83225
Er sambúð
Kúbu og
Bandaríkjanna
að batna?
Viðræðunefndir frá Banda-
ríkjunum og Kúbu hittust í New
York í gær til að komast að sam-
komulagi um fiskveiðitakmörk og
markalínur ríkjanna. Þetta mun
að öllum likindum vera í fyrsta
skipti sem bein samskipti eiga sér
stað milli ríkisstjórna Kúbu og
Bandaríkjanna, síðan upp úr sauð
í samskiptum þeirra fyrir 16
árum.
hann, meðal annars, að hann vildi
að samskipti Bandarikjanna við
öll þau 16 ríki sem ekki eru í
stjórnmálasambandi við Banda-
ríkin, bötnuðu sem fyrst. Áður
hafði forsetinn reyndar sagt að til
þess að eðlileg samskipti milli
Kúbu og Bandarikjanna gætu
þrifizt yrðu kúbanskar hersveitir
að hypja sig frá Angola.
íran:
Rannsókná
jarðskjálfta-
svæðunum
hraðað
Tala látinna í
jarðskjálftanum í Suður-
íran er nú komin upp i 130.
Iranska útvarpið í Teheran
skýrði frá því i gær, að
hraðað yrði rannsókn úr
lofti og láði á þeim svæðum,
sem verst urðu úti.
Verstu skjálftarnir urðu á
þriðjudag, er Iranir
fögnuðu nýju pernesku ári.
Síðan hafa stöðugt mælzt
minni skjálftar sem hafa
valdið frekar litlum
skemmdum.
Stutt tilkynning var gefin út I
báðum löndunum í gærkvöld þess
efnis að ræðzt hefði verið við og
skipzt á skoðunum um nýja lög-
gjöf vegna fiskveiða við strendur
landanna.
Bandarikjamenn og Kúbumenn
færðu fiskveiðilandhelgi sína út í
200 mílur fyrr í þessum mánuði.
Þar eð Kúba er aðeins í 90 mílna
fjarlægð frá strönd Florida er
augljóst að 200 mílna reglan
gildir ekki á því sundi.
Carter Bandarikjaforseti aflétti
fyrir viku 16 ára gömlu ferða-
banni Bandaríkjamanna til Kúbu.
Á fundi með fréttamönnum, sem
forsetinn efndi til i gær, sagði
Pakistan: Enn krefst stjórnar-
andstaðan nýrra kosninga
Stjórnarandstæðingar í
Pakistan hafa hafnað nýjustu
friðarviðræðutillögum Ali
Bhuttos forsætisráðherra. And-
stæðingar forsætisráðherrans
halda enn statt og stöðugt við
fullyrðingu sfna um, að þing-
kosningarnar fyrr í
mánuðinum hafi verið falsaðar
og að Ali Bhutto verði að víkja.
Stjórnarandstaðan hefur
boðað allsherjarverkfall á
morgun, þá á nýja ríkisstjórnin
að koma saman í fyrsta skipti
Eftir tveggja daga fund var átta
síðna bréf samið og sent Ali
Bhutto, þar sem kröfurnar voru
ítrekaðar.