Dagblaðið - 25.03.1977, Page 18
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 25. MARZ 1977.
Eiginkonan má gjarnan
leika i öðrum kvikmyndum
—en rúm- og ástaratriði koma ekki til greina
Charles Bronson hefur gefið
hinni fögru konu sinni, leikkon-
unni Jill Ireland, grænt ljós, að
hún megi leika upp á eigin
spýtur í kvikmyndunum. En
hann leggur blátt bann við því
að hún leiki í kynferðis- eða
rúmatriðum.
„Ekkert kynlíf í myndunum
sem Jill leikur í,“ segir Charlie.
Nú hafa þau hjónin ákveðið að
þau muni ekki leika aftur
saman í kvikmynd, ekki í bráð
að minnsta kosti.
„Þetta er enginn
tepruskapur frá minni háifu.
Ég kæri mig bara ekki um að
Jill sé að leika slík atriði. Við
ræðum opinskátt um kynferðis-
mál heima fyrir við börnin okk-
ar. En við kærum okkur ekki
um kynferðissenur á hvíta
tjaldinu.“
Ég hef verið beðinn um að
leika samfaraatriði í kvikmynd
en ég harðneitaði," segir
Charlie. „Ég dæmi ekki aðra
þött þeir geri það, ég vil bara
ekki gera það sjálfur.“
Jill hefur neitað hlutverki
sem var of „djarft" að hennar
dómi. I myndinni, sem heitir
Good Luck Miss Vycoff, átti
hún að leika samfaraatriði.
„Hvernig dettur nokkrum í
hug að maður geti gert mannin-
óslitið í átta ár. Hún hefur
sannarlegt haft í nógu að
snúast. Hjónin eiga fimm ára
gamla dóttur en þar að auki eru
tvö börn af fyrra hjónabandi
hans hjá þeim og tvö börn frá
hennar fyrra hjónabandi.
En hún hefur leikið I stöku
myndum og þá á móti mannin-
um sfnum.
En það þarf enginn að láta
sér detta í hug að Charlie
Bronson sé ekki sá sem öllu
ræður á heimili þeirra.
„Konur og menn eiga ekki að
keppa hvort við annað,“ segir
Jill. „Þau eiga að lifa saman í
sátt og samlyndi.Ég hef aldrei
reynt að „máta“ Charlie. Ef ég
væri gift manni sem ég fyndi
inn á að ég gæti „mátað“ þá
myndi ég skilja við hann á
stundinni.
Annars er ekkert gaman að
lífinu án þess að hafa eitthvað
til þess að takast á við. Þess
vegna horfi ég með vonglöðum
augum til framtíðarverkefna
minna,“ segir hún.
Charlie hefur engar
áhyggjur af frama konu sinnar.
Honum er sjálfum borgið og
stjarna hans hefur aldrei skinið
skærar.
„Jill hefur verið stjarna frá
því að hún var stelpa,“ segir
hann. „Hún er mjög sjálfstæð
og það er einmitt þess vegna
sem ég elska hana svona mikið.
Ég vil alls ekki skyggja á hana
— og hef aldrei ætlað mér að
gera það.“
Charlie er orðinn hálf-
þreyttur á fólki sem er sífellt að
spyrja hvort hann hafi ekki
heimspekilega og gáfulega af-
stöðu til kvikmyndanna.
„Þetta er bara eins og hver
önnur vinna sem ég kann vel
við vegna þess að hún er vel
borguð,“ segir hann.
„Allar myndir sem ég hef
leikið í á síðastliðnum sjö árum
hafa gefið frá sex upp í tuttugu-
faldan gróða í aðra hönd.
Mér er alveg sama þótt ég
hafi ekki unnið til Óskars-
verðlaunanna. Mér þykir miklu
meira varið í að fá Golden
Globe verðlaunin og vera þar
með kjörinn eftirlætisieikari
kvikmyndanna.
Ég vil leika í myndum sem
almenningur vill gjarnan sjá.
Ég hef engan áhuga á að fara í
leikskóla og hef ekki hugsað
mér að gera það. Það er tóm
vitleysa. Ég er bara í kvikmynd-
um vegna þess að ég fæ það vel
borgað,“ segir hann.
Hjónaband þeirra Jill og
Charlie stendur á mjög traust-
um grunni.
„Þegar við giftum okkur
ákváðum við að fjölskyldan,
heimilið og hjónabandið, skyldi
ganga fyrir öllu,“ segir Charlie.
„Þess vegna komu Jill og
krakkarnir með mér þegar ég
þurfti að fara eitthvað til kvik-
myndatöku. Það var dálítið
erfitt á stundum og það varð
iíka dálítið dýrt.“
Jill er ákveðin í að snúa sér
meira að söng í framtiðinni.
Hún ætlar að grafa upp gamla
barnasöngva og færa þá í nýjan
búning. Síðan ætlar hún að
syngja inn á plötur með aðstoð
barnanna. Elzti sonur Charlie
leikur á píanó og elztu synir
hennar leika á píanó og gftar.
Þýtt og endursagt A.Bj.
Charlie Bronson er einn af „gulldrengjunum“ i Hollywood. Það ganga allar myndir sem hann leikur í.
Þarna er hann með hinni fögru eiginkonu sinni JiII Ireland. Þau hafa verið hamingjusamlega gift i
átta ár.
um sínum slíkt, — að þurfa að
horfa upp á mann „gera það“
með öðrum manni,“ sagði Jill.
„Ég þurfti ekkert að ráðfæra
mig við Charlie, þegar þetta
kom á daginn. Ég harðneitaði
að taka að mér hlutverkið. Ég
kæri mig heldur ekki um að
strákarnir okkar sem farnir eru
að ganga i skóla þurfi að heyra
frá skólafélögum sínum að þeir
hafi séð „mömmu þeirra gera
það“.
í auglýsingamyndunum í
nýjustu kvikmyndinni sem þau
leika saman í og heitir From
Noon Till Three sjást þau
Bronson-hjónin hálfnakin í
rúmatriði. Það verður líklega
seinasta kvikmyndin sem þau
leika saman í.
„Mig langar til þess að fara
mínar eigin leiðir í leiklistar-
heiminum,“ segir Jill. „Ég er
mjög ánægð með manninn
minn. Það er ekkert í sambandi
við hann. Nú þegar börnin eru
orðin eldri og ég er ekki eins
bundin yfir þeim langarmigtil
þess að gera meira fyrir sjálfa
mig. Mig langar til þess að
spreyta mig sem söngvari og
leika í mínum eigin kvikmynd-
um.“
Jill Ireland hefur verið
meira og minna heimavinnandi
móðir og húsmóðir nærri Jill og Charlie hafa oft leikið saman í kvikmyndum og þarna slappa þau af á milli atriða.
.......................... “ ......