Dagblaðið - 04.05.1977, Qupperneq 8
8
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 1977.
NÝ BRÚ YFIR LAUGARDALSLAUGINA
— SU
margan hátt t.d. verður sett í
hana hitalögn sem á að koma í veg
fyrir frostsprungur. Einnig
verður handriðið fest á annan'
hátt, þannig að ekki komist vatn
niður með rörunum og í steypuna.
1 ár var Sundlaugunum út-
hlutað 12 milljónum til viðhalds
og endurbóta. Þegar hafa þrjár
verið notaðar til að mála innan-
dyra. Ragnar bjóst við að viðgerð
á brúnni kostaði skilding.
kannski 2 til 3 milljónir. Annars
sagði hann að það væri alltaf
erfitt að segja til um upphæðir
sem færu í svona viðgerðir,
kostnaðurinn gæti orðið miklu
meiri.
KP.
X »
Verið er að gera nýja brú yfir
Sundiaugarnar í Laugardal,
vegna þess að sú upphaflega
var gölluð. DB-mynd Hörður.
„Það er greinilegt að brúiri
hefur verið gölluð frá upphafi og
var orðin hættuleg vegna frost-
sprungna sem höfðu m.a. losað
um handriðið,“ sagði Ragnar
Steingrímsson forstöðumaður
Sundlauganna í Laugardal þegar
DB grennslaðist fyrir um fram-
kvæmdir þær sem nú standa yfir í
Laugunum.
Ragnar sagði að brúin yrði
byggð aftur nákvæmlega eins og
sú sem nú er búið að brjóta niður.
Það var hafizt handa við fram-
kvæmdir fyrir um þremur vikum
og áætlað er að ljúka verkinu
eftir hálfan mánuð. Þá geta lauga-
gestir trítlað um brúna á nýjan
leik. Hún verður þá endurbætt á
.. "
Samnorræn rannsókn á slysum íheimahúsum:
HVER ER MESTISLYSA-
VALDURINNINNAN
VEGGiA HEIMILISINS?
„Fjöldi slysa í heimahúsum
er mikill hér á landi. Svo er
einnig á hinum Norðurlöndun-
um. Vaknaði því sú spurning
hvort ekki væri hægt að fækka
slysum með því að rannsaka
hvernig þessi slys bæri að
höndum. Sérstaklega ber að
hafa það í huga við þessa könn-
un hvort einhverjar sérstakar
vörur eða tæki gætu reynzt
hættuleg. Byrjað er á þessari
rannsókn.“
Þetta sagði Eiríka Friðriks-
dóttir, hagfræðingur, en rann-
sóknin fellur undir verkahring
Neytendaverndar og er það
Embættismannanefnd í neyt-
endamálum á Norðurlöndunum
sem vinnur þetta verk. Eiríka
vinnur þetta verk fyrir Islands
hönd.
Rannsókn þessi nær bæði til
slysa í heimahúsum og rétt
utan við þau á hinum Norður-
löndunum. Hér mun hún
eingöngu ná til slysa sem verða
innan veggja heimilisins.
Verður rannsóknin gerð í öllum
löndum samtímis. Hún hófst 1.
apríl og á að verða lokið 31.
október.
Slysadeild Borgarspítalans
tók á móti nærri 52 þúsund
slysatilfellum árið 1975. Var
þar um að ræða 29.492
einstaklinga «g komu sumir
aðeins einu sinni en aðrir oftar.
Árið 1975 eru skrásett 7.732
slys sem orðið höfðu í heima-
húsum. Ef reiknað er með að
Borgarspítalinn þjóni 100
þúsund manns sýna þessar
tölur að af hverjum 100 hafa 8
komið á slysadeild árið 1975.
Eiríka sagði að samkvæmt
þessum upplýsingum mætti
reikna með 4 þúsund slysum á
því hálfa ári sem rannsóknin
stendur.
I rannsókninni verða tekin
upp úr slysaskýrslum öll atriði
varðandi slys sem orðið hafa í
heimahúsum eins nákvæmlega
og nokkur kostur er og orsakir
skilgreindar. I nokkrum til-
fellum getur reynzt nauðsyn-
legt að hafa samband við þá
sem urðu fyrir þessum slysum
og mun fulltrúi rannsóknar-
nefndarinnar heimsækja þetta
fólk og foreldra ef um börn
hefur verið að ræða og spyrja
um tildrög. Einnig mun spurt
um eftirköst slysanna.
Er það von þeirra sem að
rannsókn þessari standa að full-
trúa þeirra verði vel tekið og
upplýsingar veittar. Farið
verður með nöfn allra sem
algjört trúnaðarmál.
Þær upplýsingar sem fást í
rannsókninni verða sendar til
tölvuúrvinnslu hjá hagstofu
Svíþjóðar. Síðan verða allar
skýrslur bornar saman og reynt
að benda á slysavalda innan
heimilisins.
Loks er ætlunin að fengnar
upplýsingar verði skráðar í
handbók, sem væntanlega
verður gefin út.
-EVI.
tír 2 herbergjum og 1 blaði í 24 herbergi og 4 blöð
Frjálst Framtak
flytur ífélags-
skap dagblaðanna
orðinn stærsti aðili
„Ég taldi mikla bjartsýni að
taka á leigu tvö herbergi við
Óðinsgötu á sfnum tima er ég tók
við útgáfu Frjálsrar Verzlunar,“
sagði Jóhann Briem, fram-
kvæmdastjóri Frjáls Framtaks
h/f, er hann nú um helgina tók í
notkun 400 fermetra eigin hús-
næði fyrirtækisins með 25 her-
bergjum, eftir tíu ára útgáfustaff-
semi.
Frjáls Verzlun hefur komið út
síðan árið 1939, en stopult þar til
Frjálst Framtak við útgáfunni og
gefur blaðið út mánaðarléga, yfir-
leitt 100 síðna stórt. Markús Örn
Antonsson er ritstjóri biaðsins.
Starfseminni óx brátt fiskur um
hrygg og flutti að Suðurlands-
braut 121 stærra húsnæði og í enn
stærra að Laugavegi 178.
Þar hófst útgáfa Sjávarfrétta,
annars sérrits útgáfufyrir-
tækisins, sem nú er orðið stærsta
útgáfufyrirtæki á sviði sérrita á
landinu, með nærri 25 þús.
eintaka útgáfu mánaðarlega að
sögn framkvæmdastjóra. Sjávar-
fréttir eru nú fimm ára og koma
ísérritaútgáfu hér
mánaðarlega út, álíka stórar og
FV: Ritstjóri er Steinar J.
Lúðvíksson.
Þá^gefur fyrirtækið út iþrótta-
blaðið í samvinnu við tSt, sex
sinnum á ári og ritstýrir Sigurður
Magnússon þvi. Nýjasta sérrit
fyrirtækisins er Iðnaðarblaðið og
hófst útgáfa þess sl. ár. Ritstjóri
þess er Jóhann Briem. útgefandi.
I nokkur undanfarin ár hefur
fyrirtækið gefið út uppsláttarritið
íslenzk fyrirtæki, sem er
uppsláttarrit um íslenzk fyrir-
tæki. Hrönn Kristinsdóttir rit-
stýrir því.
Kristinn Benediktsson og
Jóhannes Long sjá um Ijósmynd-
un fyrir blöðin og um 20 fast-
ráðnir starfsmenn vinna hjá fyrir-
tækinu undir skrifstofustjórn
Olgu Kristjánsdóttur og Kristínar
Orradóttur. Hin nýju húsakynni
eru að Ármúla 18, aðeins
steinsnar frá ritstjórnum
fjögurra dagblaðanna við Síðu-
múla, eða Blaðsíðumúla, eins og
hann er nú kallaður í gamni.
-G.S
Dvöl i orlofs-
hiísum Iðju
Iðjufclagar sem hafa hug á að dvelja í orlofshúsum
félagsins að Svignaskarði í sumar verða að hafa sótt um
hús eigi síðar en mánudaginn 23. maí nk. Umsóknareyðu-
blöð liggja frammi á skrifstofu félagsins, Skólavörðustíg
16.
Dregið verður úr umsóknum sem berast á skrifstofu
félagsins 24. maí kl. 17, og hafa umsækjendur rétt til að
vera viðstaddir.
Þeir félagar sem dvalið hafa í húsunum 2 undanfarin
sumur koma aðeins til greina ef ekki er fullhókað.
Leigugjald verður 9.000 kr. á viku.
Sjúkrasjóður Iðju mun hafa eitt orlofshúsanna til ráð-
stöfunar handa Iðjufélögum, sem eru frá vinnu um
lengri tíma vegna veikinda. Og verður það endurgjalds-
laust gegn framvísun læknisvottorðs.
Stjórn Iðju
Meirihluti starfsfðlks Frjáls Framtaks á nýju skrifstofunum.