Dagblaðið - 04.05.1977, Qupperneq 23
23
Sjónvarp í kvöld kl. 20,30:
„Það verður litið inn í Leik-
listarskðla íslands og fylgzt að
hluta til með starfsemi hans og
rætt stuttlega við skólastjðrann
og nokkra nemendur," sagði
Andrés Indriðason umsjónar-
maður þáttarins Vöku á dag-
skrá sjónvarpsins í kvöld
klukkan hálfnfu.
„Leikfélag Akureyrar kemur
einnig fram i þættinum en það
sýnir um þessar mundir
Afbragð annarra kvenna,
ftalska alþýðukómedíu. Svo
stendur yfir sýning á íslenzkri
grafík í Norræna húsinu. Við
lítum inn á þá sýningu og reynt
verður að skýra fyrir fólki
hvernig hinar ýmsu tegundir
grafíkur eru unnar. Sýndur
verður hluti myndanna á
sýningunni í þættinum.
Selma Guðmundsdóttir
píanóleikari hélt nýlega slna
fyrstu einleikstónleika og
ætlum við að ræða stuttlega við
hana og hún mun leika litils-
háttar. AS-dúr messa sem flutt
var i fyrri viku af Filharmóníu
og Sinfóníuhljómsveitinni
verður einnig kynnt,“ sagði
Andrés.
Margir hafa eflaust tekið
eftir þvi að þulur er hættur að
sjást á skjánum í Vöku. Við
spurðum Andrés um ástæðuna
fyrir því. Hann sagði að
sem Vökuþættirnir voru orðnir
um áttatiu og formið á þeim
alltaf eins þótti mönnum kom-
inn timi til að breyta til. Þetta
ér hins vegar síðasti þáttur
vetrarins og taldi Andrés
ósennilegt að næsta haust
kæmu nýir herrar og með þeim
nýtt skipulag.
DS.
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 1977.
Útvarp íkvöld kl. 20,00: Kvöldvaka
Hvers vegna sumum
beit en <;
„Þetta er mjög forvitnilegt
mál,“ sagði Þórarinn Þórarinsson
fyrrverandi skóiastjóri á Eiðum
þegar hann var spurður um þátt-
inn hans í kvöldvöku útvarpsins í
kvöld. Þórarinn flytur í henni
erindi sem nefnist I slægjunni
heima og fjallar hann um sláttu-
menn áður fyrr og bitasæld I
ljáum.
„Þetta hefur verið mönnum
hulið í margar aldir og það vakti
forvitni mína og fór ég að reyna
að finna skynsamlega ástæðu
fyrir því hvers vegna sumum
mönnum beit vel við slátt en
öðrum ekki,“ sagði Þórarinn.
„Sögusagnir eins og að lygnum
mönnum bíti bezt og að skrattinn;
ætti þá sem sveifluðu orfi mikið
voru algengar meðal fólks sem
útskýringar á þessum hlutum.
Þessar skýringar eru þó hvergi
nærri nógu áreiðanlegar. Járnið
hafði sitt að segja en þó ekki allt.
Annað kom til og því mun ég
segja frá í þættinum. Ekki er vert
að segja frá því í blöðunum hvað
það er. Minningar mínar frá þeim
dögum sem orf og ljár voru al
gengustu sláttuverkfærin verða
einnig rifjaðar upp.“
DS.
ðrum ekki
^ Sjónvarp
Miðvikudagur
4. maí
18.00 Bangainn Paddington. Breskur
myndaflokkur. Þýðandi Stefán
Jökulsson. Sögumaður Þórhallur
Sigurðsson.
18.10 Gluggar. Breskur fræðslumynda-
flokkur fyrir börn og unglinga. 1.
Flugmóðurskip. 2. Silungsveiðar í
sundlaug. 3. Flokkun bögglapósts 4.
Sólarorka nýtt til vatnsöflunar.
Þýðandi og þulur Jón O. Edwald.
18.35 Rokkveita ríkisina. Hljómiveitin
Arblik. Stjórn upptöku Egill
Eðvarðsson,
Hló.
20.00 Fróttir og veöur.
20.25 Auglýsingar og dagakró.
20.30 Vaka. Þáttur um bókmenntirog
listir á líðandi stund. Stjórn upptöku
Andrés Indriðason.
21.15 Tálmynd fyrir tieyríng (L) Breskur
framhaldsmyndaflokkur, byggður á
sögu eftir F. Tennyson Jesse. 2. þátt-
ur. Sagan gerist á þriðja tug aldar-
innar. Júlía, sem er einkabarn, hefur
lokið skólagöngu og fær vinnu í tísku-
verslun. Faðir hennar deyr og móður-
bróðir hennar flytur til þeirra
mæðgnanna ásamt fjölskyldu sinni.
Júlía er einmana og giftist gömlum
fjölskylduvini, Herbert Starling, sem
er 20 árum eldn en hún. Aðalhlut-
verk Francesca Annis, Bernard
Hepton og John Duttine. Þýðandi
Dóra Hafsteinsdóttir.
20.05 Stjómmálin frá stríflslokum. Fransk-
ur frétta- og fræðslumyndaflokkur. 7.
þáttur. Franskt Aisír. Alsirstriðið hófst
árið 1956. Fjallað er um stuðning
arabaríkjanna við þjóðfrelsisfylking-
una í Alsir og Súe/.málið. De (laulle
kemst til valda í Frakklandi. Lýst er
lilraun andstæðinga hans og nokkurra
herforingja lil valdaráns i Alsir 1960
og frá samkomulaginu sem náðist að
lokum. Þýðandi og þulur Sigurður
Þálsson.
23.05 Dagskrárlok.
Skyldi hunum bíta vel að jafnaði þessum? Hann þarf að minnsta
kosti að brýna öðru hverju.
Sjónvarp íkvöld kl. 21,15:
Tálmyndin
heldur áfram
Framhaldsmyndaflokknum
Tálmynd fyrir tíeyring verður
fram haldið i sjónvarpinu i
kvöld klukkan 21.15. Þátturinn
hófst síðasta miðvikudagskvöld
í stað Onedínmyndarinnar sem
vegna mótbyrs er ekki enn
komin.
I þættinum á miðvikudags-
kvöldið var sagt frá stúlkunni
Júliu sem var af frekar ríku
fólki komin. Hún var að ljúka
skólanámi þegar myndin hófst
og fór þá að vinna í tizkuverzl-
un þrátt fyrir nokkra andstöðu
föður sins. Hann dó nokkru
seinna og Júlía og móðir
hennar stóðu uppi einar og
blankar og neyddust þær til að
hleypa föðurbróður Júlíu og
fjölskyldu hans inn á heimilið
þrátt fyrir mikla andstöðu.
Júlía giftist nokkru seinna
ekkli nokkrum 20 árum eldri
en hún, sem verið hafði fjöl-
skylduvinur í mörg ár, í þeim
tilgangi fyrst og fremst að
komast að heiman. Ekki virtist
þetta ætla að verða hamingju-
samt hjónaband.
Þátturinn er sendur út í lit.
DS.
uklÆIIJARIiOr
LÆKJARGATA 32 ■ PÓSTH.53 'HAFNARFIRÐI • SÍMI50449
Seljum:
Málningu — málningarvörur
járnfittings — rör
Danfoss — stillitœki
Allt til hitaveitutenginga.
Opið í hádeginu og laugardaga 9-12, nœg
bílastœði.
Æskulýðs- og íþróttafulltrúi
Starf æskulýð.s- og íþróttafulltrúa í
Keflavík er laust til umsóknar.
Umsóknir sendist til undirritaðs fyrir
23. maí nk.
Bœjarstjórinn í Keflavík
Suðurnesjamenn, Garðbúar,
starfsfólk Flugleiða Kefla-
víkurflugvelli
Innilegar þakkir fyrir rausnarlegar
gjafir og aðstoð við að endurreisa
heimili okkar, sem brann þann 31. jan.
sl. Guð launi ykkur öllum.
Unnur og Magnús
Brœðraborg Garði