Dagblaðið - 04.05.1977, Síða 24

Dagblaðið - 04.05.1977, Síða 24
LEGSTEINNINN VAR EKKI í VANSKILUM — Það var búið að set ja nýjan stein yfir gömlu hjónin „Legsteinninn sem þið voruð að skrifa um í Dagblaðinu á laugardaginn er alls ekki í neinum vanskilum í garðinum við Grjótagötu 12,“ sagði Haukur Magnússon í viðtali við DB. „Faðir minn var Magnús Gíslason, en hann var elztur af börnum Gísla Magnússonar og Sigríðar Hannesdóttur. Móðir mín dó árið 1918 og þá var okkur börnunum komið fýrir sínu í hvorri áttinni. Ég var svo heppinn að ég lenti hjá afa og ömmu uppi á lofti í Grjótagötu 12. Svo deyr amma árið 1927 og eins og gengur var settur leg- steinn á leiðið hennar. Afi deyr svo 1943 og þá settu börnin hans sameiginlegan stein fyrir gömlu hjónin á leiðið þeirra og legsteinn ömmu var fluttur heim i garðinn í Grjótagötu. Við kölluðum steininn sólar- stein og hann var notaður til þess að sitja á honum þegar verið var úti í garðinum. Það er margur kaffisopinn sem drukk- inn hefur verið á þessum steini. Hinn steinninn sem var á myndinni var aftur á móti úr tröppunum en áður fyrr voru dyr á miðri hlið hússins. • Steinninn við húshornið, þessi með grópinni í, er ekkert annað en venjulegur rennu- steinn eins og þeir gerðust í gamla daga. Það eru ábyggilega enn til svona steinar við mörg hús bæði i Grjótaþorpinu og víðar,“ sagði Haukur. Ættfræðin hafði skolazt eitt- hvað til hjá okkur í greininni á laugardaginn. Anna Gísladóttir var sögð gift Ólafi Jónssyni. Hið rétta er að Anna var gift Teiti Teitssyni sjómanni. Þau bjuggu fyrst i Grjótagötunni en byggðu síðan í Garðastræti og var Gísli Magnússon hjá þeim síðustu árin. Hjá þeim var hann þegar hann lézt. Olafur var kvæntur Sigríði, sem var dóttir Magnúsar Gísla- sonar. Hann var þekktur bif- reiðarstjóri sem ók í fjölda mörg ár hjá BSR. Nú er tæpt ár síðan Ólafur lézt. A.Bj. Haukur Magnússon kom með okkur i gamla kirkjugarðinn við Suðurgötu og sýndi okkur hinn veglega legstein sem settur hafði verið á leiði afa hans og ömmu þegar gamli maðurinn dó árið 1943. DB-mynd Bjarnleifur. Nær þúsund V-lslend- ingar til „gamla landsins" í sumar? —og 750 íslendingar e.t.v. utan til íslendingabyggða LANI ÓLÁNI Kona varð fyrir skellinöðru rétt fyrir kl. 5 í gærdag. Konan var að ganga yfir Hverfisgötu á merktri gangbraut við Hlemm, er piitur á skellinöðru kom aðvífandi og ók á hana. Hún slasaðist lítið. DB- mynd Bjarnleifur. frjálst, nháð dagblað MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 1977. 2100 KM RALLYí UNDIR- BÚNINGI Meðlimir í Bifreiðaíþrótta- klúbbi Reykjavíkur eru nú fyrir alvöru að hugleiða og undirbúa geysistóra Rally- keppni hér í haust og verður akstursleiðin væntanlega 2100 km og keppnistíminn tveir sólarhringar. Til samanburðar má geta þess að síðasta nýaf- staðin Rallykeppni. sem var sú mesta til þessa, var háð á 350 km vegalengd. Sú næst fyrsta á 250 km og sú fyrsta á 150 km. Flestir keppendur voru í fyrstu keppninni en fæsti'r í þeirri síðustu, 23 alls, enda var hún mesta fyrirtækið. Stjórn- endur klúbbsins draga tvenns konar lærdóm af þessu. Annars vegar virðist þetta vaxa ókunnugum í augum og margir halda að um sé að ræða kappakstur upp á líf og dauða og leggja þvi ekki í málið. Slíkt er þó misskilningur. Hins vegar er nú að myndast harður kjarni Rallykeppenda, sem innan tíðar er talinn munu hlaða utan' á sig, líkt og þróunin er víðast erlendis. Stórhugurinn á bak við þessa miklu keppni í haust stendur í sambandi við áhuga klúbbfélaga að gera þetta að árlegum viðburði og lið í Evrópumeistarakeppninni eða Norðurlandameistarakeppn- inni. Ef vel tekst til nú, væri líklegast ekkert til fyrirstöðu, að það yrði að raunveruleika eftir svo sem tvö ár. Kæmu þá erlendir ökumenn hingað til keppni. BR er klúbbur innan Bif- reiðaíþróttadeildar FlB, en búið er að .stofna sl.íka klúbba á Hornafirði, Neskaupstað og á Húsavík, a.m.k. Fyrirhuguð leið er ekki ákveðin, nema hvað ljóst er að ekið verður a.m.k. einu sinni yfir miðhálendið, Kjöl eða Sprengisand. Fjölda tímavarða þarf við slíka keppni og er framkvæmd hennar m.a. háð að klúbbarnir. úti um land geti lagt lið þar sem geysilegur kostnaður yrði því samfara að senda tíma- verði um verulegan hluta landsins. Einnig er talið að Iágmark þurfi 30 keppendur, helzt miklu fleiri. Ef þessi atriði ganga upp, ætti ekkert að vera til fyrirstöðu að þessi keppni yr'ði að raunveruleika, þá líklegast fyrstu helgina í september. -G.S. Vetrarvertíðinni að Ijúka á Suðurnesjum: MENN BÚA SIG UNDIR HUMARINN Nærri 700 manns hafa pantað far til Winnipeg í Kanada í sumar, að sögn Guðna Þórðarsonar forstjóra ferða- skrifstofunnar Sunnu. Alls verða farnar þrjár ferðir á veg- um ferðaskrifstofunnar í sumar og áætlað er að fluttir verða 750 ferðamenn til Nýja-lslands í Kanada. Vestur-íslendingar koma hingað með fyrstu ferðinni þann 29. mai. Sá hópur dvelur hér væntanlega fram i miðjan júlí, en þá verður síðasta ferðin farin vestur. Viking Travel i Winnipeg skipuleggur hingað tvær ferðir og verður flogið með DC-8 vél frá Air Canada beint til Keflavíkur. Ef full- bókað verður í þessi flug koma hingað tæplega 500 manns. Ekki er vitað enn hverriig sæta- nýting verður i fluginu á veg- um Sunnu en ef hún verður góð, þá má búast við öðrum eins hópi fólks að vestan. Verða hér þvi tæplega 1000 manns að vest- an í sumar, ef að líkum lætur. Viðbúið er að þeir íslending- ar sem leggja land undir fót verði viðlíka margir. Sam- vinnuferðir hafa skipulagt ferð til íslendingabyggða í Kanada í júlí. 1 Lögbergi-Heimskringlu frá 14. apríl er nokkuð rætt um ferðalög til Islands. Kemur þar fram að einhver óvissa sé ríkj- andi varðandi gistingu þeirra sem leggja leið sína hingað og eins þeirra sem ætla til Kanada. Guðni Þórðarson sagði að meiri hluti þeirra sem kæmu hingað byggju hjá ættingjum sínum og eins væri með þá sem færu utan. Hins vegar væru þeir aðstoðaðir sem þyrftu á hjálp að halda vegna gistingar- aðstöðu. Nokkuð væri um að fólk skipti um íbúðir, en eins væri mikil ásókn í að fá fólk frá Kanada inn á heimili m.a. vegna fyrirhugaðrar ferðar heimilisfólks vestur seinna. Vandræði vegna þessa væru því hverfandi. Einnig var sagt frá því í Lögbergi-Heimskringlu að Kanadísk yfirvöld hefðu ekki enn veitt leyfi fyrir þvi að far- þegar megi fara frá Kanada. Þau leyfi verði að fást til að vélar Sunnu geti tekið hópa sina. Guðni sagði að þessi leyfi væru gagnkvæm og væri yfir- leitt ekki samið um þau langt fram í tímann. Til þess að vélin frá Air Canada gæti flogið hingað þyrfti einnig leyfi. Sem fyrr segir er þetta gagnkvæmt svo ef vél Sunnu fær ekki að taka farþega þá fær Kanada vélin heldur ekki að fljúga hingað með farþega sína. -KP „Ég held það séu margir búnir að taka upp net,“ sagði Rúnar Elíasson, verkstjóri í Hraðfrystihúsi Sveinbjörns Árnasonar i Kothúsum í Gerðum i viðtali við DB í morgun. „Þetta hefur verið afar tregt," sagði Rúnar, „og til dæmis komu þeir að í gær með allt niður í 300 kfló. Einn bátur, 180 tonna, kom með talsvert á sjöunda tonn, mest einnar náttar fiskur. Það er það lang- skásta sem ég heyrði um. Jafn- yel þeir bátar sem lögðu allt í kringum þennan fengu ekki bein. Svona gengur þetta. Hann getur verið á litlum bleyðunt sem bátarnir sleppa ekki. Svo er alveg dautt annars staðar.” Ég held þetta sé dæmið svona almennt hér um Suðurnesin," sagði Rúnar. Hann kvað marga báta vera farna að huga að humarvertíðinni sem byrjar hinn 20. maí, enda yfir engu að vera í ördeyðunni sem verið hefur að undanförnu. BS

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.