Dagblaðið - 20.06.1977, Side 15
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 20. JUNÍ 1977.
I
15
íþróttir
íþróttir
íbróttir
Iþróttir
Óskabyrjun Vals og fyrsta tap
I
Víkings í fjórtán leikjum
— fslandsmeistarar Vals sigruðu Víking 4-0 á þjóðhátíðardaginn. Valur
hefði átt að vinna 7-5, sagði Tony Knapp. Slík voru tækifærin
íslandsmeistarar Vals voru
sannarlega á skotskónum er þeir
mættu Víking í 1. deild íslands-
mótsins i knattspyrnu á
þjóðhátíðardaginn — 17. júní.
Fjóri i . sinnum sendu Valsmenn
knöttinn í netið framhjá Diðriki
Ólafssyni, markverði Víkings, án
þe-;s að Víkingar næðu að svara
i.. rir sig. Hin rómaða Víkings-
vörn var bókstaflega tætt í
sundur á köfium. Bókstaflega allt
gekk upp hjá Val — og einmitt
þar skildi á miili liðanna. Annars
Staðaní
l.deild
Urslit í leikjum í 1. deild að
undanförnu hafa orðið þessi:
ÍBV-KR 2-0
Valur-Víkingur 4-0
Þór-FH 1-2
Akranes-ÍBV 3-0
Breiðablik-ÍBK 1-1
KR-Fram 1-1
Staðan er nú þannig:
Akranes 9 7 1 1 17-5 15
Valur 9 6 1 2 15-8 13
Víkingur 8 3 4 1 7-7 10*
Keflavik 9 4 2 3 12-13 10
Breiðabiik 9 3 2 4 12-12 8
ÍBV 8 3 1 4 6-8 7
Fram 9 2 : 1 4 11-13 7
FIl 9 3 1 5 11-15 7
KR 9 2 2 5 14-15 6
Þór 9 2 1 6 10-20 5
Markhæstu leikmenn:
Ingi Björn Albertsson, Val, 6
Kristinn Björnsson, ÍA, 6
Pétur Pétursson, ÍA, 6
Sumarliði Guðbjartss. Fram 5
Heiðar Breiðfjörð, Breiðabl. 4
Siguriás Þorleifsson, ÍBV 4
Næstu leikir. Miðvikudag 22.
júní. ÍBV-FH í Vestmannaeyjum,
Breiðablik-Akranes í Kópavogi,
KR-Víkingur á Laugardalsvelli.
Fimmtudagur 23. júní. Valur-
ÍBK á Laugardalsvelli, Þór-Fram
á Akureyri.
Staðan í
2. deild
Urslit leikja í 2. deild:
Haukar-KA 1-0
Reynir S-Þróttur, N 2-2
Reynir, Ar-Völsungur 1-3
Þróttur, R-ísafjörður 3-2
Staðan í 2. deild Ísiandsmótsins
er nú: Haukar 6 3 3 0 8-3 9
KA 6 4 1 1 9-5 9
Þróttur, R. 6 4 1 1 10-6 9
Reynir, S 6 3 1 2 9-8 7
Armann 5 3 0 2 10-4 6
Völsungur 6 2 1 3 6-8 5
ísafjörður 6 2 1 3 6-9 5
Selfoss 5 2 0 3 5-6 4
Þróttur, N. 6 0 3 3 4-9 3
Reynir, Ar. 6 0 1 5 3-12 1
Einn leikur fer fram i kvöld —
Selfossi mæta heimamenn
irmanni.
vegar skæðir framlínumenn Vals
— hins vegar máttlitil sókn
Vikings.
Leikur Reykjavíkurrisanna var
ákaflega skemmtilegur og opinn.
Tony Knapp, landsliðsþjálfari
íslenska landsliðsins, sagði að í
raun hefði átt að fara 7-5 fyrir
Val — slík voru tækifærin.
Fyrir leikinn gegn Val hafði
Víkingur ekki tapað leik síðan 22.
ágúst í fyrra — hafði leikið 13
leiki án ósigurs. Það sýnir ef til
vill öðru fremur hve stór leikur
Vals var á þjóðhátíðardaginn.
Víkingur hefur að vísu ekki
skorað mörg mörk þessa 13. leiki
— en vörnin hefur verið aðall
liðsins. Tengiliðir barizt vel á
miðjunni — en gegn Val var
hvorugt þetta til staðar — óg því
stórsigur Vals, 4-0.
Fljúgandi start Vals öðru frem-
ur gerði út um leikinn — Valur
skoraði úr sínu fyrsta mark-
tækifæri, hins vegar heppnaðist
fátt hjá Víking —þrívegis björg-
uðu varnarmenn Vals er
knötturinn stefndi í net-
möskvana, já, slikur var
leikurinn. Þegar á fjórðu mínútu
lá knötturinn í netmöskvum
Víkings. Bergsveinn Alfonsson
vann knöttinn á miðjum vallar-
helmingi Víkings. Sendi knöttinn
í vítateig Víkings. Þar var fyrir
Dýri Guðmundsson er ætlaþi að
spyrna að marki — hitti knöttinn
illa. Varnarmönnum Víkings mis-
tókst að hreinsa — knötturinn
féll fyrir .fætur Guðmundar Þor-
björnssonaV, sem skoraði með
góðu skoti4f 15 metra færi.
Á 10. njunútu slapp mark Vals
sannarlega. Eiríkur Þorsteinsson
komst inn í vítateig Vals frá
iiægri — hafði betur i návfgi við
Sigurð Dagsson. Knötturinn fór
til Theódórs Magnússonar, sem
sendi knöttinn til Gunnars Arnar
Kristjánssonar. — Gunnar skaut
föstu skoti frá vítateig, Sigurður
lá í vítateignum en Albert
Guðmundsson bjargaði á mark-
línu.
Þrátt fyrir að nokkurt jafnræði
væri með liðunum úti á vellinum,
voru sóknariotur Vals mun
hættulegri. Á 25. mínútu skoraði
Valur sitt annað mark. Albert
Guðmundsson tók aukaspyrnu frá
hægri — sendi vel fyriT markió.
Eins og svo oft í leiknum hikuðu
varnarmenn Vikings — og
Magnús Bergs skallaði knöttinn
í netið, 2-0.
Aðeins sjö minútum síðar
skoruðu Valsmenn sitt þriðja
mark — sannkallað glæsimark.
Guðmundur Þorbjörnsson sendi
knöttinn laglega út á hægri
kantinn til/Alberts Guðmunds-
sonar, sem brunaði upp. — Hann
sendi síðán knöttinn laglega með
hælnum út á vítateigslínu —þar
kom Magnús Bergs á fullu. Skaut
þrumuskoti i stöngina og inn —
3-0, já allt heppnaðist hjá Val.
Þegar á fimmtu mínútu síðari
hálfleiks skoruðu Valsmenn sitt
fjórða mark — enn laglegt mark.
Ingi Björn Albertsson fékk
knöttinn inn i vitateig Vikings —
lék laglega á tvo varnarmenn
Víkings og skaut góðu skoti neðst
i markhornið, 4-0.
Flestir bjuggust við fleiri
mörkum — en Víkingar náðu
betri tökum á leiknum og voru
mun meir með knöttinn, sóttu
mun meir. En ekki tókst þeim að
skora — virtist slíkt alveg fyrir-
munað og þó skorti ekki
tækifærin. Þannig var bjargað á
línu góðu skoti frá Theódóri
Magnússyni og síðan á 40. mínútu
skoti er stefndi neðst í mark-
hornið frá Eiríki Þorsteinssyni —
en bjargað. Dæmigerður leikur
þar sem bókstaflega allt gengur
upp hjá iiðru liðinu — ekkert hjá
hinu. Það er greinilegt að Vals-
menn eru nú mjög að ná sér á
strik eftir-slæma byrjun. Sóknar-
leikurinn er mjög beittur með þá
Guðmund Þorbjörnsson og Inga
Björn hættulega. Vörnin er þétt
— að baki hennar Sigurður Dags-
son öruggur. Sannarlega sýndu
Valsmenn meistaratakta á 17.
júní — og missi Valsmenn þá
Guðmund Þorbjörnsson og
Inga B.iörn ekki úr liðinu í at-
vinnumennsku þá veita Vals-
menn áreiðanlega Skagamönnum
harða keppni um meistaratitilinn.
Vikingar hafa átt í miklum
erfiðleikum í sumar. Þannig hafa
þrír máttarstólpar verið meiddir
— og léku ekki gegn Val, þeir
Róbert Agnarsson, Öskar Tómas-
son og Gunnlaugur Kristfinnsson.
Til að bæta gráu ofan á svart þá
lék Kári Kaaber sárlasinn — var
með hita. Theódór Magnússon lá
og í flensu vikuna fyrir leikinn —
og Eirikur Þorsteinsson meiddist
þegar á 10. minútu og gat ekki
beitt sér sem skyldi. Kári Kaaber
lék sinn 100. leik með Víking —
leikur sem hann sjálfsagt vill
gleyma. Aðeins skugginn af sjálf-
um sér — enda lasinn.
Leikinn dæmdi Ragnar
Magnússon.
h. halls.
Tvær vítaspyrnur og
tveir reknir af velli
— þegar Argentína og Skotland gerðu jafntefli
Ljót brot og mikil harka ein-
kenndu landsleik Argentínu og
Skotlands í Buenos Aires á
iaugardagskvöld. Jafntefli varð 1-
1 og á 55. mín. voru þeir Willie
Johnston og Vicente Pernia
reknir af velli af hinum brazi-
liska dómara ieiksins, Romualdo
Arpi, sem missti öll tök á ieikn-
um.
Skotland náði forustu í leikn-
um á 77. mín. þegar Don Masson
skoraði úr vítaspyrnu. Kenn.v
Dalglish var brugðið innan víta-
teigs — og vítasp.vrna sjálfsögð.
Fjórum min. síðar jafnaði Passa-
rella úr vítaspyrnu fyrir Argen-
tinu. Tom Forsyth, Rangers, hafði
þá ýtt við Trossero innan vitateigs
og virtist sem dómarinn væri þá
að dæma fyrir hina argentínsku
áhorfendur, að sögn Reuters.
Brottreksturinn var svipaður
og í leik Argentinu og Englands
fyrra sunnudag. Pernia sló John-
ston — og var rekinn af velli, en
þegar dómarinn sýndi Johnston
einnig rauða spjaldið hristi WBA-
leikmaðurinn höfuðið og trúði
ekki sínum eigin augum, ná-
kvæmlega eins og Trevor Cherry,
Englandi.
Dómgæzlan var afar slök og að
sögn Reuters hafa ensku og
skozku landsliðsmennirnir velt
því fyrir sér — ef þeir komast í
úrslit HM-keppninnar i Argen-
tinu næsta ár — hvort það borgi
sig ef dómgæzla suður-amerísku
dómaranna verður ekki betri.
Skozka liðið var hið sama og
gegn Englandi á dögunum — sá
leikur var sýndur í sjónvarpinu á
dögunum — nema hvað Manch.
Utd.-leikmennirnir, Martin
Buchan og Lou Macari, hafa verið
fastamenn í liði Skotlands að
undanförnu í stað Leeds-
leikmannanna Gordon McQueen
og Joe Jordan.
Hinn bráðefnilegi Guðni
Tómasson, Armanni, kemur iang-
fyrstur í mark i 100 m hlaupi
pilta á 11.7 sek. DB-mynd Sv. Þ.
Svipminnsta þjóðhátíðarmót í áratugi
Þjóðhátíðarmótið í frjálsum
iþróttum í Reykjavík var hið svip-
minnsta í áratugi hér í höfuð-
borginni. Margt af okkar bezta
frjálsíþróttafólki við æfingar og
keppni erlendis — en nokkrir
góðir heimafyrir madtu ekki til
leiks vegna meiðsla eða af öðrum
ásta'ðum. Fátt var þvi um fina
dradti nema i kúiuvarpi og
kringlukasti.
Þrátl fyrir meiðsii í hné stóð
Hréinn Ilalldörsson, KR, vel fyrir
sinu og afrek hans í kúluvarpinu
20,35 m það langbezta á mötinu.
Fyrir það hlýtur hann forsetabik-
arinn. Óskar Jakobsson, ÍR, var
líka góður. Varpaði 17.24 m og
sigraði i kringiukasti með 55.37
metra.
Að öðru leyti vakti langmesta
athygli, að Sigfús Jónsson, ÍR,
hijóp í báðum riðlum 800 m
hlaupsins með fiinm mínútna
miliibili — og gerði það aö ósk
þjálfara síns. ,,Það næst ekki ár-
angur nema leggja eitthvað á
sig,“ sagði Sigfús eftir á. t fyrri
riðlinum hljóp hann á 2:02.5 mín.
— Gunnar Þ. Sigurðsson, FH,
sigraði á 1:59.4 mín. — en í þeitn
síðari á 2:06.6 mín. og sigraði. Þar
varð 14 ára drengur úr Breiða-
bliki, ('iuöni Sigurjónsson, annar
á 2:13.8 min. 1 3000 m 16. júní
sigraði Sigfús á 8:42.8 min. Þar
setti Guðni Sigurjónsson pilta-
inet, 9:57.6 mín.
Af öðrum úrslitum má nefiia,
að Björn Bliindal. KK. sigraði i
100 m hlaupi á 11.1 sek. og 200 m
á 23.5 sek. Þorvaldur Þórsson, ÍR.
sigraði í 110 m grindahlaupi á
15.4 sek. og 400 m hlaupi á 51.0
sek. og þar er piltur, sem miklu
má búast við af í framtíðinni
Sigurborg Guðmundsdóttir, A
sigraði í 100 m hlaupi á 12.6 sek
og 400 m á 59.6 sek. Valbjörn
Þorláksson. KR. í stangarstökki
3.80 m. Jón Oddsson, HVÍ, í lang
stiikki 6.57 m. Elías Sveinsson
KR, í spjótkasli 59.73 m. Einat
Vilhjálmsson, UMSB. kastaði
56.68 in. Þórdis Gísladóttir. ÍR, i
hástökki 1.69 m. Aðalbjörg Haf-
steinsdóttir. HSK, í 800 m hlaupi
á 2:20.5 min. sem er þriðji bezti
árangur íslenzkrar konu i því
hlaupi. Lára Sveinsdóttir. Á, í
langstiikki með 5.42 m og Guðni
Tómásson, A. í 100 in hlaupi pilta
á 11.7 sek. Aðeins 13 ára. Hle.vpur
injög fallega og áreynslulaust.
Eitt mesta hlaupaefni, sem fram
hefur komið hér á landi.