Dagblaðið - 23.06.1977, Side 9
DACiBLAÐIÐ. FIMMTUDACIUR 23. JUNÍ 1977.
9
\
Hellissandur:
Þessir nýju skuttogarar og loran
C tækin eru alger dauðadómur
— Sigurður Krist jdnsson skipst jdri á Skarðsvíkinni frá Hellissandi lýsir skoðunum sínum umbúðalaust
SÍKurður Kristjónsson skip-
stjóri og aflakóntjur á Skarðs-
vík frá Hellissandi var ómyrkur
i máli er DB ræddi við hann
fyrir skemmstu um aflatak-
inarkanir og stefnu i fiskveiði-
ináluin.
„Það eru allar líkur til þess
að það fari að heyra fortíðinni
til að stunda þorskveiðar að
vetri til. Þannig er útlitið nú.
Það er gegndarlaus ofveiði.
Fyrst hægt var að ganga á
stofninn á ineðan hann var
sterkur er hægur vandi að
ganga þannig frá honum að
hann nái sér aldrei upp."
En itfað er til ráða?
„Við getum tekið dænti. 1
vetur virtist ekki koma ein ein-
asta ganga. Það sem veiddist
var bara það sem var f.vrir hér á
Breiðafirði. Til þess að bjarga
stofninum — það er stóra
spurningin, sem fáir geta
svarað. Ég held að við verðum
að fara eins með þorskinn og
sildina. Það voru örfáir skip-
stjórar sem neituðu að veiða
smásíldina — ég var einn af
þeim. Sjómenn verða sjálfir að
setja stopp á þessa vitleysu.
Þetta getur ekki gengið svona,
þetta stoppar af sjálfu sér
þegar allt er búið. Þó leyft sö að
taka 300 þús. tonn þá er ekki
vigtað það sem fer í sjóinn
aftur. Það hefur tíðkazt allt frá
upphafi togaraútgerðar að
henda þeim fiski sem ekki
hefur verið nógu stór.
En það er einhver alda núna
að tala uin þetta. Það er eins og
þetta sé fyrst að koma fyrir
augu þjóðarinnar núna. Allt
sem keinur í vörpuna er dautt
um leið og það þýðir ekkert að
henda þvi.
Það eru engar ýkjur að 400-
450 þúsund tonn eru drepin.
Það er hrópað núna smáfiska-
dráp — loka, loka. Það er eins
og stjórnvöld séu fyrst að vakna
núna.
Stórkostleg friðun er eina
ráðið. Kn hún verður aldrei
gerð nema sjómenn taki sig til
og neiti þessari djöfuls vit-
le.vsu."
Mikl'jm verðmœtjm lent
„Það er einkennilegt að
aðeins bolurinn er hirtur af
fiskinum. Öllu hinu er hent.
Það er ekki von að sjómenn
hirði afganginn þegar þeir fá
ekkert f.vrir hann. Það þyrfti
að vera tankar um borð í skip-
unum. Við getum ímyndað
okkur þetta, við hendum allri
lifrinni, gotunni og öllu slori.
Það hljóta að vera mikil verð-
mæti í þessu ef þetta næst á
land. Ef aðeins eru 10 —15
þúsund tonn af fiski sem er 10
ára og eldri getum við ímyndað
okkur á hvaða braut við erum.
Þetta er svo lítið að ef
þorskur finnst þá er það eins og
gull. Það er sama þróunin á
öllum sviðum hjá okkur á
meðan aðrar þjóðir hirða hvert
kvikindi."
Kvíðvœnleg framtíð
„Ég horfi með kvíða til fram-
tíðarinnar fyrir þessi, þorp hér
Sigurður Kristjónsson skipstjóri við skip sitt, Skarðsvík. DB-mynd Hörður
við Breiðafjörð ef allt fer sem
horfir. T.d. hefði veðrið í vetur
verið eðlilegt vetrarveður þá
eru líkur á því að vertiðin hefði
verið einum þriðja lélegri en
hún þó varð. En það sér hver
heilvita inaður að það getur
ekki blessazt að hafa 400 tonn
gegnumsneitt á bát. Það vita
allir að netin „sortera" úr
hrygningarfiskinn, hitt fer í
gegn. En togarar og togbátar
hafa verið í smáfiski og fá
kannski 30 tonn í hali á meðan
við á netunum fáum sáralítið.
En í sambandi við netaveið-
ina — þá eru sett lög um neta-
fjölda, en þau eru höfð að engu.
Það fær hver að setja út eins og
honum þóknast. Það er ekki til
þess að lSga hlutina að hver
bátur er með tvöfalt, þrefalt
fleiri net en leyfilegt er. Svo er
þetta tveggja þriggja nátta lega
i sjó. Mönnum finnst ekki taka
því að draga ef lítið er i. Ég tala
nú ekki um síðan skreiðarverk-
un komst i gagnið. Þá skiptir
engu máli hvort fiskur er dags-
eða vikugamall. Verðlagið er
þannig að það skiptir engu
máli. .4 meðan hægt er að negla
fiskinn upp í rárnar er það í
lagi. Enda kaupa þeir fiskinn af
sjálfum sér, en við þessir
karlar, sem seljum til fisk-
vinnslustöðvanna, fáum sára-
lítið fyrir fiskinn.
Alger dauðadómur
„Þessir nýju skuttogarar sem
keyptir hafa verið svo og hin
nýju loran C tæki eru alger
dauðadómur fyrir þorskinn.
Þessi tæki eru svo nákvæm að
það er hægt að staðsetja upp á
metra hvar fiskurinn er og
síðan kemur öll togarastrollan
og mokar upp því sem eftir er.“
- JH
AKUREYRI
íkvöld
ÓLAFSFIRÐI
annaökvöld
SIGLUFIRÐI
laugardagskvöld
•
MIÐGARÐI
sunnudagskvöld
Skemmtan-
irnarhefjast
allarkl. 21,00
Skemmtun
fyriralla
fjölskylduna
Gömulogný
lög—glens,
gríhoggaman