Dagblaðið - 23.06.1977, Blaðsíða 28
Tilraunaþörungavinnsla á vegum heimamanna í sumar:
V
A| r r mt a m — Ríkiðtekuraðsér
Nu a aö treysta
r m jib mm m fjárhagshlið
a nanaoTiumna
„Það varð ljóst um mitt sl.
sumar að þangöflun með þeim
starfsháttum sem þá voru við-
hafðir myndi ekki gera fyrir-
tækið arðbært. Hins vegar eru
kunnugir menn sammála um að
með samstilltri hand- og vél-
öflun megi ná nægilegu magni
til a.m.k. verksmiðjan geti
greitt viðunandi verð fyrir
þangið, og jafnvel til að full-
nýta hana í framtíðinni. Því
gerði stjórnin þær tillögur sl.
haust að reyna áframhaldandi
rekstur, byggðan á nýjum
öflunarháttum, og jafnframt að
leita nýrra verkefna til að nýta
verksmiðjuna utan þang-
vinnslutímans," sagði Vilhjálm-
ur Lúðviksson stjórnarfor-
maður Þörungavinnslunnar í
viðtali við DB í gær.
Nýlega var ákveðið að þjappa
hagsmunaaðilum málsins
saman til að framkvæma til-
lögur stjórnarinnar, sem áður
eru nefndar. Nýju aðilarnir eru
Gufudals-, Reykhóla- og Geira-
dalshreppur auk starfsmanna
verksmiðjunnar og samtaka
þangöflunarmanna. Munu þess-
ir aðilar reka verksmiðjuna til
reynslu í sumar og tekur ríkis-
sjóður á sig fjárhagslega
ábyrgð af rekstrinum og yfir-
tekur skuldir.
Svo sem kunnugt er hefur
reksturinn gengið illa og verið
með halla hingað til, einkum
vegna skorts á heitu vatni og
erfiðleika við þangöflun. Til
þess að fullnýta versmiðjuna
þarf að afla 150 tonna af þangi
á dag, en í sumar er í ráði að
afla 50 tonna á dag, sem talið er
nægilegt til að standa undir
rekstrinum að afborgunum og
skuldavöxtum slepptum.
Svo sem kunnugt er hafa
þangskurðarprammarnir
hvergi nærri aflað þess magns
sem vænzt var. Þegar ljóst var
að þeir skiluðu minna en til
stóð, voru gerðar tilraunir með
handskurð 1974. Þær gáfu ekki
góða raun þar sem einn maður
aflaði ekki nema 1,5 tonna á
dag og hefði því þurft 100
manns til að fullnægja verk-
smiðjunni á þann hátt. Þá var
tekin ákvörðum um kaup á
fleiri prömmum og um leið
samið um hærra afurðaverð, en
reynsla prammanna fór versn-
andi eftir það.
Hins vegar voru gerðar nýjar
tilraunir sl. haust sem leiddu í
ljós að handskurður með aðstoð
prammanna við allan frágang
þangsins til flutnings skiluðu
þrem tonnum á mann eftir
daginn. Það fyrirkomulag á
einkum að reyna í sumar.
Einnig er fyrirhugað að reyna
dælingu í borholunum til að
auka heita vatnið. Sagði Vil-
hjálmur mikinn hug í heima-
mönnum til þessa verks.
í haust verða svo væntanlega
teknar frekari ákvarðanir í
ljósi reynslu sumarsins. í vetur
voru gerðar tilraunir með að
þurrka loðnu í verksmiðjunni
og nýta þannig dauðan tíma. Að
sögn Vilhjálms er full ástæða
til að reyna þann möguleika
frekar þar sem sú vinnsla hafi
komið fjárhagslega vel út. GS.
Tveggja fermetra terta í Skeiðamenn
Þetta er áreiðanlega lang-
stærsta kaka sem bökuð hefur
verið hér á landi, svo það er víðar
en í útlöndum, sem hlutirnir eru
stórir í sniðum! Þessi kaka var
bökuð fyrir 250 manna
þjóðhátíðarkaffi sem hrepps-
nefnd Skeiðahrepps hélt 17. júni.
Bakarinn sem hana bakaði er
Andrés Sigmundsson hjá
Brauðgerð Kaupfélagsins á
Selfossi. 1 kökuna fóru 90 egg, 4
kg af sykri (sem er næstum því
ársneyzla hvers íslendings af
sykii) og 7 kg dósir af
niðursoðnúm apríkósum. Sára-
lítið hveiti fór í lostætið, því þetta
er svampterta. Tertan er bökuð i
þrennu lagi og síðan skeytt
saman, en stærðin er 2 fermetrar.
Það þurfti fjóra fíleflda karl-
menn til þess að bera hana út í
flutningabílinn, sem flutti hana
upp á Skeið.
DB-mynd Kristján Einarsson.
-A.Bj.
Innf lutningur kei luspi Isbrautanna:
SLÍKT ALDREIGERZT ÁÐUR
„Það er eðlilegur gangur
mála að Sölu varnarliðseigna
séu fyrst boðnar til sölu vörur
af Keflavíkurfiugvelli, enda
vörurnar fluttar tollfrjálst inn í
landið,“ sagði Alfreð Þorsteins-
son forstjóri Sölu varnar-
liðseigna er hann var inntur
eftir áliti sínu á innflutningi
nokkurra stórgróssera í Reykja-
vík á notuðum „bowling"-
brautum af Keflavíkurflug-
velli.
Var frá þessu skýrt í DB sl.
þriðjudag, kom þar m.a. fram,
að hlutverk Sölu varnarliðs-
eigna er einmitt að tryggja, að
ríkið verði ekki hlunnfarið við
sölu á vörum ofan af Kefla-
víkurflugvelli inn í landið.
„Ef þeim á Keflavikurflug-
velli finnst Sala varnar-
liðseigna bjóða of lágt, er þeim
heimilt að selja vörurnar sín á
milli, eða flytja þær úr landi,“
sagði Alfreð. „Sölu varnar-
liðseigna hafa ekki enn verið
boðnar umræddar „bowling"-
brautir til kaups“.
„Bowling“-brautir þessar er
ætlunin að flytja fyrst frá
Keflavíkurflugvelli til Eng-
lands, og þaðan verði þær síðan
seldar aftur til íslands. Með
því kemur salan á brautunum
hvergi nálægt Sölu varnarliðs-
eigna eins og vanalegt er, en
sala af þessu tagi mun
einsdæmi, þ.e. að fyrst skuli
flutt frá Keflavíkurflugvelli til
Engíands og vörurnar þaðan til
íslands.
-BH.
frjálst, nháð dagblað
■FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ 1977.
Óleystar
vinnu-
deilur
Lítið verður um hvíld hjá
Torfa Hjartarsyni ríkissátta-
semjara, þótt aðaldeilan sé
frá. í meðferð hjá honum
eru kjaradeilur sjómanna,
blaðamanna, múrara,
pípulagningarmanna og
veggfóðrara og kjaradeila
farmanna er að fara í
hendur hans.
Samningaþófið mun því
halda áfram.
-HH.
Bflvelta
íBiskups-
tungum
Rúta með 46 Þjóðverjum
valt í Biskupstungum rétt
um kvöldmatarleytið í gær-
kvöld. Komu Þjóðverjarnir
hingað til lands með
skemmtiferðaskipinu
Maxim Gorkí og höfðu
brugðið sér í lystireisu
austur fyrir fjall.
Þrettán farþeganna voru
fluttir í slysadeild Borgar-
spítalans, og þurfti að sauma
tvo þeirra, að sögn Sveins
Magnússonar, læknis á
slysadeild. Flestir þeirra
kvörtuðu undan eymslum og
óþægindum og höfðu þá
tognað lítils háttar. Var fólk
þetta flest á efri árum og
hefur vafalaust brugðið við
bílveltuna. Allir fóru aftur
um borð í skipið að aflokinni
skoðun.
Rútan er mikið skemmd
eftir veltuna, hægri hliðin
sem rútan valt á inngengin
og stórskemmd.
-BH.
ÁFRAM
RIGNING í
REYKJAVÍK
—en sólfyrir
norðanog
austan
Daufar vonir eru um sól
fyrir höfuðborgarbúa og
nágranna þeirra í dag og
litlar breytingar sjáanlegar
á næstunni samkvæmt upp-
lýsingum veðurstofunnar í
morgun. Orsök hinnar miklu
rigningar undanfarið eru
kuldaskil, sem lágu óvenju-
lengi yfir landinu. Að sögn
veðurstofunnar var þetta þó
aðeins venjuleg sumar-
rigning, en varð þó alveg
óvenjumikil hjá trafossi, þar
sem sólarhringsúrkoman fór
yfir 100 mm.
t dag er gert ráð fyrir
hægri SV átt og skúrum
sunnanlands og vestan en
bjart verður á Norður og
Austurlandi. Hitinn verður
10-12 stig á Suðurlandi, en
15 stig f.vrir norðan og
austan. -JH.