Dagblaðið - 23.06.1977, Blaðsíða 12

Dagblaðið - 23.06.1977, Blaðsíða 12
12 r ^ Simi 40299 ð&B INNRÉTTINGAR 3 nýjar gerðir af eldhúsinnréttingum, fura, hnota og eik. Uppstilltar á staðnum. — 1-2 mán. afgreiðslufrestur. Tilboð í eftirtalin verk fyrir Hitaveitu Suðurnesja verða opnuð á skrifstofu hitaveitunnar Vesturbraut 10A, Keflavík föstudaginn 1. júlí 1977. 1. Stofnæð Njarðvík — Keflavík 3. áfangi kl. 14.00 2. Dreifikerfi Keflavík 3. áfangi kl. 15.00. > HITAVEITA SUÐ URNESJA GLITRANDI GULL og glæstir steinar HU5IÐ Tökum að okkur að smíða hluti eftir pöntunum og ytSFtigin hugmyndum. Fljót og góð þjónusta. Fjölgum fögrum gripum - gefið góða gjöf. Frakkastíg 7,Reykjavík sími 28519 BÍLDEKk Siluidekk Heilsóluð dekk Ný dekk T0Y0-DEKK fyrír fólksbila, vörubíla ogjeppa O BÍLDEKK 1 ' BORGARTÚNI 24 — SÍMI 16240 DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 23. JtJNl 1977. 17. skoðanakönnun Dagblaðsins: Hvort teljið þér betri ökumenn, konur eða karla? Niðurstöður skoðanakönnunarinnar urðu þessar: Karlar betri---------------86 eða 28%% Konurbetri_________________48eða 16% Jafngóð___________________129 eða 43% Óákveðnir_________________37 eða 12%% „Konurnar eru gætnari en klaufskari“. (Karl á Akureyri). „Konur eru karlmannsígildi í því tilliti sem öðru.“ (Karl í sveit). „Æfingin skapar meistar- ann.“ (Karl á Sauðár- króki). „Konurnar eru skapbetri í umferðinni og um leið gætnari," (Karl á Reykjavíkur- svæðinu). „íslendingar eru allir alveg hörmulegir ökumenn." (Kari á Reykjavíkursvæðinu). „Karlar eru betri, en ég vil skjóta því að að enginn undir tvítugsaldri ætti að fá leyfi til að aka bíi. (Kari á Reykja- víkursvæðinu). „Konan mín klessti bílinn einu sinni, en þá hafði mér þegar orðið það á tvisvar svo að' ætli hún hafi ekki vinninginn sem ökumaður." (Karl á Akur- eri). „Þetta er einstaklings- bundið." (Kona á Patreks- firði). „Ef konur hefðu eins mikia æfingu væru þær jafngóðar, ef ekki betri“. (Karl á Selfossi). „Konur lenda sjaldnar í nokkru." (Kona á Þingeyri). „Ha, ha! Konur eru betri. Ég var í meiraprófinu í fyrra.“ (Kona i Þykkvabæ). „Konur innan við þritugt eru betri ökumenn en karlar innan við þrítugt." (Kona á Reykja- vikursvæðinu). „Slíkt fer ekki eftir kyni heldur æfingu og glögg- skyggni." (Kona á Reykja- víkursvæðinu). Þetta eru nokkur dæmi um svör fólks við spurningunni í skoðanakönnun Dagblaðsins, hvort væru betri ökumenn, konur eða karlar. 330 voru spurðir, helmingurinn konur og helmingur á Reykja- víkursvæðinu. Hringt var í númer á ákveðnum stað í hverri opnu í símaskránni. Hverjum finnst sinn fugl fagur. Nærri helmingur svaraði að hæfni ökumanna færi ekki eftir kyni. Því mætti segja að konur og karlar væru jafngóðir bílstjórar. En áberandi var að hvort kynið vildi nokkuð halda fram sínum hlut, þótt flestir, bæði karlar og konur, veldu þann kostinn að segja „jafn- góð“. Þannig sögðu 49 af 150 körlum, að karlar væru betri bílstjórar en konur, en aðeins 17 að konur væru betri. Af 75 konum sem spurðar voru á Reykjavíkursvæðinu töldu 18 konur betri bílstjóra en 17 karla betri. Flestir í báðum hópum og á báðumsvæðum, sögðu að kynin stæðu jafnt um þetta. Algengt var að fólk segði að konur væru -gætnari ökumenn en karlar en klaufskari eða eitj- hvað í þá átt. Þá kom fram hjá mörgum, sem studdu karlkynið að þeir teldu karla betri af því að þeir einfaldlega hefðu meiri æfingu, ækju bíl oftar en konur. -HH. Innbrot í Hafnarfirði: „DAGFARI” Á FERÐ Bíræfnir þjófar brutust ínn i þrjár íbúðir við Álfaskeið í Hafnarfirði um síðustu helgi. Höfðu þeir þann háttinn á að þeir völdu sér íbúðir þar sein dyraumbúnaðurinn er með ein- földum körmum og einfalt að losa listana sem halda d.vraum- búnaðinum. Einnig böfðu allar þrjár dyrnar hurðarhúna þar setn t einum húni er bæði læsing og opnun d.vranna. Ekkt höfðu þjófarnir mikið upp úr krafsinu mest 50 þúsund krónur í einni íbúðinni. Gengu þeir vel uin íbúðirnar til þess að gera og e.vðilögðu ekki mjög mikið. Málið er i rannsókn hjá rann- sóknarlögreglunni i Hafnar- firði og vill hún benda húseig- endum á ao.ganga trygguega frá d.vrauinbúnaði. Ef listar við dyr eru vel jímdir er erfitt_að brjótast inn/ástæðulaust er að gera innbrmtsþjófum það auð- veldara með slælegum frágangi dyraumbúnaðar. - BH

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.